Morgunblaðið - 01.05.2014, Side 39

Morgunblaðið - 01.05.2014, Side 39
fallegri sveit er erfitt að finna.“ Eftir grunnskóla lá leiðin í Iðn- skólann í Reykjavík að læra raf- virkjun og var Gunnar í síðasta hópnum sem fór í gegnum gamla meistarakerfið. Hann fór á samning hjá Braga Friðfinnssyni rafverk- taka og lauk honum með sveinsprófi í greininni. Hann lauk rafmagns- iðnfræði og iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Íslands 1994. Síðan þá hefur hann unnið hjá fyrirtækjum í innflutningi á rafmagnsvörum í sölu og ráðgjöf. Einnig hefur hann unnið að gerð raflagnateikninga sem lög- giltur raflagnahönnuður. Gunnar var virkur í félagi Round Table 8 árin 1992-2002. Áhugamál „Þau eru nokkur en ef það er hægt að tala um karlmannlega ein- hverfu þá er það sennilega rallakst- ur eða rall almennt. Ég var heil- mikið í kringum það og rallið átti hug minn allan í mörg ár. Keppti sjálfur sem ökumaður og einnig sem aðstoðarökumaður, var í þjónustu- liði, tímavörslu og flestu sem við- kemur ralli. Til að ná góðum árangri í þessu sporti þurfa margir hlekkir í langri keðju að halda og hún er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn. Ég upplifði sigra en líka mörg vonbrigðin, en heilt yfir var þetta skemmtilegt. Félagsskap- urinn í kringum þetta sport er eng- um líkur, snillingar, sérvitringar og auðvitað alvitringarnir sem eru á hliðarlínunni sem aldrei hafa sest upp í rallbíl en vita manna best hvernig á að gera þetta, en engu að síður er stórskemmtilegur sirkus í kringum þetta. Ég hef farið nokkr- um sinnum utan að horfa á þá bestu með berum augum í hópi góðra fé- laga. Skíðin eru okkar fjölskyldusport sem við reynum að stunda eins mik- ið og við getum. Við hjónin höfum farið ófáar ferðir í Alpana, sem eru mitt himnaríki, og ef ég gæti ráðið því myndi ég vilja fæðast þar í næsta lífi. Í eldhúsinu líður mér vel og á margar gæðastundir þar, á mínu náttborði eru matreiðslubæk- ur. Nú er ég nýlega byrjaður í golfi og líst meira en vel á það og sé mest eftir að hafa ekki byrjað fyrr. Jú, einu er ég að gleyma, síðasta haust byrjaði ég í skokkhópi og er að reyna að elta snillingana í Árbæjar- skokki.“ Fjölskylda Eiginkona Gunnars er Elsa Krist- ín Elísdóttir, 20.9. 1966, bókari hjá Sjóvá. Foreldrar hennar eru Elís Rósant Helgason, f. 4.1. 1939, versl- unarmaður í Reykjavík, og Inga Guðríður Guðmannsdóttir, f. 18.3. 1941, prófarkalesari í Reykjavík. Börn Gunnars og Elsu eru Hildur Ösp, f. 4.4. 1996, Hulda Björk, f. 15.10. 2001, og Halldór Viðar, f. 23.7. 2005. Systkini Gunnars eru Pálmar Viggósson, f. 17.4. 1965, viðskipta- stjóri í Reykjavík, Jóhanna Ingi- björg Viggósdóttir, f. 15.7. 1966, sjálfstætt starfandi löggiltur sjúkra- nuddari í Reykjavík, og Fjóla Viggósdóttir, f. 17.6. 1973, hjúkr- unarfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Gunnars eru Viggó Pálsson, f. 24.2. 1936, verkamaður í Reykjavík, og Guðbjörg Lilja Ing- ólfsdóttir, f. 1.1. 1943, húsfreyja í Reykjavík. Úr frændgarði Gunnars Viggóssonar Gunnar Viggósson Lilja Elínborg Jónsdóttir frá Haukagili í Vatnsdal, A-Hún. Eggert Thorberg Grímsson sjómaður, Elliðaey í Breiðaf., síðar verkamaður í Rvík Þorbjörg Eggertsdóttir húsfreyja í Neðri-Dal, V-Eyjafjallahr. Ingólfur Ingvarsson bóndi í Neðri-Dal, V-Eyjafjallahr. Guðbjörg Lilja Ingólfsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðbjörg Ólafsdóttir húsfreyja í Neðri-Dal Ingvar Ingvarsson bóndi í Neðri-Dal Ingibjörg Ólafsdóttir húsfreyja á Núpi Ólafur Ketilsson bóndi á Núpi, V-Eyjafjallahr. Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja á Fit, V-Eyjafjallahr. Páll Guðmundsson bóndi á Fit, V-Eyjafjallahr. Viggó Pálsson verkamaður í Reykjavík Vigdís Pálsdóttir húsfreyja á Fit Guðmundur Einarsson bóndi á Fit Afmælisbarnið Gunnar Viggósson. ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 Anna Jeeves hefur varið doktors- ritgerð sína við Deild erlendra tungu- mála, málvísinda og bókmennta innan Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Þetta var fyrsta doktorsvörnin við Deild erlendra tungumála. Ritgerðin ber titilinn: Relevance and the L2 Self in the Context of Icelandic Secondary School Learners: Learner Views (Gildi og tungumálasjálf íslenskra fram- haldsskólanemenda: Viðhorf nem- enda). Viðfangsefnið í ritgerðinni er við- horf nemenda til enskunáms í skóla og um það hvert gildi formlegs náms er í málaumhverfi þar sem enskan er víða notuð fyrir utan skólastofuna. Nið- urstöðurnar sýna að staða ensku á Ís- landi gerir landið um margt að góðu rannsóknarefni, þar sem enska er not- uð daglega og Íslendingar þurfa mjög góða málfærni bæði í háskólanámi og við vinnu. Hins vegar hefur þessi sterka staða ensku í umhverfinu þau áhrif að sumir skólanemendur telja margra ára enskunám óþarft. Sýnt er fram á að gildi enskunnar birtist sem mjög einstaklingsbundið og breytilegt eftir hugmyndum um notkun hennar í dag, sem var og sem verður. Doktor Doktor í ensku  Anna Jeeves er fædd 19. september 1954. Hún ólst upp í London og stund- aði þar grunn- og framhaldsskólanám. Hún stundaði háskólanám við Univers- ity of Dublin, Trinity College og lauk BA-gráðu í frönsku og ensku 1977. Anna flutti til Íslands 1978 og frá Háskóla Íslands lauk hún diplómagráðu í íslensku fyrir erlenda stúdenta 1980, díplóma í uppeldis- og kennslufræði 1989 og díp- lóma í sérkennslufræðum 2003. MA-gráðu lauk Anna frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands 2008. Anna Jeeves hefur lagt stund á enskukennslu um árabil, bæði við Flensborgarskóla í Hafnarfirði og Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Árin 1996-98 kenndi hún ensku sem annað tungumál í London og tók þar DELTA diplómanám í enskukennslu. Anna er nú enskukennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Eiginmaður Önnu er Frímann Benediktsson, tölvunarfræðingur og sagn- fræðingur, og eiga þau sjö börn af fyrri hjónaböndum. Börn Önnu eru Solveig Edda, Stefán Arthur og Helga Valdís. Stjúpbörnin eru Óskar, Steindór, Margeir Trausti og Brynjar. Barnabörn Önnu eru Alma Ísafold og Katrín Ylfa. 95 ára María Magnúsdóttir 90 ára Hulda Pétursdóttir Kristín Einarsdóttir Kristín Guðmundsdóttir Soffía Stefánsdóttir Unnur Baldursdóttir 85 ára Guðríður Magnúsdóttir Unnur Andrésdóttir 80 ára Aðalbjörg Albertsdóttir Anna Margrét Lárusdóttir Þórunn Haraldsdóttir 75 ára Alda Ingólfsdóttir Guðbjörg Eggertsdóttir 70 ára Gréta Þorbergsdóttir Guðrún Helga Pálsdóttir Helga Magnúsdóttir Karl Albert Manúelsson Krystyna Stachow Þórhallur Steinsson 60 ára Gísli Steindór Þórðarson Guðfinna Sveinsdóttir Guðrún Ásta Einarsdóttir Hafsteinn G. Þórhallsson Hrafnhildur Þorgrímsdóttir Katrín Hilmarsdóttir Magnús Emilsson Perla Chuanchom Rotruamsin Petrea Sæunn Þórólfsdóttir Sæunn Jeremíasdóttir Þorgrímur G. Pálmason Þórey Björk Þorsteinsdóttir 50 ára Halla Signý Kristjánsdóttir Hermann Unnsteinn Guðmundsson Ingibjörg Guðmundsdóttir Jóhann Viðarsson Ómar Örn Bjarnason Sigurborg Sverrisdóttir Wojciech Akimowicz 40 ára Baldur Viðar Jónsson Bekim Veselaj Lilja Sigrún Hafsteinsdóttir Marcin Dariusz Zwierzchowski Margrét Hauksdóttir Ólafur Þór Arason Rósa Guðrún Daníelsdóttir Sigríður Hilmarsdóttir Svala Svavarsdóttir Vanesa Martinez Pastor 30 ára Borghildur Dóra Björnsdóttir Guðmundur Hjalti Sigurðsson Hrafnhildur Hjaltadóttir Jasmin Rexhepi Josef Dolejs Michael Steinn Kristófersson Til hamingju með daginn 40 ára Helga Vigdís er Húsvíkingur og rekur hár- greiðslustofuna Hárform. Maki: Kristinn Jóhann Ásgrímsson, f. 1972. Börn: Mikael Elí Aguilar, f. 1995, Evíta Marín Aguilar, f. 1996, Herdís Mist og Karítas Embla, f. 2006, og Birkir Leví, f. 2007, Kristinsbörn. Foreldrar: Aðalbjörn Þor- móðsson, f. 1949, d. 2002, og Jónasína Arn- björnsdóttir, f. 1945. Helga Vigdís Aðalbjörnsdóttir 30 ára Unnur er alin upp í Kópavogi en býr í Reykjavík og er matráður hjá Sláturfélagi Suður- lands. Börn: Viktor Ísar Stef- ánsson, f. 2001, og Alex- ander Erlar Unnarson, f. 2011. Foreldrar: Árni Guð- mundsson, f. 1955, starf- ar hjá Securitas, og Sig- ríður Huld Konráðsdóttir, f. 1956, kennari. Þau eru bús. í Kópavogi. Unnur Svanborg Árnadóttir 30 ára Brynja Vala er Ak- ureyringur, fædd þar og uppalin, er viðskiptafræð- ingur og vinnur hjá Arion banka á Akureyri. Maki: Sveinn Þorkelsson, f. 1988, viðskiptafræð- ingur og vinnur hjá Landsbankanum. Foreldrar: Guðmundur Hrafn Brynjarsson, f. 1956, og Bryndís Reynis- dóttir, f. 1956. Þau vinna bæði á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Brynja Vala Guðmundsdóttir Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta í 90 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.