Morgunblaðið - 20.05.2014, Page 4

Morgunblaðið - 20.05.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2014 Kerfið stóðst snarpt álag Kerfið sem sett var upp til að taka við umsóknum um leiðréttingu fast- eignaveðlána stóðst snarpt álag sem varð á fyrsta sólarhringnum eftir að opnað var fyrir umsóknir. Mesta álagið var eftir kvöldfréttir í fyrra- kvöld og þá voru 1.200 manns sam- tímis inni á umsóknavefnum. Ríkisskattstjóri hefur ráðið átta nýja starfsmenn til að vinna að leið- réttingunni. Koma þeir til viðbótar starfsmönnum sem teknir eru úr öðrum verkum. Þar á meðal eru tæknimenn og fimm starfsmenn úr þjónustuveri ríkisskattstjóra á Ak- ureyri. Alls eru þetta rúmlega tutt- ugu starfsmenn. Þar fyrir utan er verkefnisstjórn leiðréttingarinnar í fjármálaráðuneyti, starfsmenn tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækja, auk hóps manna frá fjármálafyrirtækj- unum. Margir kynna sér málin Samkvæmt upplýsingum Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskatt- stjóra höfðu 22 þúsund manns sótt um leiðréttingu fasteignalána síð- degis í gær. Umsóknirnar eru færri því talin er hver kennitala og hjón sem eru með sameiginlegan fjárhag teljast tveir umsækjendur. Fleiri hafa verið að kynna sér mál- in því síðdegis í gær höfðu 39 þúsund skoðað vefinn í alls 47 heimsóknum og flett alls 261 þúsund síðum. Þá höfðu um 16 þúsund manns skoðað kynningarmynd- band um umsókn- arferlið. Umsókn- irnar fara í gegnum netþjóna hjá Advania og stóðst kerfið álag- ið vel. „Þetta er snarpt álag. Það hafa komið held- ur fleiri umsóknir en við reiknuðum með. Það kemur til dæmis á óvart að heimsóknir komu frá 80 þjóðlönd- um,“ segir Skúli. 93% heimsókna á vefinn voru frá Íslandi, næstflestir voru í Noregi. Skúli telur líklegt að nú hægist um en býst við öðrum toppi í lok ágúst þegar umsóknarfresti lýkur. Sumar- ið fer í að búa til hugbúnað til að reikna úr lækkun fasteignalánanna og að taka við gögnum frá fjármála- fyrirtækjum. Verið er að undirbúa umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á fasteignaveðlán. Reynt verður að hefja móttöku umsókna í kringum næstu mánaðamót. Skúli tekur fram að sú umsókn verði flóknari því um- sækjendur þurfi að taka afstöðu til þess hversu miklum séreignarsparn- aði þeir vilja ráðstafa með þessum hætti og inn á hvaða veðlán. Búast megi við meiri þjónustu við umsækj- endur í því ferli en við leiðrétt- inguna. helgi@mbl.is Skúli Eggert Þórðarson  Yfir 20 starfsmenn við leiðréttinguna Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vorið er einstaklega gott sunnanlands og vestan. „Þetta verður dásamlegt sumar og við gleymum öllum slæmu árunum,“ segir Elvar Eyvindsson, bóndi á Skíðbakka II í Landeyjum. Hann telur að sláttur geti hafist fyrr en oftast áður og á von á góðu kornári. „Það kemur yfirleitt eitthvert bakslag þegar vel vorar, kuldar eða rigningar. Núna hjálpast allt að, það rignir hæfilega og svo hlýnar smám saman. Það getur ekki verið betra,“ segir Elvar. Gróður hefur svarað þessum aðstæðum vel. Grasið sprettur sem aldrei fyrr. Það kæmi Elvari ekki á óvart þótt bestu túnin yrðu tilbúin til slátt- ar fljótlega upp úr mánaðamótum en gott hefur þótt að byrja slátt um miðjan júní. „Ég hóf slátt 31. maí eitthvert árið til að komast á spjöld sög- unnar. Ég hef grun um að nokkrir verði til að slá því við og komast á spjöld sögunnar þetta árið.“ Kornið hefur tekið vel við sér, á ökrum sem sáð var snemma í, og er komið vel upp úr mold- inni. Sums staðar er það orðið 10-12 sentímetra hátt. Kúnum hleypt út í vikunni „Það lítur vel út með gróður. Túnin eru falleg, koma iðjagræn undan vetri og ekki vottar fyrir kali,“ segir Benjamín Baldursson, bóndi á Ytri- Tjörnum í Eyjafjarðarsveit. Þar er komin beit fyrir kýr og reiknar hann með að hleypa þeim út í þessari viku. Bændum tókst að sá korni á góð- um tíma, eða fyrstu dagana í maí. Það eru aðeins farnar að sjást nálar koma upp úr moldinni svo vel lítur úr með kornþroska. Heldur kalt var í Eyjafirði í gær en Benjamín taldi ekki að það hefði mikil áhrif því spáð væri hlýnandi veðri. Vorverkin eru enn í fullum gangi. Þótt veðrið leiki við bændur í Eyjafjarðarsveit og hvergi sé snjór á láglendi er ótrúlega mikill snjór í fjöllum. „Sigtúnafjallið er nánast alhvítt,“ sagði Benjamín og settist upp í dráttarvélina til að ljúka áburðardreifingu. „Ég er ekki minnisgóður á veður. Slæmu árin gleymast fljótt, þegar vel viðrar,“ segir Elvar um samanburð við síðustu ár. Hann spáir góðu hausti líka. Ekki dró það úr honum þegar gamall maður sagði honum að sumarið yrði gott og vitn- aði til þess að tjaldurinn verpti nú þremur eggj- um í stað tveggja. Góð spretta í grasi og korni  Einstaklega gott vor sunnanlands og vestan  Hæfileg rigning og hlýindi  Búist við að sláttur hefjist um mánaðamót  Komin beit fyrir kýr í Eyjafirði Ljósmynd/Elvar Eyvindsson Hæð Rýgresi nálgast hæð eins lítra súrmjólkurfernu og er að þéttast. Samtals 86 ferðir » Alls 86 leggir á flugáætlun Icelandair hafa fallið niður vegna verkfallsaðgerðanna. » 29 flugferðir féllu niður 9. maí, 21 ferð 11. maí, 6 ferðir 12. maí, 3 ferðir 13. maí og 4 ferðir 14. maí. » Þá féllu niður 5 flugferðir 15. maí, 1 ferð 16. maí, 4 ferðir 17. maí, 3 ferðir 18. maí og 10 í gær. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ótímabundið yfirvinnubann hjá Flugfreyjufélagi Íslands hefur þegar raskað áætlunarflugi Icelandair og kemur til viðbótar áhrifum þess að flugmenn neita að vinna yfirvinnu. Yfirvinnubannið hófst kl. 6 að morgni sl. sunnudags og boða flug- freyjur svo verkfall frá kl. 6 og til miðnættis næsta þriðjudag. Frekari aðgerðir eru svo boðaðar. Sigríður Ása Harðardóttir, for- maður Flugfreyjufélags Íslands, segir mikið bera í milli í kjaravið- ræðum félagsins við Icelandair. „Við höfum ekki fundað með fulltrúum Icelandair síðan fyrir helgi. Fundi sem var boðaður á fimmtudaginn kemur var flýtt um tvo daga en svo var því breytt. Það verður því enginn fundur fyrr en á fimmtudag. Staðan milli viðsemj- enda er því óbreytt.“ Vilja lítið ræða við okkur „Við fáum mjög lítið til baka frá fyrirtækinu. Fulltrúar Icelandair hafa lítið vilja ræða við okkur. Þeir vilja ekki semja til lengri tíma. Við erum að karpa um túlkun á aðfara- samningnum, hvar þessi 2,8% launa- hækkun eigi að byrja. Það strandar á því. Við skrifuðum ekki undir aðfara- samning heldur litum svo á að við hefðum tækifæri til að semja til lengri tíma við okkar fyrirtæki. Það er hins vegar hvorki vilji Samtaka atvinnulífsins né Icelandair að gera það. Þeir bjóða okkur samning til 1. febrúar 2015,“ segir Sigríður Ása. Að mati Hafsteins Pálssonar, for- manns Félags íslenskra atvinnuflug- manna, er ólíklegt að flugmenn hjá Icelandair taki að sér yfirvinnu, sé þess óskað, næstu vikur, fari svo að kjaraviðræðum ljúki 1. júní án lausn- ar og komi til kasta gerðardóms, sem skal ákveða kjörin fyrir 1. júlí. En sem kunnugt er voru lög sett á verk- fallið 15. maí. Ákvörðunar gerðardóms beðið Spurður hvort það muni hafa áhrif á afstöðu félagsmanna hjá Icelandair til yfirvinnu, ef gerðardómur tekur til starfa í júní, segir Hafsteinn of snemmt að segja til um það. „Þetta er mjög óvenjuleg staða að réttindi heils stéttarfélags séu num- in burt með lögum og sett í gerðar- dóm. Ég veit að lögreglumenn voru ekki glaðir með það sem gerðardóm- ur úthlutaði þeim. Auðvitað ræðst af- staða flugmanna mikið af því hver ákvörðun gerðardóms verður.“ Lífeyrissjóður verzlunarmanna er stærsti hluthafinn í Icelandair Gro- up með 14,58% hlut. Markaðsverð- mæti félagsins er áætlað 85,25 millj- arðar króna og er verðmæti hlutar sjóðsins því um 12,4 milljarðar. Ásta Rut Jónasdóttir, formaður stjórnar sjóðsins, segir hluthafa eðli- lega hafa áhyggjur af stöðunni. „Auðvitað hafa allir áhyggjur af því. Það er allra hagur – og starfs- manna Icelandir líka – að fyrirtæk- inu gangi vel. Hagsmunirnir fara saman hvað það varðar.“ Hún segir heildarverðmæti eigna- safns sjóðsins yfir 450 milljarða. Hluturinn í Icelandair er því tæp 3% af öllum eignum. Gengi bréfa í Ice- landair er nú 17,05 en var t.d. 17,35 hinn 30. apríl, áður en verkfalls- aðgerðir flugmanna hófust. Stefnir í verkfall hjá flugfreyjum  Formaður Flugfreyjufélags Íslands segir fulltrúa Icelandair lítið vilja koma til móts kröfur flugfreyja  Formaður FÍA útilokar ekki að yfirvinnubann flugmanna hjá Icelandair haldi út allan júnímánuð Fátt er meira endurnærandi en að fara út að hreyfa sig þegar sólin skín, ekki síst í hópi góðra vina. Þessir drengir sættu lagi og létu ljós sitt skína með tilþrifum eins og þessum á körfuboltavellinum. Morgunblaðið/Golli Í dauðafæri við berskjaldaða körfu Sólin brosir við körfuboltaköppum í borginni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.