Morgunblaðið - 20.05.2014, Síða 6

Morgunblaðið - 20.05.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2014 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon, þingmað- ur Vinstri grænna, er ræðukóngur nýafstaðins þings. Steingrímur tal- aði lengst allra á 143. löggjafar- þingi Alþingis sem hófst 1. októ- ber sl. og lauk 16. maí. Hann talaði samtals í 1.615 mínútur úr ræðu- stól þingsins eða í tæpar 27 klukku- stundir samtals, flutti 179 þing- ræður og gerði 290 athugasemdir. Steingrímur var fyrr á árum margfaldur ræðukóngur Alþingis eða þar til Pétur H. Blöndal, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, tók við titlinum en hann var ræðukóngur fimm þing í röð allt til ársins 2012. Pétur komst ekki í hópinn Pétur er að þessu sinni ekki í hópi þeirra tíu þingmanna sem töluðu lengst á nýafstöðnu þingi. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, er þar í öðru sæti og talaði samtals 1.156 mínútur eða rúmlega 19 klst. Hann flutti 140 þingræður og gerði 274 athuga- semdir úr ræðustól þingsins. Bjark- ey Gunnarsdóttir, þingmaður Vg, er í þriðja sæti. Hún talaði í 1.074 mín- útur eða í tæplega 18 klst. Fimm þingmenn Vg eru í hópi þeirra tíu þingmanna sem töluðu mest á þinginu og fjórir þingmenn Samfylkingarinnar. Bjarni eini stjórnarliðinn Bjarni, fjármálaráðherra og for- maður Sjálfstæðisflokksins, er eini stjórnarliðinn sem kemst á lista yfir þá þingmenn sem töluðu mest. Bjarni vermir 5. sætið, talaði í 1.031 mínútu og tók til máls í 334 skipti. Mikil endurnýjun varð í hópi þing- manna í kjölfar alþingiskosninganna fyrir ári þegar 27 nýir þingmenn tóku sæti á þingi. Nýir þingmenn eru áberandi í hópi þeirra sem töl- uðu minnst á nýafstöðnu þingi. Jóhanna María Sigmundsdóttir, Framsóknarflokki, er sá þingmaður sem talaði styst eða í samtals 55 mínútur. Hún flutti 15 þingræður og gerði tvisvar athugasemdir. Fjöldi varaþingmanna tók sæti um skemmri eða lengri tíma á nýaf- stöðnu þingi. Ólafur Þór Gunnars- son, þingmaður Vg, var sá varaþing- maður sem talaði mest eða í samtals 188 mínútur. Alls fluttu alþingismenn 5.061 þingræðu á seinasta löggjafarþingi, í tæplega 337 klst. samtals, og at- hugasemdir voru gerðar í 6.123 skipti . Steingrímur J. ræðukóngur  Steingrímur talaði í 27 klukkustundir úr ræðustól á liðnum vetri  Fimm þingmenn VG og fjórir úr Samfylkingu meðal þeirra tíu sem töluðu mest Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi 1 Steingrímur J. Sigfússon 1.615 mín 2 Árni Páll Árnason 1.156 mín 3 Bjarkey Gunnarsdóttir 1.074 mín 4 Guðbjartur Hannesson 1.061 mín 5 Bjarni Benediktsson 1.031 mín 6 Lilja Rafney Magnúsdóttir 941 mín 7 Helgi Hjörvar 937 mín 8 Katrín Jakobsdóttir 925 mín 9 Árni Þór Sigurðsson 883 mín 10 Össur Skarphéðinsson 873 mín Þingmenn sem skemmst töluðu 1 Jóhanna María Sigmundsd. 55 mín 2 Haraldur Einarsson 67 mín 3 Þórunn Egilsdóttir 76 mín 4 Líneik Anna Sævarsdóttir 78 mín 5 Elín Hirst 86 mín Steingrímur J. Sigfússon 20 þingmenn stjórnarand- stöðunnar samþykktu ekki frumvarp til lokafjárlaga árs- ins 2012 þegar það var sam- þykkt sem lög á seinasta þingfundi Alþingis, heldur sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una. Frumvarpið er endanleg staðfesting á fjárlögum fyrri ríkisstjórnar fyrir árið 2012 og á niðurstöðu ríkisreikn- ings. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu að fjárlaganefnd hefði ekki gefist kostur á að fara yfir frumvarpið með til- hlýðilegum hætti og algjör- lega ónógur tími gæfist til þess. Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður VG, sagði í þing- ræðu að vegna þessa gæti minnihlutinn í fjárlaganefnd ekki samþykkt frumvarpið. Vigdís Hauksdóttir, for- maður fjárlaganefndar, sagði merkilegt að þingmenn VG og Samylkingarinnar sætu hjá við atkvæðagreiðslu um lokafjárlög 2012, „sem sagt þingmennirnir treysta sér ekki til þess að samþykkja sinn eigin ríkisreikning eða þau fjárlög sem þeir fylgdu árið 2012“. 20 þingmenn sátu hjá LOKAFJÁRLÖG 2012 Uppsafnað áhorf á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var 83% í aldurshópnum 12-80 ára á Ríkissjón- varpinu, samkvæmt mælingum Capacent. Um 201.000 landsmenn horfðu á Pollapönk flytja lagið No Prejudice, eða Enga fordóma, á laugardaginn 16. maí sl. Mesta áhorfið á Norðurlöndum „Áhorfið var frábært. Það er alla jafna mikið áhorf á Eurovision á Ís- landi. Miðað við aðrar Norður- landaþjóðir erum við með mesta áhorfið. Áhorfið sýnir hversu mikinn áhuga íslenska þjóðin hefur á þess- um viðburði og sýnir mikilvægi keppninnar,“ sagði Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Ríkis- sjónvarpsins. Hann segir að Eurovision skili þó- nokkrum tekjum. Það sé gott fyrir stofnunina og einnig samfélagið í heild. „Eitt af hlutverkum stofn- unarinnar er að sameina þjóðina. Það verður sífellt erfiðara með breyttu fjölmiðlaumhverfi. Þegar Eurovision er annars vegar þá lyft- ist samfélagið upp og fólk sameinast þrátt fyrir jafnvel neikvætt ástand í samfélaginu eins og verkföll og ann- að af þeim toga.“ Þó að áhorfið á Pollapönk teljist býsna gott þá nær það þó ekki mesta áhorfi sem hefur mælst á Söngva- keppnina. Það er 92,3%, þegar Jó- hanna Guðrún flutti lagið Is it true, árið 2009 en þá lenti hún í öðru sæti. Fimmta mesta áhorfið frá 2008 Áhorfið á aðalkeppnina í ár er það fimmta mesta frá árinu 2008. Þá mældist uppsafnað áhorf á undan- keppnina, þegar Pollapönk komst áfram í aðalkeppnina, 80,3%. Á bak við þann fjölda eru um 195 þúsund manns. Hera og Eyþór Ingi jafnvinsæl Árið 2013, þegar Eyþór Ingi flutti lagið Ég á líf, var áhorfið um 85% á aðlakeppnina. Það áhorf var svipað og þegar Hera Björk fór fyrir Ís- lands hönd árið 2010 og söng lagið Je Ne Sais Quoi. Ef skoðað er áhorfið á þær undan- keppnir þegar Ísland hefur tekið þátt, þá er áhorfið alla jafna minna á hana en á sjálfa aðalkeppnina, nema í eitt skipti. Það var árið 2012 þegar Greta Salóme og Jónsi fluttu lagið Never forget, þá var áhorfið á und- ankeppnina 84,6% en á aðalkeppnina náði það 80,3%. thorunn@mbl.is 83% áhorf á Polla- pönk í Eurovision  Jóhann Guðrún á enn metið, 92,3% áhorf árið 2009 Áhorf á Eurovision 2014 Pollapönk No Prejudice 2013 Eyþór Ingi Ég á líf 2012 Gréta Salóme & Jónsi Never forget 2011 Vinir Sjonna Coming home 2010 Hera Björk Je Ne Sais Quoi 2009 Jóhanna Guðrún Is it true? 2008 Eurobandið This is my life 0% 40% 80%20% 60% 100% 83,0% 85,6% 80,3% 80,8% 85,7% 92,3% 91,4% Þeir leikir sem Aron Jóhannsson mun leika fyrir bandaríska landsliðið á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Brasilíu í sumar verða í lokaðri dag- skrá á Stöð tvö sport. 365 miðlar keyptu sýningarrétt á 18 leikjum af 64 á HM af Ríkisútvarpinu. Þar á meðal eru allir leikir með bandaríska liðinu. Aron er fyrsti og eini Íslend- ingurinn sem spilar á HM. Dýrt að sýna HM-leiki „Það er dýrt að sýna frá heims- meistaramótinu í fótbolta. Við erum að sýna ákveðna ábyrgð með því að selja réttinn á þessum leikjum, þar sem ljóst er að Ríkisútvarpið er rek- ið með halla á árinu,“ sagði Skarp- héðinn Guðmundsson, dagskrár- stjóri Ríkissjónvarpsins. Ekki fékkst uppgefin sú upphæð sem greidd var fyrir leikina 18, en um „verulegar fjárhæðir“ er að ræða. Skarphéðinn segir að veitt sé sama þjónusta og árið 2010. Þá voru einnig seldir leikir til 365 miðla. „Ef við myndum sýna alla leikina þá yrði nánst ekkert nema fótbolti í sjónvarpinu. Þó að mótið sé stórt þá er ekki forsvaranlegt að leggja alla sjónvarpsdagskrána undir það,“ seg- ir Skarphéðinn. Um er að ræða 10 leiki í riðla- keppninni sem sýndir eru klukkan 10 á kvöldin. Þegar þeim leikjum lýkur verða þeir sýndir í opinni dag- skrá á RÚV um miðnætti. Leikirnir eru í fyrstu tveimur um- ferðunum, tíu leikir eru sýndir klukkan 10, fjórir leikir klukkan fjögur og fjórir leikir klukkan átta. „Þetta eru leikir með vinsælustu lið- unum sem sýndir verða hjá okkur,“ sagði Hjörvar Hafliðason, dagskrár- stjóri Stöðvar tvö sport. Auk leikja með bandaríska liðinu er m.a. um að ræða leiki með Englandi, Þýska- landi, Frakklandi, Spáni, Portúgal og Brasilíu. thorunn@mbl.is Leikir Arons á HM í lokaðri dagskrá  Dagskrárstjóri segir RÚV sýna ábyrgð EPA Fótbolti Aron Jóhannsson verður fyrsti Íslendingurinn til að spila á HM. Lækkanir ýmissa gjalda sem ríkis- stjórnin lofaði í tengslum við gerð kjarasamninga á almenna vinnu- markaðinum, voru lögfestar á sein- asta degi þingsins. Lækkanirnar taka gildi 1. júní en á þessu hafa orð- ið miklar tafir því þær áttu að verða þegar samningarnir voru gerðir í vetur að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ. ,,Gjaldskrárlækkan- irnar áttu að koma miklu fyrr til framkvæmda,“ segir hann og bætir við að hafa þurfi samráð við ríkis- stjórnina um þá mánuði sem upp á vantar. ,,Við borguðum hærri gjöld í fjóra mánuði,“ segir hann. Gylfi segir að stóra óleysta málið sem snýr að stjórnvöldum varði efnahagsstefnuna og peningamálin. ASÍ hefur gagnrýnt að ríkisstjórn og sveitarfélög hafi að undanförnu samþykkt veruleg frávik frá megin- línu almennu kjarasamninganna frá í vetur. Viðræður á næstunni munu mótast af því að félagsmenn ASÍ fái sambærilegar leiðréttingar og aðrir, að sögn Gylfa. „Menn gera sér grein fyrir því að það mun þýða meiri átök á vinnumarkaði.“ Morgunblaðið/Eggert Lagasetning Ýmis gjöld munu lækka frá og með 1. júní. „Borguðum hærri gjöld í 4 mánuði“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.