Morgunblaðið - 20.05.2014, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 140. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Starfsmenn Icelandair grýttir
2. Réðust á mann sem góndi á þær
3. Fjögurra ára morðgáta leyst
4. Sigmar hyggst láta af störfum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikasýningin Meatloaf – Bat
out of Hell var haldin tvisvar fyrir
fullri Eldborg í Hörpu um helgina og
fögnuðu gestir ákaft flutningi fjölda
tónlistarmanna á sívinsælli plötu
Meatloaf, Bat out of Hell, og risu
ítrekað úr sætum. Söngvararnir
Matthías Matthíasson, Eiríkur Hauks-
son, Stefanía Svavarsdóttir, Friðrik
Ómar, Dagur Sigurðsson, Heiða
Ólafsdóttir, Stefán Jakobsson og
Erna Hrönn fluttu lögin ásamt hljóm-
sveit. Í tilkynningu segir að mikil eft-
irspurn sé nú eftir aukatónleikum og
því sé verið að kanna möguleikann á
því að endurtaka leikinn innan tíðar.
Ljósmynd/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Mikil eftirspurn eftir
aukatónleikum
Listasafn Samúels býður til
Sambahátíðar í Iðnó annað kvöld kl.
20 í þeim tilgangi að safna fé til að
reisa aðstöðuhús í Selárdal í sumar
svo lista- og fræðimenn geti gist
þar og unnið að verkum sínum við
ysta haf, eins og segir í tilkynningu.
Meðal þeirra sem koma fram annað
kvöld eru dj. flugvél og geimskip,
Sin Fang, Ghostigital, Helíum og
VÍÓ. Aðgangseyrir verður 1.000 kr.
og eru frjáls framlög einnig vel þeg-
in auk þess sem minjagripir og
hollvinaskírteini verða til sölu. Hóp-
ur sjálfboðaliða hefur
undanfarin sum-
ur unnið að
endurbótum og
viðgerðum á
byggingum og
einstökum
styttum lista-
mannsins Sam-
úels Jónssonar
í Selárdal.
Safnað fyrir aðstöðu-
húsi á Sambahátíð
Á miðvikudag Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað með
köflum og þurrt að kalla. Hiti 5 til 12 stig.
Á fimmtudag Suðvestan 3-10 m/s, skýjað og lítilsháttar væta
vestanlands, þurrt og víða bjart fyrir austan. Hiti 5 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðvestlæg eða breytileg átt, skýj-
að með köflum og smáskúrir, en víða bjartviðri norðaustantil.
VEÐUR
Daninn Patrick Pedersen
skoraði tvö mörk í fyrsta
leik sínum fyrir Val á þess-
ari leiktíð þegar liðið vann
sigur á Fram í Pepsi-
deildinni í knattspyrnu í
miklum markaleik, 5:3. Þar
með komst Valur upp fyrir
KR og í 5. sæti deildarinnar.
Fylkir vann annan sigur sinn
í röð þegar liðið lagði Víking
R. að velli, 2:1, þar sem Sví-
inn Sadmir Zekovic skoraði
sigurmarkið. »2-3
Valur upp í 5. sæti
eftir markaveislu
Hollendingurinn Louis van Gaal fær
það hlutverk að koma Manchester
United aftur í fremstu röð en hann
var í gær ráðinn knattspyrnustjóri fé-
lagsins til næstu þriggja ára. Van Ga-
al bíður krefjandi og erfitt starf á Old
Trafford en tímabil
rauðu djöflanna í
ár var afleitt og
ljóst er að fram-
undan eru tals-
verðar manna-
breytingar á
liðinu. »1
Krefjandi og erfitt starf
bíður Hollendingsins
Svo kann að fara að félagslið geti neitað
leikmönnum sínum um leyfi til þess að
taka þátt í landsleikjum í handknattleik á
næstu árum. Verði mál sem 30 félög í
Þýskalandi unnu fyrir skömmu gegn
þýska handknattleikssambandinu stað-
fest geta félagslið neitað leikmönnum
sínum um leyfi til þátttöku í alþjóðlegum
verkefnum og það gæti komið sér mjög
illa fyrir íslenska landsliðið. »1
Dómsmál gæti bitnað
á íslenska landsliðinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skólahljómsveitin Rassar var stofn-
uð í Héraðsskólanum á Núpi í Dýra-
firði fyrir 45 árum og spilar aftur í
skólanum um næstu helgi en á
fimmtudag og föstudag verður hún
með tónleika á Ísafirði. Í hljómsveit-
inni eru kunnir tónlistarmenn, Egill
Ólafsson, sem hefur gert garðinn
frægan einn sem og með ýmsum
böndum, og Rúnar Þór Pétursson,
sem er meðal annars í hljómsveitinni
Klettum. Með þeim leikur stofnandi
bandsins, Benedikt H. Benediktsson,
fyrrverandi lögreglufulltrúi.
Strákarnir hafa æft saman síðan í
mars og ætla að rifja upp gamla
takta. Þeir voru saman í skólanum
veturinn 1969/1970. „Ég var í skól-
anum veturinn áður og var þá í skóla-
bandinu Love,“ rifjar Benedikt upp.
„Þegar Egill og Rúnar Þór komu í
skólann haustið 1969 fannst mér upp-
lagt að stofna nýja skólahljómsveit.“
Samkeppni um nafn á bandinu fór
fram á skólaballi. „Egill hafði fót-
brotnað og var á hækjum þannig að
nokkrar tillögur komu með nafninu
Hækjur,“ segir Benedikt. „Mér
fannst Rassar eðlilegt enda nafnið í
höfuðið á stærsta vöðvanum,“ segir
Rúnar Þór. „Vegna nafnsins fengum
við ekki að fara með hljómsveitina út
af skólalóðinni en nú er okkur það
frjálst. Þess vegna ætlum við að nota
tækifærið og koma við á Ísafirði á
leið okkar í Dýrafjörðinn. Við von-
umst til þess að sjá sem flesta í Hús-
inu.“
Öflugt band
Rúnar Þór og Egill voru sjóaðir
tónlistarmenn, þegar þeir komu að
Núpi. „Ég kom sæmilega undirbúinn
að Núpi, hafði spilað með kunnum
mönnum og verið í tónlistarskólanum
á Ísafirði,“ segir Rúnar Þór. Hann
bætir við að Rassar hafi staðið mjög
framarlega og verið mjög góð sveit.
„Við Egill skiptum alltaf á hljóð-
færum. Hann tók öll lögin sem hann
kunni og söng þau og þegar hann var
búinn með sitt fór hann á gítarinn og
ég tók bassann. Svo var Benni
skemmtilegur trommari.“
Egill leggur áherslu á að skólinn
hafi verið góð menntastofnun og mik-
ið hafi verið að gera fyrir kraftmikla
stráka. Þeir hafi verið í fimleika-
flokkum, verið með leiksýningar og
hann sungið í kirkjukórnum. „Við í
bandinu höfðum allir töluverða
reynslu í tónlistinni og gerðum okkar
útsetningar af lögum,“ segir hann.
Piltarnir segja að þeir hafi helst
hlustað á Blind Faith, Steppenwolf,
Jethro Tull og annað í svipuðum dúr.
„Við hlustuðum á framsækna tón-
list,“ segir Egill.
Rassar á Núpi eftir 45 ár
Benedikt, Egill
og Rúnar Þór
spila saman á ný
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Núpsbandið Rassar Rúnar Þór Pétursson, Benedikt H. Benediktsson og Egill Ólafsson.
Nemendur Héraðsskólans á Núpi í
Dýrafirði á árunum 1969 til 1974
koma saman á Núpi um næstu
helgi, 23.-25. maí, og gera sér
glaðan dag. Sigríður J. Valdimars-
dóttir, talsmaður nemenda, segir
að um 150 manns úr þessum hópi
hafi komið saman á Núpi fyrir
þremur árum. Fyrir 40 árum hafi
verið 105 nemendur í Núpsskóla
en árið áður 157 og 184 með kenn-
urum og starfsmönnum. Það hafi
verið fjölmennasta skólaárið á
Núpi. Boðið verður upp á viðamikla
dagskrá frá föstudegi til sunnu-
dags. fyrsta kvöldið verður óform-
leg kvöldvaka og meðal annars
sýnd stuttmyndin Gláma sem ger-
ist á Núpi. Á laugardag verður dag-
skrá frá morgni til kvölds og lýkur
með dansleik þar sem skóla-
hljómsveitin Rassar spilar eftir að
hafa verið með tónleika á Ísafirði á
fimmtudags- og föstudagskvöld.
Viðamikil dagskrá
NEMENDUR HÉRAÐSSKÓLANS Á NÚPI HITTAST