Morgunblaðið - 24.05.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014
Gr
eið
slu
mi
ðlu
n
Vissir þú að . . .
Með ferlum Alskila í
greiðslumiðlun tryggjum
við viðskiptavænt viðmót
fyrir þína greiðendur!
Alskil hf • Sími: 515 7900 • alskil@alskil.is • www.alskil.is
Ka
nnaðu Málið!alskil.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðríður Guðbrandsdóttir, elsti nú-
lifandi Íslendingurinn, hélt í gær
upp á 108 ára afmælið í faðmi fjöl-
skyldunnar. Það var létt yfir af-
mælisbarninu þegar blaðamann og
ljósmyndara bar að garði og sagðist
hún hafa það gott, enda umkringd
góðu fólki. Afkomendur Guðríðar
eru alls 56 talsins.
Guðríður, sem fæddist 23. maí
1906 á Spákelsstöðum í Laxárdal,
býr í Furugerði 1 og kann vel við
sig þar. „Það er hugsað vel um mig,
mér er hjálpað á fæturna á morgn-
ana og mér er færður upp morgun-
maturinn en ég fer alltaf niður í há-
degismat og fer það sjálf,“ segir
hún.
Guðríður er dugleg að hreyfa sig
og gengur um gangana í Furugerði
til að halda sér í formi. Þá unir hún
sér við að hlusta á hljóðbækur og
heldur sérstaklega upp á Guðrúnu
frá Lundi og Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur. Hún má þó passa sig að
gleyma sér ekki yfir bókunum. „Ég
fór að verða stirðari eftir að ég
fékk þessar bækur, þá sat ég meira.
Svo uppgötvaði ég að ég fékk ekki
nóga hreyfingu. Ég varð að hreyfa
mig meira,“ segir hún.
holmfridur@mbl.is
Hlustar á
Guðrúnu
frá Lundi
Morgunblaðið/Golli
Guðríður Guðbrandsdóttir 108 ára er elsti núlifandi Íslendingurinn
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lánasjóður íslenskra námsmanna
(LÍN) hefur breytt úthlutunar-
reglum fyrir næsta skólaár, 2014-
2015. Grunnframfærsla á Íslandi
hækkar um 3,2% og verður 149.463
kr. eða 22.419 kr. á ECTS-einingu.
Hins vegar verður framfærsla er-
lendis lækkuð um allt að 10%. LÍN
segir þetta vera gert til samræming-
ar við framfærslu á Íslandi. Fram-
færslan verður lækkuð að hámarki
um 10% í hverju landi.
SÍNE harmar niðurskurð
Samband íslenskra námsmanna
erlendis (SÍNE) harmar að námslán
til námsmanna erlendis verði skorin
niður um 10%. Fulltrúi SÍNE í
stjórn LÍN neitaði að skrifa undir
úthlutunarreglurnar í mótmæla-
skyni. Fulltrúar SÍNE mættu á
fundi með úthlutunarnefnd LÍN til
að mótmæla þessum vinnubrögðum
og að SÍNE skyldi ekki eiga neina
aðkomu að þessari ákvörðun.
„Við hefðum viljað sjá vinnu við að
finna framfærsluþörfina,“ sagði
Hjördís Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri SÍNE. Hún sagði að LÍN hefði
undanfarið stuðst við upplýsingar
frá sænska námslánasjóðnum um
framfærslukostnað. Sænsku sendi-
ráðin víða um heim afla þeirra upp-
lýsinga. Þær tölur hafi verið notaðar
um framfærslukostnað íslenskra
nemenda.
Hjördís sagði að SÍNE hefði ekki
verið kallað til við ákvörðun LÍN.
„Þetta er okkar hópur, fólkið sem við
erum í tengslum við,“ sagði Hjördís.
Hún sagði að hinar ýmsu náms-
mannahreyfingar skipti með sér setu
í nefndum LÍN. Fulltrúi SÍNE er í
vafamálanefnd LÍN en fulltrúar frá
Stúdentaráði og Sambandi íslenskra
framhaldsskólanema eru í nefnd
LÍN um úthlutunarreglur.
Of seint fram komið
„Við fengum ekki að vita fyrr en
fremur seint að þetta stæði til. Við
reyndum að hamla á móti og komum
með okkar skýringar, en þær voru
ekki teknar til greina,“ sagði Hjör-
dís. Hún gagnrýndi einnig að þessi
breyting væri seint fram komin.
Námsmenn séu búnir að gera áætl-
anir fyrir næsta skólaár en nú muni
þeir hafa allt að 10% minna á milli
handanna.
Þá gagnrýndi Hjördís einnig að
LÍN mun framvegis einungis veita
ferðalán einu sinni á hverju náms-
stigi en ekki á hverju ári eins og ver-
ið hefur.
„Námsmenn í Bandaríkjunum
hafa ekki atvinnuleyfi og mega ekki
vinna þar. Þeir fá framfærslu frá
LÍN í níu mánuði á ári. Það hefur
verið ómetanlegt fyrir þá að fá ferða-
lán og geta komið heim og unnið.
Annars þurfa þeir að dreifa níu mán-
aða framfærslu á heilt ár án þess að
komast heim,“ sagði Hjördís.
Breyttar úthlutunarreglur
LÍN hækkar framfærslukostnað innanlands um 3,2% Framfærslukostnaður
erlendis lækkaður um allt að 10% SÍNE harmar að námslán séu skorin niður
„Við hefðum viljað
sjá vinnu við að
finna framfærslu-
þörfina.“
Hjördís Jónsdóttir
Kristinn ehf., sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur
og fjölskyldu, hefur keypt allt hlutafé í ÍSAM ehf. (Ís-
lensk-ameríska). Kaupin eru gerð með fyrirvara um sam-
þykki Samkeppniseftirlitsins og kaupverðið er trúnaðar-
mál. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu ÍSAM.
„Sýn Kristins ehf. á framtíð ÍSAM er í góðum sam-
hljómi við áherslur stjórnenda og fyrri eigenda félagsins.
Við væntum mikils af nýjum eigendum,“ er haft eftir Agli
Ágústssyni, forstjóra ÍSAM, í tilkynningunni. Að sögn
Sigurbjörns Magnússonar, lögmanns Kristins, verður
gengið frá kaupunum á næstu vikum en aðspurður um
ástæður þeirra segir hann um að ræða góða fjárfestingu.
Seljendur ÍSAM eru fjölskylda Berts Hanson en hann
stofnaði félagið 15. apríl 1964, eftir að hafa flutt til Ís-
lands frá Bandaríkjunum ásamt konu sinni Ragnheiði
Jónasdóttur. Fyrirtækið hefur verið í eigu fjölskyldunn-
ar frá upphafi.
Hjá ÍSAM starfa um 370 manns en umsvif félagsins
felast í inn- og útflutningsverslun, umboðssölu, fram-
leiðslu og rekstri fasteigna.
Kristinn ehf. kaupir
allt hlutafé í ÍSAM ehf.
Morgunblaðið/Golli
Kaup Myllan er eitt af vörumerkjum ÍSAM en önnur eru
Ora, Frón og Kexsmiðjan, svo einhver séu nefnd.
Góð fjárfesting, segir lög-
maður Kristins um kaupin
Fundur hefur verið boðaður í kjara-
deilu Flugfreyjufélags Íslands,
vegna félagsmanna sem starfa hjá
Icelandair, og Samtaka atvinnulífs-
ins (SA), sem fer með samnings-
umboð fyrir Icelandair, í dag.
Samninganefndirnar mættu til
fundar klukkan 16.00 í gær hjá rík-
issáttasemjara og stóð samninga-
fundurinn enn þegar blaðið fór í
prentun.
Sem kunnugt er hafa flugfreyjur
boðað tímabundna vinnustöðvun hjá
Icelandair á þriðjudag, 27. maí, milli
klukkan 06.00 og 24.00, náist ekki
samningar fyrir þann tíma. Ótíma-
bundið yfirvinnubann hjá Icelandair
tók gildi sunnudaginn 18. maí. Tíma-
bundnar vinnustöðvanir hafa einnig
verið boðaðar 6. júní og 12. júní. Ná-
ist ekki samningar hefst allsherjar-
verkall flugfreyja hjá Icelandair
hinn 19. júní klukkan 06.00.
Kjaradeilu Flugfreyjufélagsins
við Icelandair var vísað til sátta-
semjara 31. janúar. gudni@mbl.is
Fundað í
flugfreyju-
deilu í dag
Flugfreyjur Vinnustöðvun boðuð.
Verkfall hjá Ice-
landair á þriðjudag
Morgunblaðið/Golli
Hreiðar Eiríksson, sem skipar 5.
sæti framboðslista Framsóknar og
flugvallavina í Reykjavík, styður
ekki lengur framboðið. Ástæðan er
ummæli Sveinbjargar Birnu Svein-
björnsdóttur, oddvita listans, í gær
um að hún teldi að hætta ætti við að
úthluta Félagi múslíma lóð undir
byggingu mosku. Í staðinn ætti að
leyfa borgarbúum að greiða atkvæði
um þá ákvörðun.
Í færslu á Facebook-síðu sinni seg-
ir Hreiðar að það stríði gegn sam-
visku sinni að styðja skoðanir eins
og þær sem oddvitinn hafi kynnt.
Nafn hans verður ennþá á listanum,
því ekki er hægt að fjarlægja það
eftir að framboðsfrestur rann út.
Styður ekki
lengur framboðið