Morgunblaðið - 24.05.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.05.2014, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014 VORTILBOÐIÐ GILDIR TIL 1. JÚLÍ GEGN 150 ÞÚSUND KRÓNA STAÐFESTINGARGJALDI. AFHENDING HAUST 2014. 495þúsAFSLÁTTURFRÁ LISTAVERÐI TILBOÐ 300þús TURBO 190 www.yamaha.is Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 YAMAHA SRVIPER ÁRGERÐ 2015 - MEÐ 3 ÁRA ÁBYRGÐ! Án ísetningar. Verksmiðjuábyrgð gildir ekki eftir ísetningu. Fullt verð er kr. 570.000,- NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ SÖLUMÖNNUM ARCTIC TRUCKS Einungis ein vika er til sveitarstjórn- arkosninganna, sem haldnar verða 31. maí næstkomandi. Morgunblaðið fer áfram yfir stöðu mála í stærstu sveitarfélögum landsins og heyrir álit oddvita helstu flokkanna á þeim málum sem helst hafa verið rædd í kosningabaráttunni og hvernig landið liggi áður en lokasprettur kosningabaráttunnar hefst. Í dag verður farið yfir stöðu mála í Reykjanesbæ, í Vestmannaeyjum og í Árborg. SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR ur. Það sé bagalegt – og bókstaflega ógn við öryggi – í ljósi þess hve sam- göngur eru oft stopular. Starfsemi skurðdeildar sjúkrahússins hefur verið mikið skert og fæðingardeild þess lokað, þannig að barnshafandi konur þurfa að leita þjónustu á fastalandinu. Það er meðal annars í þessum málum sem víglínan liggur. Krakkar fái frístundakort Sitjandi meirihluti Sjálfstæðis- flokksins í Vestmannaeyjum er sterkur og hefur ráðið ferðinni í bæj- armálum þar um árabil. Og svo virð- ist sem almenningi líki vel hvernig haldið hefur verið á málum því í ný- legri könnun í Morgunblaðinu kom fram að fylgi flokksins í bænum væri 69,6% sem skila myndi fimm bæj- arfulltrúum. Eyjalistann styðja 29,2% og með það fylgi fengi hann tvo í bæjarstjórnina. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Baráttan við ríkið um brýn hags- munamál er rauði þráðurinn í bæj- arpólitíkinni í Vestmannaeyjum. Samgöngumál hafa lengi verið í deiglunni og hvar sem fólk skipar sér í fylkingu er það sammála um að úrbóta sé þörf. Á margan hátt hefur Landeyjahöfn ekki staðið undir væntingum og nauðsynlegt þykir að fá nýja ferju í stað Herjólfs til sigl- inga í höfnina á hinni sendnu strönd. Og meðan niðurstaða og framtíð- arlausn, bæði hvað varðar ferju og öruggari flugsamgöngur, er ekki fengin, sækja bæjaryfirvöld áfram á ríkið. Annars má segja að sam- göngur og heilbrigðismál hangi á sömu spýtu. Viðsjárvert þykir hvað þjónusta við heilbrigðisstofnunina í Eyjum hefur verið skorin mikið nið- Safnið Eldheimar – þar sem brugðið er ljósi á eldgosið árið 1973 – var opnað í gær. Jórunn Ein- arsdóttir oddviti Eyjalistans segir starfsemi þess opna möguleika fyrir ferðaþjónustu í Eyjum, sem sé að eflast. Svo sóknin megi haldast sé hins vegar mikilvægt að treysta samgöngur. „Velferðarþjónustan þarf að vera sterk,“ segir Jórunn sem kallar eftir því að ríkið gefi skýr svör um hvern- ig standa skuli að rekstri heilbrigð- isstofnunarinnar í bænum til lengri framtíðar. Yfirtöku bæjarins á starf- seminni hafi borið á góma sem Jór- unn telur þó ekki góðan kost, meðan margt í málinu sé enn óljóst. Af öðrum verkefnum nefnir Jór- unn að stækka þurfi leikskóla bæj- arins og koma upp deild fyrir fólk með heilabilun við hjúkrunarheim- ilið Hraunbúðir. Almennt þurfi að búa betur að öldruðum og því sé æskilegt að til starfa verði ráðinn iðjuþjálfi sem myndi leggja línurnar um þjónustu við aldraða, fatlaða og nemendur grunnskólans. „Stóra málið okkar nú er að inn- leiða frístundakort með 25 þúsund króna inneign fyrir krakka 6 til 16 ára, enda myndi það gefa þeim aukin tækifæri til að taka þátt í góðu tóm- stundastarfi,“ segir Jórunn. Ekki kosið um stóru málin „Stóru málin hér í Eyjum eru ekki endilega það er kosið er um, það er samgöngur og heilbrigðismál. Al- mennt er það svo að í bæjarmál- unum hér þarf að heyja hagsmuna- baráttuna t.d. gagnvart ríkisvaldinu á mörgum sviðum, nú síðast um fisk- veiðistjórn og veiðigjöld,“ segir El- liði Vignisson bæjarstjóri og for- ystumaður Sjálfstæðisflokks. Fjárhagsstöðu Vestmannaeyja- bæjar segir Elliði vera sterka og bæjarsjóður sé skuldlítill. Álögur á íbúa hafi verið lækkaðar á yfirstand- andi kjörtímabili en jafnframt sé svigrúm til ýmissa brýnna verkefna, svo sem að bæta búsetuskilyrði aldr- aðra og fatlaðra. Þá þurfi sorpmál í Eyjum að komast í gott og varanlegt horf. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vestmannaeyjar Horft af hraunbrún yfir kaupstaðinn þar sem í dag búa nærri 4.300 manns. Fólkinu hefur fjölgað talsvert á síðustu árum. Samgöngur og sjúkrahús  Barátta við ríkisvaldið um mörg efni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.