Morgunblaðið - 08.07.2014, Side 35

Morgunblaðið - 08.07.2014, Side 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014 Nýtt verk um listakonuna Karit- as verður frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhúsinu í október. Leik- gerðina vann Ólafur Egill Eg- ilsson í samvinnu við Símon Birgisson, en hún byggist á skáldsögunum Karitas án titils og Óreiðu á striga eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir. Verkið fjallar um líf listakonu á fyrri hluta síðustu aldar og hlutskipti kvenna á Íslandi fyrr og síðar, ekki síst þeirra sem hafa þráð að feta aðra slóð en samfélagið hefur ætlað þeim. Með hlutverk Karítasar fer Brynhildur Guðjónsdóttir, en Björn Hlynur Haraldsson leikur Sigmar eiginmann hennar. Aðr- ir leikarar eru Kristbjörg Kjeld, Elva Ósk Ólafsdóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Arnmundur Ernst Backman, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Oddur Júlíusson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Svan- dís Dóra Einarsdóttir og Þórir Sæmundsson. Leikmynd er í höndum Finns Arnars Arnarssonar, búninga gerir Þórunn Elísabet Sveins- dóttir og Ólafur Ágúst Stef- ánsson hannar lýsingu. Morgunblaðið/Einar Falur Ástsæl Bækur Kristínar Mörju Bald- ursdóttur um Karitas eru mörgum les- endum afar hjartfólgnar, og hafa hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar. Karitas á svið Þjóðleikhússins Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Frá austri til vesturs er yfirskrift tónleika sem fram fara í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl. 20.30. Þar flytja Ingrid Karls- dóttir fiðluleikari og Bjarni Frí- mann Bjarnason píanóleikari Són- ötu ópus 134 eftir Dmitri Shostakovitsj og Peace Piece eftir Bill Evans í útsetningu Hjartar Ingva Jóhannssonar fyrir fiðlu og píanó, auk þess sem Ingrid leikur fjóra kafla úr Partítu II BWV 1004 fyrir einleiksfiðlu eftir Jo- hann Sebastian Bach. Fyrsta dúótónleikarnir „Þetta er í fyrsta sinn sem við höldum dúótónleika saman en við Bjarni erum búin að þekkjast lengi. Við vorum á sama tíma í Tónlistarskóla íslenska Suzuk- isambandsins sem krakkar og á svipuðum tíma í Listaháskóla Ís- lands áður en leiðir skildu,“ segir Ingrid Karlsdóttir, sem sjálf stundaði framhaldsnám í tónlist við Oberlin Conservatory í Ohio og útskrifaðist 2007. Bjarni hefur frá 2011 stundað nám í hljómsveitarstjórn við Tónlistar- háskóla Hanns Eisler í Berlín. Að sögn Ingrid hefur hana lengi dreymt um að leika ofangreint Shostakovitsj-verk. „Ég er mikill aðdáandi Shostakovitsj og hef lengi verið. Þetta tiltekna verk er mjög kraftmikið og dramatískt.“ Af öðrum verkum tónleikanna seg- ir Ingrid að það hafi hentað vel með Shostakovitsj að spila Bach. „Sónötur Bach, sem eru sex tals- ins, eru eins og biblía fiðluleik- arans, enda er maður alltaf að æfa þær. Lokaverk tónleikanna er út- setning Hjartar Ingva á lagi eftir djasspíanistann Bill Evans. Þetta lag er í miklu uppáhaldi hjá mér. Fyrst ég spila ekki á píanó og get ekki sjálf leikið það í upprunalegri mynd er gaman að fá tækifæri til að spila útsetningu lagsins fyrir píanó og fiðlu.“ Samstarf Ingrid og Bjarni frumfluttu efni kvöldins á tónleikum í Reykjahlíð- arkirkju um nýliðna helgi við góð- ar viðtökur. Aðspurð segir Ingrid það mikinn lúxus að fá tækifæri til að endurtaka efnið. „Yfirleitt gefst bara tækifæri til að flytja það einu sinni. Það er líka gaman að laga sig að ólíkum tónleikarýmum. Hér í Sigurjónssafni er frábær hljóm- burður og við hlökkum því mikið til kvöldsins.“ Spurð hvort framhald sé fyrir- hugað á samstarfi þeirra Bjarna segir Ingrid það vissulega koma til greina. „En hann er búsettur í Berlín og ég verð meira á Íslandi frá og með haustinu, þar sem ég er að fara spila með Sinfón- íuhljómsveit Íslands,“ segir Ing- rid, sem verið hefur með annan fótinn í Amsterdam síðustu miss- eri milli þess sem hún hefur ferðast um heiminn og leikið á tónleikum með hljómsveitinni Sig- ur Rós. „Kraftmikið og dramatískt verk“  Næstu tónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld Morgunblaðið/Árni Sæberg Samhent Ingrid Karlsdóttir fiðluleikari og Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari leika verk eftir Shostakovitsj, Bach og Bill Evans í sumar- tónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga í kvöld. Flokkunarílát sem einfalda ferlið Viðarhöfða 2 110 Reykjavík | Sími 577 6500 | www.takk.is | takk@takk.is ýmsar stærðir og gerðir TILBOÐ KR. 169.9 00,- M/vsk. MILWAUKEE H0GGBORVÉL M12 BPD-402C Mesta átak 38 Nm. Vinnuhraðar: 0-400/0-1500 Sn/mín. Patróna: 10mm. Höggtíðni: 22.500 mín. Fylgir: 2 x M12 4.0 Ah REDLithium rafhlöður, Hleðslutæki, handfang, beltishanki og taska. MW 4933 4419 35 TILBOÐ KR. 36.900,- M/vsk. Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899 Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is MILWAUKEE MONSTERSETT M18 PP6D-402B HD18 PD – Höggborvél, HD18 SX – Sverðsög, HD18 CS – Hjólsög, HD18 JS – Stingsög, C18 ID – Höggskrúfvél, C18 WL – Vinnuljós, 2 x M18 4,0 Ah Red Li-Ion Rafhlöður, C18 C hleðslutæki, Verkfærataska. MW 4933 4474 00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.