Morgunblaðið - 08.07.2014, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 08.07.2014, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014 Það er ekki á hverjum degisem maður sér danskanvestra sem tekinn er uppí Suður-Afríku en kvik- myndin The Salvation er einmitt dæmi um slíka kvikmynd. Sagan segir frá danska landnemanum Jon (Mads Mikkelsen), sem lagt hefur land undir fót og flutt til Banda- ríkjanna ásamt bróður sínum Peter (Mikael Persbrandt). Sagan gerist seint á 19. öldinni og hálfgerð skálmöld ríkir á sléttum Norður- Ameríku og réttlæti virðist ein- skorðast við vilja hins sterka. Eig- inkona og sonur Jons mæta loks til Ameríku en er slátrað af stiga- mönnum, sem Jon drepur síðar. Upp frá því hefst mikill elting- arleikur þar sem hefndin er að- aldrifkrafturinn. Uppgjör góðs og ills Söguþráðurinn er í raun mjög fyrirsjáanlegur, sem gerir það að verkum að myndin verður lítið spennandi. Uppbygging sögunnar er engu að síður ágæt, svo að kvikmyndin nær að halda athygli áhorfandans allan tímann. Sam- tölin eru að sama skapi frekar stirðbusaleg og klisjulegar einnar línu setningar, sem hafa eflaust átt að kitla töffarataugina í áhorf- endum, hitta ekki í mark. Jafn- framt er þessi eilífa barátta góðs og ills, þar sem vondu karlarnir eru hreinræktaðir skúrkar og góðu karlarnir hugrakkir písl- arvættir, orðin frekar þreytt og í raun með ólíkindum að jafn reynd- ur handritshöfundur og Anders Thomas Jensen, sem skrifaði meðal annars Brødre, geti ekki staðið að dýpri persónusköpun. Leikstjóri myndarinnar, Kristi- an Levring, er gamall Dogme 95- leikstjóri, sem útskýrir mögulega hví ýmislegt var eins klaufalegt og raun ber vitni. The Salvation brýt- ur nær allar tíu reglur hreyfingar- innar, sem rann sitt skeið árið 2005 og var í raun mjög áhuga- verð, en ein reglan segir til um að tæknibrellur séu ekki heimilar. Tæknibrellur viðkomandi myndar eru einmitt frekar slæmar og gervilegt eldhaf stingur til að mynda í augu. Svokallaðar „genre“-myndir eru að sama skapi forboðnar, en vestrar eru klárlega dæmi um slíkar myndir. Klipp- ingin er engu að síður ágæt og fer vel saman við línulegan söguþráð- inn. Tónlistin í kvikmyndinni er einnig góð og eykur gildi atrið- anna án þess að draga of mikla at- hygli til sín. Cantona í kúrekastígvélum Mads Mikkelsen er virkilega fær leikari og heldur myndinni al- gjörlega uppi. Hann hefur marg- sýnt það, þá helst í kvikmyndinn Jagten, hversu sannfærandi hann er þegar kemur að því að túlka angurværar persónur sem eiga í innra stríði sem og ytra. Eva Green, Mikael Persbrandt og Jeff- rey Dean Morgan eru allt í lagi í hlutverkum sínum, lítið meira en það. Það vakti sérstaka athygli hversu undarlega líkur Javier Bardem sá síðastnefndi er. Sem dyggur stuðningsmaður knatt- spyrnuliðsins Manchester United er ekki annað hægt en að vera ánægður með að Levring hafi feng- ið goðsögnina Eric Cantona í lið með sér. Frakkinn fer með hlut- verk skúrks sem gengur einfald- lega undir heitinu Korsíku- maðurinn og gengur hann iðulega í skrokk á dönsku söguhetjunni. Margt hefði mátt fara betur í viðkomandi kvikmynd eins og kom- ið hefur fram. Mikkelsen nær þó engu að síður að fanga athygli áhorfandans með góðum leik og auðvelt er að finna til með persón- unni, sem í bland við hæfilega harðneskjulegt ofbeldið gerir myndina sem heild að ágætis af- þreyingu. Valdsmannslegir Danir í Villta vestrinu Kúrekar Jon, túlkaður af Mads Mikkelsen, þarf að taka á honum stóra sínum enda fautinn Delarue á eftir honum. Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri. The Salvation bbbnn Leikstjórn: Kristian Levring. Handrit: Anders Thomas Jensen. Aðalhlutverk: Mads Mikkelsen, Mikael Persbrandt, Jeffrey Dean Morgan, Eva Green, Jonat- han Pryce og Eric Cantona. 100 mín. Danmörk, 2014. DAVÍÐ MÁR STEFÁNSSON KVIKMYNDIR Sýningar Monty Python á úrvali gamalla sketsa og söngatriða, með þessum kunnasta grínhópi Breta, hófust í O2 Arena í London fyrir helgi. Seldist upp á fyrstu sýn- inguna á aðeins 40 sekúndum og að sögn breskra fjölmiðla fylltu gall- harðir aðdáendur salinn; margir hverjir klæddir eins og persónur í sumum kunnustu atriðum hópsins og fóru með línurnar um leið og leikararnir. Breskir gagnrýnendur eru sam- mála um að sýningin sem hinir fimm eftirlifandi meðlimir hópsins, Cleese, Palin, Idle, Gilliam og Jones, leika allir í ásamt fjölda aðstoð- armanna sé einkum við hæfi þeirra sem þegar séu aðdáendur og sé hún ekki líkleg til að laða nýja að. Rýnir The Telegraph gefur henni fjórar stjörnur, segir sum atriðin aldrei ná flugi en önnur, eins og hin kunna sena með dauðum páfagauk, fylli- lega vera aðgöngumiðans virði. Rýnir Guardian er ekki eins hrifinn, gefur sýningunni þrjár stjörnur og segir hana ekki jafn góða og leik- ritið Spamalot sem byggir líka á gömlu efni Monty Python, en engu að síður gangi hinir innvígðu glaðir á braut að sýningu lokinni. Fyndnir Félagarnir í Monty Python stilltu sér upp fyrir frumsýninguna. Frá vinstri: Eric Idle, John Cleese, Terry Gilliam, Michael Palin og Terry Jones. Sýning fyrir aðdáendurna Tríó tromp- etleikarans Ara Braga Kárason- ar leikur í kvöld á djasskvöldi Kex hostel. Auk Ara eru í tríóinu franskir tónlist- armenn, söng- konan Cyrille Ai- meé og gítar- leikarinn Michael Valenau. Tríóið mun flytja sígræn lög úr söngbók djassins, að því er fram kemur í tilkynningu og er aðgangur að tónleikunum ókeypis. Kex hostel er á Skúlagötu 28 í Reykjavík. Tríó Ara Braga leik- ur djass á Kex Ari Bragi Kárason Heiðar Kári Rannversson, dagskrárstjóri Listasafns Reykjavíkur, leiðir í kvöld göngu um úti- listaverkin í Við- ey, Friðarsúlu Yoko Ono og Áfanga eftir Richard Serra. Gangan hefst kl. 19.30 við Viðeyj- arstofu og tekur um 90 mín. Leið- sögnin fer fram á íslensku og er ókeypis og öllum opin. Á þriðju- dagskvöldum eru aukaferðir til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Siglt er frá Viðey kl. 22. Leiðsögn um úti- listaverk Viðeyjar Listakonan Yoko Ono TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is L L 16 12 12 12 ★ ★ ★ ★ ★ ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND MEÐ PAUL WALKER ÍSL. TAL „Besta íslenska kvikmynd sögunnar!” Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNINGKL. 9 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar TRANSFORMERS 4 3D Sýnd kl. 5:50 - 9 (P) BRICK MANSIONS Sýnd kl. 10:40 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 4:30 22 JUMP STREET Sýnd kl. 8 MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 10:20 VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5 - 8 TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 4 14 "Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!" -T.V., Biovefurinn.is "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.