Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Kaupum alla bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hyggjast leita réttar síns
Tveir áður grunaðir menn í LÖKE-málinu ætla að krefja ríkið um skaðabætur
Telja aðgerðir tilefnislausar og harkalegar Mál þriðja manns ekki fellt niður
Kjartan Kjartansson
Guðni Einarsson
Lögfræðingur og fyrrverandi starfsmaður Nova
sem bornir voru sökum um brot á fjarskiptalögum
og hlutdeild í meintum brotum í opinberu starfi
ætla að leita réttar síns vegna þess sem þeir telja
tilefnislausar og harkalegar aðgerðir lögreglu
gagnvart þeim í LÖKE-málinu svonefnda.
Ríkissaksóknari ákvað að fella niður mál gegn
tvímenningunum þar sem ekkert hefði komið
fram sem benti til þess að þeir hefðu brotið fjar-
skiptalög eða átt hlutdeild í brotum annarra í mál-
inu.
Að sögn Garðars St. Ólafssonar, lögmanns tví-
menninganna, hyggjast þeir krefjast skaðabóta
og jafnframt kanna möguleika á að leita réttar
síns hvað varðar rangar sakargiftir, þar sem þeir
hafi saklausir verið bornir sökum um refsiverðan
verknað.
Mál gegn þriðja manninum, lögreglumanni,
hefur ekki verið fellt niður.
Mennirnir þrír voru saman í lokuðum hópi á
Facebook. Meint brot lögreglumannsins fólst í
óeðlilegum flettingum í málakerfi ríkislögreglu-
stjóra, LÖKE. Hann var sakaður um að deila upp-
lýsingum úr kerfinu í spjallhópnum.
Starfsmanni Nova var vikið úr starfi eftir að
málið kom upp en lögfræðingurinn var í leyfi frá
sínu starfi á meðan rannsókn þess fór fram.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RLS Flett var upp í málakerfi embættisins.
Áfram er unnið samkvæmt óvissu-
stigi vegna jökulhlaupsins í Múla-
kvísl og Jökulsá á Sólheimasandi.
Sérfræðingar á vegum Veðurstof-
unnar hafa mælt styrk lofttegunda
sem losna úr hlaupvatni við jaðar
Sólheimajökuls og komist að því að
enn stafar veruleg hætta af þeim.
Ferðafólki og fararstjórum er ráð-
lagt að halda sig í a.m.k. 100 m fjar-
lægð frá Jökulsá á Sólheimasandi og
einnig varar Veðurstofan eindregið
við því að nálgast uppstreymisstað-
ina því eitraðar lofttegundir gætu
valdið fólki heilsutjóni og jafnvel
dauða. Vinnueftirlitið fer einnig
fram á að öllum sé beint frá hættu-
svæðunum. Almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra og lögreglan á
Hvolsvelli mælast til þess að farið sé
eftir ráðleggingum Veðurstofunnar
og Vinnueftirlitsins á meðan óvissu-
stig er í gildi. if@mbl.is
Ennþá óvissustig
vegna Múlakvíslar
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Umræðan um meinta kynþátta-
hyggju Framsóknarflokksins í
kringum borgarstjórnarkosningarn-
ar í Reykjavík í vor spratt upp frá því
hversu illa núverandi stjórnarand-
stöðuflokkar á Alþingi hafa tekið
kosningaósigri sínum í alþingiskosn-
ingunum. Þetta sagði Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, forsætisráð-
herra og formaður flokksins, í ræðu
við upphaf miðstjórnarfundar
flokksins í gær.
„Að menn skuli nýta slíkt mál í
pólitískum tilgangi, til að ná höggi á
andstæðingana, er nýr lágpunktur í
stjórnmálaumræðu seinni tíma. Það
er ekki bara alvarlegt að saka sak-
laust fólk um þennan hlut, það er líka
alvarlegt að nota svo alvarlegt mál í
pólitískum tilgangi,“ sagði hann.
Hagvaxtarkippur
Þá fór Sigmundur Davíð yfir verk
Framsóknarflokksins í ríkisstjórn til
þessa og taldi hann meiri árangur
hafa náðst en hann hefði þorað að
vona við upphaf samstarfsins við
Sjálfstæðisflokkinn. Hagvöxtur hefði
tekið mikinn kipp, verðbólgan væri
undir markmiðum Seðlabankans og
það hefði haldist þannig.
Ennfremur benti hann á að at-
vinnuleysi væri í kringum 4% sem
væri lægra en hjá sambærilegum
þjóðum og ferðamönnum hefði fjölg-
að um rúmlega þriðjung á tímabilinu.
Skuldamál urðu forsætisráðherra
einnig að umtalsefni. Sagði hann að
stefnan væri að fyrir lok ársins 2020
yrði skuldastaða Íslands orðin ein sú
besta í Evrópu. Það væri raunhæft
markmið. Áfram þyrfti að sýna að-
hald í rekstri ríkissjóðs. Endurfjár-
mögnun erlendra skulda ríkisins í
vikunni sem lækkaði vexti af þeim
um heilt prósentustig væri staðfest-
ing á árangri ríkisstjórnarinnar.
„Spari sér æsinginn“
Sigmundur Davíð sá einnig tilefni
til að ræða mögulega komu banda-
rísku verslanakeðjunnar Costco
hingað til lands og umræðu í kring-
um hana. Sagði hann marga hafa get-
að „sparað sér æsing yfir því“ með
því að gera sér grein fyrir því að
reglur Evrópusambandsins leyfðu
ekki innflutning á bandarísku kjöti
sem rætt var um. Langmest af
bandarísku kjöti væri sprautað með
vaxtarhormónum og sýklalyfjum,
bakteríumyndun væri meiri í því og
því væri það þvegið upp úr ammón-
íaki.
„Hverjir eru afturhaldssamir?
Þeir sem vilja styðja við heilnæma og
góða matvöru og byggja upp mat-
vælaiðnaðinn hér á landi eða þeir
sem vilja láta slíkt lönd og leið og
telja það einangrunarhyggju að
mega ekki flytja inn eins mikið stera-
kjöt og menn vilja?“ spurði Sigmund-
ur Davíð.
Alvarlegt að saka saklaust
fólk um kynþáttahyggju
Árangur stjórnarinnar framar vonum Sagði bandarískt kjöt „sterakjöt“
Morgunblaðið/Eggert
Ungliði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafði dóttur sína og líklega yngsta liðsmann flokksins, Sigríði Elínu, sér til
halds og trausts á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins sem fór fram á Hótel Sögu í gær.
Víkingur AK 100 kvaddi heimahöfn
sína á Akranesi í gær eftir 54 ára
farsæla þjónustu, en skipið hefur
verið selt til Danmerkur.
HB Grandi seldi Víking AK til
Danmerkur fyrir 2,1 milljón DKR
eða rúmar 43 milljónir ISK. Vík-
ingur AK er mikið aflaskip sem
reynst hefur mjög vel í gegnum tíð-
ina. Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjan á Akranesi lét smíða skipið,
en það var gert í Þýskalandi árið
1960. Víkingur AK landaði síðast
loðnu á vertíðinni 2013.
Farinn til
Danmerkur
Víkingur AK kvaddi heimahöfn sína á Akranesi í gær
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæð-
inu óskar eftir
vitnum að lík-
amsárás sem átti
sér stað við
Grímsbæ á Bú-
staðavegi í
Reykjavík að-
faranótt sunnu-
dagsins 6. júlí á milli klukkan 4 og
5. Þar var ráðist á karlmann á sex-
tugsaldri.
Sérstaklega er óskað eftir að
ökumaður leigubíls sem talinn er
hafa átt leið hjá hafi samband við
lögreglu.
Árásarmennirnir óku með mann-
inn að Irish Pub við Reykjavíkur-
veg í Hafnarfirði. Þeir sem hafa
orðið vitni að því eru einnig beðnir
um að hafa samband við lögreglu.
Óska eftir vitnum
að líkamsárás á
Bústaðaveginum
Greiðlega gekk
að finna banda-
rískan göngu-
mann í Hoffells-
dal í gærkvöldi.
Maðurinn hafði
lagt af stað á
miðvikudag og
ætlaði að koma
til byggða í gær.
Innst í Hoffellsdal treysti hann sér
hins vegar ekki lengra vegna
vatnavaxta í Hoffellsá. Því óskaði
hann eftir aðstoð og fóru fimmtán
björgunarsveitarmenn frá Horna-
firði eftir honum.
Maðurinn hafði skilað ferða-
áætlun á vefnum Safetravel.is sem
auðveldaði leitina en auk þess hafði
eiginkona hans sem dvaldist á Höfn
fylgst með honum. Fannst hann
nokkurn veginn á þeirri leið sem
hann hafði ætlað sér að fara.
Ferðamaður fannst
eftir skamma leit