Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Ársskýrsla Hagstofunnar fyrirárið 2012 staðfesti að í aðlög- unarferlinu, sem Ísland fór inn í með umsókn sinni um aðild að Evr- ópusambandinu, var unnið að að- lögun Hagstof- unnar.    Í skýrslunnisagði: „Veru- legar breytingar urðu á rekstri Hagstofunnar árið 2012 og jukust umsvif talsvert vegna innleiðingar á verkefnum, sem eru í aðgerðar- áætlun með samningsafstöðu Ís- lands í viðræðum um aðild að Evr- ópusambandinu.“    Þar kom líka fram að kröfumESB um framsetningu þjóð- hagsreikninga hefði verið mætt í aðlögunarferlinu og að starfsemi Hagstofunnar árið 2012 hefði mót- ast af umsókninni um aðild Íslands að ESB.    Þá kom fram að húsnæði og um-svif stofnunarinnar hefðu ver- ið aukin vegna umsóknarinnar.    Í gær gaf Hagstofan út skýrsluum gæðaúttekt Evrópska hag- skýrslusamstarfsins á Hagstofu Ís- lands, en úttektin fór fram í sept- ember í fyrra.    Í úttektinni er settur fram fjölditillagna um breytingar á starf- semi Hagstofunnar og framsetn- ingu gagna til aukins samræmis við hagstofu Evrópusambandsins.    Og þar er enn farið fram á„aukna fjárveitingu til að upp- fylla kröfurnar sem gerðar eru í evrópska hagskýrslusamstarfinu“.    Er enn verið að vinna að aðlöguníslenska stjórnkerfisins að stjórnkerfinu í Brussel? Er aðlögunin enn í gangi? STAKSTEINAR Veður víða um heim 11.7., kl. 18.00 Reykjavík 12 rigning Bolungarvík 9 rigning Akureyri 16 skýjað Nuuk 9 heiðskírt Þórshöfn 11 skýjað Ósló 26 heiðskírt Kaupmannahöfn 22 heiðskírt Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 23 léttskýjað Brussel 17 skýjað Dublin 20 skýjað Glasgow 21 léttskýjað London 17 skýjað París 20 léttskýjað Amsterdam 22 léttskýjað Hamborg 25 léttskýjað Berlín 25 léttskýjað Vín 16 þrumuveður Moskva 15 alskýjað Algarve 27 léttskýjað Madríd 30 heiðskírt Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 23 skýjað Montreal 22 léttskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 25 léttskýjað Orlando 29 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:33 23:35 ÍSAFJÖRÐUR 2:54 24:24 SIGLUFJÖRÐUR 2:35 24:09 DJÚPIVOGUR 2:53 23:14 Björn Jónasson, fyrr- verandi sparisjóðs- stjóri Sparisjóðs Siglu- fjarðar, andaðist á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar á Siglu- firði aðfaranótt 10. júlí, 69 ára að aldri. Björn bjó á Siglufirði alla tíð fyrir utan síðasta árið þegar hann dvaldi á heimili dóttur sinnar í Garðabæ. Björn fæddist 4. júní 1945 á Siglufirði og var sonur Hrefnu Her- mannsdóttur húsmóður og Jónasar Bergsteins Björnssonar, skrifstofu- og vigtarmanns. Björn lauk gagnfræðaprófi frá Reykholtsskóla í Borgarfirði 1963. Hann nam við Vimmerby Folkhög- skola 1964 og verslunar- og skrif- stofustörf við Verzlunarskóla Ís- lands 1965. Björn starfaði að loknu námi hjá Verzlunarfélagi Siglufjarðar hf. og bæjarfógetaembættinu á Siglufirði. Hann hóf svo störf við Sparisjóð Siglufjarðar 1968 og starfaði þar samfleytt til ársins 2003. Björn var sparisjóðsstjóri frá 1979 til 2001. Hann starfaði síðan sem innheimtu- stjóri hjá RARIK frá 2005 til 2011. Björn tók mikinn þátt í félags- störfum. Hann var for- maður Félags ungra sjálfstæðismanna á Siglufirði 1965-1980, í stjórn SUS 1976-1980, í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1989-1999, bæjar- fulltrúi á Siglufirði og í ýmsum nefndum frá 1974-1998. Forseti bæjarstjórnar á Siglu- firði 1987-1990, í stórn Sambands íslenskra sparisjóða 1986-2001. Björn var sænskur konsúll á Siglufirði frá 1982. Hann var einn af stofnendum Kiwanis- klúbbsins Skjaldar á Siglufirði 1971 og gekk í Frímúrararegluna 1981. Þá var Björn í Karlakórnum Vísi frá 1966 og í stjórn kórsins frá 1970. Hann var einnig í kirkjukór Siglufjarðar frá 1984. Fyrri kona Björns var Guðrún Margrét Ingimarsdóttir (1945- 1976). Dóttir þeirra er Rakel, fædd 1965. Maður hennar er Thomas Jos- ef Fleckenstein. Börn þeirra eru María Lísa, fædd 1998, og Björn, fæddur 2000. Seinni kona Björns var Ásdís Kjartansdóttir (1948- 2013). Útför Björns verður gerð frá Siglufjarðarkirkju 19. júlí kl. 14.00. Andlát Björn Jónasson, fyrr- verandi sparisjóðsstjóri Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, sem fram fór síðastlið- inn miðvikudag, var samþykkt breyting á deiliskipulagi Reykja- víkurflugvallar. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni flug- stjórnarmiðstöðvarinnar. Var einnig samþykkt á fundinum að falla frá grenndarkynningu, þar sem breyt- ing á deiliskipulagi varðaði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Hjálmar Sveinsson, formaður um- hverfis- og skipulagsráðs Reykja- víkur, segir þetta engu breyta þegar komi að þeirri umræðu hvort flytja eigi flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. „Hér er einungis um að ræða flug- stjórnarmiðstöðina, þaðan sem öllu flugi um Norður-Atlantshafið er stýrt. Þótt flugvöllurinn fari verður þessi bygging þarna áfram því að Isavia segir ekki möguleika á því að færa þessa starfsemi,“ segir Hjálm- ar og bendir á að framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar verði því að laga sig að starfseminni. khj@mbl.is Samþykktu breytt deili- skipulag flugvallarins Teikning/THG Arkitektar Stækkun Búið er að samþykkja breytingu á flugstjórnarmiðstöðinni. Heild- arbyggingarmagn verður að hámarki 2.850 fermetrar í stað áður 2.600. Skíðaferð til Flachau Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Skíðaparadísin Flachau liggur í allt að 2100 m hæð yfir sjávarmáli, er með samtals 860 km af snjóhvítum skíðabrekkum sem eru um 56 km langar. 15 skíðalyftur víðsvegar um svæðið ferja gesti upp í spennandi brekkurnar sem eru við allra hæfi. Fararstjórar: Sævar Skaptason & Bergþór Kárason (Beggó) Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli. Rútuferðir til og frá hóteli innifaldar! Sp ör eh f. 24. - 31. janúar 2015

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.