Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 31
endalaust og ég elska þig enda- laust, út í geim og allan hringinn og aftur til baka eins og þú sagð- ir. Hvíldu í friði elsku mamma mín. Þín, Ragnhildur. Elsku besta Stína, eins og ég kallaði þig gjarnan. Það hefur verið lærdómsríkt að fá að eiga samleið með þér, elsku hjartans Stína mín. Frá fyrstu kynnum höfum við alltaf náð vel saman og átt ógleymanlegar stundir. Þú varst mér móðir númer tvö. Glaðlegri konu er erfitt að finna og svo ég tali nú ekki um hjarta- hlýjuna og gestrisnina, hana vantaði sko ekki hjá þér, elsku dúllan mín. Það er svo margt sem ég og börnin mín eigum þér að þakka. Þú varst alltaf að passa þeirra hag og að þeim myndi ganga vel í skólanum og bara í lífinu og það var ekki sjaldan sem þú varst stolt af þeim. Ég man þegar við fórum saman á fótboltaæfingu með Gabríel Heiðberg, þá vorum við sammála um að þetta væri ekki alveg fyrir þessa elsku, eins og þú orðaðir það, og á danssýn- ingar hjá Eydísi Ósk léstu þig ekki vanta. Og auðvitað saumaðir þú kjól á skvísuna, en ekki hvað, hönnuðurinn sjálfur. Þú tókst líka þátt í fyrsta leikskóladegin- um með Kristínu Líf nöfnu þinni og það var ómetanlegt. Það er svo margt sem ég get skrifað um þig, elsku hjartans Stínan mín, en ég læt hér staðar numið. Megi guð geyma þig, elsku Stína okk- ar, við munum sakna þín óend- anlega mikið. Elskum þig. Þín tengdadóttir og barna- börn, Ásdís Ósk Viggósdóttir. Í fáum orðum langar mig að minnast Stínu systur minnar, kveðja hana og þakka fyrir hve yndisleg systir hún var. Í æsku var ég nú ekki alltaf í uppáhaldi enda yngri, en hún átti sannar- lega eftir að bæta mér það upp síðar á lífsleiðinni. Samrýndari systur en okkur er tæpast hægt að hugsa sér. Varla leið sá dagur að við heyrðumst ekki í síma eða hittumst. Hún var afskaplega góð systir, einstaklega umhyggjusöm, alltaf tilbúin að hjálpa og styðja þegar á þurfti að halda. Stína mín var með svo falleg og djúp blá augu sem voru full af næmni og skiln- ingi sem ég naut í ríkum mæli. Það var alltaf gaman að vera með Stínu. Hún kunni að vera og njóta stundarinnar. Þessi eigin- leiki Stínu hafði góð áhrif á alla í kringum hana og gerði samveru- stundirnar oft lengri en til stóð í upphafi. Stínu lá ekkert á í lífinu, hún var ekkert að flýta sér. Stína var mjög flink í hönd- unum, prjónaði, heklaði, saumaði og hannaði. Hún breytti gjarnan munstrum, var lítið fyrir að fara eftir uppskriftum, gerði allt að sínu. Heimili hennar var fallegt, hún var smekkleg, alltaf fín og vel til höfð. Stína var hrókur alls fagnaðar, nærvera hennar var ávísun á að fólki leiddist ekki og hún sá til þess að fólk veltist um af hlátri. Stína sá alltaf gleðina í hvers- dagsleikanum og var slungin að koma auga á litlu skondnu hlut- ina. Grín Stínu var aldrei á kostnað annarra en hún hafði mikinn húmor fyrir sjálfri sér. Stína var mikil fjölskyldukona og leið aldrei betur en með börn- in, tengdabörnin og barnabörnin hjá sér og þótti ekki verra ef systkini þeirra hjóna og vinir bættust við. Alltaf var pláss hjá Stínu og aldrei neitt mál að bæta við diski við borðið. Henni fannst afskap- lega gaman að fá gesti og þau hjón nutu þess að dekra við gesti í mat og drykk. Má nefna Ljósa- nótt – alltaf allir velkomnir, gúll- assúpa í boði og ættingjar og vin- ir streymdu heim í Grænagarð og nutu samverunnar. Stína var næm og vissi lengra en nef hennar náði. Þegar hún var stödd í Bolungarvík nýlega við jarðarför kærrar föðursystur nýtti hún tímann mjög vel. Sat lengi fram eftir þó að hún væri þreytt og lasin. Í þeirri ferð sagði hún, þegar hún horfði á barna- börnin að leik í sól og sumaryl, þau yngri í náttfötunum á tram- pólíninu og þau eldri að rísla sér úti við: „Mikið vildi ég að ég gæti látið lífið standa kyrrt.“ Stína veiktist fyrir einu og hálfu ári og barðist eins og ljón til að reyna að sigrast á veik- indum sínum. Ég mat mikils að fá að standa við hlið hennar og styðja hana fram í andlátið, fyrir það er ég óendanlega þakklát. Lífið án Stínu verður erfitt en það er í hennar anda að halda áfram að hittast, hlæja einhver ósköp og skemmta sér, þó að sú tilhugsun sé erfið núna. Ég þakka Stínu systur fyrir góða og gefandi samfylgd og hefði svo sannarlega viljað hafa hana lengur hjá okkur. Ég votta Benedikt mági mín- um, sem staðið hefur sem klettur við hlið Stínu í veikindunum, innilega samúð mína. Einnig votta ég börnum þeirra, Ragn- hildi Helgu, Kristjáni Heiðberg og Aroni Ívari, og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Ósk Gunnarsdóttir. „Komdu sæll, bróðir minn.“ Svona heilsaði Stína mér alltaf þegar við heyrðumst í síma. Á einhvern hátt er þessi mjúka og hlýlega kveðja mér ofarlega í huga þegar ég kveð Stínu. Það varð okkar hlutskipti að búa hvort í sínum landsfjórðungi eftir að við komumst af unglingsárun- um. Við töluðum oft um það að þegar við yrðum gömul, sem við ætluðum bæði að verða, þá ætl- uðum við að vera saman fyrir vestan, segja hvoru öðru sögur, sitja á litla pallinum við húsið okkar og njóta daganna. Það er sárt að þurfa að sætta sig við það að þessir góðu dagar koma aldr- ei. Við sátum saman öll fjölskyld- an eftir að Stína dó. Lítil frænka mín sagði þá upp úr eins manns hljóði: „Þetta er skrítið, við erum öll saman og það vantar bara einn, hana Stínu, og samt vantar svo mikið.“ Það vantar mikið þegar vantar Stínu. Hún hafði í sér þessa miklu eðlisgleði, sem auðgar samfundi manna, alltaf jákvæð og til í að prófa eitthvað nýtt. Stína var einstaklega um- hyggjusöm um foreldra okkar systkinanna og verður sú um- hyggja aldrei fullþökkuð. Stína var prýðilega hagmælt, átti auðvelt með að setja saman texta, sagði skemmtilega frá og henni líkaði vel að vera hrókur alls fagnaðar. Stína gerði það sem hana langaði til en stundum í annarri röð en tíðkaðist. Hún eignaðist eldri börnin mjög ung, svo fór hún í menntaskóla og svo í Kennaraháskólann og hennar ævistarf varð að mestu leyti kennsla, það þótti henni skemmtilegt. Hún var lagin að finna viðeigandi efni fyrir alla í bekknum. Það var tilhlökkunarefni að hitta Stínu, hún var alltaf með eitthvað á prjónunum, hún fékk mann undantekningarlaust til að hlæja og líta tilveruna bjartari augum. Stína hafði alltaf verið hraust, fékk varla kvef og varð nánast aldrei misdægurt. Því varð það mikið áfall fyrir okkur öll þegar hún greindist með krabbamein fyrir einu og hálfu ári. Stína missti aldrei vonina um að sigr- ast á veikindunum, hún barðist til síðasta dags. Hún var vest- firsk hetja. Ég sakna Stínu óendanlega mikið, mér þótti óskaplega vænt um hana og kvíði dögunum án hennar en veit að lífið heldur áfram og best heiðrum við minn- ingu Stínu með því að gleðjast og fagna nýjum dögum. Ég fel Guði góða systur. Báran brotnar við ströndina í Víkinni okkar þar sem Stína verður borin til grafar. Tak sorg mína, svala haf. Agnar H. Gunnarsson, Miklabæ. Elsku amma mín, mikið er nú skrýtið að hugsa til þess að þú sért farin, englarnir komnir að sækja þig og farnir með þig á góðan stað. Það var alveg sama hve mikið ég þroskaðist og óx, ég var alltaf jafn spennt að heyra „Stína amma og Benni afi eru að koma til okkar“, það var alltaf spennandi. Þú stóðst við bakið á okkur öllum og sýndir öllum svo mikla virðingu, kurteisi og já- kvæðni. Öll dansmótin sem við áttum saman voru bestu minn- ingarnar mínar. Þú gerðir alltaf danssnúðana í hárið mitt og gerðir þá alltaf svo vel og vand- lega eins og allt annað sem þú gerðir. Alltaf man ég það þegar ég var bara sex ára gömul og þú kenndir mér að prjóna. Við vor- um með skærappelsínugult garn og fitjuðum upp saman því ég ætlaði að gera lítið veski undir klinkið mitt. Þegar þú varst ný- komin úr lyfjameðferð í fyrra, á fimmtudegi, þá var ég akkúrat að keppa í skólahreysti og þú komst af sjúkrahúsi yfir í Smárann með Aroni til að styðja mig, þú varst ótrúleg. Þú komst líka á árshá- tíðina, öll dansmótin auðvitað og svo komstu líka oft vestur til að hlusta á okkur spila og syngja á tónleikum. Maður var ekki í kringum þig í meira en tvær mín- útur áður en þú hlóst, því það var bókstaflega alltaf fjör þar sem þú varst. Svo áttum við saman ógleymanlega stund á föstudag- inn þegar þú heimtaðir að ég færi í skóbúð og keypti mér skó því að við erum með sama skós- mekkinn. Það er nú ekki oft sem barnabarnið og amman eru með sama skósmekkinn. Takk fyrir allt sem þú gafst mér, góðu minningarnar, skemmtilegu stundirnar og ynd- islegu dagana okkar saman, elsku amma mín. Þín, Kristín Helga. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka þér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér (Ingibjörg Sig.) Þegar ég kveð elskulega mág- konu mína, hana Stínu, sem fór langt um aldur fram, þá reikar hugur minn heim á æskuslóðir okkar vestur til Bolungarvíkur. Það var alltaf mikill samgangur á milli fjölskyldna okkar á Heið- arbrún og Höfðastíg. Stína var mikil hannyrðakona. Hún fór í Kennaraháskólann eft- ir að börnin fullorðnuðust og valdi hún sér textíl sem auka- grein. Handavinnumappan henn- ar var listaverk, hugmyndirnar voru óendanlegar. Stína var fædd í kennarahlutverkið, hún hafði góðan aga og tók faglega á erfiðum nemendum og talaði oft um og með mikilli virðingu um hópinn sinn. Benni og Stína fluttu til Kefla- víkur árið 2002 og saknaði ég þeirra mikið. Símhringingarnar og heimsóknirnar urðu margar. Ljósanótt í Keflavík varð fastur punktur á heimili þeirra, opið hús og allir velkomnir. Það var okkar ættarmót. Ég á eftir að sakna símhring- inganna frá Stínu sem alltaf byrj- uðu: Halló, hvað segirðu, elskan? Stína var berdreyminn og við sátum saman og réðum draumana. Sá síðasti var ekki góður, við vissum það báðar. Stína hafði dásamlega frásagn- argáfu. Það var svo gott að sitja með henni og hlæja saman. Stína var mikil fjölskyldukona og var svo stolt af börnum og barna- börnum sínum. Takk fyrir allar gleðistundirn- ar, elsku Stína mín. Hún var fal- leg kveðjustundin í Keflavíkur- kirkju, þar var þér svo fallega lýst. Elsku Benni, Ragnhildur, Kristján, Aron og fjölskyldur. Missir ykkar er mikill. Megi góð- ur guð vera með ykkur á erfiðum tímum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikindaviðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku Stína mín, hjartans þakkir fyrir allt og allt. Þín mágkona Björg. Hún Stína móðursystir mín er látin eftir erfiða baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Það er þyngra en tárum taki að sætta sig við það og læra að lifa með því. Eftir standa fjöldamargar minningar sem hægt er að ylja sér við og reyna að milda sársaukann. Ég hef alla tíð litið upp til Stínu frænku, hún var alltaf glæsileg, jákvæð, hlý og svo góð. Hún var dugleg að halda boð og bjóða okkur heim til sín og okkur leið sjaldan betur en þegar allir voru saman komnir að borða góðan mat, hlæja saman, rifja upp fynd- in atvik og fylgjast með litlu börnunum skemmta sér og leika sér saman. Öllum leið vel hjá Stínu og Benna. Stína og Benni hafa alla tíð verið stór hluti af mínu lífi og mömmu minnar og þau hafa svo sannarlega átt heiðurinn af því að ég tengist og þekki fjölskyldu hennar svo vel og er það mér ómetanlegt. Elsku Stína, engin orð fá því lýst hvað ég sakna þín mikið og stórt skarð er höggvið í fjölskyld- una. Ég trúi því að þú sért komin til afa. Elsku Benni, Ragnhildur, Kristján, Aron og fjölskyldur, Guð gefi okkur styrk til að takast á við þessa miklu sorg sem við erum að ganga í gegnum. Þín frænka, Agnes Veronika.  Fleiri minningargreinar um Kristínu Gunn- arsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR ÁRMANNSSON úrsmiður, Hjarðarhlíð 8, Egilsstöðum, lést á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði þriðjudaginn 8. júlí 2014. Jarðarförin fer fram frá Egilsstaðakirkju mánudaginn 14. júlí kl. 14.00. Ármann Halldórsson, Gróa Kristmannsdóttir, Þuríður Halldórsdóttir, Smári Fjalar, Þóra Katrín Halldórsdóttir, Margrét Halldórsdóttir, Gunnlaugur Hafsteinsson, Sigþór Halldórsson, Anna Hannesdóttir, Sigurður Halldórsson, Elín M. Stefánsdóttir, Halldór Halldórsson, Elín S. Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Maðurinn minn, ÓLAFUR JÓHANNESSON bókasafnsfræðingur, Sléttuvegi 29, Reykjavík, lést á Landspítalanum, Fossvogi, mánu- daginn 30. júní. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. júlí kl. 13.00. Gerða Ásrún Jónsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN BREIÐFJÖRÐ PÉTURSSON, matreiðslumeistari, Kópavogsbraut 105, lést fimmtudaginn 3. júlí. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Helga K. Helgadóttir, Hrönn Sveinbjörnsdóttir, Nikulás Magnússon, Helgi Sveinbjörnsson, Héðinn Sveinbjörnsson, Sigríður Tryggvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma DAGBJÖRT GUÐJÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 8. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 17. júlí kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningar- og styrktar- sjóð Guðjóns Magnússonar og Guðrúnar Einarsdóttur, kortin fást hjá Blómabúðinni Burkna og Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Hrefna Ólafsdóttir, Bjarni Þráinsson, Lilja Ólafsdóttir, Guðjón Ólafsson, Sigurlaug Hauksdóttir, María Gréta Ólafsdóttir, Viðar Sverrisson og fjölskyldur. ✝ Okkar ástkæra BÁRA JAKOBSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, sem lést fimmtudaginn 3. júlí verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 14. júlí kl. 13.00. Jenný Ólafsdóttir, Magnús Margeirsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Þórarinn Friðjónsson, Anna Ólafsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafsson, barnabörn, barnabarnabörn og Ólafur Haukur Árnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.