Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Barack Obama Bandaríkjaforseti bauðst í gær til að aðstoða við að binda enda á átök Ísraela og Ha- mas-samtakanna á Gaza-svæðinu en ólíklegt er að samkomulag náist á næstunni um vopnahlé. Yfir hundrað Palestínumenn liggja í valnum eftir fjögurra daga loftárás- ir Ísraelshers, þeirra á meðal börn og fleira saklaust fólk. Obama hringdi í Benjamin Net- anyahu, forsætisráðherra Ísraels, og kvaðst vera tilbúinn að aðstoða við að koma á vopnahléi eins og í nóvember 2012 þegar Egyptar og Bandaríkjamenn höfðu milligöngu um vopnahléssamning til að binda enda á mannskæðar loftárásir Ísraelshers og flugskeytaárásir Hamas. Embættismenn utanríkisráðu- neytis Egyptalands fordæmdu í gær loftárásir Ísraela á óbreytta borgara og flugskeytaárásir Hamas á byggðir í Ísrael. Þeir sögðust hafa rætt við leiðtoga Ísraela og Hamas-samtakanna en viðbrögðin hefðu einkennst af „þrjósku“ sem kæmi aðeins niður á saklausu fólki. Hvorki Ísraelsstjórn né leiðtogar Hamas léðu máls á því að hefja við- ræður um vopnahlé. Haft var eftir Netanyahu að slíkar viðræður væru „ekki einu sinni á verkaskránni“ og Ismail Haniya, pólitískur leiðtogi Hamas á Gaza, tók í sama streng. „Ísraelar áttu upptökin að ófriðn- um og þurfa að stöðva árásirnar, því við erum bara að verja okkur,“ sagði Haniya. Yfir hundrað fallnir Samkvæmt síðustu fréttum í gær höfðu 103 Palestínumenn beðið bana og hátt í 700 særst í loft- árásum Ísraelshers síðustu fjóra daga. Ísraelar segja „tugi hryðju- verkamanna“ liggja í valnum en læknar á Gaza segja að á meðal þeirra sem hafi látið lífið séu mörg börn, konur og fleiri saklausir Gaza-búar. Enginn Ísraeli hefur beðið bana í flugskeytaárásum Hamas en tíu Ísraelar hafa særst, þar af tveir alvarlega. Ísraelsher hafði í gær gert árásir á meira en þúsund skotmörk á Gaza-svæðinu. Hamas-menn höfðu skotið 426 flugskeytum og sprengi- kúlum en Ísraelsher skotið niður Allt tal um vopnahléssamn- ing skotið niður  Ísraelar og Hamas daufheyrast við áskorunum um viðræður AFP Sjö menn slösuðust í troðningi á götum Pamplona á Norður-Spáni í gær þegar hópur fólks hljóp undan sex fullvöxnum nautum 830 metra leið eftir þröngum götunum. Nautahlaupið er daglegur liður í San Fermin-hátíðinni. Alls hafa fimmtán manns látið lífið í slíkum nautahlaupum á hátíðinni frá árinu 1911. Storkuðu nautum og fóru sér að voða Dagblöð í Þýskalandi fögnuðu í gær þeirri ákvörðun þýsku ríkisstjórnar- innar í fyrradag að vísa fulltrúa bandarísku leyniþjónustunnar CIA í Berlín úr landi vegna meintra njósna hennar um þýska stjórnmálamenn. Nokkur blaðanna sögðu að það hefði verið löngu tímabært að grípa til slíkra aðgerða til að mótmæla njósnastarfsemi bandarískra leyni- þjónustumanna í Þýskalandi. Dag- blaðið Frankfurter Allgemeine Zeit- ung sagði að Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefði sýnt að hún væri ekki „kjölturakki“ Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Fréttaveitan AFP hefur eftir stjórnmálaskýrendum í Berlín að brottvísunin marki tímamót í sam- skiptum Bandaríkjanna og Þýska- lands. „Í Bandaríkjunum er litið á brottvísunina sem táknræna aðgerð af hálfu Þjóðverja,“ sagði Hans Kundnani, sem stjórnar rannsókn- um evrópsku hugveitunnar ECFR í utanríkismálum. „Hún hefur samt áhrif á tengsl ríkjanna því að það er mjög stórt skref að tilkynna opinber- lega að stöðvarstjóra CIA hafi verið vísað úr landi.“ Frank-Walter Steinmeier, utan- ríkisráðherra Þýskalands, sagði í gær að brottvísunin væri „rétt og mátulegt svar við trúnaðarbresti“. Hann sagði að samstarfið við Banda- ríkin í öryggismálum væri mjög mikilvægt, m.a. vegna átakanna í Úkraínu og Mið-Austurlöndum, en það þyrfti „ekki aðeins að byggjast á trausti, heldur einnig gagnkvæmri virðingu“. bogi@mbl.is Sögð marka tímamót  Blöð í Þýskalandi fagna þeirri ákvörðun stjórnarinnar að vísa CIA-manni úr landi vegna njósna um stjórnmálamenn AFP Á þýska þinginu Angela Merkel og Steinmeier utanríkisráðherra. Kynntu þér borgirnar á uu.is Borgarferðir Dublin og Bratislava Dublin 23.–26. okt., 20.–23. nóv. Bratislava 11.–15. september Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi. Sími 585 4000 www.uu.isLaugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • brynja@brynja.is VÉLAR OG TÆKI FRÁ FARTOOLS Veltisög 1800w kr. 109.700 Borðsög 1200w kr. 38.700 Laser fjarlægðarmælir kr. 6.980 Borabrýni f. 3-10mm bora kr. 10.750 Vinkildrif kr. 3.690 Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.