Morgunblaðið - 12.07.2014, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.07.2014, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Listin og lífið Risastórt vegglistaverk minnir á að ástin elur af sér afkvæmi sem þarf að ýta áfram út í lífið. Eggert Aldinn að árum, við 70 ára starfslok safn- manns er margs að minnast. Ég sé fyrir mér gömlu sveitina mína undir Eyjafjöllum fjölbyggða lífsglöðu fólki, sveit sem var í þann veginn að vakna af svefni til nýrrar menningar. Daglegt líf bar um margt miðalda- blæ. Þvínær allar athafnir voru studdar áhöldum líkrar gerðar og á landnámsöld. Baðstofan heima í Vall- natúni var vettvangur starfs og svefnhvíldar. Gamla kvöldvakan stendur mér skýrt fyrir hugar- sjónum. Það er líkt og rokkhljóð, urg í kömbum og taktföst högg frá vef- stól ómi mér enn í eyrum. Ég sé föð- ur minn fyrir mér við að tæja hross- hár, flétta reiptagl, bregða gjörð. Í frambæ var mjólk komið í mat. Ung- ur fékk ég það vökuverk að lesa hátt af bók sögur og forn fræði. Stöku sinnum kvað faðir minn rímur við raust. Af honum nam ég gömlu Pass- íusálmalögin sem sungin höfðu verið í baðstofunni í Varmahlíð í æsku hans undir aldamótin 1900. Innan tektar átti ég hlutverk milli- ferðadrengs. Mikil ábyrgð fylgdi því að leiða heylestina heim í garð utan af Holtsmýri. Ég man að æsku- vinkona mín, Arnlaug Tómasdóttir (1860-1944), tók þar oft á móti mér og hún minnti mig stundum á það að segja nú hátt og skýrt „ho, ho, ho, ho“, er lestin var leidd frá garði. Inn í þessa aldagömlu menningu brýst svo ný atvinnu- menning sem koll- varpar öllu hinu gamla. Vinnuáhöld aldanna liðnu eru lögð til hliðar og fyrir þeim liggur ekkert annað en eyð- ing. Ég byrjaði að stinga við fótum. Árið 1937 gekk ég 16 ára unglingur um stéttina á nágrannabæ, Syðstu- Grund, og sá þar þrjá barkróka til kekkja- flutnings hvíla við bæj- arþil og bíða eftir að verða brotnir í eldinn. Ég bjargaði einum frá báli og það er sá eini sem ég hef fyrirfundið í áratuga minjasöfnun. Um aldamótin 1900 voru þeir á hverju búi undir Eyjafjöllum. Fyrsta minjagrip minn fann ég 1935 í leikabúi barns í kál- garðshorni, hjartalaga skreytt skrá- arlauf með fangamarki og ártali Anno 1812. Arnlaug vinkona mín nefndi það hjartað hans Þórðar. Það ætti að vera númer 1 í Skógasafni. Í rúmshorni Laugu lúrði fegursti listgripur Eyfellinga, skrautmálaður og útskorinn kassi frá 1780, verk Ámunda Jónssonar málara, gripur sem mótaði hug minn í æsku til ástar á list og menningu. Arnlaug ánafnaði mér hann á banasæng. Búsáhöldin gömlu voru mér ekki lífvana hlutir, lítilsverðir að öllu held- ur lifandi verur sem fleytt höfðu þjóð minni bærilega heilli á húfi gegnum gengnar aldir. Þar áttum við brýnar skyldur að rækja. Góðri heilli höfðu margir í bændastétt tilfinningu fyrir þessu og því er Byggðasafnið í Skóg- um auðugt af atvinnutækjum lands og sjávar og listiðn er í engu gleymt. Ég man glöggt er ég heimsótti Krist- ófer Kristófersson bónda á Keldu- núpi á Síðu í minjaleit. Hann brá sér til bæjar er kveðjur höfðu fram farið, kom aftur glaður í bragði, berandi dýrindis bullustrokk, þann besta á íslensku safni, og sagði: „Ég er lengi búinn að bíða eftir því að hann kæm- ist á safn.“ Svipað var upp á teningnum er ég sótti heim Landeyinga í Rangár- þingi, þar sem móðurætt mín stóð föstum rótum. Á ættarsetrinu Gerð- um fögnuðu bóndinn Geir Gíslason og kona hans Þóranna Þorsteins- dóttir mér fegins hugar og ég átti frjálsa aðkomu að öllum geymslum. Mjólkin átti nú greiða götu í Mjólk- urbú Flóamanna á Selfossi. En gömlu mjólkurílátin voru tryggilega varðveitt, trog, trégyrtar mjólkur- byttur, hleypiskyrnur, áttu gott at- hvarf á geymslulofti. Þar fann ég vel varðveitta skyrsíu ofna með vað- málsvend, efnið hvítur togþráður. Hún á engan sinn jafningja á Íslandi. Hjá frænda mínum, Þorgeiri Tóm- assyni á Arnarhóli, og konu hans, Þóru Þorsteinsdóttur, var um auð- ugan garð að gresja. Frá þeim flutti ég „steðjann hans Þorgeirs Skorar- geirs“ austur að Skógum, dýrgrip á sínu sviði en jafnframt gott dæmi um sterk tengsl byggðarinnar við fortíð og sögu. Arnarhólsbaðstofan frá 1895 skartar í húsasafni í Skógum. Ekki var alltaf völ sumra hinna gömlu hluta, þeir farnir með öllu for- görðum. Gömul kona, Snjólaug Jó- hannesdóttir frá Skáldalæk í Svarf- aðardal, kenndi mér að sauma skyr- síl úr kýrhalahári í líkingu við þá saumgerð sem Kristján Eldjárn nefnir vattarsaum. Sílgrind smíðaði ég eftir gamalli frá frænda mínum Sigurjóni Sigurðssyni á Horni í Nesjum í Austur-Skaftafellssýslu. Fyrir atbeina Lofts Runólfssonar bónda á Strönd í Meðallandi varð til árið 2013 axarslíður í stað annars sem glatast hafði þar á bæ og er ein- stakur safngripur. Byggðasafnið í Skógum er í raun Þjóðsafn, vaxið frá því að vera ör- verpi í kjallaraholu í Skógaskóla árið 1949 til þess að verða stærsta minja- safn landsins utan Reykjavíkur. Fram um 1990 virtist ég einn um hituna við að setja upp sýningar þess en var það ekki. Oft var engu líkara en hlutir hefðu sál og sinni og tækju af mér ráðin. Til mín var talað: „Hér vil ég ekki vera, finndu mér stað þar sem ég nýt mín betur.“ Hver sýning skyldi vera samræmd heild þar sem ekkert stingur í augun. Forsjónin skákar mönnum á tafl- borð lífsins og ætlar þar hverjum og einum ákveðið hlutverk. Mitt hefur verið „að morra við að marka og draga á land“ minjar gamallar þjóð- menningar sem ella hefðu farið for- görðum og færa í, að ég vona, öruggt hæli, komandi kynslóðum til fróð- leiks og fagnaðar. Þar hafa margar hjálparhendur, margir hlýir hugir átt hlut að verki. Samfélagið hefur látið í té þann stuðning sem sköpum skipti. Aldrei get ég þakkað að fullum verðleikum hinni gömlu kynslóð sem leiddi mig fyrstu fetin og gaf mér ást sína og menningu sem ég bý að til dagsins í dag. Ég óska Félagi íslenskra safna og safnmanna til hamingju með safna- daginn 2014 og fagna öllum þeim heillasporum sem stigin hafa verið til hagsbóta minjavernd Íslands. Eftir Þórð Tómasson » Oft var engu líkara en hlutir hefðu sál og sinni og tækju af mér ráðin. Til mín var talað: „Hér vil ég ekki vera, finndu mér stað þar sem ég nýt mín betur.“ Þórður Tómasson Höfundur er safnvörður í Skógum. Horft til baka um farinn veg Kistill Skrautmálaður kassi frá 1780, verk Ámunda Jónssonar málara. Í lok síðasta árs fól ég Þóri Guðmundssyni að greina skipulag og fyrir- komulag þróunarsam- vinnu, friðargæslu og neyðar- og mannúðar- aðstoðar Íslands með það í huga að gera til- lögur um umbætur, væri þess þörf að hans mati. Meginmarkmið þessarar vinnu er að meta hvern- ig fjármagn til málaflokksins geti skilað hámarksárangri fyrir þá sem við viljum rétta hjálparhönd – fá- tækustu íbúa heimsins og fólk sem býr við neyð, svo sem vegna átaka eða hamfara. Það er einlæg skoðun mín að mikilvægt sé fyrir stjórnvöld að skoða með reglubundnum hætti hvernig hægt er að auka enn frekar árangur af þróunarstarfi okkar. Með öðrum orðum – tryggja að skattfé Íslendinga sé eins vel varið og kostur er. Samskonar greiningar og tillögur eru reglulega unnar í þeim löndum sem við berum okkur saman við og eru til marks um góða stjórnsýslu. Ákvörðun mína um að láta vinna verkið má rekja til aðildar Íslands að þróunarsamvinnunefnd Efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Áður en af aðildinni varð, vorið 2013, kom til landsins hópur sérfræðinga sem skoðaði sér- staklega þróunarsamvinnu Íslend- inga. Lagði hópurinn meðal annars til að íslensk stjórnvöld mætu skipulag og fyrirkomulag starfsins út frá því hvernig hámarks árangur og skilvirkni væru tryggð, með til- liti til smæðar landsins. Ég fékk Þóri til þess að vinna verkið, þar sem hann hefur ára- langa reynslu af alþjóðasamstarfi og störfum í þróunarlöndum. Þórir hefur lagt gríðarmikla vinnu í til- lögur sínar en nefna má að hann ræddi við hátt í 200 manns hér- lendis og erlendis við vinnslu skýrslunnar. Þórir afhenti mér skýrslu sína í gær sem ber heitið „Þróunarsamvinna Ís- lands: Skipulag, skil- virkni og árangur. Meðal tillagna skýrsl- unnar er að skipulag þróunarsamvinnu verði á einum stað, í utanríkisráðu- neytinu, og að Ísland skerpi áherslur og fækki samstarfslöndum í því skyni að auka skilvirkni og áhrifamátt framlaga sinna. Þá er lagt til að stofnuð verði þingmanna- nefnd um þróunarsamvinnu, sam- starfsráð um alþjóðlega þróunar- samvinnu verði styrkt og eftirlit með verkefnum eflt með því að taka upp árangursstjórnun í öllum þátt- um þróunarsamvinnu Íslands. Skýrslan sýnir jafnframt fram á að Ísland hefur á undanförnum ár- um og áratugum unnið mjög gott og árangursríkt starf í þróunarmálum. Skýrsla Þóris er öllum aðgengileg á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Ég hvet áhugafólk um þróunarsam- vinnu og alla þá sem starfa á þessu sviði til að kynna sér skýrsluna. Það mun ég sjálfur gera á komandi vikum og í kjölfarið taka ákvörðun um næstu skref. Eftir Gunnar Braga Sveinsson » Það er skoðun mín að mikilvægt sé fyrir stjórnvöld að skoða með reglubundnum hætti hvernig hægt er að auka enn frekar árangur af þróunarstarfi okkar. Gunnar Bragi Sveinsson Höfundur er utanríkisráðherra. Árangur og skilvirkni í þróunarsamvinnu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.