Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 27

Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Íslensku sveitinni, sem teflir í opnum flokki ólympíumótsins í Tromsö í Noregi sem hefst í byrjun ágúst, er raðað í 43. sæti á styrk- leikalistanum en sveitina skipa í stigaröð greinarhöfundur, Hjörvar Steinn Grétarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Guðmundur Kjartans- son og Þröstur Þórhallsson. Liðs- stjóri er Jón L. Árnason. Sem ein- valdur tók hann að sér að velja hópinn en aðeins sæti Íslandsmeist- arans er tryggt samkvæmt lögum Skáksambandsins. Tvær breytingar hefur Jón gert á hópnum frá því í Istanbúl 2012. Kvennaliðið er eins skipað skipað og í Istanbúl: Lenka Ptacnikova, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Tinna Kristín Finnbogadóttir, Jó- hanna Björg Jóhannsdóttir og Elsa María Kristínardóttir munu tefla fyrir Íslands hönd. Liðsstjóri er Ingvar Jóhannesson. Fimm sterkustu þjóðirnar í opna flokknum eru Rússar, Úkraínu- menn, Frakkar, Ungverjar og Bandaríkjamenn. Mikil athygli beinist að norsku sveitinni sem skartar heimsmeist- aranum Magnúsi Carlsen á 1. borði. Aðrir í sveitinni eru Simen Agde- stein, Jon Ludwig Hammer, Leif Erlend Johannessen og Kjetil Lie. Sveitin er í 15. sæti í styrkleikaröð- inni. Nær allir bestu skákmenn og -konur heims taka þátt í þessu móti. Tromsö er jafnframt vettvangur kosningar til forseta FIDE en Garrí Kasparov sækir hart að Kirsan Ilj- umzhinov sem setið hefur í tæplega 20 ár. Staðan mun vera tvísýn en Kasparov nýtur stuðnings allra Norðurlandaþjóðanna. Undanfarið hafa fjölmörg skák- mót verið haldin víða sem varða beint val á landsliðum líkt og Skák- þing Íslands í vor. Þess utan hafa menn og konur verið að undirbúa sig hver í sínu horni. Okkar öflug- asta skákkona; Lenka Ptacnikova, situr þessa dagana að tafli í Plov- div í Búlgaríu á Evrópumóti kvenna. Eftir fimm umferðir er hún í námunda við toppinn með þrjá vinninga. Keppendur eru 116 talsins. Taflmennska hefur verið frískleg sbr. eftirfarandi sigur í 3. umferð: Lenka Ptacnikova – Svetla Jord- anova (Búlgaríu) Enskur leikur 1. c4 Rf6 2. g3 c5 3. Bg2 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Rc3 Rc7 6. Rf3 Rc6 7. 0-0 e5 8. b3 Be7 9. Bb2 0-0 10. Re1 Bd7 11. Rd3 f6 12. f4 exf4 13. Rxf4 Kh8 14. e3 De8 15. Hc1 Hd8 16. Re4 b6 17. g4!? Þessu peði er falið stórt hlutverk eftir byrjun sem telja má hefð- bundna. 17. … Re6 18. Rd5 Re5 19. g5 Rd3 20. gxf6 Rxb2 21. Dc2! 21. fxe7 er freistandi en gengur ekki einfaldlega vegna 21. … Rxd1 og þegar allt verður talið hefur svartur hagnast á þeim vopna- viðskiptum. 21. … Bb5 22. fxe7 Hxf1+ 23. Bxf1 Hxd5 24. Bxb5 Dxb5 25. Dxb2 De8 26. b4! Á meðan svartur er enn að kljást við e7-peðið er rétti tíminn að opna línur á drottningarvæng. 26. … Dxe7 27. bxc5 Svartur getur haldið í horfinu með því að leika 27. … bx45 eða 27. … Rxc5. En vegna þess hversu liðfár hvítur er á kóngsvæng rær búlgarska stúlkan á önnur mið. 27. … Rg5? 28. cxb6! Krókur á móti bragði. Nú strand- ar 28. … Rxe4 á 29. Hc8+ Hd8 30. De5! með vinningsstöðu. 28. … Rh3+ 29. Kf1 Hf5+ 30. Ke2 axb6 31. Hc8+ Hf8 32. De5! Rg1+ 33. Kd1 Df7 34. Hxf8+ Dxf8 35. Rd6 Df3+ 36. Kc2 Dc6+ 37. Dc3 Da4+ 38. Db3 Dc6+ 39. Dc4 Dxc4+ Fær ekki lengur forðast drottn- ingaruppskiptin sem tryggja sigur Lenku. 40. Rxc4 Rf3 41. Rxb6 Kg8 42. a4! – og svartur gafst upp. Hitað upp fyrir ól- ympíumótið í Tromsö Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Ófriður á vinnu- markaði, kjaradeilur, verkföll og lagasetn- ingar hafa verið of- arlega í umræðunni síðastliðna mánuði. Það hefur gætt óþols félagsmanna ASÍ eftir kjarabótum, sem ég tel að nokkrar grein- ar atvinnulífsins geti staðið undir, ekki síst útflutningsgrein- arnar. En samflot í kjarasamn- ingum hefur komið í veg fyrir að þær greinar sem geta staðið undir hærri launum hafi samið um launakjör umfram lágmark sam- flotsins. SA og ASÍ fóru af stað með góðar væntingar, um 2,7% launahækkanir, eða 9.700 kr. á mánuði, sem tryggja átti nokkra kjarabót og stöðugleika í þjóð- félaginu með aðgerðapakka frá ríkisstjórninni. Í stuttu máli þá fóru þeir samningar í gegn þrátt fyrir nokkra andstöðu, sérstaklega fiskvinnslufólks. Síðan hefur hverri launadeilunni af annarri lokið með tugþúsunda hækkunum, 70-80 þús. króna launahækkanir sem gjarnan eru skýrðar með hag- ræðingu, breyttu vinnu- og vakta- fyrirkomulagi bæði á almenna markaðinum og þeim opinbera. Hluti þeirra samninga hefur al- gjörlega gengið á svig við þau fyr- irheit sem lægstlaunaða fólkið var tilbúið að axla ábyrgð á. Hlaðmenn á Keflavíkurflugvelli hækkuðu í launum um 9.700 kr. á mánuði en flugstjórar um 80.000 kr. Það var ekki tífaldur munur á launahækk- unum sem farið var með af stað í kjarasamningum á vinnumarkaði, en það er niðurstaðan. Það er mikilvægt að ná hagræð- ingu fram í kjarasamningum, en þá á það að ná til allra sem taka á sig og eru þátttakendur í hagræð- ingu. Í fiskvinnslu, sérstaklega uppsjávarveiðum, hefur orðið gríð- arleg verðmætaaukning vegna falls krónunnar, hagræðingar, fækkunar starfsfólks og framleiðniaukn- ingar síðustu ár, sem hafa fært fyrirtækj- unum miklar tekjur og eigendum góðan arð. Það er mikilvægt að undirstöðuat- vinnugreinarnar búi við góðan hagnað og hafi getu til fjárfest- inga og taki virkan þátt í samfélagslegri ábyrgð. Tölur um 30- 50% lækkun launa- kostnaðar í fisk- vinnslu af framleiðsluverðmæti sl. 5-7 ár eru staðreynd án þess að það hafi skilað sér í launaumslagið hjá verkafólki. Það sama má segja um aðrar útflutningsgreinar eins og ferðaþjónustuna. Ef það á endalaust að stíga ofan á lægst- launaða fólkið í þjóðfélaginu sem stendur undir mestu verðmæta- sköpuninni, í fiskvinnslu, ferða- þjónustu og annarri gjaldeyris- skapandi starfsemi, verður enginn friður á vinnumarkaði. Stóriðjan er ekki með láglaunastefnu og greiðir tvöföld laun á við aðrar út- flutningsgreinar. Sem þingmaður hef ég tekið þátt í að greiða atkvæði með lög- um á tvær vinnudeilur. Það voru þung spor, en stigin af ábyrgð sem mér fannst verjandi við þær að- stæður. En við verðum að finna nýjar leiðir til árangurs. Það hefur þó komið í ljós að lögin um Herjólfsdeiluna voru mistök að því marki að ekki var gert ráð fyrir kjaradómi ef deiluaðilar næðu ekki saman fyrir ákveðinn tíma eins og í flugmannadeilunni. Þrátt fyrir lög og frestun aðgerða gengur hvorki né rekur í kjaradeilu undir- manna á Herjólfi og verulegar blikur á lofti í þeirri deilu. Enn og aftur hvet ég deiluaðila til að ná samningum því ef sumarið dugar ekki til að ná fram kjarasamningi þá gerist það ekki í haust þegar ferðamannatíminn verður liðinn. Við verðum að ná almennri sátt á vinnumarkaði, hjá því opinbera á almenna markaðinum og þar verða allir að koma að borðinu. Vinnu- staðasamningar hafa gefið góða raun eins og í stóriðjunni. Þar hef- ur lengi verið góður friður og þeir samningar hafa tryggt mun betri laun en almennt á vinnumark- aðinum og ólíkar starfsstéttir náð að tryggja sameiginlega hagsmuni sína og fyrirtækjanna þar sem tekið er tillit til ábyrgðar, mennt- unar og stöðu í fyrirtækinu. Fyrir- tæki á borð við Herjólf og Ice- landair eru vinnustaðir sem ættu að gera slíka samninga. Á Íslandi eru tækifæri framtíð- arinnar í sjálfbærri nýtingu ork- unnar, fegurð landsins og auðlind- um til sjávar og sveita. Erlendar þjóðir og ferðamenn horfa öfund- araugum á þessar auðlindir. Ferskleiki og hreinleiki íslenska fisksins og landbúnaðarafurða eru eftirsótt gæði eins og frumkvöðl- astafsemin og hátækniiðnaðurinn, sem ferðamenn vilja sjá í sínu rétta umhverfi og hvernig við bú- um í þessu hreina og fallega landi. Það er í okkar höndum að skapa og viðhalda því trausti og stöðug- leika sem fær fólk til að flykkjast hingað. Það gerist með sátt á vinnumarkaði. Þrátt fyrir að verkfallsvopn hverrar stéttar sé grundvöllur verkalýðsbaráttunnar verðum við að finna leiðir til þess að það vopn sé aðeins notað þegar allt um þrýtur og þar er ábyrgðin beggja viðsemjenda. Á síðustu mánuðum höfum við öll gert okkur grein fyr- ir því að þessi staða er óviðunandi og við verðum að finna lausn. Lausn sem felur í sér betri kaup- mátt og rekstraröryggi fyrir at- vinnulífið, það eru sameiginlegu hagsmunirnir sem allir geta varið. Vinnustaðasamningar og friður á vinnumarkaði Eftir Ásmund Friðriksson »Hlaðmenn á Kefla- víkurflugvelli hækk- uðu í launum um 9.700 kr. á mánuði en flug- stjórar um 80.000 kr. Ásmundur Friðriksson Höfundur er alþingismaður. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.