Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 35
þakkir fyrir samveruna. Ég veit að
þú ert á betri stað án verkja og
nýtur nýrrar tilveru. Hugur minn
og okkar allra er hjá þér og fjöl-
skyldu þinni á þessum erfiða tíma.
Þótt við höldum að við séum
kannski viðbúin kemur dauðinn
okkur alltaf í opna skjöldu og okk-
ur þykir hann óréttlátur. Eða eins
og Gerður Kristný orðaði það í
ljóði sínu Maðurinn með ljáinn:
Hann kemur mér
í opna skjöldu
þar sem hann blasir við
á gamalli ljósmynd
Það er ekki blikandi ljárinn
sem kemur upp um hann
heldur hnausþykk gleraugun
Það hlaut að vera
að hann sæi illa
eins ómannglöggur og
hann getur verið
Elsku Björk og fjölskylda, ég
bið algóðan Guð að styrkja ykkur
og styðja. Ykkar vinkona,
Rakel.
Alltaf þegar okkur systkinun-
um var sagt að nú værum við að
fara vestur datt okkur fyrst í hug
að þá kæmum við bráðum til þín
og fjölskyldurnar þinnar í Smiðju-
götunni. Það voru alltaf miklar
gleðifréttir. Bræður mínir byrjuðu
strax að hlakka til að horfa á fót-
boltann með þér og segja þér
hvernig þeim hafði gengið á fót-
boltamótum og æfingum á meðan
ég, mamma og Björk gátum bras-
að fullt saman. Og þegar þú eld-
aðir fyrir okkur urðum við aldrei
fyrir vonbrigðum því það kunnirðu
svo sannarlega! Þú varst alltaf bú-
inn að lesa þér vel til áður en þú
byrjaðir að elda og kyntir upp í
webbanum. Við fengum leiðbein-
ingar í beinni um hvernig maður
ætti að grilla, svo að þú kenndir
okkur margt um grill og elda-
mennsku. Þegar ég fékk símtal frá
pabba mínum um að þú hefðir ver-
ið greindur með lífshættulegan
sjúkdóm átti ég erfitt með að trúa
því en vonaði auðvitað það besta,
eins og við öll. En það rætast ekki
allar óskir og mikið eigum við
systkinin eftir að sakna þess að
koma til Sverris og Bjarkar á Ísa-
firði. Auðvitað höldum við nú samt
áfram að kíkja til hennar Bjarkar
þinnar og reynum að passa hana
vel. Þín verður sárt saknað, kæri
Sverrir.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér
skrítið stundum hvernig lífið er,
eftir sitja margar minningar.
Þakklæti og trú.
Og þegar tími minn á jörðu hér,
liðinn er þá er ég burtu fer,
þá ég veit að þú munt visa veg
og taka á móti mér.
(Þýð. Ingibjörg Gunnarsdóttir)
Elsku Björk, Helga, Birkir, Lóa
og aðrir aðstandendur. Við systk-
inin sendum ykkur innilegar sam-
úðarkveðjur á þessum erfiðum
tíma. Kveðja,
Viktoría, Sigurður
og Garðar.
Það var erfitt símtal þegar minn
besti vinur hringdi í mig og sagðist
hafa greinst með erfiðan sjúkdóm.
Við vorum vinir frá barnæsku og
ótal minningar komu upp í hug-
ann. Við vorum Hlíðavegspúkar og
tókum upp á mörgu á æskuárun-
um. Dúfur og kattaveiðar, kofa-
byggingar og margt fleira. Svo
tóku við unglingsár, þar sem við
félagar skelltum okkur aðeins 16
ára gamlir í puttaferðalag og fleiri
ferðir. Og ekki má gleyma
skemmtilega árinu í Kaupmanna-
höfn, þar sem við unnum og leigð-
um saman, frábærum tíma sem
hefur oft verið rifjaður upp. Við
áttum mörg sameiginleg áhuga-
mál og gátum við alltaf rætt saman
um golfið og fótboltann. Sverrir
var harður stuðningsmaður Leeds
og þegar við stofnuðum fótbolta-
félagið Boltar í æsku tók hann ekki
annað í mál en að búningarnir
væru alhvítir.
Ég er svo ótrúlega heppinn að
hafa kynnst þér, Sverrir minn, því
stoltari og heiðarlegri manni hef ég
ekki kynnst á ævinni. Þegar þú
kynntist Björk var ég afar þakk-
látur fyrir að hafa fengið að taka
þátt og fylgjast með ykkar kæru
fjölskyldu, því mikil gleði hefur
alltaf verið í kringum ykkur.
Þegar ég flutti frá Ísafirði héld-
um við góðu sambandi símleiðis.
Það verður erfitt að geta ekki
spjallað um allt milli himins og
jarðar við þig og heyra í þér. Þú
fylgdist ávallt með fjölskyldu
minni og varst alltaf til staðar fyrir
okkur, og börnin litu upp til þín.
Strákarnir voru einkum spenntir
þegar við fórum vestur í Smiðju-
götuna og horfðum á fótbolta, sem
sonum mínum fannst vægast sagt
ekki leiðinlegt, og þegar þú grill-
aðir á webbanum fyrir okkur það
var sannkölluð hátíð. Þú varst allt-
af vel lesinn um allt og vissir svo
margt, eða eins og strákarnir
segja: „Ef Sverrir segir það, þá er
það rétt.“ Ég á svo erfitt með að
skrifa þetta, það er súrt að vera bú-
inn að missa þig. Þegar ég er að
skrifa þetta spyrja strákarnir:
„Ertu að skrifa um Sverri?“ „Já,“
segi ég. „Þá hefur þú margt að
skrifa um.“
Það er ótrúlegt hvað þú gast
tekist af miklu æðruleysi og
raunsæi á við sjúkdóminn. En ég
veit að þú hefur það betra á nýjum
stað og núna þjáistu ekki.
Hér er texti sem mér finnst orða
einhvern veginn allt sem mig lang-
ar að segja, elsku vinur minn:
Þegar augu þín opnast sé ég
ásýnd dauðans speglast þeim í.
Ég sá rauðan himin rifna í tvennt
og ryðgaðar hendur þungar sem blý.
Ég sat við rúm þitt og þagði með þér
þjakaður af myndum í huga mér.
Þú sagðist trúa og trú þín var sterk.
Ég trúði aldrei á kraftaverk.
Ég sá brimhvítan sársaukann svæfa þig
soga þig út á djúpin blá
ég sá skugga skríða yfir andlit þitt
skilja augun ljósinu frá.
Menn segja minningar séu hjartans
hilling
handrit töpuð skrifuð upp á ný
og árin renna með straumnum stríða
stillur hugans sökkva svo í.
Þegar augu mín opnast sé ég ævi þína
renna þeim hjá.
Stundum finnst mér ég heyra hlátur
og hjarta mitt fyllist af ljúfsárri þrá.
Ég minnist þín – ég minnist þín.
(Bubbi Morthens)
Elsku Björk, Birkir, Helga, Lóa
og fjölskyldur ykkar, Sigga, Unn-
steinn, Ninni og fjölskyldur, miss-
irinn er mikill og megi góður Guð
styrkja ykkur í sorg ykkar.
Guð veri með ykkur. Ykkar vin-
ur,
Þórir Ágúst.
Elsku vinur minn, Sverrir, er
fallinn frá langt fyrir aldur fram.
Mig setur hljóðan. Veit ekki hvað
ég hugsa, hvað ég geri, hvað ég á
að segja.
Það eru svo erfitt að kveðja
þennan hjartahlýja og góða vin.
Allt sem við höfum brallað saman í
gegnum tíðina, allir fótboltaleik-
irnir, golfferðirnar, bíltúrarnir og
ekki má gleyma áhuga okkar á
mat, Sverris að elda og minn að
borða, en mest elskaði Sverrir að
grilla á Webernum sínum og ég að
borða kræsingarnar sem hann bar
fram. Minn besti vinur kenndi mér
að njóta lífsins eins og það kom fyr-
ir. Minningu hans geymi ég í hjart-
anu.
Ég og Sigga mín biðjum Björk,
Birki og Helgu ásamt móður,
tengdamóður, tengdabörnum,
barnabörnum og öðrum aðstand-
endum Guðs blessunar.
Ljósið á himnum lýsir þér
fallegi drengur
í hjarta mér og fleiri hér
brostin er einn strengur.
(höf. ók.)
Sigríður Gunnsteinsdóttir og
Magnús Samúelsson.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Atvinnuauglýsingar 569 1100
PÍPULAGNINGAMENN
ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is
Verkefni ÍAV eru á öllum sviðum
byggingariðnaðar hvort sem um er að
ræðaíbúðarhúsnæði,atvinnuhúsnæði,
opinberar byggingar eða aðra mann-
virkjagerð sem og jarðgangagerð og
jarðvinnuframkvæmdir bæði hérlendis
og erlendis.
Við leggjum mikla áherslu á að ráða
til okkar kraftmikla og framsækna
einstaklinga, með góða hæfni í
mannlegum samskiptum.
Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu
og erum stolt af starfsandanum og
þeim metnaði sem hjá okkur ríkir.
ÍAV er eina verktakafyrirtækið á
Íslandi sem hefur bæði ISO 9001
gæðavottun og OSHAS 18001
öryggisvottun.
ÍAV óskar eftir að ráða öfluga pípulagningamenn
til starfa. Verkefnin sem unnið er að eru á
höfuðborgarsvæðinu og á suðurnesjum.
Í boði er:
Góð verkefnastaða
Góð laun fyrir rétta aðila
Góður aðbúnaður og starfsandi
Nánari upplýsingar veitir Snæbjörn R. Rafnsson,
verkefnastjóri pípulagna í síma 660-6201.
Umsóknir óskast lagðar inn í gegnum heimsíðu ÍAV,
www.iav.is
OHSAS
18001
Occupational
Health and Safety
Management
OHS 606809
ISO
9001
Quality
Management
FM 512106
Við breytum vilja í verk
Óskað er eftir verk- eða tæknifræðingi með reynslu af
stýrikerfum (PLC og SCADA). Viðkomandi þarf að
geta fylgt eftir kerfum á verkstað bæði á Íslandi og
erlendis, aðallega Noregi. Leitað er eftir metnaðar-
fullum einstaklingi í framtíðarstarf, sem hefur áhuga á
að vinna í fjölbreyttu umhverfi.
Hæfniskröfur:
• Verk- eða tæknifræði menntun er nauðsynleg
• Haldgóð reynsla og þekking á hönnun og forritun iðnstýrikerfa
• Reynsla í einhverjum af eftirfarandi hugbúnaði; Siemens, Rockwell,
Schneider Electric, ABB, Wonderware eða Lab View.
Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast í
gegnum heimasíðu EFLU, www.efla.is/umsokn-um-starf, fyrir 25. júlí
næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem
trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Brynjar Bragason, sviðsstjóri Iðnaðarsviðs,
brynjar.bragason@efla.is.
EFLA verkfræðistofa
óskar eftir starfsmanni
á iðnaðarsvið
EFLA er alhliða verkfræði- og
ráðgjafarfyrirtæki sem veitir
vandaða þjónustu á öllum helstu
sviðum verkfræði og tækni. Við
lítum á öll verkefni sem tækifæri
til þess að stuðla að framförum
og efla samfélagið.
EFLA býður upp á afbragðs
starfsumhverfi, áhugaverðan
starfsvettvang í alþjóðlegu
umhverfi og sterka liðsheild yfir
240 samhentra starfsmanna.
HÖFÐABAKKI 9 • 110 REYKJAVÍK • 412 6000 • www.efla.is • ÍSLAND • DUBAI • FRAKKLAND • NOREGUR • SVÍÞJÓÐ • PÓLLAND • RÚSSLAND • TYRKLAND
Þjónustustjóri/útgerð
Útgerðarfyrirtæki óskar eftir að ráða þjónustu-
stjóra. Starfið felst í þjónustu við frystiskip
félagsins og birgja ásamt tilfallandi störfum.
Æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu á
sjávarútvegi.
Umsóknir sendist á box@mbl.is
merkt: ,,Þ – 25690”.
Bakari (konditor)
Brauðgerð Kr. Jónssonar & co á
Akureyri óskar eftir að ráða bakara
(konditor) til framtíðarstarfa.
Leitað er eftir samviskusömum og
röskum aðila með reynslu.
Vinnutími er afar hagstæður.
Brauðgerðin leitar einnig eftir
bakaranema á samning.
Nánari upplýsingar veita
Birgir í síma 864 5901 og
Kjartan í síma 864 5902
Bakari
Yfirbakari óskast
Bakarí á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir yfir-
bakara til starfa. Leitað er eftir áhugasömum,
duglegum, skipulögðum og metnaðarfullum
einstaklingi. Kostur er ef viðkomandi hefur
reynslu úr sambærilegum störfum. Sendið
svar á yfirbakari@mail.com. Fyllsta trúnaðar
verður gætt í öllum samskiptum.