Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 52

Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 52
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 193. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Engin orð geta lýst sorginni 2. 21 Íslendingur með fallega húð 3. Vítaspyrna Vlaar fór mögulega … 4. Veltu bílnum í brúðkaupsferðinni  Það verður líf og fjör í Árbæjarsafni um helgina. Í dag, frá kl. 14, munu þátttakendur á þjóðdansamótinu BARNLEK 2014, börn á aldrinum 8 til 18 ára, dansa þjóðdansa frá kl. 14 og á morgun verður haldin hin árlega Harmonikuhátíð Reykjavíkur og hefst hún kl. 13. Munu þar leika margir af bestu og þekktustu harmonikuleik- urum Íslands. Dans og harmoniku- leikur í Árbæjarsafni  Tvö af ævintýrum Basils fursta verða flutt næstu fjóra sunnudaga í Útvarpsleikhúsinu á Rás 1 kl. 13, Hættuleg hljómsveit og Falski um- boðsmaðurinn, í útvarpsleikgerð og leikstjórn Viðars Eggertssonar. „Í ævintýrum Basils fursta koma oftast fyrir bæði reglulega fagrar glæpadrósir og glæpakvendi og það eru sko engar dúkkulísur! Stella, lafði Ethel og Sæta Emmy, svo nokkrar séu nefndar, eru engin lömb að leika sér við. Þess á milli eru svo ungar, sak- lausar og fallegar stúlkur, reglulega geðugar og viðfelldnar í umgengni, sem þeir Basil fursti og hinn ófor- betranlegi Sam Foxtrot, aðstoðar- maður hans, bjarga oft úr ótrúlegustu hremmingum,“ segir í tilkynningu frá Útvarpsleikhúsinu. Hvoru ævintýri er skipt í tvo hluta og á morgun verður fluttur fyrri hluti Hættulegrar hljóm- sveitar, sá seinni 20. júlí. 27. júlí og 4. ágúst verður svo Falski umboðsmað- urinn á dagskrá. Sögumaður er Gísli Rúnar Jóns- son og meðal leikara eru Harald G. Haralds og Ragnheiður Elva Arnardóttir. Ævintýri Basils fursta í Útvarpsleikhúsinu FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægur vindur og víða skúrir, einkum síðdegis, en áfram rigning á Suðausturlandi. Hiti 10 til 18 stig. Á sunnudag Norðaustan 5-10 m/s. Rigning með köflum, einkum um landið suðaustan- vert, en úrkomulítið norðan- og vestanlands fram eftir degi. Hiti 10 til 17 stig. Á mánudag Breytileg átt 5-10 m/s. Skúrir en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 10 til 15 stig. Úrslitaleikur 13. júlí? Það er kannski fulldramatísk lýsing á viðureign Stjörnunnar og FH sem fram fer í Garðabænum á morgun. En samt. Þetta er leikur sem hefur óhemju- mikið vægi í baráttunni um Íslands- meistaratitilinn 2014. Þetta eru tvö efstu lið Pepsi-deildarinnar. Næstum því tvö langefstu liðin eftir að KR missteig sig illilega gegn Þór. »4 Mikilvægur slagur Stjörnunnar og FH Arne Elovsson, varaforseti Handknattleikssambands Evrópu, sem situr í ráði Al- þjóðahandknattleiks- sambandsins (IHF council), segir að við upphaf fundar ráðsins í Zagreb á þriðju- daginn hafi verið lögð fram lagabreyting frá fram- kvæmdastjórn IHF sem varð til þess að Evrópa átti ekki aukasætið víst umfram aðra. »1 Byrjað var á laga- breytingum Þýskaland og Argentína leika til úr- slita um heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu klukkan 19 annað kvöld í Rio de Janeiro. Þá er það spurning hvort einstaklingsframtak Lionels Messi eða öflug liðsheild Þýskalands verður það sem ræður úrslitum um hvar stytt- an eftir- sótta verður geymd næstu fjögur árin. »2-3 Lionel Messi eða þýska liðsheildin? Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ætli nokkur staður á Íslandi hæfi jafnvel fyrir giftingar og helgi- staðurinn við Öxará? „Skundum á Þingvöll og treystum vor heit“ er sungið og í bakgrunni heyrist takt- fastur trumbusláttur. Og í þessu endurspeglast kannski kjarni hjóna- vígslna og þeirra skuldbindinga sem þar liggja að baki. Hjónaleysin heita hvort öðru traustri fylgd til fram- tíðar, enda hafa þau fundið sama taktinn sín í millum. Þetta er ekki flókið. Ásatrú við Öxarárfoss Þau Nataasha Helen Svan og Nig- el John Hand frá Wolverhampton á Mið-Englandi, sem hingað komu með skemmtiferðaskipi síðastliðinn þriðjudag, nýttu þá nokkurra klukkustunda viðdvöl hér til að láta pússa sig saman. Fóru austur á Þingvöll, sem segja má að sé heitur reitur hamingjunnar. „Yfir sumarið er þetta ein til tvær hjónavígslur á viku í kirkjunni og svo bætast við skírnir og fermingar. Síð- an borgaralegar athafnir sem sýslu- maður eða fulltrúi hans annast. Oft á Hakinu eða annars staðar utandyra. Þá eru hér einnig athafnir á vegum annarra trúfélaga, svo sem Ása- trúarfélagsins, gjarnan við Öxarár- foss. Við getum skotið á að þetta séu kannski þrjátíu eða fjörutíu hjóna- vígslur á ári,“ segir Guðrún Kristins- dóttir, yfirlandvörður á Þingvöllum. Það sem af er þessu ári hefur sýslumaðurinn á Selfossi gefið sam- an fern brúðhjón á Þingvöllum, en þau voru 23 í fyrra. Fangið af helgi og fegurð Þingvellir eru innan sóknarmarka sr. Egils Hallgrímssonar, sóknar- prests í Skálholti. Hann segist gefa þar saman átta til tíu brúðjón á ári hverju. Skál- holtskirkja njóti sannar- lega vinsælda, en í júlí, sem er vin- sælasti brúðkaupsmánuðurinn, sé hún oft teppt vegna tónleikahalds. Í fjölda athafna hafi Þingvellir því vinninginn en það færist þó í vöxt að fólk láti gefa sig saman á óvenju- legum stöðum, svo sem uppi á jökl- um, við fallega fossa og svo fram- vegis. Guðrún Kristinsdóttir telur ástæður þess að fólk velur Þingvelli fyrir persónulegar athafnir marg- víslegar. Oft er um að ræða erlenda ferðamenn, fólk sem er fangið af helgi og fegurð staðarins. Sama máli gegni um Íslendinga; fólk sem ef til vill hefur búið lengi erlendis og hefur í sumum tilvikum ekki mikil tengsl við einstakar kirkjur á Íslandi og því verði Þingvellir fyrir valinu. Heitur reitur hamingjunnar  Allt að fjörutíu hjónavígslur á Þingvöllum árlega Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hamingja Nataasha Helen Svan og Nigel John Hand frá Bretlandi létu gefa sig saman á Þingvöllum í vikunni. Í prestakalli sr. Egils Hallgríms- sonar í Skálholti eru tíu kirkjur; í Biskupstungum, Gríms- nesi, Grafningi, Laugar- dal og sú tíunda er á Þingvöllum. „Þetta er mikið úrval,“ segir Eg- ill. Þarna séu guðs- þjónustur alltaf öðru hverju en brúðkaup heyri til undan- tekninga. Helst ef fólk eigi sérstök tengsl við við- komandi kirkjustað. „Það eru jafnt Íslendingar sem útlendingar sem ég gef saman á Þingvöllum. Og allt kallar þetta á undirbúning. Útlendingar þurfa áð- ur en að athöfn kemur að vera búnir að senda ýmsa pappíra um sína stöðu. En það bara fylgir. Mér finnst alltaf jafngaman að gefa brúðhjón saman; vera þátttakandi í þeirra stærstu stund,“ segir sr. Egill. Taka þátt í stærstu stund PRESTURINN ER MEÐ KIRKJUR Í MIKLU ÚRVALI Egill Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.