Morgunblaðið - 22.08.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2014
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
E-60 Stólar
Verð frá
kr. 24.300
www.facebook.com/solohusgogn
Íslensk hönnun og framleiðsla
E-60 Bekkur
Verð frá kr. 59.000
Fáanlegur í
mismunandi lengdum.
Retro borð með stálkanti
Verð frá kr. 96.000
Fáanlegt í mismunandi stærðum.
Veiðiþjófar drepa fleiri fíla í Afríku en fæðast á ári
hverju en ný rannsókn, sem varpar nýju ljósi á raunveru-
lega tíðni veiðiþjófnaðar, bendir til þess að fílastofninn
minnki nú um 2% ár frá ári. Rannsóknin, sem leidd var af
George Wittemyer, prófessor við Colorado State Uni-
versity, bendir m.a. til þess að 40.000 fílar hafi verið
drepnir ólöglega í Afríku árið 2011 en samkvæmt eldri
rannsóknum var fjöldinn áætlaður 25.000. Þá segja vís-
indamennirnir að á árunum 2010-2012 hafi fleiri en
100.000 fílar verið drepnir í álfunni. „Við komumst að
því að aukinn veiðiþjófnaður var nátengdur staðarverð-
inu á svartamarkaðsfílabeini,“ segir Wittemyer en rann-
sakendurnir komust að því að þegar verðið á fílabeini fór
yfir 30 Bandaríkjadali fyrir kílóið, varð veiðin ósjálfbær.
Því miður hafi verðið að lokum farið upp í allt að 150 dali
á kílóið. Þá segja vísindamennirnir að þar sem stærstu
skögultennurnar séu eftirsóttastar séu karldýr á besta
aldri og mæður lítilla fílsunga gjarnan helstu skotmörk
veiðiþjófanna en drápin á þeim geri það m.a. að verkum
að ungarnir verði eftir einir og varnarlausir.
Heimild: PNAS/National Geographic/Traffic
Ný rannsókn sýnir að veiðiþjófnaður er tíðari en áður var talið
Fleiri en 100.000 fílar drepnir ólöglega
á árunum 2010-2012 í Afríku
Áætlaður fjöldi eftir svæðum
Mið-Afríka
Austur-
Afríka
Suður-Afríka
42.000
41.000
24.000
Fílum slátrað
Hald lagt á stóra
farma fílabeins
Á heimsvísu
2001 - 2011
Þúsundir kílóa
2001
7,1
19,5
4,4
2,8
4,7
16,4
2,2
19,3
9,8
23,7
02 03 04 05 06 07 09 10 11
Áætluð stærð
fílastofnsins:
470.000 - 690.000
(IUCN, 2007)
Fleiri fílar drepnir en fæðast
París. AFP. | Nokkrar af þeim þjóð-
um, sem Bandaríkjamenn hafa verið
duglegir við að gagnrýna í gegnum
tíðina fyrir mismunun og mannrétt-
indabrot, hafa gripið tækifærið í kjöl-
far dauða hins 18 ára gamla Michael
Brown og aðgerða lögreglu gegn
mótmælendum í Ferguson í Missouri
og skotið fast til baka.
Í Kína hafa fjölmiðlar fylgst náið
með málinu og ríkisfjölmiðillinn
CCTV sýnt upptökur frá mótmæl-
unum, sem þykir kaldhæðnislegt í
ljósi þess að kínversk stjórnvöld
leyfa ekki álíka umfjöllun um mót-
mæli heima fyrir. Opinbera frétta-
stofan Xinhua sagði að drápið á
Brown sýndi enn og aftur „að jafnvel
í landi sem hefur um árabil reynt að
leika hlutverk alþjóðlegs mannrétt-
indadómara og -verndara, er enn
mikið rúm fyrir umbætur heima
fyrir.“
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðu-
neyti Írans sagði m.a. að mismunun
gegn svörtum í Bandaríkjunum af
hendi lögreglu- og dómsyfirvalda
væri klárt dæmi um mannréttinda-
brot. Þá tísti æðsti leiðtogi Írana, Ali
Khamenei, að afrískir Bandaríkja-
menn væru í dag, líkt og hingað til,
kúgaðir og að mismunað væri gegn
þeim. Jafnvel í Egyptalandi, þar sem
1.400 manns, flestir íslamskir mót-
mælendur, hafa látið lífið í átökum
við öryggissveitir, hafa ráðamenn
ekki getað setið á sér en talsmaður
innanríkisráðuneytisins sagði banda-
ríska lögreglu beita óhóflegu afli og
utanríkisráðuneytið sagðist fylgjast
náið með þróun mála í Ferguson.
holmfridur@mbl.is
Skjóta til baka á Bandaríkjamenn
Kínverjar, Íranir, Egyptar og Rússar nota tækifærið í kjölfar dauða Michaels
Brown og gagnrýna Bandaríkjamenn fyrir mismunun og mannréttindabrot
AFP
Nota tækifærið Talsmaður utanríkisráðuneytis Rússlands sagði að Banda-
ríkjamenn ættu að leysa eigin vandamál áður en þeir skiptu sér af öðrum.
Oliver Brady,
farsóttafræð-
ingur við Ox-
ford-háskóla,
segir að þörf
sé á tugþús-
undum
skammta af
tilraunalyfj-
um til að
hamla útbreiðslu ebólu-faraldurs-
ins sem brotist hefur út í Gíneu,
Nígeríu og Síerra Leóne.
Bresk stjórnvöld og Wellcome-
styrktarsjóðurinn kölluðu í gær eft-
ir rannsóknartillögum varðandi út-
breiðslu og lækningu ebóluveir-
unnar en þær verða yfirfarnar
samstundis til að hægt verði að
hrinda þeim í framkvæmd án tafar.
10,8 milljónum Bandaríkjadala
verður veitt í þær rannsóknir sem
verða fyrir valinu.
1.350 hafa látið lífið af völdum
veirunnar frá því í mars sl.
EBÓLUFARALDURINN
Milljónum dala ráð-
stafað til rannsókna
Á árunum 2008-2012 ferðuðust 611
einstaklingar til Sviss til að fá aðstoð
við að deyja. Fjöldinn minnkaði milli
ára 2008-2009, úr 123 í 86, en tvöfald-
aðist á árunum 2009-2012, í 172. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í nýrri
grein sem birtist í tímaritinu Law,
Ethics and Medicine í vikunni en þar
kemur einnig fram að svokallaðir
„sjálfsvígstúristar“ hafi komið frá 31
landi, flestir frá Þýskalandi og Bret-
landi.
„Í Bretlandi, að minnsta kosti, eru
„að fara til Sviss“ orðin veigrunarorð
fyrir sjálfsvíg með aðstoð,“ segir í
greininni en þar segir einnig að sex
samtök, sem hafa barist fyrir réttin-
um til að deyja, aðstoði við 600 sjálfs-
víg á ári, þar af 150-200 þar sem ein-
staklingurinn hefur ferðast til Sviss
til að deyja. Í frétt CNN um málið
kemur fram að 58% af áðurnefndum
611 einstaklingum voru konur. Aldur
sjúklinganna var á bilinu 23-97 ára, en
meðalaldurinn 69. Nærri helmingur
þeirra þjáðist af taugasjúkdómi, aðrir
af krabbameini, gigtarsjúkdómum
eða hjartasjúkdómum. Margir þjáð-
ust af fleiri en einum sjúkdómi.
Sjálfsvíg með aðstoð og líknardráp
eru víðast hvar afar umdeild en sumir
sérfræðingar hafa haldið því fram að
verið sé að sneiða fram hjá raunveru-
lega vandamálinu, sem sé þörfin á
betri líknandi meðferð. Alison Twy-
cross, sem starfar við London South
Bank University, segir fylgismenn
sjálfsvígs með aðstoð oft hafa horft
upp á ástvin upplifa langdreginn og
sársaukafullan dauða.
„Við þurfum að fara að spyrja okk-
ur spurninga á borð við: er viðeigandi
að gefa sjúklingi með ólæknandi sjúk-
dóm sýklalyf ef hann fær sýkingu í
brjóstholið?“ segir hún og spyr hvort
það sé mögulegt að stuðning fólks við
sjálfsvíg með aðstoð megi rekja til til-
hneigingarinnar til að halda áfram
læknandi meðferð, jafnvel þegar
sjúklingurinn er við dauðans dyr. Þá
bendir hún á að reglum um sjálfsvíg
með aðstoð hafi ekki alltaf verið fylgt.
„Sjálfræði er mikilvægt. En það getur
verið, í málum er varða líf og dauða,
að þú getir ekki skapað frelsi fyrir fáa
án þess að svipta marga viðunandi
vernd.“
Þeim fjölgar sem
„fara til Sviss“
Morgunblaðið/Sverrir
Umdeilt
» Víða er gerður greinar-
munur á sjálfsvígi með aðstoð
og líknardrápi en munurinn
felst í þátttöku sjúklingsins
sjálfs.
» Sjálfsvíg með aðstoð er
ólöglegt í Bretlandi, Írlandi og
Frakklandi.