Morgunblaðið - 22.08.2014, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2014
Rithöfundurinn síungi Þórarinn Eldjárn er 65 ára í dag. Hannsegist alltaf vera iðinn við kolann en dagurinn í dag fari aðmestu í að safna kröftum fyrir hálfmaraþon á morgun. „Ég
hleyp aldrei maraþon en segi gjarnan að ég hafi samið við skipu-
leggjendur Reykjavíkurmaraþons um að ég hlaupi heilt maraþon,
skipti því bara á milli ára,“ segir afmælisbarnið.
Þórarinn ræktar bæði líkama og sál. Hann byrjaði að hlaupa
reglulega þegar hann var í námi og bjó í Svíþjóð á áttunda áratug
liðinnar aldar, hefur verið í leikfimi með öðrum hress=Sum, síung-
um mönnum nokkrum sinnum í viku á veturna í um 15 ár og hleypur
hálft maraþon í 14. sinn á morgun. „Ég hef haldið mig við Reykja-
víkurmaraþonið og aldrei hlaupið í keppni utan landsteinanna,“
segir hann. Aftekur ekki að keppni erlendis komi til greina í fram-
tíðinni en ekkert sé þó ákveðið í því efni.
Þórarinn er afkastamikill rithöfundur. Í vor kom út ljóðabók hans
Tautar og raular og barnaljóðabók er í prentun auk þess sem þýðing
á pólsku barnaljóði er væntanleg. „Ég er alltaf að, enda af nógu að
taka,“ segir skáldið. Þórarinn hefur lengi haft áhuga á Vestur-
Íslendingum. Hann verður með erindi á Þjóðræknisþingi á Hótel
Natura á sunnudag og fjallar þar meðal annars um tengsl sín við
frændfólk í Kanada. steinthor@mbl.is
Þórarinn Eldjárn skáld 65 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Þórarinn Eldjárn Tautar og raular er tíunda ljóðabók hans fyrir full-
orðna, en skáldið, sem er 65 ára, á 40 ára rithöfundarafmæli í ár.
Skiptir maraþon-
inu á milli ára
Íslendingar Pétur Atlí Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Anna María Magnúsdóttir,
Svanbjörn Orri Thorodd-
sen, Lára Ósk Eyjólfs-
dóttir, Sindri Svanberg
Gunnarsson, Tómas
Magni Ottósson og Stefán
Þorri Magnússon eru úr
Skerjafirði. Þau voru með
tombólu fyrir framan leik-
skólann Skerjagarð þar
sem þau seldu geisladiska,
plötur og annað dót. Þau
gáfu Rauða krossinum
ágóðann, kr. 4.091.
Hlutavelta
Halla Eiríksdóttir, Sólveig Erla Er-
lingsdóttir, Auður Arnardóttir og Sig-
urlaug Jónsdóttir héldu tombólu fyrir
utan Nóatún og seldu dót sem þær
höfðu safnað. Þær gáfu Rauða kross-
inum ágóðann, sem var kr. 9.990.
Hlutavelta
Guðbjörg Kristjánsdóttir fæddist á
Sauðárkróki 22. ágúst 1944 og ólst
upp á Hólum í Hjaltadal í stórum
barnahópi sem þá var á staðnum.
„Níu ára gömul fór ég að fylgja
gestum um Hóladómkirkju. Þar
skyldi sagt frá kirkjugripum og sögu
staðarins. Mér til fróðleiks las ég
kynningarbæklinginn Um Hóladóm-
kirkju eftir Kristján Eldjárn, þáver-
andi þjóðminjavörð, og lærði líka
margt af þeim fjölmörgu gestum sem
sóttu staðinn heim og þekktu sögu
hans. Þessi leiðsögn um Hólakirkju
varð til þess að vekja áhuga minn á
sögu og fornum munum. Hef upp frá
því haft þann sið að skoða kirkjur
hvenær sem færi gefst.“
Eftir stúdentspróf frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1966 var Guð-
björg ritari Kristjáns Eldjárns í
Þjóðminjasafni um eins árs skeið.
„Það jók áhuga minn á listasögu og í
þeirri fræðigrein hóf ég nám haustið
1967 í borginni Toulouse í Suður-
Frakklandi með styrk frá háskól-
anum þar. Eftir það stundaði ég nám
í París í miðaldalistsögu hjá prófess-
or Louis Grodecki og lauk þar
meistaraprófi með ritgerð um Ís-
lensku teiknibókina árið 1972.“
Kennsla og rannsóknir
Eftir heimkomuna hélt Guðbjörg
áfram rannsóknum sínum á Íslensku
teiknibókinni með styrk frá Vísinda-
sjóði. „Bókin er einstæð meðal ís-
lenskra miðaldahandrita. Hún er ein
af fáum teiknibókum frá miðöldum
sem varðveist hafa í Evrópu og sú
eina á Norðurlöndum. Myndir
Teiknibókar varpa einstæðu ljósi á ís-
lenska trúarlist og hugarheim mið-
alda og óhætt er að fullyrða að hvergi
Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns – 70 ára
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hólar í Hjaltadal Guðbjörg ólst upp á Hólum og þar kviknaði áhuginn á fornmunum sem hefur fylgt henni síðan.
Handhafi Íslensku bók-
menntaverðlaunanna
Morgunblaðið/RAX
Í Gerðarsafni Guðbjörg hefur veitt
safninu forstöðu frá stofnun þess.
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CCFlax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri
og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru
aðmeðaltali með 8,5 kgminni fitumassa en þær konur
sem skortir eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum og völdum stórmörkuðum
www.celsus.is
Slegið í gegn í vinsældum,
frábær árangur !
Mulin hörfræ – Lignans – Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum