Morgunblaðið - 22.08.2014, Page 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2014
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Hljóðlát og endingargóð
jeppadekk sem koma
þér örugglega hvert
á land sem er.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ágreiningur í viðskiptum kemur að
gagni – hann eykur umfjöllun, sem á móti
ýtir undir viðskipti. En þú mátt hafa þig allan
við að hafa yfirsýn yfir þetta allt saman.
20. apríl - 20. maí
Naut Það þarf stórátak til að brúa bilið sem
hefur myndast milli vinnu þinnar og einka-
lífs. Reyndu að losna við öfgafullar langanir
til að eyða og sparaðu gjafmildina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú lagðir hart að þér í byrjun vik-
unnar og ættir því ekki að vera of gagn-
rýnin/n á sjálfa/n þig þótt sjálfsagi þinn hafi
minnkað. Gakktu frá þessum málum og
stefndu ótrauður fram á við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhverjir vilja pranga inn á þig hlut-
um sem þú hefur í raun og veru enga þörf
fyrir. Nú er tíminn til þess að endurnýja
kynnin við góða félaga og endurlifa gamlar
minningar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sumt er einfaldlega þess virði að mað-
ur færi fórnir. Nú er rétti tíminn til þess að
vera aðgætnari, varkárari og þroskaðri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það hefnir sín síðar að stinga höfðinu
í sandinn og halda að öll vandamál séu þar
með úr sögunni. Mundu eftir þessu næst
þegar einhver kynnir þig með röngu nafni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gefðu þér tíma til að hitta ættingja og
vini og spjalla um gömlu góðu dagana. Lykil-
atriðið er að kynna sjálfa/n sig vel. Einbeittu
þér vel, þá nærðu eftirsóknarverðum ár-
angri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú getur ekki ætlast til þess að
aðrir taki mark á málflutningi þínum ef hegð-
un þín er í hróplegu ósamræmi við hann. Or-
sökin er erfiðleikar, sem sigrast má á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver mun koma þér til bjargar
á elleftu stundu. Notaðu keppnisskapið til að
reka þig áfram í heillandi og hollri útivist.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Enn ertu að bíða eftir því að yfir-
maðurinn taki eftir því hvað þú leggur mikið
á þig. Að hitta fólk af tilviljun hefur mikla
þýðingu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Því opinskárri sem þú ert, þeim
mun betra. Viltu njóta andartaksins eða vita
sannleikann? Allt kemur í ljós ef þú leitar
beint í uppsprettuna – og ekkert annað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er rétti tíminn til þess að ná aftur
sambandi við sálarsystur sínar og -bræður.
Með slíkum aðgerðum munt þú koma reglu á
hlutina.
Bogi Sigurðsson sendi mérlimru eftir Ólaf Björn Guð-
mundsson lyfjafræðing:
Hann Ólafur læknir á Laugum
er líkast til þreyttur á taugum
Því hann fullyrðir það
að fari ’ann í bað.
Þá fyllist allt húsið af draugum.
Bjarki Karlsson orti (í tilefni af
ummælum forsætisráðherra,
skyldi maður ætla):
Ég þjáist af þrautum og spasma
og þvagleka og geðveiki og asma
en það sem ég sýti
er sjálfskaparvíti:
ég tróð í mig toxoplasma.
Sigríður Hermannsdóttir varp-
ar því fram á Boðnarmiði, að það
séu víst einhverjir peningar í
lottópottinum núna – „lífið er jú
lotterí!“
Matthías sagði sitt mottó
milljarða að vinna í lottó.
Miða mér sýndi
en miðanum týndi
og milljónir hirti hann Ottó.
Helga Seljan blöskraði þorsta-
talið í Vísnahorni á þriðjudag og
þá kom þetta:
Hissa varð ég, Halldór minn,
að heyra þorstakveinin.
Í blávatninu bjargráð finn,
sem bætir flestöll meinin
En nú er vikan senn á enda og
Pétur Stefánsson í essinu sínu:
Föstudagar fjörga lund
fjarri öllu böli.
Gott er að eiga góða stund
með glasið fullt af öli.
x
Á föstudögum jafnan jeg
jakkafötin skríð’í.
Á fjörugt ball ég frúna dreg
og fæ mér neðan í’ðí.
Undir fréttum orti Hreinn Guð-
varðarson og má ráða af efni vís-
unnar að allt var með kyrrum
kjörum við Bárðarbungu þegar
hún var ort:
Oft eg sit við sjónvarpið
þar sýnist andinn slíkur:
Okkur kemur ekkert við
utan Reykjavíkur.
Guðbrandur Þorkell Guð-
brandsson leggur sitt til málanna:
Laus er ég við kreppu og kíf
og karp um salt til grautar,
því eitt er ljóst, að ekkert líf
er austan Kringlubrautar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Föstudagsþorsti, drauga-
gangur og toxoplasma
Í klípu
„MÉR LÍKAR EKKI ÞESSI TÓNN! ER ÞÉR
SAMA ÞÓ ÉG BREYTI HONUM AÐEINS?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG BÝST EKKI VIÐ AÐ ÞÚ SÉRT MEÐ
FLÖSKU AF ÞÚSUNDEYJASÓSU Í VASANUM,
ER ÞAÐ NOKKUÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að komast í form
fyrir hana.
SEFURÐU ENN MEÐ
BANGSA, GRETTIR?
ÞAÐ ER NÚ EIGINLEGA
MJÖG BARNALEGT, SKO.
TÍMABÆRT
AÐ FULL-
ORÐNAST.
TAKK, HERRA
KANÍNU-
INNISKÓR.
POLLÝ ER MJÖG SVÖNG OG EF ÞÚ GEFUR
HENNI EKKI FULLT AF MAT MUN HÚN
SEGJA KONUNNI ÞINNI HVAR ÞÚ FELUR
ROMMFLÖSKUNA!
ÉG KUNNI MUN BETUR VIÐ ÞIG
ÞEGAR ÞÚ VILDIR BARA KEX!
Víkverja líður mun betur og sjálf-sagt á það sama við um þorra
landsmanna eftir að manna-
nafnanefnd samþykkti eiginnafnið
Hrafnafífa, sem samkvæmt orðabók-
inni er „íslensk plöntutegund (Eriop-
horum scheuchzeri) af hálfgrasaætt,
með breiðum, hvítum hárskúfum á
stöngulendum“. Ekki er verra að
hún vex í votlendi, sem má heimfæra
upp á flest ef ekki öll fóstur.
x x x
Víkverji sækir enda í það að líðavel. Hann samgleðst til dæmis
alltaf þeim innlendu knatt-
spyrnuliðum sem tryggja sér sæti í
Evrópukeppni og sama á við um er-
lend lið, þar sem Íslendingar eru á
mála.
x x x
Víkverji þekkir bæði andrúmsloftiðsem fylgir því að vera utan Evr-
ópukeppni um árabil og hugarfarið,
sem umlykur sigurlið. Enginn þarf
að efast um hvort sé skemmtilegra
að vera inni eða úti í þessu sambandi.
x x x
KR tók fyrst íslenskra liða þátt íEvrópukeppni, fyrir hálfri öld,
og var fyrsta íslenska liðið til þess að
tryggja sér sæti í Evrópukeppni að
ári, gerði það með því að verða bik-
armeistari um liðna helgi. Fögnuður
Vesturbæinga og annarra stuðnings-
manna stórveldisins var fölskvalaus,
eins og hann hefur reyndar verið frá
2010, en frá þeim tíma hafa KR-ingar
þrisvar orðið bikarmeistarar og
tvisvar Íslandsmeistarar. Ekkert
hrun í Vesturbænum.
x x x
Hefð er fyrir því að KR-ingarfagna stóru titlunum á veitinga-
staðnum Rauða ljóninu á Eiðistorgi.
Leikmennirnir heilsa upp á stuðn-
ingsmennina og gleðin svífur yfir
vötnunum. Á slíkum stundum kemur
vel í ljós hvað árangur í keppnis-
íþróttum skiptir miklu máli, ekki
bara fyrir leikmenn og þjálfara held-
ur ekki síður fyrir stuðningsmenn.
Uppskeran í lokin er það sem allt
snýst um. Að fagna glæstum sigrum.
Að komast í Evrópukeppni. Að fá
tækifæri til þess að skemmta sér
saman. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er styrkur minn og lofsöngur,
hann varð mér til hjálpræðis. (Sálm-
arnir 118:14)