Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Frá kr. 77.300 Netverð á mann frá kr. 77.300 á Pella Steve m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 83.300 á Pella Steve m.v. 2 fullorðna í stúdíóíbúð. 23. júní í 10 nætur. Krít Seiðandi stemning 49.900 Flugsætifrá kr. Undanfarin ár hefur hálendis- vakt björgunarsveita verið mikilvægur liður í öryggi ferða- fólks hér á landi og hefst hún að þessu sinni 27. júní nk. Jónas Guðmundsson, hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, segir björgunarsveitafólk munu standa vaktina á fjórum stöð- um þetta sumarið; á Kili, Sprengisandi, að Fjallabaki og á svæðinu norðan Vatnajökuls. „Til að koma í veg fyrir slys stoppa hóparnir fólks- bíla og láta viðkom- andi vita ef hann er á leiðinni á slóðir þar sem eru óbrú- aðar ár eða erfið- ir vegir,“ segir Jónas, en um mörg hundruð ökumenn er að ræða á sumri hverju. Fylgjast vel með fólki HÁLENDISVAKTIN Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Þrír erlendir ferðalangar sluppu með skrekkinn eftir bílveltu skammt utan við Sauðárkrók síðastliðið föstudagskvöld, en ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í lausamöl. Fyrr þennan sama dag slasaðist er- lend kona alvarlega þegar bíll sem hún var í valt á Kjalvegi, norðan Hveravalla. Var konan flutt á gjör- gæsludeild Landspítalans. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda, segir slys sem þessi vera að færast í aukana. „Það er ljóst að margt af þessu fólki hefur aldrei á sinni ævi ekið á malarvegi,“ segir hann og bætir við að víða megi enn finna mjög slæma malarvegi hér á landi þar sem óvanir ökumenn geti hæglega lent í vandræðum. Ýmislegt reynt varðandi öryggi Bergþór Karlsson, framkvæmda- stjóri Bílaleigu Akureyrar, segir starfsmenn sína reyna hvað þeir geti að miðla upplýsingum til ferða- manna um ástand vega hér á landi. „Flestar bílaleigur dreifa stýris- spjöldum með bílunum þar sem finna má helstu upplýsingar en við gefum einnig út sérstakan bækling sem fylgir bílunum,“ segir Bergþór. Í bæklingnum má finna ítarlegri upp- lýsingar um vegakerfið, hvernig haga skal akstri á malarvegum og hámarkshraða svo fátt eitt sé nefnt. „Svo er alltaf spurning hvort og þá hversu vel fólk les þessar upplýsing- ar.“ Fyrir fáeinum árum var gert sérstakt GPS-kort fyrir viðskipta- vini bílaleiga í von um að auka öryggi ferðamanna á vegum landsins. Kort- ið sýnir ekki þá vegi sem teljast hættulegir eða óæskilegir fyrir við- skiptavini bílaleigufyrirtækja, auk þess sem viðvörun fer í gang þegar ökumenn nálgast vegi sem aðeins eru ætlaðir jeppum. „Þegar ökumenn nálgast fjallveg spyr kerfið hvort viðkomandi sé á réttum bíl fyrir þann veg sem fram undan er.“ Aðspurður segir Bergþór nokkuð algengt að ferðamenn leigi einnig GPS-tækið þegar bílaleigu- bíll er valinn en auðvitað notist alltaf einhverjir við leiðsögu- tæki í farsímum eða spjaldtölvum. „Flestar stærri bílaleigur eru þó með um 200 til 300 tæki í notkun á sumrin og þetta hefur auk- ið öryggi vegfarenda,“segir hann. Morgunblaðið/Golli Hálendið Mjög vinsælt er orðið að ferðafólk sæki hálendi Íslands heim. Ekki eru þó allir vanir aðstæðum þar. „Aldrei á sinni ævi ekið á malarvegi“  Leiðsögutæki sem varar ökumenn við erfiðum fjallvegum Skúli Halldórsson Björn Már Ólafsson Óhapp varð við flutning á hundi á Keflavíkurflugvelli á föstudags- morgun, með þeim afleiðingum að hann slapp úr búri sínu. Hundurinn er ófundinn og stendur leit enn yfir. Um er að ræða svartan og hvítan hund af tegundinni Border Collie sem gegnir nafninu Hunter. Eigandi hundsins, Catti Reinhall, var að millilenda hér á landi á leið frá Bandaríkjunum til Svíþjóðar. Hún segist ósátt við meðferð málsins. „Ég og börnin mín stóðum í rútu sem flytur farþegana í flugstöðina og horfðum á búrið falla til jarðar úr um fimm metra hæð. Ég öskraði og allir í rútunni líka. Hundurinn varð hræddur og hljóp í burtu. Ég ætlaði að elta hann en flugvallarstarfsmað- ur stöðvaði mig,“ segir Reinhall. Björgunarsveitir veita aðstoð Björgunarsveitir hafa aðstoðað Reinhall við leit um helgina. „Á laug- ardaginn flugum við á þyrlu yfir leit- arsvæðið í tvo tíma en urðum einskis vör. Hundurinn getur auðvitað hreyft sig og því erfitt að vita hvar hann er niður kominn. Ég veit ekki hversu margir eru tilbúnir að hjálpa mér áfram. En það er ljóst að það vilja flestir að hundurinn finnist, enda útlent dýr og ekki gott að það sé hlaupandi um hér á landi.“ Icelandair hefur séð henni fyrir gistingu og mat á meðan hún hefur dvalist hér á landi. „Þeir hafa hjálp- að mér ágætlega svo sem, en hefðu kannski getað brugðist betur við og hafið leit að hundinum strax. Þeir voru frekar rólegir til að byrja með, sérstaklega í ljósi þess að þetta voru þeirra mistök. Það eru sjálfboðaliðar í björgunarsveitum sem sjá um leit- ina sem mér finnst frekar sérstakt,“ segir Reinhall. Hún segist lofa tvö hundruð þúsund krónum í fundar- laun til þess sem kann að finna hundinn. Þar að auki hefur Icelanda- ir lofað tveimur flugmiðum til hins sama. Hægt að fá gæludýrapassa Þorvaldur H. Þórðarson, fram- kvæmdastjóri inn- og útflutnings- mála hjá Matvælastofnun, segir flutninga á gæludýrum vera að aukast. „Ferðalögum með gæludýr á milli heimsálfa virðist fara fjölgandi. Í Evrópu er til dæmis ákveðið kerfi þar sem hægt er að fá passa fyrir gæludýr og ferðast með þau innan ESB. Við erum þó ekki aðili að því sökum sérstöðu okkar hér á landi.“ Spurður um mögulega sektargerð á hendur Icelandair segir hann mál- ið vera sérstakt. „Þetta á sér nær engin fordæmi og við munum skoða það nánar. Nú einbeitum við okkur þó að því að finna hundinn.“ Matvælastofnun hefur fengið margar vísbendingar um ferðir hundsins. „Fólk hefur talið sig sjá til hans í Breiðholti, Árbæ og jafnvel Hvalfirði. Hann skyldi þó aldrei vera svo víðförull,“ segir Þorvaldur. Flutningar gæludýra á milli landa að aukast  Leita bandarísks hunds á Suðurnesjum Border Collie Leit stendur yfir að hundinum sem er af þessari tegund. Týndur hundur » Hundurinn er svartur og hvítur Border Collie og gegnir nafninu Hunter. » Hann slapp úr búri sínu á Keflavíkurflugvelli á föstudags- morgun. » Hver sem kynni að sjá til hundsins er beðinn um að til- kynna það tafarlaust til lög- reglunnar á Suðurnesjum í síma 420-1800. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Mikill fjöldi var staddur á Akureyri um helgina, en þar voru Bíladagar haldnir, venju samkvæmt. Að sögn Lögreglunnar á Akureyri hefur há- tíðin farið vel fram hingað til þrátt fyrir að eitthvað hafi verið um ofsa- akstur á svæðinu. Þá voru fjórir stöðvaðir vegna ölvunaraksturs og tveir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Margir íbúar bæjarins hafa kvartað til Lögreglunnar á Akureyri vegna hávaða frá ökutækjum, en margir ökuþórar reykspóluðu í bæn- um, bæjarbúum til mikillar mæðu. Bjóða gestum upp á spólsvæði „Við erum ekki ánægðir með spól- in í miðbænum. Við bjóðum upp á spólsvæði hjá okkur sem er opið allan sólahringinn og þangað getur fólk komið og spólað,“ segir Jón Rúnar Rafnsson, varaformaður Bílaklúbbs Akureyrar. Hann segir Bílaklúbb Akureyrar vera í stöðugu sambandi við Lögregluna og Akureyrabæ um hvernig hægt sé að stoppa þetta. „Þetta er bara vinna sem við erum búin að vera í síðustu ár. Það heldur bara áfram og er í góðum farvegi. Við reynum að gera allt sem í okkar valdi stendur,“ segir Jón Rúnar. Hann segir hátíðina hafa gengið mjög vel að öðru leyti og að aldrei hafi þurft að kalla til lögreglu á tjaldsvæðið sem Bílaklúbburinn heldur úti yfir hátíð- ina. 42% óánægð með Bíladaga Mikil spenna er milli skipuleggj- enda hátíðarinnar og íbúa á Akur- eyri, en nýlega framkvæmdu nem- endur við Háskólabrú Keilis könnun á viðhorfi Akureyringa til Bíladaga. Af tæplega 1.200 þátttakendum voru 42% aðspurðra frekar óánægð eða mjög óánægð með hátíðina. Hátíðinni lýkur hinn 17. júní. Margar kvartanir borist vegna háværs reykspóls  Bíladagar fóru fram á Akureyri um helgina  Gekk vel Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Bíladagar Hátíðin hefur gengið vel að sögn skipuleggjanda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.