Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 AFP Sjálfvirkni „Það sem við erum stoltastir af með nýju útgáfunni er hvað forritið ræður vel við flóknari hugbúnað,“ segir Þórarinn um nýjustu vöru Emco. Mynd úr safni af starfsmönnum við langa röð tölvuskjáa á vinnustað í Indlandi. Að halda utan um stórt safn af tölvum er ekki lítið verk. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það sætir furðu hversu lítið hefur farið fyrir Emco ehf. í íslenskum fjölmiðlum til þessa. Þetta litla ís- lenska hugbúnaðarfyrirtæki var stofnað árið 2001 og hefur síðan þá tekist að sanka að sér stórum hópi viðskiptavina sem dreifðir eru um allan heim- inn. Þórarinn Óskarsson er framkvæmda- stjóri Emco (www.emco- software.com) og áætlar hann að í dag hafi um 15.000 viðskipta- vinir keypt hug- búnað frá fyrir- tækinu, sumir þeirra þekkt alþjóðleg stórfyrirtæki. „Bara í síðustu viku var Disney Interna- tional að bætast við þennan lista,“ segir hann. Takmörkuð frægð Emco á heimamarkaði stafar mögulega af því að fyrirtækið sérhæfir sig í hugbúnaði fyrir kerfisstjóra, en ekki fyrir almenna neytendur. „Við höfum þróað ýmis hjálpar- tæki sem nýtast kerfisstjórum sem hafa í sinni umsjá stórt safn vinnu- stöðva. Forritin okkar annast m.a. dreifingu hugbúnaðar innan tölvu- kerfa, söfnun ýmissa upplýsinga úr kerfinu og hreinsun á vírusum og ýmiss konar óværu. Einnig höf- um við forrit sem slekkur á tölv- um, t.d. á kvöldin til að spara raf- magn, og kveikir aftur að morgni samkvæmt fyrirfram ákveðinni tímaáætlun,“ útskýrir Þórarinn. Uppsetning einfölduð Helsta vara Emco í dag kallast EMCO MSI Package Builder. „Þar er á ferðinni forrit sem kerf- isstjórar nota m.a. þegar setja þarf hugbúnað upp á mörgum tölv- um. Má segja að hlutverk MSI sé að spara kerfisstjóranum þá vinnu að þurfa að setjast við hverja ein- ustu tölvu og setja nýja hugbún- aðinn þar upp handvirkt,“ segir Þórarinn. Nýlega leit dagsins ljós endur- bætt útgáfa af MSI Package Buil- der sem Þórarinn kveðst vera ákaflega hreykinn af og jafnist á við það besta sem keppinautarnir á þessu sviði eru að bjóða. „Ef lýsa ætti virkni MSI Package Builder á einfaldan hátt þá skynjar forritið í rauntíma allar þær hreyfingar og aðgerðir sem eiga sér stað þegar forrit er sett upp á tölvu. Býr for- ritið því næst til svokallaða MSI skrá sem nota má til að endurtaka uppsetningarferlið á sjálfvirkan hátt. Það sem við erum stoltastir af með nýju útgáfunni er hvað for- ritið ræður vel við flóknari hug- búnað. Sem dæmi á MSI Package Builder ekki í neinum vandræðum með uppsetningu á Microsoft Of- fice 2013.“ Tveir menn og verktakar Þrátt fyrir stóran og alþjóðlegan viðskiptavinahóp er Emco ekki með mikla yfirbyggingu. Hér á landi eru starfsmennirnir aðeins tveir: Þórarinn og frændi hans Emil Þór Jónsson en báðir eru þeir sjálfmenntaðir forritarar og kerfisfræðingar, og bæði stofnend- ur og einu eigendur Emco. Fyrirtækið nýtir sér þjónustu verktaka til að leysa af hendi ýmis forritunarverkefni og hefur t.d. í gegnum tíðina verið með forritara á sínum snærum í löndum á borð við Kanada, Pakistan, Úkraínu og Nýja Sjálandi. Þessa dagana á Emco aðeins í samstarfi við forrit- ara í Úkraínu. Heyra má á Þórarni að það var af ásetningi gert að hafa umgjörð- ina svona smáa. Frá fyrsta degi hafi Emco verið rekið án sérstakr- ar aðkomu fjárfesta og starfsemin staðið undir sér. „Þannig hefur þetta gengið alveg ágætlega hing- að til. Við byrjuðum á núlli og höf- um sinnt allri uppbyggingu hægt og rólega.“ Létta kerfisstjóranum lífið  Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur m.a. þróað hugbúnað sem auðveldar uppsetningu forrita og kerfi sem slekkur á tölvum yfir nóttina til að spara rafmagn  Með þúsundir viðskiptavina um allan heim Þórarinn Óskarsson Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur farið hækkandi undanfarið vegna átaka og vaxandi spennu í Írak. Wall Street Journal greinir frá því að framvirkir samningar um Brent- hráolíu með afhendingartíma í júlí hafi hækkað um 4,4% í liðinni viku og standi nú í 113,41 dölum á fatið. Uppreisnarmenn hafa verið mjög virkir í norðurhluta Írak og náðu í þarsíðustu viku valdi á Mosul, næst- stærstu borg landsins. Hafa þeir hótað að leggja næst til atlögu við Bagdad í landinu miðju. Átökin eru enn langt frá helstu olíuvinnslusvæðum landsins, sem finna má í suðurhlutanum, en svo virðist sem markaðurinn óttist möguleikann á að átökin magnist og breiðist alla leið suður. Írak var á síðasta ári sjöundi stærsti olíuframleiðandi heims. Að sögn WSJ er í dag hárfínt jafn- vægi á milli framboðs og eftirspurn- ar á olíu á heimsmarkaði. Auk spenn- unnar í Írak hefur dregið úr framleiðslu í Líbíu og Íran. Á móti kemur að mikill uppgangur hefur verið í olíuframleiðslu í Bandaríkj- unum, en þar í landi eru í gildi lög sem koma í veg fyrir útflutning á megni þeirrar olíu sem kemur upp úr jörðu. Komi til þess að skortur verði á ol- íu er reiknað með að Sádi-Arabía getið aukið hjá sér framleiðsluna, en þá væru „öryggispúðar“ olíumarkað- arins uppurnir ef kæmi til frekari truflana í framleiðslu annars staðar í heiminum. WSJ segir suma markaðsgrein- endur spá því að ef olíuframleiðsla lamist í Írak get verð á Brent-hrá- olíu náð fyrri methæðum frá júlí 2008, en þá seldist fatið á 146 dali. Auk olíunnar hefur gullúnsan ver- ið á uppleið. Ágústsamningar á gulli enduðu í 1.274,10 dölum á föstudag á markaðinum í New York, 1,7% hærri eftir vikuna. MarketWatch hefur eft- ir markaðsgreinanda að átökin í Írak geti haft sterkari áhrif á gullverð en ólgan í Úkraínu. ai@mbl.is AFP Dæla Starfsmenn Gazprom við olíubrunn í Suður-Írak. Ef átökin í norður- hluta landsins breiða úr sér til suðurhlutans gæti það valdið olíuskorti. Átök í Írak ýta upp olíuverði  Gullverð einnig á uppleið vegna óvissu við Persaflóa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.