Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru oftast fleiri en ein hlið á
hverju máli. Góðir hlutir geta líka verið
endalausir. Vertu eins nákvæm(ur) og þú
getur og sjáðu hversu vel heimurinn hlustar
á þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt ekki séu allir á þínu máli er
ástæðulaust að grípa til stóryrða. Farðu eftir
hugmyndunum sem þú færð því þær eiga
eftir að hafa mikil áhrif á þig í langan tíma.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að eiga betra með að ein-
beita þér nú þegar þú hefur sett þér tak-
mark. En veistu, líðan þín mun batna eftir
fáeina daga, jafnvel þótt ekkert breytist.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ykkur finnst andstæðurnar hrannast
upp í kringum ykkur en málið er bara að
gefa sér tíma til þess að leysa málin eitt af
öðru. Hresstu aðeins upp á sjálfstraustið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er mikill óróleiki í kringum þig og
þú ert á nálum. Aðalmálið er að finna sér
tíma. Gerðu þér frekar glaðan dag og
bjóddu til þín góðum gestum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að íhuga hugmynd sem ein-
hver hefur fram að færa. Hún er á næsta
leiti og nú er rétti tíminn til þess að leita að
hagstæðu fargjaldi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt eftir að koma þér í klípu. Notaðu
daginn til að slaka á og hvíla þig ef þú hefur
tækifæri til þess.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eyddu ekki óþarfa orku í að
hugsa um það sem miður fór. Mundu að
þótt auðvelt sé að taka lán er erfiði að
standa í skilum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver þér nákominn er að
reyna að segja þér eitthvað en þú hlustar
ekki nægilega vel. Engum stendur ógn af
metnaði þínum heldur verður þú þvert á
móti hvattur/hvött til að láta í þér heyra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhverjir öfundarmenn þínir vilja
koma í veg fyrir að þú náir takmarki þínu.
Notaðu þessa ofurorku þína til að klára
verkefni sem þú hefur vanrækt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt ná takmarki þínu ef þér
tekst að virkja annað fólk til að bera sinn
hluta byrðarinnar. Leggðu þig fram um
sættir og þá gengur allt vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
tekur áhættu jafnvel þótt þér sýnist mögu-
leikarnir góðir. Virtu einkalíf annarra því allir
hafa þörf fyrir einveru.
Gylfi Pálsson segir skemmtilegafrá á fésbók: “Var að koma af
söngleik karlakórsins Heimis í
Hörpu. Svitadaunninn af slags-
málahundunum sem voru á dög-
unum að berjast í þessari svoköll-
uðu Eldborg lá enn í loftinu er inn
var komið en vék að mestu fyrir
hrossalyktinni sem lagði út í salinn
þegar kórfélagar höfðu stillt sér
upp. Það var gaman að horfa á
söngmennina og geta sér til um af
hvaða ætt hver var. Uppsalasvip-
urinn leyndi sér ekki í fremstu röð,
Eyhildarholtseinkennin sterk á
Konráðssonum þótt blönduð væri.
Einnig mátti merkja þarna aust-
anvatnakyn þótt alið hefði mestan
sinn aldur á Króknum.
En hvað var orðið um hina
óþvinguðu og heitu sönggleði sem
einkenndi kórinn hér áður fyrr?
Nú var allt orðið svo agað, fágað
og fyrirséð. Ég hélt reyndar að
þannig létu Skagfirðingar ekki
fara með sig. Ég man svo langt að
kórinn hélt konserta í gamla
bragganum í Varmahlíð og þá
kepptust söngmennirnir, hver í
sinni rödd, að syngja hærra og
sterkar en sá sem stóð við hliðina á
honum og svo kepptu raddirnar sín
milli í styrkleika og reyndu að yfir-
gnæfa hinar. Brjóstkassarnir þönd-
ust út og bárujárn braggans gekk í
bylgjum. Nú sást varla nokkur
bæra varirnar og tónninn oftast
pianissimo. Það var helst í síðasta
aukalaginu að maður þekkti sína
menn.
Af hverju býður Heimir ekki upp
á skagfirskan alþýðukveðskap á
sinni efnisskrá? Af nógu er að taka
– óþarfi að sækja óperettur til
Austurríkis. Hvers vegna kveða
þeir ekki ferskeytlur ortar af
heimamönnum. Örfá dæmi:
Skála og syngja Skagfirðingar
skemmtun vanda og gera hitt.
Heyrið slyngir Húnvetningar
hér er landaglasið mitt.
Kári Jónsson frá Valadal
Bregst ei þjóð á Brúarvöllum,
Braga-glóð sem aldrei dvín.
Skagfirskt blóð er í þeim öllum
sem elska fljóð og drekka vín.
Jónas Jónsson frá Hofdölum
Gróa á hjalla grösin smá,
grænka vallarbörðin.
Nú er falleg sjón að sjá
sól um allan fjörðinn.
Magnús Kr. Gíslason Vöglum
Lækjaraðir fjöllum frá
fram sér hraða af stalli.
Sýnist glaður svipur á
Silfrastaðafjalli.
Ólína Jónasdóttir frá Fremri-
Kotum“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Skagfirðingum
Í klípu
„ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR, LÆKNIR!
SVONA LÍTUR ÞETTA ALLT RÉTT ÚT!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÞÚ
VÆRIR AÐ ÞYNGJAST.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að slá rétta tóninn.
SJÚKLINGUR
ÚTSKRIFAÐUR
GRETTIR, ÉG VAR
AÐ SPÁ ...
ÞAÐ ER SAGT
AÐ KETTIR SÉU
SNYRTILEG DÝR ...
HVAÐ KOM
FYRIR ÞIG?
ÉG ER
UPP-
REISNAR-
SEGGUR.
VEISTU HVER ER ERFIÐASTA LEXÍAN
SEM MAÐUR LÆRIR ÞEGAR MAÐUR VEX
ÚR GRASI?
HVER?
ÞAÐ VILJA EKKI ALLIR
VERA VINIR ÞÍNIR?
Þegar Víkverji var barn fór af hon-um tvennum sögum. Móðir hans
sá hann sem vammlausan engil en
margir kennarar sem urðu á vegi hans
urðu þreyttir á látum og uppátækjum.
Líklega er hvorug sagan alveg rétt,
því Víkverji hefur að öllum líkindum
verið mitt þar á milli. Hann hefur því
töluverða samúð með ungu fólki; veit
að það er oftar en ekki misskilið. Það
tekur mörg ár fyrir mannabörn að
læra vel á tilfinningar sínar og að
koma hugsunum sínum í orð svo allir
megi skilja. Á meðan er engu líkara en
barnssálin hrópi hástöfum inni í lok-
uðu rými, en aðeins einstaka sér-
hljóðar skili sér út til þeirra sem
hlusta.
x x x
Í síðustu viku voru ungir, orkumiklirog léttklæddir menn á ferð í skóla-
skipi Slysavarnaskóla sjómanna. Þeir
unnu þar eitthvert tjón, en sýnu verra
var þó að þeir gættu ekki að eigin ör-
yggi. Með hjálp myndbirtingar komst
í ljós hverjir voru að verki og sættir
tókust með drengjunum og skóla-
stjórnendum.
x x x
Það er stundum erfitt að segja til umhvaða athæfi unglings eru refsi-
verð, og hvaða athæfi eru góð tækifæri
til að læra og þroskast.
Netverjar, sá skrítni og þveri ætt-
bálkur, var þó ekki í neinum vafa.
Gamall sjómaður vildi skikka drengina
til togarasjómennsku í fimm ár og
gefa þeim ekkert nema karfaþarma að
éta. Það er ágæt leið til að halda þeim
við vandræði. Fólk sem er bugað af
öðrum, fyrir litar sakir, á erfiðara með
að þroskast sem einstaklingar.
x x x
Verst fannst Víkverja þó hið aug-ljósa útlendingahatur sem spratt
upp þegar myndir af unglingunum
voru birtar. „Ósköp eru þeir útlend-
ingalegir,“ skrifaði einn netverjinn.
„Er þetta ekki eitthvað túristapakk?“
skrifaði annar. Miðað við þjóð sem
stefnir hraðbyri í að lifa eingöngu á er-
lendum ferðamönnum er furðulegt
hvað hér þrífst mikið útlendingahatur.
Hópur unglinga í miðbæ Reykjavíkur
í júní á stuttermabolum? Það gera
engir aðrir en grjótharðir Íslendingar.
víkverji@mbl.is
Víkverji
En þetta er ritað til þess að þið trúið
að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að
þið í trúnni eigið líf í hans nafni.
(Jóhannesarguðspjall 20:31)
Þú átt alltaf erindi til okkar
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver