Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 15
Traust og góð þjónusta Í 17 ÁR HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18, LAUGARDAGA 11-14 Umgjarðir í miklu úrvali Er ekki kominn t ími á sjónmæl ingu VIÐSKIPTI 15Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 FYLGIFISK Á GRILLIÐ Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is Pantaðu tilbúna grillpakka Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30 Laugardaga frá 11.00-16.00 (Kópavogur) Lágmarkspöntun er fyrir 4 - grillpakka þarf að panta fyrirfram Pakki 1 - spjót Kryddlegið fiskispjót Fyllt kartafla Grískt salat Grillsósa 1.495 kr/manninn Pakki 2 - steik Kryddlegin laxasteik Kartöflusalat Grænmeti á grillið Grillsósa 1.695 kr/manninn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Tæknin er á góðri leið með að breyta ásýnd verslana og veit- ingastaða. Að sögn Rúnars Rafns- sonar eru fyrirtæki í auknum mæli að taka snertiskjái og kynningarskjái í sína þjónustu og skipta t.d. út prentuðum til- boðsauglýs- ingum, upplýs- ingaskiltum og matseðlum fyrir stafrænt og jafn- vel gagnvirkt efni á skjá. Rúnar er sölustjóri upplýsinga- tæknisviðs hjá Ormsson og Sam- sung setrinu. „Verslun getur t.d. verið með stóran snertiskjá í miðri búð þar sem viðskiptavinir geta tengst netverslun fyrirtækisins, eða ferðamannamiðstöð sett upp skjá með gagnlegum upplýsingum fyrir gesti,“ útskýrir hann. „Sumir velja jafnvel að setja risavaxinn snertiskjá í fundarherbergið og skapa þannig mjög áhugaverða möguleika til að halda kynningar eða fjarfundi á gagnvirkan hátt.“ Geta þakið heilu veggina Segir Rúnar að þessi tækni verði ódýrari með hverju árinu og gæð- in fari sömuleiðis hratt batnandi. „Framleiðendur á borð við Sam- sung eru að bjóða upp á skjái sem eru frá 22 upp í 95 tommur að stærð, svo hægt er að hafa mjög stóran flöt til að miðla upplýs- ingum til viðskiptavina, en þá er ótalið að raða má mörgum skjáum saman ef svo ber undir og búa til heila vídeóveggi sem ekki fara framhjá neinum,“ segir hann. „Þetta eru líka skjáir sem eru sér- staklega smíðaðir til þessara nota og þola vel að vera í gangi allan sólarhringinn, með lengri verk- smiðjuábyrgð en fylgir venjuleg- um sjónvarpsskjáum.“ Bendir Rúnar á að með því að nota kynningar- og snertiskjái geti fyrirtæki ekki bara betur fangað athygli gesta og gangandi. „Sjónvarpstæknin þýðir líka að hægt er að uppfæra allar upplýs- ingar á augabragði með einum músarsmelli. Ef ég stýrði t.d. keðju hamborgarastaða gæti ég, frá skrifborðinu mínu, breytt verðinu á öllum stöðunum sam- tímis. Ekki þarf að prenta út nýj- ar myndaplötur eða plaggöt, senda á nokkra staði og koma fyr- ir með ærinni fyrirhöfn,“ segir hann. „Yfir daginn er hægt að skipta út tilboðum mörgum sinn- um eða breyta markaðsefninu á skjáunum í takt við tíma dags og hvers konar gestir eru á staðnum hverju sinni. Í tilviki hamborg- arastaðarsins gæti t.d. verið allt annars konar áherslur og yf- irbragð á matseðlinum yfir af- greiðsluborðinu á morgnana en á kvöldin.“ Starfsmenn lausir til annarra verka Byrjunarkostnaðurinn getur verið hár en á móti segir Rúnar að komi ýmis sparnaður. „Í stað þess að skipta um auglýsingaspjöld eða standa vaktina í þjónustuborði eru starfsmenn að gera eitthvað ann- að, enda auglýsingarnar upp- færðar með músarsmelli og upp- lýsingagjöfin fáanleg í gegnum gagnvirkan þjónustuskjá.“ Segir Rúnar að fara megi bæði ódýrar og dýrar leiðir við að búa til efni fyrir skjáina. „Í verslun okkar, Samsung setrinu, höfum við t.d. einn snertiskjá fyrir við- skiptavini sem er bara tengdur heimasíðu fyrirtækisins og gæti ekki verið einfaldara. Ef því er að skipta er síðan hægt að búa til auglýsingu í einföldum mynd- vinnsluforritum, en til að nýta möguleika tækninnar til fulls er samt upplagt að fá t.d. grafíska hönnuði á auglýsingastofu til að búa til kynningar og lifandi mynd- efni.“ Rúnar býst við því að þeir sem fyrstir verða til að innleiða kynn- ingar- og snertiskjái muni hafa það forskot á samkeppnina sem fylgir nýbreytninni, en seinna meir, þegar notkun skjáa verði al- mennari fari forskotið að ráðast af því hverjum tekst að búa til besta efnið: „Möguleikarnir eru nánast ótakmarkaðir og sést mjög vel að þar sem skjáir eru settir upp fá þeir mjög góða svörun. AFP Grípandi Gestir á sýningu David Hockney virða fyrir sér myndbandsverk. Kynningar- og snertiskjáir verða út- breiddari með hverju árinu og setja æ sterkari svip á þau rými þar sem viðskiptavinir og gestir eiga leið um. Kynningarefninu breytt með músarsmelli  Þegar notkun kynningar- og snertiskjáa verður almenn- ari fara gæði efnisins á skjáunum að stýra áhrifunum Rúnar Örn Rafnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.