Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 30
VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Í ár fagnar Gerðarsafn tuttugu ára afmæli sínu en það var opnað 1994. Nú stendur yfir afmælis- og og sumarsýning safnsins en þar eru sýnd verk eftir fjóra listamenn: Gerði Helgadóttur, Barböru og Magnús Árnason og Valgerði Briem. Einnig eru sýnd verk Kjar- vals úr listasafni Þorvaldar Guð- mundssonar og Ingibjargar Guð- mundsdóttur, þar á meðal er Lífshlaupið sem Kjarval málaði með svörtum lit á veggi vinnustofu sinnar. Allt frá upphafi hefur Guð- björg Kristjánsdóttir listfræðingur verið forstöðumaður safnsins en lætur af því starfi í ágúst næstkom- andi því þá verður hún sjötug. Mikilvægar gjafir Spurð um sögu safnsins segir Guðbjörg: „Verk Gerðar Helga- dóttur eru kjarninn í Gerðarsafni en árið 1977 gáfu erfingar Gerðar Kópavogsbæ 1400 listaverk úr dán- arbúi listakonunnar, en hún lést ár- ið 1975, 47 ára gömul. Gjöfinni fylgdu þau skilyrði að byggt yrði safn sem bæri nafn Gerðar. Þetta safn reis og heitir Listasafn Kópa- vogs – Gerðarsafn og Gerðarnafnið hefur fest við það. Tilkoma safnsins breytti miklu fyrir Kópavog, hingað kom fólk úr nágrannabyggðunum sem kom venjulega aldrei í Kópa- vog en gerði sér sérstaka ferð í safnið. Fyrstu árin var safnið al- hliða menningarhús, hér voru haldnir tónleikar þar sem Jónas Ingimundarson var í fararbroddi, ritlistarhópur hittist hérna og húsið var mikið notað sem móttökuhús fyrir bæinn. Þetta mikla menning- arstarf breytti ímynd Kópavogs og síðan risu allar hinar byggingarnar sem saman mynda kjarna: Salur- inn, Náttúrufræðistofan, bókasafn- ið, tónlistarsafnið og Molinn sem er ungmennahús. Safneignin hefur aukist mikið og hér eru geymslur fullar af lista- verkum og sýningarhald tekur vitaskuld mið af þeirri miklu eign. Það voru ekki einungis verkin hennar Gerðar sem komu hingað inn 1400 talsins heldur fékk safnið einnig árið 1983 mikilvægar gjafir frá minningarsjóði Barböru og Magnúsar Árnasonar, sem eru 300 verk eftir þau hjón, 100 eftir Bar- böru og 200 eftir Magnús. Árið 2009 fengum við líka mjög merki- lega gjöf, teikningasafn eftir Val- gerði Briem sem var mjög fær og flinkur teiknari og annálaður kenn- ari. Það vill svo skemmtilega til að þessir fjórir listamenn voru kunn- ingjar og vinir. Þessar stórgjafir eru kjarninn í safninu okkar og bærinn hefur svo keypt verk þann- ig að safneignin er vegleg. Árið 2001 tók Gerðarsafn svo í vörslu verk úr listaverkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur sem komu sér upp frábæru safni af verkum eftir Kjarval, einu því besta í einkaeign á Íslandi. Þorvaldur hafði mikið dálæti á Kjarval og í safninu er merkt verk, Lífshlaupið, sem er veggirnir í vinnustofu Kjarvals. Þorvaldur kynntist Kjarval einmitt þegar listamaðurinn var að mála þetta verk. Þorvaldur vann þá í Sláturfélaginu á Hverfisgötu og fór með mat til Kjarvals upp á vinnu- stofu hans í Austurstræti og keypti sitt fyrsta listaverk þar af Kjarval. Það var upphafið að hinu mikla listaverkasafni Þorvaldar og konu hans.“ Safn sem breytti miklu  Guðbjörg Kristjánsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns lætur af störfum í ágúst en verður ekki verkefnalaus. 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 Bandaríska leikkonan Ruby Dee er látin, 91 árs að aldri. Ferill Dee spannaði sjö áratugi og vann hún margan leiksigurinn á sviði og hvíta tjaldinu. Dee var ekki aðeins hæfileikarík leikkona heldur einn- ig ötull baráttumaður fyrir mann- réttindum og barðist gegn kyn- þáttahatri með eiginmanni sínum, Ossie Davis, sem lést árið 2005. Voru hjónin vinir þeirra Martin Luther King Jr. og Malcolms X. Dee lék í fjölda kvikmynda á ferli sínum, m.a. The Jackie Rob- inson Story frá árinu 1950, A Ra- isin in the Sun frá árinu 1961, The Buck and the Preacher frá árinu 1972, Do the Right Thing frá árinu 1989 og American Gangster frá 2007. Dee hlaut bæði Emmy- og Grammy-verðlaun á ferli sín- um og var tilnefnd til óskars- verðlauna fyrir leik sinn í Gang- ster. Dee hóf feril sinn í New York á fimmta áratugnum og sást fyrst á hvíta tjaldinu í söngvamyndinni That Man of Mine. Leikur hennar í The Jackie Robinson Story vakti hins vegar fyrst á henni þjóðar- athygli í heimalandinu. Meðal þeirra sem minnst hafa Dee eru bandaríska forsetafrúin Michelle Obama sem sagðist á vefnum Twitter syrgja leikkonuna og að hún myndi aldrei gleyma leik hennar í Do the Right Thing en hana hefði hún séð á fyrsta stefnumóti sínu með Barack Obama Bandaríkjaforseta. AFP Virt Ruby Dee var bæði virt leikkona og baráttukona fyrir mannréttindum. Ruby Dee látin HDS 5/11 U/UX 110 bör 450 ltr/klst 1x230 volt Gufudælur Aflmiklir vinnuþjarkar HDS 10/20-4 M/MX 30-200 bör 500-1000 ltr/klst HDS 8/18-4C 30-180 bör 300-800 ltr/klst Með og án slönguhjóls Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.