Morgunblaðið - 16.06.2014, Side 6
FRÉTTASKÝRING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hugsanlegt er að innan tveggja ára
verði hægt að aka hringinn um-
hverfis landið á bundnu slitlagi. Á
hringveginum austur á landi, Þjóð-
vegi númer 1,
eru tveir malar-
kaflar eftir en
samkvæmt vega-
áætlun verður
hafist handa um
endurbætur á
öðrum þeirra
jafnvel á næsta
ári, það er tæp-
lega átta kíló-
metra spotta
innst í Berufirði.
„Verkefninu eru eyrnamerktar
um 800 milljónir króna samkvæmt
samgönguáætluninni 2011-2022, á
öðru tímabili hennar. Við vonumst
til þess að fara megi í framkvæmd-
ir í Berufirði 2015 eða 2016. Það
var uppleggið í samgönguáætlun
sem gilda skal út árið 2016 sem
ekki náðist að afgreiða á Alþingi í
vor,“ segir G. Pétur Matthíasson,
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinn-
ar, í samtali við Morgunblaðið.
Þótt vegurinn í Berufjarðarbotni
sé enn aðeins malarborinn þurfa
vegfarendur þó varla að kvarta því
þétt leirlag er á veginum, sem á
þessum slóðum er bæði beinn og
breiður. Hins vegar er annar kafli
á hringveginum ekki langt undan
talsvert öðruvísi, það er leiðin úr
Breiðdal og upp hátt og bratt klif
þar og um Breiðdalsheiðina niður í
Skriðdal. Þetta er 33ja km leið og
eru engin áform um endurbætur
þar, samkvæmt fyrirliggjandi sam-
gönguáætlun, sem nær jafnan til
tólf ára í senn – sem aftur er skipt
upp í þrjú fjögurra ára tímabil.
Þannig er búið að leggja útlínur að
framkvæmdaáætlun allt fram til
2022 og Breiðdalsheiðin er hvergi
á blaði.
800 milljónir merktar Öxi
Áformað er, að sögn G. Péturs
Matthíassonar, að framkvæmdir við
veginn yfir Öxi úr Berufirði yfir í
Skriðdal hefjist eftir sex til sjö ár.
Öxi var lengi aðeins grófur jeppa-
slóði en var gerð sumar- og fólks-
bílafær fyrir rúmum áratug.
„Í okkar áætlunum hafa aðrar
800 milljónir verið merktar Axar-
veginum á þriðja tímabili þeirrar
samgönguáætlunar sem nú gildir.
Menn hafa horft til þess að þarna
verði heilsársvegur og áform um
framkvæmdir miðast við það,“ segir
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinn-
ar. Hringvegurinn er alls 1.332 km
og lengi gilti hjá Vegagerðinni sú
stefna að framkvæmdir sem farið
væri í styttu eða að minnsta kosti
lengdu ekki hinn margnefnda
hring, sem opnaðist þegar brýrnar
yfir Skeiðarársand voru teknar í
notkun árið 1974.
Vilja hringveg um Suðurfirði
Meðal Austfirðinga hefur það
sjónarmið komið fram að rétt væri
að færa hringveginn þar eystra,
það er að hann færi ekki um
Breiðadalsheiði heldur Suðurfirð-
ina svonefndu. Þar er átt við leiðina
frá Breiðdalsvík og áfram til Stöðv-
arfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, það-
an um jarðgöngin yfir í Reyðar-
fjörð og svo áfram um Fagradal
upp á Hérað.
„Rökin í málinu hafa gjarnan
verið þau að yfir vetrartímann geri
erlendir ferðamenn oft þá skissu að
ætla sér um Þjóðveg eitt um Breið-
dalsheiðina, sem oft er ófær yfir
vetrartímann. Og þetta er alveg
fullgilt sjónarmið þótt ekkert hafi
gerst í málinu enn sem komið er.
Við höldum okkur því áfram við að
Breiðdalsheiðin sé Þjóðvegur eitt,
þótt slitlag á veginn sé ekki í aug-
sýn enn sem komið er,“ segir G.
Pétur Matthíasson.
Slitlag umhverfis landið er í augsýn
Bundið slitlag hugsanlega komið á allan hringveginn innan tveggja ára Framkvæmdir í Berufirði
jafnvel á næsta ári 33 km Breiðdalskafli hvergi á blaði Öxi eftir sjö ár og verður þá heilsársvegur
Vegur Sé hringvegurinn ekinn rangsælis sleppir malbikinu innarlega í Berufirði, þar sem er átta kílómetra malarspotti. Annar slíkur kafli er í Breiðdal- og á Breiðdalsheiði. Á næstu árum verður
Berufjarðarvegur bættur og Axarvegur upp á Hérað byggðar upp, en nú er hann aðeins sumarfær og hátt snjóstálið er alveg við veginn í efsta klifinu þó komið sé fram í júní.
Vegir á Austurlandi
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Slitlag væntanlegt
Heilsársvegur
í undirbúningi
Engar framkvæmdir
Hugsanlega
hringvegurinn?
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Vatnajökull
Þrándarjökull
Sk
rið
da
lu
r
Reyðarfjörður
Eskifjörður
Neskaupstaður
SeyðisfjörðurEgilsstaðir
Fáskrúðsfj.
Stöðvarfj.
Berufj.
Hamarsfj.
Reyðarfj.
Mjóifj.
Seyðisfj.
La
ga
rfl
jó
t
G. Pétur
Matthíasson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía GWalthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
„...Virkilega vönduð, lipur
og góð þjónusta“
Við vorum í söluhugleiðingum og var okkur bent á að fá RE/MAX, Alpha,
til að sjá um söluna. Við sjáum ekki eftir því! Þau sáu um allan pakkann
fyrir okkur. Íbúðin var seld á þremur dögum og sáu þau um allt sem snýr
að sölunni. Einnig aðstoðu þau okkur við kaup á nýju fasteigninni.
Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta, allt sem var sagt stóðst
og er því auðvelt að mæla með RE/MAX, Alpha.
Kv. Áslaug og Benni
820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Nú eru liðnir fimm dagar frá því að
leit hófst að tveimur konum í Fljóts-
hlíð og þá voru fjórir dagar liðnir frá
því að síðast spurðist til þeirra. Eng-
ar nýjar vísbendingar hafa komið
fram.
Önnur kvennanna fannst látin
sama dag og leit að konunum hófst
en íslensku konunnar er enn saknað.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu tóku um 200 manns þátt í leit-
inni á laugardag þegar leitað var á
svæðinu milli sumarbústaðarins þar
sem konurnar dvöldu og Bleiksár-
gljúfurs, þar sem önnur þeirra
fannst látin á þriðjudag. Þá var
ákveðið að draga úr leitinni á meðan
engar nýjar vísbendingar bærust.
Í gær var leitinni svo haldið áfram
og að sögn Sveins K. Rúnarssonar,
yfirlögregluþjóns á Hvolsvelli, voru
fáir leitarhópar, eða um 20 manns, að
störfum en einkum var verið að leita
á vatnasvæðum á hjólum, það er við
Markarfljótið, á Markarfljótsaurum
og ströndinni.
Ákveða næstu skref í dag
Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
var í gær farið yfir gögn í tengslum
við leitina og verður nú í morgun-
sárið tekinn stöðufundur meðal
þeirra sem stjórna leitinni. Það ligg-
ur þó fyrir að leitinni skuli haldið
áfram en hver næstu skref verða
verður ákveðið á fundinum sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
á Hvolsvelli.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélag-
inu Landsbjörg kemur það fram að
að ýmsu þurfi að huga þegar aðgerð-
ir sem þessi dragist á langinn. Að
mannskapurinn þurfi bæði hvíld og
orku. Þá kemur fram að fjölmörg fé-
lög og fyrirtæki á leitarsvæðinu hafi
tekið þátt í að fæða og hýsa leitar-
fólkið.
Enn hefur ekkert spurst
til konunnar í Fljótshlíð
Leit haldið áfram í dag Engar nýjar vísbendingar
Morgunblaðið/RAX
Leitarflokkar Um 200 manns tóku
þátt í leitinni á laugardaginn.