Morgunblaðið - 16.06.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is 30
Sölustaðir:
Jói Útherji
Hagkaup
Debenhams
Intersport
Joe´s - Akureyri
Bjarg - Akranesi
K-Sport - Keflavík
Hafnarbúðin - Ísafirði
Efnalaug Dóru - Höfn
Karlmenn - Laugavegi
Herrahúsið - Laugavegi
Kaupfélag Skagfirðinga
Sentrum - Egilsstöðum
Axeló - Vestmannaeyjum
Verslunin Tákn - Húsavík
Blómsturvellir - Hellissandi
Sportbær Skóbúð - Selfossi
Pex - Reyðarfirði og Neskaupsstað
Verslun Bjarna Eiríkssonar - Bolungarvík
Verslun Guðsteins Eyjólfssonar - Laugavegi
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Uppsagnir af hálfu landeigenda
vegna vanefnda ábúenda á ríkis-
jörðum eru sjaldgæfar, hvað þá út-
burður. Fyrirhugaður útburður á
Sigurði Ragnarssyni ábúanda á rík-
isjörðinni Þúfu í Ölfusi er einsdæmi,
samkvæmt upplýsingum frá efna-
hags- og fjármálaráðuneytinu sem
fer með jarðareign ríkisins.
Sigurður seldi ríkinu jörðina árið
1973 og samkvæmt byggingarbréfi
hefur hann erfðaleiguábúð og kaup-
rétt á jörðinni, eins og sagt var frá í
Morgunblaðinu 11. júní.
Síðar komu upp deilur á milli ríkis-
ins og Sigurðar eftir að ríkið seldi
hluta jarðarinnar til Orkuveitu
Reykjavíkur án vitundar eða samráðs
við Sigurð árið 1999. Hann segir ríkið
ekki hafa haft heimild til þess sam-
kvæmt afsalinu frá 1973 og að það
skuldi sér fjárhæð vegna sölunnar.
Sigurður hefur enga leigu greitt af
jörðinni síðan 2006 vegna þessa
ágreinings, og byggir ríkið útburða-
kröfu sína á vangoldinni leigu.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðu-
neytinu hafði ríkið fulla heimild, sem
eigandi jarðarinnar, til að selja hluta
af afréttarréttindum hennar. „Landið
og vatnsréttindi þessi voru í óskiptri
sameign nokkurra jarða. Við ábú-
endasölu er lagaskylda að halda eftir
vatnsréttindum þannig að fyrrver-
andi ábúandi hefði aldrei fengið að
kaupa þau réttindi til baka,“ segir í
svari frá ráðuneytinu.
Sinnti ekki skyldum sínum
Þá hefur Sigurður óskað eftir því
að fá jörðina keypta til baka en segir
að ríkið virði ekki kauprétt hans sam-
kvæmt byggingarbréfinu.
„Skyldur ábúenda samkvæmt
byggingarbréfi eru að þeir verða að
greiða leigu fyrir jörðina, greiða fast-
eignagjöld og brunatryggingar af
jörðinni. Kaupsamningur lá á borðinu
fyrir nokkrum árum, en samkomulag
náðist ekki,“ segir í svarir efnahags-
og fjármálaráðuneytisins.
Ríkið sagði Sigurði upp ábúðinni á
Þúfu í árslok 2011 vegna vanefnda og
átti hann að vera farinn sumarið 2012.
Hann hefur neitað því og fór fjár-
mála- og efnahagsráðuneytið í mál
gegn Sigurði. Héraðsdómur Suður-
lands féllst á útburðarkröfu ríkisins.
Dómurinn féll í apríl og var málið í
kjölfarið sent til Hæstaréttar sem á
eftir að fella sinn dóm.
Sigurður hefur hafnað úttekt á jörð-
inni svo ekki liggur fyrir ástand húsa-
kosts og jarðarinnar og því ekki ljóst
hvað ríkið hyggst gera við jörðina ef
Sigurður verður borinn af henni.
Útburður ábúandans er einsdæmi
Vanefndir ábúenda á ríkisjörðum sjaldgæfar, hvað þá útburður Ríkið hafði fullan rétt á að selja
hluta jarðarinnar Þúfu í Ölfusi til OR Ekki ljóst hvað ríkið hyggst gera við jörðina eftir útburð
Þúfa í Ölfusi
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Þúfa
Hveragerði
Kröggólfsstaðir
Vötn
Vellir
Friðarstaðir
Reykir
Núpar III
Núpar
Núpahnjúkur
Vatnsskarð
Núpafjall
Kambarnir
Þjóðvegur 1
Þo
rlá
ksh
afn
arv
eg
ur
Stóri Saurbær
Litli Saurbær
Vindás
Öxnalækur
Landamerki Þúfu
Þjóðhátíðardagurinn verður hald-
inn hátíðlegur um allt land á morg-
un og eru hátíðarhöldin ekki síst
ætluð börnunum en leiktæki, blöðr-
ur og skemmtiatriði munu hafa of-
an af fyrir börnunum fram eftir
degi.
Neytendastofa vill þó beina þeim
ábendingum til foreldra og for-
ráðamanna barna að blöðrur sem
börnum eru afhentar eru oftar en
ekki með mjög sterkum böndum
sem jafnvel fullorðnir geta ekki
slitið í sundur. Foreldrum er því
bent á að binda blöðrur ekki við
vöggur, rúm eða handleggi barna.
Neytendastofa varar
við 17. júní blöðrum
Blöðrur Á 17. júní rjúka blöðrur af öllum
stærðum og gerðum út.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Sumarleyfistíminn er hafinn og fjöldi
fólks fer á flakk um landið. Álag á
þjóðvegi eykst því töluvert og margir
óþreyjufullir ökumenn bruna fram úr
þeim sem fara hægar yfir.
Rekja má 109 slys í umferðinni á
árunum 2009 til 2013 til ógætilegs
framúraksturs og önnur 205 til of
mikils hraða samkvæmt tölum úr
slysaskrám Samgöngustofu. Framúr-
akstur er óhjákvæmilegur og því
mikilvægt að ökumenn sýni hver öðr-
um tillitssemi. Vegagerðin hefur unn-
ið áhættumat á vegum landsins og
sett upp merki til að vara við yfirvof-
andi hættum. Mikilvægt er að virða
merki og línur Vegagerðarinnar til að
vita hvar er æskilegt að taka fram úr
og hvar það er ekki leyfilegt.
Akstur undir áhrifum áfengis
Áfengi og akstur fara aldrei saman
en þrátt fyrir skýr skilaboð lögreglu,
Umferðarstofu og tryggingafélaga
um hættuna á akstri undir áhrifum
áfengis hefur tæpur fjórðungur öku-
manna ekið í kjölfar þess að drekka
einn eða fleiri áfenga drykki sam-
kvæmt könnun Samgöngustofu.
Karlar eru líklegri til þess, eða 29% á
móti 18% kvenna. Íbúar höfuðborgar-
svæðisins eru líklegri en aðrir til að
aka eftir að hafa neytt áfengis og eftir
því sem menntun og tekjur aukast er
fólk líklegra til að aka undir áhrifum.
Akstur undir áhrifum áfengis og
lyfja var ástæða 93% endurkrafna
tryggingafélaga á hendur viðskipta-
vinum sínum árið 2012. Í nær tveimur
af hverjum þremur tilfellum var ölv-
unarakstur ástæðan og í þriðjungi
önnur vímuefni og lyf. Fjölgað hefur
hratt í síðarnefnda hópnum undan-
farin ár.
Morgunblaðið/Ernir
Akstur Álagið á þjóðvegi landsins
fer að aukast í kjölfar sumarfría.
Fjórðungur ekur
eftir áfengisneyslu