Morgunblaðið - 16.06.2014, Síða 13

Morgunblaðið - 16.06.2014, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 SVIÐSLJÓS Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Spínatæði hefur gripið um sig á Ís- landi og hefur innflutningur á spí- nati til landsins aukist um 110% frá árinu 2009 samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Í fyrra voru tæp 114 tonn flutt inn af spínati samanborið við 54 tonn árið 2009. Aukningin er enn meiri ef litið er lengra aftur í tímann, því innflutningur á spínati hefur tæplega fimmfaldast á tíu ár- um, frá árinu 2003, en þá nam hann ekki nema tæpum 25 tonnum. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á undanförnum árum, því ekki er langt síðan Íslendingar tengdu spí- nat fyrst og fremst við teikni- myndafígúruna Stjána bláa en uppáhalds matur hans var spínat eins og frægt er orðið. Spínat í drykki og salöt Örvar Karlsson, sölustjóri hjá Banönum ehf., sem sérhæfa sig í innflutningi á ávöxtum og græn- meti, segir allt benda til þess að Ís- lendingar hugsi meira um hollt mataræði en þeir gerðu fyrir nokkrum árum. „Ég tengi aukninguna eitthvað við boost-drykki og almenna holl- ustu. Það er aukning í mörgum vörutegundum hjá okkur og spínat er ein af þeim. Fólk notar spínatið ekki bara í drykki heldur einnig mikið í salatið. Þetta er hollt og í dag er mun auðveldara að fá þetta. Áður fyrr var spínatið ekki eins sýnilegt,“ segir Örvar. „Ég á aldrei nóg, við seljum um það bil þrjú tonn á mánuði,“ segir Hafberg Þórisson, stofnandi og eig- andi gróðrarstöðvarinnar Lamb- haga. Hann segir Lambhaga ekki ætla að auka við sig í spínatræktun heldur einbeita sér að öðrum teg- undum. Mikil eftirspurn eftir íslensku „Eftirspurnin hefur aukist veru- lega undanfarin ár og sala á spínati á Íslandi aukist gríðarlega,“ segir Gunnlaugur Karlsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna. Hann segir hins vegar vandamálið vera að megnið af sölu- aukningunni sé í formi innflutts spínats. „Áskorunin á íslenska garðyrkujbændur er að svara þessu kalli og framleiða meira af þessari vöru. Það er engin ástæða til að fljúga spínati til Íslands eftir að búið er að keyra með það yfir þver Banda- ríkin ef við getum ræktað þetta sjálf á Íslandi,“ segir Gunnlaugur. Hann segir gjaldeyrinum betur varið í aðra hluti og að íslenskir grænmetisbændur séu nú farnir að rækta fleiri tegundir grænmetis yf- ir allt árið en þeir gerðu áður. „Við höfum til dæmis gert þetta með grænkál. Við ræktum það nú á Íslandi allt árið,“ segir Gunnlaugur. Hann segir forsendurnar þó þurfa að vera í lagi til að ís- lenskir garðyrkjubændur geti annað eftirspurn enn betur en þeir geri í dag. „Garðyrkjubændur verða að geta keypt rafmagn á eðlilegu verði. Það þarf að taka til í þessum rafmagns- málum,“ segir Gunn- laugur. Íslendingar eru óðir í spínat  Innflutningur á spínati var fimm sinnum meiri í fyrra en hann var fyrir 10 árum  Lambhagi selur 3 tonn á mánuði  „Íslenskir garðyrkjubændur eiga að svara kallinu,“ segir framkvæmdastjóri SFG Morgunblaðið/Árni Sæberg Aukning Mun fleiri Íslendingar sækja í spínatið í dag en þeir gerðu fyrir nokkrum árum. Framkvæmdastjóri Sölu- félags garðyrkjumanna vill lækka rafmagnskostnað til garðyrkjubænda til að tryggja vöxt innan geirans. Sumir halda því fram að ástæð- an fyrir því að spínat hafi orðið fyrir valinu sem aflgjafi Stjána bláa sé mistök hjá vísindamanni við útreikninga á innihaldi járns í spínati; að hann hafi reiknað styrk járns meiri en hann var í raun. Þetta er þó líklegast ekki rétt því nýleg rannsókn sýndi fram á að spínat hefði verið val- ið vegna A-vítamíninnihalds. Upphaflega sótti Stjáni blái ofurstyrk sinn til göldróttar hænu, sem hann hélt upp að sér. Fljótlega var þessu breytt og spínatið kom í stað hæn- unnar. Vinsældir Stjána bláa vestanhafs leiddu til aukinnar sölu á græn- meti og voru reistar styttur af Stjána bláa í borgunum Crystal City og Alma í Bandaríkjunum, þar sem spínatræktun var mikilvæg atvinnugrein. Um tíma var yfir helmingurinn af öllu spínati í Bandaríkjunum ræktaður í borginni Alma og var hún því oft kölluð spínathöfuð- borg heimsins. Af hverju var það spínat? STJÁNI BLÁI OG SPÍNAT Stjáni Blái Sheer Driving Pleasure BMW 1 lína www.bmw.is MISSTU EKKI AF ÞESSUM. BJÓÐUM NOKKRA BMW 1 SPORT DÍSIL MEÐ RÍKULEGUM BÚNAÐI Á SÉRSTÖKU SUMARVERÐI. Nú er komið að því að upplifa BMW. Lykilorðin eru gæði, sparneytni og afl. Komdu og reynsluaktu BMW 116d Sport með leðurklæddu stýri, upphituðum framsætum, rafdrifnu léttstýri, fjarlægðarvara að aftan, stillanlegum armpúða, SENSATEC BLACK sætum og álfelgum. Þú gerir ekki einungis góð kaup heldur færð allt það besta í þessum þægilega millistærðar-bíl sem sameinar alla helstu kosti BMW. BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 BMW 116d Sport. Verð frá4.590.000kr. 116d *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.