Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 Fiðraður hafnarvörður Hún var heldur betur myndarleg krían sem tók sér stöðu við Reykjavíkurhöfn eins og hver annar hafnarvörður. Og ekki amalegt að hafa Hörpu í bakgrunninum. Golli Föstudaginn 6. júní 2014 birti Morgun- blaðið grein eftir Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Efnislega mun greinin samhljóða fyrirlestri sem hann flutti á alþjóðlegum fundi um karlafræði sama dag. Í greininni dregur Hannes fram einfaldar viðmiðanir því til sönnunar að farsæld fólks verði ekki mæld með tekjunum ein- um saman. Hann tekur dæmi meðal annars um lífslíkur, glæpatíðni, fíkniefnaneyslu, stríðsrekstur og samveru foreldra með börnum sín- um. Hann leggur áherslu á að tölur um þessi atriði segi ekki minna til um farsæld fólks en samanburður tekna. Hannes notar tölurnar til að bera saman stöðu kynjanna í íslensk- um raunveruleika og dregur af þeim þá ályktun að karlar séu kúgaðir. Tölurnar henta raunar ekki síður til að rökstyðja að jafnréttisbaráttan eigi enn langt í land en ég ætla ekki í rökræður um þau efni. Umfjöllun Hannesar gefur mér hins vegar til- efni til þess að fjalla um farsæld út frá almennu sjónarmiði og þá sér- staklega hvernig við getum hagað samfélaginu þannig að sem flestir njóti farsældar. Eins og Hannes bendir réttilega á eru tölur um tekjur fólks ekki full- gildur mælikvarði á farsæld þess. Félagslegt umhverfi og aðstæður skipta ekki síður máli en tekjurnar. Það sem er sérstaklega áhugavert í því efni er að eftir að tekjur sam- félagsins ná því, sem gerist í Portúgal og Grikklandi, aukast lífs- líkur ekki með hærri tekjum. Það sama á við um félagslegu og heilsufarslegu þættina. Auknum þjóðartekjum fylgir hvorki minni glæpatíðni né minni fíkniefnaneysla. Wilkinson og Pickett sýna fram á þetta í bók sinni, The Spirit Level, sem kom út árið 2009. Þau leita án árangurs að samhengi tekna og árangurs barna í stærð- fræði og lestri, barnadauða, morð- tíðni, fangelsunum, barneignum tán- inga, trausti á öðru fólki, offitu, geðheilsu (þar sem alkóhólismi og fíkniefnaneysla eru talin) og ekki síst félagslegum hreyfanleika í samfélag- inu. Skýrt samhengi finna þau hins vegar, þegar jöfnuður/ójöfnuður í viðkomandi samfélagi er tekinn til samanburðar í stað samanburðar við tekjur. Niðurstaða þeirra á jafnt við, hvort sem litið er til ríku þjóðanna eða ríkjanna í Bandaríkjunum. Auk- inn jöfnuður og betra samfélag fara einfaldlega saman. Þessu mætti mögulega svara með því að segja: „Auðvitað er jöfnuður af því góða en hann dregur úr hag- vexti, svo til lengdar er ekki hagur af jöfnuði.“ Þetta er reyndar oft gert í pólitískri orðræðu, jafnt á Íslandi sem annars staðar. Það á hins vegar við þessa fullyrðingu eins og margar aðrar að hún verður ekki að sann- indum þótt hún sé endurtekin oft. Nefnd á vegum OECD skilaði áliti um efnið árið 2012. Niðurstaða nefndarinnar var að það væri ekkert einfalt samhengi á milli hagvaxtar og þess hve mikill jöfnuður er í viðkom- andi samfélagi. Ójöfnuður kann að fela í sér hvata til framtaks en á móti vega mismunandi aðgangur að heil- brigðisþjónustu, menntun, menn- ingu og starfsframa. Það er einfald- lega ekki svo að allir hafi jöfn tækifæri í ójöfnu samfélagi. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur á þessu ári birt tvær sérfræði- skýrslur þar sem niðurstaðan er að vaxandi ójöfnuður ógni hagvexti. Rannsóknir sérfræðinganna sýna að með auknum jöfnuði eflist hagvöxtur og hagvaxtarskeiðin verða lengri. Jöfnunartilfærslur geta án efa valdið truflun í hagkerfinu en við núverandi aðstæður segja þeir að erfitt sé að benda á dæmi þar sem áhrifin gætu orðið neikvæð. Í fyrirlestri í London nú í júní sagði Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins: „Í ójöfnum samfélögum er ánægja minni. Hreyfanleiki milli kynslóða er minni. Heildarniður- staðan er að of mikill ójöfnuður get- ur hindrað að einstaklingar byggi upp færni. Það kemur ekki á óvart að hann hindrar einnig varanlegan hag- vöxt – Þetta sýna nýlegar rann- sóknir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“ Tillögur um aðgerðir til að sporna gegn ójöfnuði hafa verið til umræðu í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og í maí á þessu ári lagði OECD fram til- lögur um að nýta skattkerfið í þeim tilgangi að auka jöfnuð. Fram- kvæmdastjóri OECD, Angel Gurría, sagði við það tilefni: „Ef ekki verður gripið til samræmdra pólitískra að- gerða er líklegt að bilið á milli ríkra og fátækra muni vaxa enn meira á komandi árum. Þess vegna er knýj- andi að tryggja að þeir tekjuhæstu leggi fram réttmætan hlut af skött- unum. Talsmenn helstu al- þjóðastofnanna í efnahagsmálum eru þannig sammála um að bregðast verði við vaxandi ójöfnuði. Í skýrslunni sem fylgdi tillögum OECD er meðal annars bent á að á árabilinu 1976-2007 hefur nærri helmingur tekjuaukningar sam- félagsins komið í hlut tekjuhæstu 1% framteljenda í Bandaríkjunum. 10% tekjuhæstu framteljendurnir hafa fengið meira en 80% tekjuaukning- arinnar í sinn hlut. 90% Bandaríkja- manna hafa þannig orðið að láta sér nægja innan við 1/5 tekjuaukning- arinnar síðustu þrjá áratugi. Í nefnd- arálitinu er lögð sérstök áhersla á að lækkun jaðarskatta á hæstu tekjum virðist fyrst og fremst hafa þau áhrif að tekjuhæstu 1% framteljenda fá meira í sinn hlut. Í Bandaríkjunum hefur þróunin eðlilega valdið áhyggjum. Auk þess sem að framan segir um ójafna skiptingu tekjuaukningar í Banda- ríkjunum síðustu þrjá áratugi, má nefna að tölur bandarísku hagstof- unnar (Census Bureau) sýna að mið- gildistekjur fullvinnandi karls náðu hámarki að raunvirði á árinu 1973 og hafa öll ár síðan verið lægri en þá var. Því fer þannig fjarri að tekju- aukning hátekjufólks hafi dregið uppi tekjur hins almenna manns. Þeir tekjulægri hafa ekki aðeins dregist aftur úr þeim tekjuhærri. Staða þeirra hefur versnað. Í erindi sem Alan Krueger, for- maður hagfræðiráðs Bandaríkja- forseta, flutti árið 2012 dró hann fram tölur sem gefa til kynna að þrisvar sinnum meiri líkur séu á því að barn fætt í Bandaríkjunum sitji fast í tekjuumhverfi foreldra sinna en barn fætt í Danmörku. Þennan mun má rekja til þess að ójöfnuður- inn er mun meiri í Bandaríkjunum en Danmörku. Þótt Krueger hafi ekki orðað það svo má því segja að ameríski draumurinn sé nánast draumórar í Ameríku þótt hann sé ekki alveg horfinn þar. Hann hefur flutt sig um set til Norðurlandanna. Þegar flest bendir til þess að jöfn- uður hamli ekki hagvexti, frekar auki hann, og vitað er að félagsleg og heilsufarsleg vellíðan eykst með auknum jöfnuði, ættum við að geta orðið sammála um að standa vörð um jöfnuðinn. Samkvæmt tölum OECD um árið 2010 er jöfnuður mestur á Íslandi af OECD-ríkjum. Þá stöðu þurfum við að verja. Það er leiðin til þess að tryggja bæði hag- vöxt og farsæld Íslendinga. Eftir Ásmund Stefánsson » Ójöfnuður kann að fela í sér hvata til framtaks en á móti vega mismunandi aðgangur að heilbrigðisþjónustu, menntun, menningu og starfsframa. Ásmundur Stefánsson Höfundur er hagfræðingur. Farsæld, hagvöxtur og jöfnuður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.