Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 Elsku heimsins besti afi, það er erfitt að finna orð til að lýsa því hversu yndisleg- ur þú varst og hvað þú skiptir okk- ur miklu máli. Það er erfitt að hugsa til þess að brosið þitt og gleðin sem umkringdi þig sé nokk- uð sem við munum ekki fá að upp- lifa aftur. Þegar maður kom í heimsókn til ykkar ömmu var skylda að gefa þér koss á kinn og ef maður vogaði sér að gleyma að kyssa þig þá minntir þú mann allt- af á það, að launum fengum við svo koss frá þér á ennið. Við erum þér ótrúlega þakklát- ar fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og öll þau skipti sem þú hjálpaðir okkur. Við gátum alltaf leitað til þín og talað við þig sama um hvað málið snerist, manni leið alltaf betur þegar mað- ur var búinn að tala við afa. Það má segja að þú hafir gengið okkur í föðurstað þegar við fluttum heim til Íslands og bjuggum hjá ykkur ömmu. Á milli okkar mynduðust sterk tengsl sem munu aldrei rofna. Ég, Natalie, man svo vel eftir því þegar við fórum tvö saman að versla í matinn þær helgar sem mamma og amma voru að vinna. Það var alltaf svo gaman hjá okk- ur og endaði verslunarferðin yf- irleitt á því að við fengum okkur ostborgara, sem mér fannst ekki leiðinlegt. Einnig þykir mér ótrú- lega vænt um allar góðu minning- arnar úr bílferðunum okkar og góðu samtölin sem við áttum í þeim. Ég er þér ótrúlega þakklát fyr- ir alla hjálpina við íbúðarleitina og fyrir öll góðu ráðin sem þú veittir okkur Kjartani við breytingarnar á henni, enda varstu einstaklega handlaginn og var nánast ekkert Axel Henry Bender ✝ Axel HenryBender fæddist 3. ágúst 1938. Hann lést 1. júní 2014. Út- för Axels Henrys var gerð 10. júní 2014. sem þú gast ekki gert. Ég gæti lengið haldið áfram að nefna frábærar minningar sem ég á með þér og þakkað þér fyrir svo margt en sú upptalning yrði eflaust enda- laus. Mér, Andreu, eru efstar í minni allar góðu spjallstundirn- ar sem við áttum þegar ég var á unglingsaldri. Þú sagðir svo oft við mig þegar ég var farin að kafa djúpt ofan í málin: „Ég skal segja þér þetta þegar þú verður orðin 18 ára“, nú er ég löngu orðin það svo ég vona að ég sé búin að fá að vita allt sem ég mátti ekki vita þá. Eins eru stundirnar í garðinum hjá ykkur ógleymanlegar, veðurblíð- an í Fossvoginum engu lík og við að njóta góða veðursins saman. Þú varst einstaklega góður við börnin mín, Anítu Lilju og Jóel Henry, og voru þau ótrúlega hrifin af afa Ax- el. Aníta Lilja naut þess að fá að hjálpa þér í garðinum síðasta sum- ar, þú náðir með þinni einstöku lagni að sýna henni hvernig ætti að hugsa um blómin og beðin þó að hún væri ekki nema fjögurra ára. Jóel Henry elti þig út um allt eftir að hann fór að ganga og fylgdist spenntur með því hvað þú varst að gera, enda varstu alltaf að fást við eitthvað sem litlum dreng þótti spennandi að fylgjast með. Ég mun sjá til þess að þau muni aldrei gleyma þér, elsku afi minn. Það er ótrúlegt að hugsa til þess hversu hratt heilsu þinni hrakaði síðastliðna tvo mánuði eft- ir að meinið fannst. Þín verður sárt saknað, elsku besti afi, en við vitum að þú munt vaka yfir okkur. Við vitum að núna ertu á betri stað þar sem þú þarft ekki að þjást og finna til. Við elskum þig. Litlurnar þínar, Andrea Sif og Natalie Rut. Þegar ég sest niður og ætla að skrifa nokkur orð um félaga minn og vin okkar hjóna þá fara af stað svo margar minningar að varla verður hönd á fest. Axel H. Bender kynntist ég fyrst árið 1972 þegar ég gekk í Kiwanisklúbbinn Heklu. Hann var þá ötull Kiwanismaður eins og hann var reyndar alla tíð, ávallt vakandi yfir því sem betur mætti fara í starfinu, léttur í lund og sló alltaf á létta strengi þótt undir niðri væri hann fastur fyrir. Við hjónin áttum þess kost að fara í margar ferðir með þeim Axel og Viddí norður að Mývatni, austur að Höfn í Hornafirði, til Vest- mannaeyja, í Borgarfjörð og til Akureyrar svo eitthvað sé nefnt. Allar þær ferðir voru ávallt mjög góðar og skemmtilegar, voru þau hjónin góðir ferðafélagar. Við Ax- el áttum mikið og gott samstarf í Kiwanishreyfingunni, það ber að þakka. Síðastliðin ár átti Axel við heilsuleysi að stríða sem hann tókst á við með bjartsýni og léttri lund fram á síðasta dag. Það var aldrei neinn barlómur í honum. Þótt við vissum að veikindi hans væru mjög alvarleg verður manni ávallt illa við þegar kallið kemur. Við Erla kveðjum góðan félaga og vin með söknuði og biðjum Guð að styrkja Viddí og fjölskyldu í þeirra miklu sorg. Þá minning mun ég blessa á meðan hjartað slær. Sú von skal hugann hressa, minn hjartans vinur kær að sæll við sjáumst aftur á sólarfögrum stað. Oss hjálpar heilagur kraftur, ég hugga mig við það. (Þ.H.) Far þú í friði Axel minn. Erla og Þorsteinn. Enn er höggvið skarð í vina- hópinn, Axel varð að gefa efir í baráttu sinni við erfiðan sjúkdóm og er nú fallinn frá. Okkar kynni hófust í Kiwanis- hreyfingunni fyrir um það bil 50 árum. Hann kom fljótlega til starfa eftir að við stofnuðum fyrsta Kiwanisklúbbinn á Íslandi, Heklu. Áhugi hans á félagsmálum var alltaf til staðar, enda valinn til að sinna margvíslegum verkefn- um bæði í fagsamtökum þeim sem hann tilheyrði og í þjónustustarfi Kiwanishreyfingarinnar. Sam- starfið í Kiwanishreyfingunni var margvíslegt, bæði innan klúbbsins okkar og á vettvangi Íslenska Kiwanisumdæmisins. Hann var mjög fylginn sér í þeim málum sem hann tók að sér og gafst ekki upp þó ekki væru allir sammála honum, heldur vann hægt og bít- andi að sínum markmiðum og fór oftast með sigur. En alltaf var stutt í grínið og léttleikann og stundum vottaði fyrir stríðni en allt á léttum nót- um. Það er óhætt að segja að á seinni árum, þegar fór að halla undan í Kiwanisklúbbnum okkar vegna aldurs félaga, þá var enginn jafn ákveðinn og hann að halda ut- an um hópinn þrátt fyrir að stöð- ugt fækkaði. Hann tók að sér for- setastarf í klúbbnum, aftur og aftur, þegar aðrir treystu sér ekki í hlutverkið, honum verður seint þakkað allt það starf. Axel var mikill fjölskyldumaður, hélt ásamt Vigdísi eiginkonu sinni vel utan um hópinn. Það voru ekki margar samveru- stundirnar hjá okkur þar sem ekki var rætt um fjölskylduna og hvern- ig henni gengi í lífsbaráttunni. Hans verður sárt saknað af sínum. Eftir að Axel var greindur með erfiðan sjúkdóm fyrir nokkrum árum breyttist margt en hann gafst ekki upp, léttleikinn var hon- um hjálp í baráttunni. Hann var ekki tilbúinn að fara, hann barðist áfram. Það færði honum lengri tíma en að lokum varð hann að láta undan. Maðurinn með stríðnisbrosið, maðurinn með léttleikann, maður- inn með fastheldnina, maðurinn með viljann til að þjóna öðrum er fallinn en minningin lifir. Nærhópurinn, við sem áttum saman margar gleðistundir, Axel og Vigdís kona hans, Jón og Hanna, Ásgeir og Dísa og eigin- kona mín Sjöfn er nú farinn að láta á sjá, aðeins þrjú eru eftir lifandi. Fráfall félaga og vina á undan- förnum árum hefur verið erfitt að umbera, en allar minningarnar frá liðnum árum og áratugum bæta þar um og auðvelda okkur lífs- gönguna enn um sinn. Axels verð- ur sárt saknað, vinahópurinn verður fátækari eftir lát hans. Ég sendi Vigdísi og fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur og óska þeim velfarnaðar á komandi árum. Minningin um góðan fjöl- skylduföður verður þeim huggun í harmi. Eyjólfur Sigurðsson. Góður vinur okkar hér í Bú- staðakirkju, Axel Henry Bender, er fallinn frá eftir erfið veikindi. Í kirkjulegu starfi er þjónusta sjálf- boðaliða ómetanlegur þáttur og ekki væri hægt að halda úti svo öflugu starfi í kirkjum landsins ef þeirra nyti ekki við. Axel og hans elskulega eiginkona, Vigdís, hafa verið virkir sjálfboðaliðar í starfi Bústaðakirkju í mörg ár. Þegar stofnaðir voru hópar messuþjóna við kirkjuna fyrir nokkrum árum voru Axel og Vig- dís meðal frumkvöðlanna og hafa starfað æ síðan. Síðastliðinn vetur var Axel beðinn um að taka að sér kirkjuvörslu um helgar. Hann tók það fúslega að sér og fékk nágranna sinn, Baldur Frið- riksson, til liðs við sig. Verkið, sem er unnið í sjálfboðavinnu, hef- ur gengið einstaklega vel og kirkjuvörslunni verið sinnt af miklum áhuga og alúð. Axel kom oft við hér í kirkjunni eða var í símasambandi og auðvelt er að sjá hann fyrir sér með útbreiddan faðminn og þegar hann heilsaði í símann á sinn vinalega hátt og sagði: „Er ekki allt í lagi með þig?“ Þessi orð eru sem greypt í hugann. Maður brosir ósjálfrátt og minningarnar verða ljóslifandi. Axel var léttur í lund og fasi, beinn í baki og snaggaralegur í hreyfingum. Hann hafði gaman af því sem hann gerði og smitaði gleðinni út frá sér. Hann hafði einstaklega skemmtilega kímni- gáfu sem gekk ekki nærri nein- um. Öllum leið vel í návist hans og það var mjög gaman að vera í kringum hann þegar hann sinnti kirkjuvörslunni. Axel var skemmtilega hárnákvæmur með klukknahringingarnar fyrir og eftir messu. Klukkunum skyldi hringt í réttri röð. Nýlega þegar hann var orðinn mjög veikur hringdi hann að heiman rétt fyrir messu og hafði þá klukknahringingin heyrst heim til hans. Hann sagðist ekki vera alveg nógu ánægður með hljóminn. Auðvitað var þetta gert í gríni og af sama léttleika og hann var vanur. Og ekki var komið að tóm- um kofanum þegar vantaði góð ráð, því hann var reyndur pípu- lagningameistari og gott að leita ráða og umsagnar hjá honum, t.d. varðandi viðhald á lagnakerfi kirkjunnar. Það er óhætt að segja að Axel hafi verið kirkjuvörður „par ex- cellence“. Við minnumst Axels með virðingu og þökkum fyrir frá- bæra þjónustu í þágu Bústaða- kirkju. „Að gefa af sér í kærleika án skilyrða gerir manninn ham- ingjusaman.“ Þannig var Axel, hann gaf af sér til samferðamann- anna og lifði eftir þessum lífs- reglum. Þú lifðir í friði. Far þú í friði. Þökk fyrir samfylgdina. Kæra Vigdís og fjölskylda. Inni- legustu samúðarkveðjur til ykkar. Blessuð sé minning Axels Henrys Bender. F.h. sóknarnefndar og starfs- fólks Bústaðakirkju, Ásbjörn Björnsson kirkjuhaldari. Fallinn er frá einn af ötulustu félögum í Kiwanisklúbbnum Heklu, Axel H. Bender. Axel gekk í klúbbinn 2. maí 1967 og hefur alla tíð síðan starfað ötullega fyrir klúbbinn og Kiwanishreyfinguna. Alla tíð bar hann hag klúbbsins fyrir brjósti og sýndi mikla rækt- arsemi, hvort heldur var klúbbn- um eða félögum hans og ekki síst ekkjum látinna félaga. Axel hefur setið í flestum nefndum klúbbsins, var ritari, varaforseti og síðan forseti og hafa líklega fáir gegnt forseta- starfi jafnoft í Kiwanisklúbbum, en Axel hefur samanlagt gegnt því starfi í 5 ár, auk þess að hann var ávallt reiðubúinn að aðstoða aðra sem tókust þetta starf á hendur, þ.m.t. undirritaðan, sem ekki bjuggu að sömu reynslu í þessum efnum. Auk þessa hefur Axel Bender gegnt fjöldamörgum störfum fyrir bæði Kiwanisklúbbinn Heklu og Kiwanishreyfinguna en m.a. ann- ars sat hann í fjárhagsnefnd um- dæmisins í 10 ár samfleytt og var gjaldkeri K-dagsnefndar í 2 ár, vann að uppbyggingu Kiwanis- hússins í Brautarholti og annaðist rekstur þess í mörg ár auk margra annarra starfa sem hann tókst á hendur fyrir Heklu og Kiwanis- hreyfinguna. Fyrir hönd félaga í Kiwanis- klúbbnum Heklu þakka ég Axel Bender fyrir samfylgdina á liðn- um árum og votta samúð eftirlif- andi konu hans og fjölskyldu. Ingólfur Friðgeirsson, forseti. Fyrsta minning mín um pabba var þegar við fórum að skoða framtíðarhúsið okkar að Melum. Við fórum öll sex á Willys-jeppa og ég þá aðeins fimm ára. Ekki komumst við alla leið heim á jeppanum, og bar pabbi mig síð- asta spölinn í snjónum. Á Melum áttum við yndislegan tíma. Pabbi vann mikið en alltaf var hann stoð mín og stytta. Ég fékk stundum að vera með honum í steypubílnum og man vel þegar ég aðstoðaði hann að gera við bíl heila nótt. Ég var nefnilega strákastelpan hans pabba. Einu sinni vorum við systir mín Eyja Björk að leika okkur inni í Kjarnaskógi með hundinn okkar Kóp sem pabba þótti mjög vænt um. Kom pabbi þá á steypubíln- um sínum, „Sexunni“, og lék sér ✝ Örn Ernst Elís-son fæddist 1. október 1941 að Fagraskógi í Arnarneshreppi. Hann var búsett- ur lengst af á Mel- um við Akureyri. Örn lést á gjör- gæsludeild FSA 7. mars 2014. Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hins látna, 19. maí 2014, frá kapellu Akureyrarkirkju. langa stund með okkur að láta Kóp synda eftir priki í tjörninni þar. Hann unni dýrum og þótti ofurvænt um þenn- an hund og vona ég að hann hitti hann aftur þar sem þeir eru. Eftir skylduna var hreiðrið nánast yfirgefið og var far- ið ýmist í sveit til að vinna eða suður á vertíð. Er Eið- ur Ingi kom í heiminn fengum við inni hjá foreldrum mínum fyrsta hálfa árið. Þá kom í ljós hve góða foreldra ég átti. Eiður og pabbi voru alltaf miklir mátar, og var gaman að fylgjast með þeim er sá gamli kom til okkar uppí Snæ- gil með Kinder-egg til þess stutta og fór með hann í „ístúr“. Er Svava mín fæddist árið 2000 var pabbi inni á spítala með seinna hjartaáfallið og var það átakanlegt að koma með hana nýfædda til hans á sjúkrabeðið á leiðinni heim af fæðingardeild- inni. Elli kerling sótti pabba allt of snemma. Um sextugt var starfsorkan hans farin. Eftir það var hann tíður gestur hjá okkur að Tungusíðu 1 og á ég honum mikið að þakka við alls konar við- hald. Eins smíðaði hann með mér sólpallinn sem hann á allan heið- ur af. Er ég kom heim eftir vinnu á FSA var hann stundum kominn á undan mér, búinn að tala við Tótu og tilbúinn að taka á móti krökkunum úr skólanum og til í smá kaffisopa með mér. Það voru stór skref er ég ákvað að flytja frá Akureyri til Hafnarfjarðar, það var mjög erfitt. Þessir föstu punktar í lífi mínu með honum voru mér mjög mikilvægir. Hann var minn besti vinur og ég gat sagt honum allt. Ég hafði ekki verið lengi í höfuðborginni er hann var fluttur með sjúkraflugi suður á Landspítalann. En með hörkunni komst hann á fætur aftur og var fullur lífsvilja. Hann keypti húsbíl og ætlaði að ferðast á honum í sumar. En þá kom annað högg og hann var fluttur suður aftur. Í þetta skiptið komst hann ekki út af spítalanum. Það var sárt að missa föður minn, því plönin fyrir sumarið voru að hafa það yndislegt á húsbílum. En við vitum víst aldrei ævi okkar fyrr en öll er. Elsku pabbi minn, þín minnist ég sem sterks pabba sem var stoð okkar og stytta, aldrei með styggðaryrði út í nokkurn mann. Guð geymi þig. Þín dóttir, Anna Snjólaug. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Kveðja, þín Ingibjörg. Örn Ernst Elísson ✝ Ingibjörg fædd-ist 17. sept- ember 1953 í Reykjavík. Hún lést á Landspítalanum 15. maí 2014. For- eldrar hennar voru Ari Einarsson frá Klöpp, fæddur í Fagurhlíð í Sand- gerði 1928, látinn árið 1970, og Erla Thorarensen, fædd í Reykjavík 1932, og lifir hún dóttir sína. Ingibjörg ólst upp í Klöpp í Sandgerði. Hún gekk í barna- og unglingaskólann í Sandgerði en lauk gagnfræða- prófi við Gagnfræðaskólann í ungur af slysförum. Ingibjörg var næstelst sjö systkina sem öll lifa hana: 1) Einar Valgeir, f. 1950, samfeðra, móðir Edda Lar- sen, fyrrverandi maki Karen Elizabeth Arason. Þau eiga þrjú börn og sex barnabörn. 2) Lína María, f. 1955, maki Ólafur Ey- fjörð Pálsson. Þau eiga tvö börn og fimm barnabörn. 3) Ari Hauk- ur, f. 1956, maki Anna María Hilmarsdóttir. Þau eiga tvö börn og tvö barnabörn. 4) Jón Örvar, fæddur 1959, maki Eygló Eyjólfs- dóttir. Þau eiga tvö börn en fyrir átti Jón tvær dætur. Samtals eignuðust þau fjögur barnabörn. 5) Viðar, f. 1961, maki Unnur Sveindís Óskarsdóttir. Þau eiga tvö börn og þrjú barnabörn. 6) Hrannar Þór, f. 1967, maki María Elfa Hauksdóttir. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Útför Ingibjargar fór fram í kyrrþey frá Hvalsneskirkju 29. maí 2014. Stykkishólmi árið 1970. Ingibjörg vann í mörg ár við fisk- vinnslu- og versl- unarstörf, bæði í Sandgerði og Kefla- vík. Árið 1975 giftist hún Olgeiri Jóni Jónssyni frá Kefla- vík og bjuggu þau þar fyrstu árin en byggðu sér síðan fallegt heimili í Garðinum þar til þau fluttu aftur til Keflavíkur árið 1990. Þau skildu árið 2005. Ingibjörg var barnlaus en fyrir átti Olgeir drenginn Sigurvin Jón sem lést Það er hlutverk mannsins að vera alltaf að kveðja og nú höfum við kvatt Ingibjörgu, dóttur og systur, eftir óvænt áfall sem hún átti ekki afturkvæmt frá. Eins og alltaf við svona tímamót streymir fram fjöldi minninga, of margar til að setja allar á blað. Í sorginni við að missa ástvin er líknandi og gott að brosa og hlæja að einstökum atvikum. Enda er margs að minn- ast því mikið líf var í þessum stóra barnahópi, hvort sem var inni eða úti á túni, niðri í fjöru eða uppi í heiði. T.d. minnist einn bróðirinn sjóðheita og þunna kaffisins sem kom tungunni ítrekað hressilega á óvart. Örlæti og umhyggjusemi ein- kenndi Ingibjörgu sem sýndi sig t.d. í því að færa einum bróðurn- um alltaf rauðan Ópal þegar hún kom einhvers staðar að. Annan bróður sinn dreif hún í búðir til að kaupa á hann föt þrátt fyrir að hafa ekki mikið milli handanna sjálf. Og dugleg var hún að kíkja á knattspyrnuleiki bræðranna. Ingibjörg var þrautseig. Eftir áföll eins og axlarbrot og mikinn uppskurð hélt hún áfram að sinna hannyrðum sínum, oft nánast ein- hent en ekki var það að sjá á af- urðunum og ekki skyldi gefist upp. Seinni hluti ævinnar var Ingi- björgu erfiður. Hún einangraðist frá okkur en þegar hún tók sig á og kom á mannamót var sem æskuárin væru komin aftur, hún var lífleg, skrafhreifin, hláturmild og hrókur alls fagnaðar. Við þökkum öll fyrir samferð- ina og allt það jákvæða sem henni fylgdi, fyrir létta skapið og hvellan hláturinn, fyrir örlætið, fyrir allar æskuminningarnar. Guð blessi minningu Ingibjargar Guðlaugar. Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. (Jóhannesarguðspjall 11.25) Erla Thorarensen og börn. Ingibjörg Guðlaug Aradóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.