Morgunblaðið - 16.06.2014, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
Sindri Rafn er 50% eigandi 6 mánaða barns og er almenntþekktur sem Silli í Zalibunu. „Í dag er ég að klæmaxa yfir þvíað HM sé byrjað,“ segir Sindri Rafn Sindrason, sem er 24 ára
gamall í dag, þegar hann er beðinn um að segja frá sjálfum sér.
Sindri er einn af frumkvöðlunum að baki fyrirtækinu Zalibunu, en
fyrirtækið hyggst nú setja upp nokkurs konar rússíbana í Hlíð-
arfjalli á Akureyri. „Þetta er eins manns sleðarennibraut,“ segir
Sindri til útskýringar.
Hann er að skrifa meistararitgerð í verkfræði um þessar mundir
ásamt því að sinna föðurhlutverkinu, en hann eignaðist nýverið sitt
fyrsta barn, Matthildi Magdalenu, með kærustu sinni Elínu Jóns-
dóttur.
Sindri er mjög ánægður með að afmælið komi upp á þessum degi.
„Ég vil meina að þetta sé besti afmælisdagur sem í boði er. Það er
alltaf frí daginn eftir og David Guetta kemur til landsins á sex ára
fresti. Eini mínusinn er þynnkan 17. júní,“ segir Sindri, sem ætlar
að keyra hringinn í kringum landið með fjölskyldu sinni í sumar.
Hann segist ætla að halda upp á afmæli sitt með pompi og prakt.
„Ég ætla að notfæra mér það að foreldrar mínir eru norður á Akur-
eyri. Ég mun fylla húsið af ókunnugu fólki og halda almennilegt
afmælispartí,“ segir Sindri fullur tilhlökkunar. agf@mbl.is
Sindri Rafn Sindrason er 24 ára í dag
Afmælisbarn Samkvæmisljónið Sindri (t.h.) er hér á góðri stundu
ásamt yngri bróður sínum, tískufrömuðinum Degi Sindrasyni.
Almennt þekktur
sem Silli í Zalibunu
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kirkjubæjarklaustur Sigurbjörn Ási
fæddist 2. ágúst. Hann vó 2.825 g og
var 49 cm langur. Foreldrar hans eru
Pétur Davíð Sigurðsson og Auður
Guðbjörnsdóttir.
Nýir borgarar
Reyðarfjörður Guðný Helga fæddist
24. september. Hún vó 3.460 g og var
50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru
Freydís Hrefna Hlynsdóttir og Garðar
Guðnason.
H
ildur Knútsdóttir
fæddist í Reykjavík
16. júní 1984 og bjó í
Hlíðunum og síðan
Vesturbæ. Hún gekk í
Hlíðaskóla, Melaskóla, Hagaskóla,
Menntaskólann í Reykjavík og
Menntaskólann við Hamrahlíð.
Farið víða um heim
„Ég hef flakkað svolítið um í út-
löndum, lærði spænsku á Spáni, en
það var fyrir stúdentinn en ég tók
mér frí milli þess sem ég var í MR og
MH. Var svo heima sumarið eftir
stúdentinn árið 2004 að vinna og
safna peningi því veturinn á eftir var
ég sjálfboðaliði í Gvatemala í fjóra
mánuði. Þar vann ég með mun-
aðarlausum stelpum og stelpum sem
höfðu verið teknar af foreldrum sín-
um vegna vanrækslu. Í framhaldi af
sjálfboðaliðastarfinu ferðaðist ég um
latnesku Ameríku, eiginlega alla
Mið-Ameríku, Kúbu, Ekvador og
Perú. Næsta vetur bjó ég síðan í
Berlín og lærði þýsku.
Seinna fór ég til Taívans en við
kærastinn fengum bæði styrk frá ta-
ívanska menntamálaráðuneytinu þar
sem við stunduðum nám í kínversku.
Reynsla mín af þessum löndum er að
fólk er alls staðar indælt. Taívan er
reyndar næstþéttbýlasta land í heimi
fyrir utan Bangladess og því var gott
að koma heim til Íslands og geta
breitt aðeins úr sér. Maður finnur
nefnilega vel fyrir mannfjöldanum
þarna úti og svo var líka mikill hiti
þarna og raki.“
Eftir dvölina í Taívan kom Hildur
heim og fór í Háskóla Íslands og lauk
þaðan BA-gráðu í ritlist með bók-
menntafræði sem aukafag árið 2010.
Stundað ýmis ritstörf
Eftir útskrift fór Hildur að vinna
sem texta- og hugmyndasmiður á
Hildur Knútsdóttir rithöfundur – 30 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Nútímalegur rithöfundur Hildur vakti fyrst athygli með bloggskrifum sínum.
Vísindaskáldskapur og
umhverfismál heilla
Feðginin Egill og Rán.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isÁrmúli 32 | 108 Reykjavík | Sími 568 1888 | www.parketoggolf.is
Brooklyn Pine
Stærð: 8x243x2200mm