Morgunblaðið - 16.06.2014, Side 27
auglýsingastofu og starfaði við það í
tvö ár. Meðfram stundaði hún ritstörf
og gaf út fyrstu skáldsöguna sína,
Slátt, árið 2011. „Ég var búin að
skrifa lengi áður en ég gaf hana út en
það fór allt í skúffuna. Bókin gekk
ágætlega og fékk fína dóma fyrir ut-
an fyrsta dóminn sem birtist sem var
í Fréttablaðinu. Ég grét þegar ég las
hann en svo kom jákvæðari umfjöllun
og ég er bara ánægð með þessa bók.“
Sama ár kom út lífsstílsbókin
„Hola, lovers, eða lífsstíls- og megr-
unarbók Tískubloggsins, eða hvernig
á að þóknast karlmönnum og vera
betri en aðrar konur“. Hún var
byggð á bloggi sem ég skrifaði,
Tískublogginu, www.tiskublogg.-
blogspot.com. Bókin er útúrsnún-
ingur úr lífsstíls- og megrunar-
bókum. Hugleikur Dagsson ritstýrði
bókinni og margir teiknarar komu að
henni.“
Haustið 2012 gaf Hildur út barna-
bókina Spádóminn. Hún lenti í öðru
sæti hjá bóksölum í flokki barnabóka.
Síðan hefur Hildur stundað ýmiskon-
ar ritstörf, stundað meistaranám í
bókmenntafræði og verið virk í fem-
inísku starfi. Hún var t.a.m. í rit-
stjórn Knuz.is., sem er feminískt vef-
rit, og ráðskona í Femínistafélaginu,
en hætti þar í síðasta mánuði. Svo er
Hildur í hópi kvenna á netinu sem
ber yfirskriftina Druslubækur og
doðrantar, bokvit.blogspot.com. Þar
er skrifað um bækur og nokkrar úr
þeim hópi hafa verið að kenna bók-
menntanámskeið í Endurmenntun
Háskóla Íslands. „Námskeiðin hafa
verið vel sótt og það hefur verið rosa-
gaman að kenna á þeim.“ Hildur var
einnig aðstoðarritstjóri tímarits sem
heitir Furðusögur og fjallar um
vísindaskáldskap og fantasíur og
kom út 2010. Hún hélt einnig úti
mjög vinsælu bloggi sem áður var
nefnt og var mjög dugleg við það í
eitt og hálft ár en fékk svo leiða á því
og hefur ekki skrifað á það í nokkur
ár.
Hildur vinnur á Borgarbókasafn-
inu í sumar og nú er hún að skrifa tví-
leik fyrir unglinga sem fjallar um
innrás mannætugeimvera á Íslandi.
Hún hefur mikinn áhuga á umhverf-
ismálum og hefur skrifað um þau
mál, m.a. í Reykjavík vikublað. „Mitt
helsta áhugamál í dag er að Íslend-
ingar bori ekki eftir olíu á Dreka-
svæðinu því mér finnst það alveg frá-
leitt, mig langar að skrifa bók um
loftslagsbreytingar.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Hildar er Egill
Þórarinsson, f. 10.4. 1983, skipulags-
fræðingur.
Foreldrar Egils eru Þórarinn
Guðnason, f. 18.1. 1957, 6.3. 1995,
verslunarstjóri, og Margrét Helga
Sigurðardóttir, f. 13.6. 1957, dag-
mamma í Kópavogi.
Dóttir Hildar og Egils er Rán Eg-
ilsdóttir, f. 13.9. 2012.
Systir Hildar er Rún Knútsdóttir,
13. 10. 1982, lögfræðingur hjá vel-
ferðarráðuneytinu.
Foreldrar Hildar eru Guðrún Sig-
urjónsdóttir, f. 24.4. 1957, verkefna-
stjóri í velferðarráðuneytinu, og
Knútur Árnason, 27.3. 1953, eðlis-
fræðingur hjá Ísor.
Úr frændgarði Hildar Knútsdóttur
Hildur
Knútsdóttir
Jóhanna Bjarnadóttir
húsfreyja f. í Efri-Miðvík í Sléttuhr.
Guðmundur Jón Guðnason
bóndi í Hlöðuvík í Sléttuhr.,
síðar bús. í Keflavík
Herdís Salbjörg Guðmundsdóttir
saumakona á Húsavík
Sigurjón Jóhannesson
sagnfræðingur og skólastjóri á Húsavík
Ásgeir Jóhannesson
fv. forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins
Guðrún Sigurjónsdóttir
verkefnastjóri
Sigríður Sigurjónsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Jóhannes Guðmundsson
kennari á Húsavík
Sigfríður Helga Friðgeirsdóttir
húsfreyja, f. á Finnsstöðum í Kinn
Jón Sigurðsson
kennari, bóndi og rit-
höfundur á Ysta-Felli
Hólmfríður Jónsdóttir
bókavörður á Akureyri
Árni Kristjánsson
menntaskólakennari á Akureyri
Aðalgeir Kristjánsson
fv. skjalavörður á
Þjóðskjalasafninu
Knútur Árnason
eðlisfræðingur í Reykjavík
Kristján Árnason
prófessor í
íslensku við HÍ
Ragnheiður
Kristjánsdóttir
lektor í sagnfræði við HÍ
Halldóra Sigurbjörnsdóttir
húsfreyja f. Kvíslarhóli á Tjörnesi
Kristján Árnason
bóndi á Finnsstöðum í Kinn
Á bókasafninu Hildur hefur séð um
ritsmiðju fyrir krakka þar.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
Ásta Sigríður Eiríksdóttirhjúkrunarfræðingur fæddist16. júní 1894 í Miðdal í Mos-
fellssveit. Foreldrar hennar voru Ei-
ríkur Guðmundsson bóndi þar, síðar
trésmiður í Reykjavík, sonur Guð-
mundar Einarssonar hreppstjóra í
Miðdal og Vigdísar Eiríksdóttur, og
Vilborg Guðnadóttir dóttir Guðna
Guðnasonar bónda á Keldum í Mos-
fellssveit og Ástríðar Finnsdóttur.
Sigríður stundaði nám í Verzl-
unarskóla Íslands og vann skrif-
stofustörf 1910-1918. Þá venti hún
kvæði sínu í kross og hóf hjúkr-
unarnám við Kommunehospital í
Kaupmannahöfn og lauk því 1921.
Hún stundaði síðan framhaldsnám í
geðhjúkrun við Sct. Hans Hospital í
Hróarskeldu veturinn 1921-1922 og
síðan í sex mánuði í Vínarborg.
Sigríður varð formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarkvenna árið 1924
og var formaður þess í 36 ár. Hún
var einnig formaður Hjúkrunar-
félags Líknar 1930-1955 og var
fyrsti Íslendingurinn sem var for-
maður SSN sem er Samvinna hjúkr-
unarfræðinga á Norðurlöndunum.
Sigríður var mörg ár stundakennari
í heilsufræði og hjúkrun við Kvenna-
skólann og Húsmæðraskólann. Hún
var varabæjarfulltrúi í Reykjavík
1950-1954 og fulltrúi í Heimsfriðar-
ráðinu. Hún var sæmd Florence
Nightingale-orðunni sem er heiðurs-
merki Alþjóða Rauða krossins og
hún var einnig sæmd riddarakrossi
fálkaorðunnar.
Í minningargrein um Sigríði seg-
ir: „hún var frábær atorkukona, sem
vann af lífi og sál að áhugamálum
sínum og lét ekkert aftra sér, er um
nauðsynjamál var að ræða, sem
snerti þjóð hennar“.
Eiginmaður Sigríðar var Finnbogi
Rútur Þorvaldsson, f. 22.1. 1891, d.
prófessor í verkfræði við HÍ. For-
eldrar hans voru Þorvaldur Jakobs-
son, prestur í Sauðlauksdal, og
Magdalena Jónasdóttir. Sigríður og
Finnbogi Rútur eignuðust tvö börn,
Vigdísi, f. 15.4. 1930, forseta, og Þor-
vald, f. 21.12. 1931, d. 2.8. 1952,
stúdent.
Sigríður lést 23.3. 1986.
Merkir Íslendingar
Sigríður
Eiríksdóttir
95 ára
Ágústa M. Frederiksen
90 ára
Jósep Helgason
Nanna Þórhallsdóttir
85 ára
Brynhild Stefánsdóttir
Signý Egilsdóttir
80 ára
Einara Magnúsdóttir
Skarphéðinn
Sigursteinsson
Vilborg Málfríður
Jóhannsdóttir
75 ára
Nanna Jónasdóttir
Sigursteinn S.
Hermannsson
Steinn S. Jóhannesson
Þórir Erlendur Gunnarsson
70 ára
Björg Dagbjartsdóttir
Jóhannes Jóhannesson
Jón Ingi Jósafatsson
Sigurður Emil Ólafsson
Stefán P. Stefánsson
Teresa Rozkrut
Þóra Björg Ögmundsdóttir
60 ára
Anna Þ. Kristjánsdóttir
Arndís Ögn
Guðmundsdóttir
Auðunn Sigurðsson
Árni Snorrason
Bjarni Helgason
Gunnar Júlíus Jónsson
Herdís Hólmsteinsdóttir
Hrafnhildur G.
Sigurðardóttir
Ragnar Már Amazeen
Sigríður Inga Sturludóttir
Sigríður Jóna Svavarsdóttir
Valgeir Bjarnason
50 ára
Bjartmar Birgisson
Hrafnhildur Ósk Brekkan
Kolbrún Elíasdóttir
Kristján E. Pétursson
Kristján Ó. Jóhannesson
Paul Edwin Hutchinson
Reynir Einarsson
Sigurbjörg A. Ársælsdóttir
Sigurður Magnússon
Sigurjón Guðbjörn Geirsson
Stefán Hagalín Ragúelsson
Svanfríður Clausen
Sveinbjörg Halldórsdóttir
Tadeusz Gnatowski
Þorkell Gunnarsson
40 ára
Birkir Benediktsson
Greipur Þ. Júlíusson
Herdís Þórsteinsdóttir
Jóhannes E. Jóhannesson
Lange
Kristinn Sigurðsson
Vigdís Guðmundsdóttir
Þorvaldur Hafberg
30 ára
Ásgeir Skúlason
Guðbjörg Olga
Kristbjörnsdóttir
Hannes Valur Bryndísarson
Kamil Lewandowicz
Laufey Kristjánsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Ólafur Búi Ólafsson
Ólafur Unnar Sigurðsson
Ragnar Geir Gíslason
Robert Debrowski
Sigríður Maggý Helgadóttir
Tómas Ingi Adolfsson
Zophonías Jónsson
Þórný Sigurjónsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Árný er fædd og
uppalin á Akureyri en býr
í Þorlákshöfn. Hún er
bókavörður á Bæjar-
bókasafni Ölfuss.
Maki: Þór Emilsson, f.
1969, framleiðslustjóri hjá
ÍFEX.
Börn: Leifur, f. 1999, Emil
Hrafn, f. 2007, og Sæunn
Jóhanna, f. 2009.
Foreldrar: Leifur Hall-
dórsson, f. 1948, og
Ragnheiður Sæunn Að-
alsteinsdóttir, f. 1947.
Árný
Leifsdóttir
30 ára Íris er Reykvík-
ingur en býr í Kópavogi.
Hún er ráðgjafi hjá Vinnu-
málastofnun og er að
klára meistaranám í
náms- og starfsráðgjöf.
Maki: Ólafur Þórisson, f.
1983, ráðgjafi hjá um-
boðsmanni skuldara.
Sonur: Sigfús Arnar
Ólafsson, f. 2012.
Foreldrar: Guðmundur
Haraldsson, f. 1939, og
Guðfinna Sigurðardóttir,
f. 1943, bús. í Kópavogi.
Íris Halla
Guðmundsdóttir
40 ára Lilja er Skaga-
maður og er skrifstofu-
stjóri hjá Gámaþjónustu
Vesturlands.
Maki: Valdimar Krist-
munds Sigurðsson, f.
1968, sölumaður hjá 66°
Norður.
Börn: Líf, f. 1991, Snorri
Már, f. 1994, Vigný Lea, f.
2010, og Víkingur Þórar, f.
2014.
Foreldrar: Þorsteinn
Ragnarsson, f. 1936, og
Erna Elíasdóttir, f. 1939.
Guðrún Lilja
Þorsteinsdóttir