Morgunblaðið - 16.06.2014, Page 31

Morgunblaðið - 16.06.2014, Page 31
Sýndi Hólakirkju níu ára Guðbjörg ólst upp á Hólum á Hjaltadal, dóttir Kristjáns Karls- sonar skólastjóra þar og Sigrúnar Ingólfsdóttur. Hún er spurð hvort umhverfið á Hólum hafi haft mikil áhrif á hana sem barn. „Alveg tví- mælalaust,“ segir hún, „Hólar eru afar merkur sögustaður sem hlýtur að hafa áhrif á þá sem þar alast upp. Þegar ég var níu ára gömul sendu foreldrar mínir mig til að opna kirkjuna á Hólum fyrir nokkr- um gestum. Upp frá því fór ég að sýna fleiri gestum kirkjuna og kom mér upp þekkingu á þeim merku gripum sem þar voru og miðlaði til gestanna. Á sumrin kom svo Krist- ján Eldjárn þjóðminjavörður til að líta eftir kirkjunni en hann hafði skrifað bók um Hóladómkirkju sem ég las sem barn. Eftir á sé ég að allt þetta varð til þess að ég fór að læra listasögu. Ég lærði í Frakklandi, bæði vestræna miðaldalist og sam- tímalist og taldi að þetta væru þau svið sem helst væri hægt að vinna við heima á Íslandi. Ég kenndi nú- tíma- og samtímalist mjög lengi í Myndlistarskólanum og vann sam- tímis að rannsóknum á Teiknibók- inni.“ Ýmis verkefni á prjónunum Íslenska teiknibókin hefur vissa sérstöðu meðal handrita í safni Árna Magnússonar en hún geymir safn fyrirmynda sem listamenn fyrri alda nýttu sér. Myndirnar eru gerðar af fjórum listamönnum á tímabilinu 1350-1500. Vinna Guð- bjargar við Teiknibókina tók mörg ár og skilaði glæsilegri bók sem kom út í fyrra. „Þetta var mjög mikil vinna sem sóttist seint vegna þess að ég vann hana samhliða öðr- um störfum. Svo setti ég mér það markmið að halda sýningu og koma út bókinni í tengslum við 350 ára af- mæli Árna Magnússonar og það tókst,“ segir Guðbjörg. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyr- ir Íslensku teiknibókina og segir þá viðurkenningu hafa komið á óvart og glatt sig innilega. Hún er þó ekki hætt að sinna Teiknibókinni. „Nú bíður mín það verkefni að koma út enskri útgáfu á Teiknibókinni en það er mikilvægt að erlendir fræði- menn geti lesið um þessa bók, segir hún. „Ég er búin að skrifa ensku út- gáfuna sem er mun lengri en sú ís- lenska en það tekur einhverja mán- uði að ganga endanlega frá henni.“ Guðbjörg er með ýmis önnur verkefni á prjónunum. „Það er ým- islegt sem mig langar að skrifa um, eins og til dæmis um handritalýs- ingar,“ segir hún. „Svo á ég hálf- skrifaða bók um Barböru Árnason. Það er þakklátt og skemmtilegt efni því Barbara á svo margar fínar hliðar sem listakona. Á þeim tíma þegar hún var starfandi var ab- straktlistin ríkjandi og listamönn- um sem sinntu henni ekki var ýtt dálítið út á jaðarinn en nú eru aðrir tímar og Barbara á svo sannarlega skilið að á hana sé minnt.“ »Nú bíður mín það verkefni að koma útenskri útgáfu af Teiknibókinni en það er mikilvægt að erlendir fræðimenn geti lesið um þessa bók. Ég er búin að skrifa ensku út- gáfuna sem er mun lengri en sú íslenska en það tekur einhverja mánuði að ganga endan- lega frá henni.“ „Það er ýmislegt sem mig langar að skrifa um, eins og til dæmis um handritalýsingar. Svo á ég hálfskrifaða bók um Barböru Árnason,“ segir Guðbjörg Kristjánsdóttir. Morgunblaðið/Þórður MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is BLAM (Stóra sviðið) Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar! BLAM! - síðasti séns að næla sér í miða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.