Morgunblaðið - 16.06.2014, Síða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
og stökkbreytinga, og til líftækni-
eða erfðafræðitilrauna. Lífríki
heimsins stendur ógn af tæknibrölti
mannskepnunnar, sjórinn súrnar,
vistkerfi raskast og við tekur ófyrir-
sjáanleg atburðarás; offjölgun mar-
glyttna í höfunum er óhugnanleg
birtingarmynd þessa. Lusus nat-
urae virðist flytja okkur þau skila-
boð að náttúran finni sér samt leiðir
– og láti ekki að sér hæða.
Slíkar vangaveltur um afglöp og
dularfulla farvegi náttúrunnar hafa
gjarnan legið verkum Ólafar til
grundvallar og gætt þau heillandi
og Gunnars Karlssonar og tón-
skáldsins Þuríðar Jónsdóttur, verk-
efni sem sameinar myndlist, tölvu-
tækni og tónlist. Hinn sjónræni
hluti verksins samanstendur af
hreyfimynd sem sýnd er á stórum
skjáum sem komið hefur verið fyrir
í rýminu. Latneska hugtakið „lusus
naturae“ hefur löngum verið notað
um furðufyrirbæri eða „brandara“
náttúrunnar og verurnar í hreyfi-
myndinni eru vissulega kostulegar;
sumar eru bústnir boltar með þrýst-
inn munn sem ungar sífellt út sjálf-
um sér og endurnýjar sig þannig,
aðrar hafa ótal augu, nef, eyru og
hendur og hringsnúast með tung-
una lafandi út úr sér, og auga-
steinar reika um djúpin eins og aðr-
ar skynverur með alla anga og
þreifara úti. Myndheimur Ólafar og
Gunnars er skoplegur og óhugnan-
legur í senn, og tónverk Þuríðar –
og ekki síst hinn lifandi tónlistar-
gjörningur (sem fram fór þrisvar) –
undirstrikar annarleikann og ljær
verkinu aukna og viðeigandi dýpt.
Brandararnir í verkinu eru sann-
arlega tvíræðir. Sýningargestinum
verður hugsað til þess sem fer úr-
skeiðis í náttúrunni, til afmyndana
Salurinn er myrkvaður, fyriraugu ber svífandi furðuver-ur í bláleitu djúpi. Dulúð-ugir, dáleiðandi tónar óma í
eyrum, stundum þó skerandi svo
þeir hrökkva við sem viðstaddir eru
lifandi tónlistargjörning á sýning-
unni Lusus naturae í Hafnarborg,
menningar- og listamiðstöð Hafn-
arfjarðar. Um er að ræða sam-
starfsverkefni hjónanna og
myndlistarmannanna Ólafar Nordal
Hafnarborg – Menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar
Lusus naturae – Ólöf Nordal, Gunnar
Karlsson, Þuríður Jónsdóttir
bbbmn
Hluti af Listahátíð í Reykjavík 2014. Til
17. júní 2014. Opið kl. 12-17 alla daga,
fimmtud. til kl. 21. Lokað á þriðjudögum.
Aðgangur ókeypis. Lifandi tónlistar-
gjörningur 24., 25., 28. maí 2014, flytj-
endur: Gunnar Guðbjörnsson, Snorri
Heimisson og Íslenski flautukórinn.
ANNA JÓA
MYNDLIST
» Mahler Chamber Orchestra(MCO), er ein eftirsóttasta klass-
íska hljómsveit samtímans, en hún
hefur verið hér á landi undanfarið og
lék m.a. á Midsummer Music Festival
í Hörpu í gær við mikinn fögnuð við-
staddra.
Liðsmenn sveitarinnar hafa ævinlega
lagt mikla áherslu á að koma tónlist
sinni til almennings og þá sérstaklega
til þeirra sem ekki hafa möguleika á
að sækja tónleika sveitarinnar. Sveit-
in spilaði því á hinum ólíklegustu
stöðum um helgina og meðal annars
lék hún fyrir sjúklinga Landspítalans
á laugardaginn. Stjórnandinn og
stjörnufiðluleikarinn finnski, Pekka
Kuusisto, fór á kostum eins og hans
er von og vísa og vakti uppátækið
fögnuð hjá viðstöddum sem vissu vart
hvaðan á þá stóð veðrið þegar lifandi
tónar tóku að hljóma um ganga
sjúkrahússins.
Mahler Chamber Orchestra lék á Landspítalanum fyrir sjúklinga
Stjarna Finnska fiðluleikarinn Pekka Kuusist er stjórnandinn.
Setustofa Það var notalegt tónlistarandrúmsloftið í þessu horni.
Hátíðartónleikar Alþjóðlegu tónlist-
arakademíunnar í Hörpu fara fram á
morgun kl. 17 í Norðurljósum í
Hörpu og marka þeir lok annars
sumarnámskeiðs og tónleikahátíðar
Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í
Hörpu. Á tónleikunum flytur Aka-
demíuhljómsveitin þekkt klassísk
hljómsveitarverk með ungum ein-
leikurum úr röðum alþjóðlegra verð-
launahafa og framúrskarandi ís-
lenskra ungmenna, að því er fram
kemur í tilkynningu. Stjórnandi er
Kínverjinn Hu Kun sem kennir við
Konunglegu tónlistarakademíuna í
Lundúnum og hefur hlotið fjölda
verðlauna fyrir fiðluleik en Guðný
Guðmundsdóttir, fyrrum kons-
ertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, mun stjórna Yngri strengja-
sveit.
Á efnisskránni verða m.a. kons-
ertar eftir Vivaldi og Mozart og
strengjaserenaða eftir Dvoøák. Ein-
leikarar í Sinfonia Concertante eftir
Mozart eru fiðluleikarinn In Mo
Yang, verðlaunahafi í alþjóðlegu
Menuhin fiðlukeppninni í ár og
víóluleikarinn Eivind Holtsmark
Ringstad sem vann Eurovision
Young Musicians 2012 sem er
keppni evópskra útvarpsstöðva fyrir
unga einleikara. Aðrir einleikarar
eru fiðluleikararnir Sonoko Miriam
ShimaWelde, Hulda Jóndóttir,
Rannveig Marta Sarc og Pétur
Björnsson. Tónleikunum lýkur með
flutningi íslenska þjóðsöngsins.
Einleikur Eivind Holtsmark Ringstad vann Eurovision Young Musicians 2012.
Hátíðartónleikar
haldnir í Hörpu
Afglöp og náttúra
Gestur naut þess að sjá
sýninguna.
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187