Morgunblaðið - 27.09.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Stórlækkað verð á
fjölmörgum vörum
20ára
Afmælishátíð
út september
1994-2014
Allt að
75%
afsláttur
Heppinn
viðskiptavinur
fær gjafabréf
að upphæð
50 þús.
20%
afsláttur
af
strigum, t
rönum,
verkfærat
öskum,
tröppum o
g
strigum
695
Iphone hleðslutæki
6.995
Fjölslípari/sög
17.995
Öflugur tjakkur 2.25 T
lyftihæð 52 cm
Límbyssa 8 mm
595
19.995
4.995
Vandaðar
gólftrönur
Airbrush loftdæla
Topplyklasett 22 stk
4.995
Viðgerðarbretti
7.995
Skrúf-
bitasett
695
1.995
Hjólakörfur
1.995
Nettöng RJ45 Beast
14.995
Vélastandur
12V Loftdæla 30L
7.995
4.995
Skralllyklasett
Viðgerðarkollur
7.495
1.495
Avo mælir
24.895
Mótorhjólalyfta
895
Búkkar Tré
79.995
Veltisög
1800W
2.995
Ljósahundur LED,
hleðslu
Verðlaun Íslensku sjávarútvegs-
sýningarinnar, IceFish-verðlaunin,
voru afhent í sjötta skipti á
fimmtudaginn við hátíðlega athöfn
í Gerðarsafni í boði bæjarstjórnar
Kópavogs og sjávarútvegsráðu-
neytisins. Hefð er fyrir því að þau
séu afhent á fyrsta degi sjávar-
útvegssýningarinnar.
IceFish-verðlaunin eru veitt
þeim sem hafa náð framúrskar-
andi árangi og ná verðlaunin til
allra anga sjávarútvegs. Þau voru
kynnt til sögunnar árið 1999 og
áttu að vekja athygli á frábærum
árangri, bæði í íslenskum sjávar-
útvegi og um leið á alþjóðlegum
vettvangi.
Meðal verðlaunahafa eru Marel,
HB Grandi, Sjóvá, Pólar Tog-
hlerar, 3X Technology, Skaginn,
Icelandic Group, Hampiðjan,
Skinney-Þinganes, Valka og Ís-
félag Vestmannaeyja.
Verðlaunin eru styrkt af Sam-
skipum, Landsbankanum, Bram-
mer á Íslandi og breska sendi-
ráðinu.
IceFish-verðlaun veitt
IceFish-verðlaunin Veittar voru viðurkenningar í alls sautján flokkum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, undirritaði í
gær fjárfestingarsamning við Silicor
Materials um byggingu verksmiðju á
Grundartanga til að framleiða sólar-
kísil. Í fjárfestingarsamningnum fel-
ast ýmsar tímabundnar ívilnanir fyrir
þetta tiltekna verkefni og er þar fyrst
og fremst um lægri tekjuskattspró-
sentu, tryggingargjald og fasteigna-
skatt að ræða. Samningurinn er und-
irritaður með fyrirvara um samþykki
Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og
heimild frá Alþingi.
Reiknað er með að framleiðsla Sili-
cor Materials geti hafist á seinni árs-
helmingi 2016. Við sama tilefni und-
irritaði ráðherra jafnframt yfir-
lýsingu um sókn á sviði nýsköpunar á
sviði efnistækni, meðal annars ál- og
kísilvinnslu.
Morgunblaðið/Eggert
Sólarkísill Terry Jester er forstjóri
fyrirtækisins Silicor Materials.
Sólarkísill
fær ívilnanir
Erlend greiðslukortavelta í ágúst
var sú næstmesta sem orðið hefur í
einum mánuði hér á landi, eða 17
milljarðar króna. Veltan var 2,7
milljörðum meiri en í sama mánuði
í fyrra. Þetta kemur fram í úttekt
Rannsóknaseturs verslunarinnar. Á
síðustu 12 mánuðum hefur erlend
greiðslukortavelta aukist um
19,3%. Í ágúst var mestur vöxtur í
kortaveltu erlendra ferðamanna í
skipulögðum ferðum og afþrey-
ingu, á borð við hvalaskoðun.
brynja@mbl.is
Vöxtur í
skipulögð-
um ferðum
Hvalir Ferðamenn í hvalaskoðun.
Kaffitár hagn-
aðist um ríflega
86 milljónir króna
eftir skatta á síð-
asta ári og jókst
hagnaður fyrir-
tækisins um lið-
lega 11 milljónir á
milli ára. Sam-
kvæmt ársreikn-
ingi leggur stjórn
félagsins til að
greiddur verði arður til eigenda að
fjárhæð 30 milljónir. Kaffitár er að
fullu í eigu hjónanna Aðalheiðar
Héðinsdóttur og Eiríks Hilmars-
sonar.
Samtals námu eignir Kaffitárs 764
milljónum í árslok 2013 og bókfært
eigið fé var tæplega 378 milljónir
króna. Efnahagur fyrirtækisins
stendur því sterkt en eiginfjárhlut-
fall Kaffitárs er nærri 50%.
Hagnast um
86 milljónir
Aðalheiður
Héðinsdóttir