Morgunblaðið - 27.09.2014, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Durban, Suður-Afríku 25.septemberHafgolan sveigirpálmatrén við strönd-
ina, hvítfyssandi öldur en stór-
skipalægi í fjarska; svo byrjar
barnakór að syngja á gangstétt-
inni umkringdur mannmergð og
maður er kominn til Suður-Afríku.
Durban, sem er vettvangur heims-
meistaramóts ungmenna 8-18 ára,
þar sem Vignir Vatnar Stefánsson
er eini keppandi Íslands, liggur
næstum því eins langt suður frá
Íslandi og hægt er að komast.
Flugleiðin London-Jóhann-
esarborg tekur 11 klst. sem er þó
varla nema eins og „ein vakt á
stíminu“ svo maður noti nú orða-
lag Stefáns Péturssonar, gamals
sjómanns og föður Vignis Vatnars
sem er með í för. Truflun á dæg-
ursveiflunni er þó ekki mikil; tíma-
mismunur á Íslandi og Durban eru
tvær klukkustundir. Þeir glíma við
beltahrollinn sem koma frá Eyja-
álfu og nærliggjandi svæðum og
það er eini gallinn við skipulag
þessa móts að fyrstu dagana hafa
krakkarnir stundum verið látnir
tefla tvær skákir á dag. Vignir
Vatnar, sem er 11 ára gamall og
er á fyrra ári í sínum flokki, tefldi
langar og strangar morg-
unumferðir en brast úthald í
seinni skákinni, og missti t.d. af
rakinni vinningsleið snemma tafls í
6. umferð. Hann er með 4½ vinn-
ing af sjö mögulegum og við ger-
um okkur góðar vonir um loka-
sprettinn enda hefur pilturinn teflt
vel.
Skákmót af þessari stærð-
argráðu, þar sem sem keppendur
eru í kringum þúsund talsins, hef-
ur ekki verið haldið áður í Suður-
Afríku en afar vel skipulagt.
Keppnin fer öll fram í einum sal í
fimm stjörnu ráðstefnuhöll í mið-
borginni. Norðurlandaþjóðirnar
eiga a.m.k einn fulltrúa á mótinu
en Norðmenn, sem sigla á bylgju
Magnúsar Carlsens, senda hvorki
fleiri né færri en 27 keppendur til
leiks. Skáksambandið leggur meiri
áherslu á EM ungmenna sem
hefst í Georgíu í næsta mánuði þar
sem fimm íslenskir skákmenn taka
þátt en kostnaður við þátttöku
Vignis Vatnars er auðvitað mikill.
Sameinaðir kraftar leystu málið.
Vignir tefldi við gamlan kunningja
frá Noregi í fimmtu umferð.
Framan af var skákin í járnum en
í miðtaflinu var Vignir úrræða-
betri og vann með snarpri kóngs-
sókn:
5. umferð:
Vignir Vatnar Stefánsson –
Andre Nielsen
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 b6 4.
g3 Ba6 5. Da4 Be7 6. Bb7 Bb7 7.
0-0 0-0 8. Rc3 Re4 Dc2 Rxc3 10.
Dxc3 d5
Þessi eðlilegi leikur hefur ekki
gott orð á sér. Eftir 11. … c5 eða
11. … f5 á svartur að jafna taflið.
11. cxd5 exd5 12. Bf4 c5 13.
Hfd1 Rc6 14. dxc5 bxc5 15. h4!?
Vignir vildi hindra framrás g-
peðsins en þessi leikur nýtist vel
að ýmsu öðru leyti.
15. … d4 16. Dc4 Ra5 17. Dc2
Db6 18. Hb1 Hac8 19. Bh3 Ha8
20. Re5 Hfd8 21. Kh2 f6 22. Rf3
Bxf3?
Gefur eftir hvítu reitina, 22. …
c4 leit vel út en eftir 23. b4! d3 24.
exd3! Bxf3 25. bxa5 Bxd1 á hvítur
millileikinn 26. Dxc4+! og vinnur.
23. exf3 Bd6 24. Bd2 Hb8 25. h5
He8 26. Bf5 h6 27. He1! He5 28.
Be6+ Kh8 29. Dg6 Bf8 30. Hxe5
fxe5
Hægt og bítandi hefur hvítur
náð að byggja upp sterka sókn-
arstöðu. Nú rífur hann upp kóngs-
stöðuna.
31. Bxh6!
Vitaskuld ekki 31. … gxh6 32.
Dg8 mát.
31. … c4 32. Bxg7+! Bxg7 33.
h6 Dc7 34. Bf7
– og svartur gafst upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Vignir Vatnar í
námunda við topp-
inn á HM ungmenna
Virðisaukaskattur er
almennt 25,5%, en
matvörur, hótelgisting
og fleira bera 7% virð-
isaukaskatt. Nú stend-
ur til að hækka skatt-
inn á matvörurnar, en
lækka skattinn á ann-
að. Er þetta ranglætið
uppmálað? Svo er að
heyra. ASÍ og stjórn-
arandstaðan hafa látið
alvarlega til sín heyra, flatskjáirnir
lækka, en mjólkin handa ómegðinni
hækkar segja þau.
Nautakjöt og humar
hækkar mest
Hver verða áhrifin á þá tekju-
lægstu og þá efnameiri? Kjúkling-
urinn hækkar um 40 krónur, en
nautakjötið hækkar um 250 krónur
kílóið. Humarinn hækkar um 450
krónur. Flott máltíð á veitingahúsi
hækkar svo um munar. Svo má
áfram telja.
Hvað lækkar?
Tölvan handa nem-
andanum á heimilinu
lækkar. Bensínið lækk-
ar (því miður segir
borgarstjórnin).
Hversu mörg heimili
eiga ekki bíl? Barnaföt-
in lækka. Lyfin lækka.
Þannig má áfram halda
með nauðsynjavör-
urnar. Alveg öfugt við
það sem ASÍ heldur, þá
varðar almenning
lækkun á lyfjum meir en hækkun á
humri.
Á kannski að þrengja matar-
skattsundanþáguna? Matarskatts-
undanþágan byggist á því að um sé
að ræða nauðsynjavörur sem enginn
getur verið án og bitni því mest á fá-
tækum. Auðvitað er fátt sem styður
þetta. Hvers vegna skyldu t.d.
nokkrar drykkjarvörur vera í lægra
skattþrepi en annað? Nóg er vatnið í
krananum.
Ég skora á þingmenn sem ganga
beinir í baki að leggja til að matar-
skattsundanþágan verði þrengd. Ef
Samfylkingin er á móti þýðir það
bara eitt; málið er gott.
Framlag rithöfunda er svo sér-
kapítuli eins og stundum áður. Þeir
halda sum sé margir hverjir að þeir
borgi virðisaukaskattinn af bók-
unum, ekki við sem kaupum bæk-
urnar. Eru bókakaupendur þá jafn-
an þeir efnaminni? Hvernig kemur
matarskattsrökstuðningurinn og
bókaskattsrökstuðningurinn heim
og saman? – Það hefur víst sjaldnast
verið áhyggjuefnið hvort rökin
ganga upp. Einkum ekki þegar sam-
an fer í einum manni rithöfundur og
vinstrimaður.
Er ranglátt að hækka matarskattinn
og lækka annan virðisaukaskatt?
Eftir Einar S.
Hálfdánarson » Alveg öfugt við það
sem ASÍ heldur, þá
varðar almenning lækk-
un á lyfjum meir en
hækkun á humri.
Einar S. Hálfdánarson
Höfundur er löggiltur endurskoðandi
og hæstaréttarlögmaður.
Nú þegar haustar
og Alþingi Íslendinga
kemur úr helmingi
lengra sumarfríi en al-
menningur á landinu
er rétt að íhuga vel
hvar áhersluatriði
stjórnvalda liggja.
Nú er t.d. verið að
tala um breytingar á
virðisaukaskatti og
vörugjaldi. Hvar er
rætt um að minnka virðisaukaskatt
á lyfseðilsskyldum lyfjum? Ekki
heyrst stuna eða hósti, hvorki frá
stjórnarflokkum né stjórnarand-
stöðu.
Þó er vsk. af lyfjum einn af
stærstu útgjaldaliðum margra eldri
borgara.
Má benda á að innan Evrópu er-
um við með hæsta vsk. á lyfjum,
Danmörk og Noregur eru með
svipaðan. Flest lönd Evrópu eru
með talsvert minni vsk. á lyfjum en
almennt. Þrjú lönd eru með engan
vsk. á lyfjum, það eru Malta, Bret-
land og Svíþjóð, hvernig væri að
stjórnvöld hugsuðu til
eldri borgara annað
slagið? Eru bar-
áttuaðferðir eldri
borgara ekki nógu
kraftmiklar, er ekki
rétt að íhuga breyt-
ingar þar á, t.d. mæta
fyrir utan Alþingi þeg-
ar fjárlagafrumvarpið
kemur úr nefnd?
Stefna stjórnvalda
hefur verið sú að eldri
borgarar geti sem
lengst verið á sínum
heimilum er aldur færist yfir þá.
Til þess að slíkt gangi upp verða
stjórnvöld að gera sér grein fyrir
því að sveitarfélög þurfa að hafa
heimildir til að lækka fast-
eignagjöld á þann veg er þau vilja
og treysta sér til. En slíkar heim-
ildir virðast ekki vera hjá sveitarfé-
lögum.
Einnig má benda á í þessu sam-
bandi að mikill munur er á ástandi
eldri borgara en var fyrir 10 til 15
árum er þeir fara á hjúkrunarheim-
ili. Sem þýðir þyngri hjúkrun er
þeir koma inn á hjúkrunarheimili.
Rétt er að benda á að bygging
hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði er
búin vera til skoðunar síðan 2006,
átti að taka hjúkrunarheimili í
notkun 2012. Hvað veldur? Þegar
stórt er spurt verður fátt til svara;
óeining innan bæjarstjórnar?
Hvað sem öllum baráttumálum
eldri borgara líður, þá má benda á
að á næstu dögum verður ný dag-
skrá fyrir starf eldri borgara í vet-
ur tilbúin og send í allar íbúðir í
Hafnarfirði eins og venjulega.
Ég skora á alla eldri borgara í
Hafnarfirði að ganga í félag okkar
og fá afsláttarbókina og styrkja um
leið baráttu okkar. Sameinaðir
stöndum við en sundraðir föllum
við.
Hver er staða eldri
borgara á Íslandi?
Eftir Jón Kr.
Óskarsson » Baráttumál eldri
borgara á Íslandi
virðast ekki vera
í forgangi hjá stjórn-
völdum hér á landi.
Hvað veldur?
Jón Kr. Óskarsson
Höfundur er formaður Félags eldri
borgara í Hafnarfirði.
Fyrir nokkru opn-
aði Lyfja nýtt apótek
í Kópavogi til að auka
hlutdeild sína á lyfja-
markaði. Það væri
kannski ekki í frásög-
ur færandi ef ekki
væri fyrir þær sakir
að Lyfja er nú í eigu
Glitnis eftir að fyrr-
verandi eigendur
Lyfju fóru á húrrandi
hausinn með margra
milljarða króna skuldabagga á
bakinu. Glitnir er fyrrverandi við-
skiptabanki sem er nú í slita-
meðferð, en Glitnir á m.a. meiri-
hlutann í Íslandsbanka.
Kunna þessir menn ekki að
skammast sín? kann nú einhver að
segja, er ekki nóg komið af braski
þessara aðila hér á landi?
Með samþykki yfirvalda
Samkvæmt áliti Samkeppniseft-
irlitsins eru Lyfja (Lyfja og Apó-
tekið) og Lyf & heilsa
(Lyf & heilsa, Apó-
tekarinn, Skipholts
apótek, Gamla apó-
tekið) með sameig-
inlega markaðs-
ráðandi stöðu á
lyfjamarkaði á höf-
uðborgarsvæðinu og
ættu því ekki að fá
heimild til að fjölga
apótekum á svæðinu
af þeirri ástæðu einni
saman svo ekki sé
minnst á bankann. Í
Samkeppniseftirlitinu virðast allir
sofa þyrnirósarsvefni yfir þessu
máli. Þá má einnig geta þess að
það þarf leyfi bæði frá Lyfjastofn-
un og velferðarráðuneytinu til að
opna nýtt apótek, þannig að þetta
er gert með samþykki þessara
stofnana.
Hvað er til ráða?
Þessi litla saga sýnir að yfirvöld
virðast ekki hafa lært mikið af
hruninu þrátt fyrir þykkar
skýrslur þar um og rándýrar í
þokkabót og virðast vera að hugsa
um eitthvað allt annað en að koma
á eðlilegri samkeppni í lyfjaversl-
un hér á landi.
Almenningur getur þó tekið
þessi mál í sínar hendur með því
að vanda val sitt við hverja hann
hefur viðskipti, það eru til sóma-
kærir apótekarar í landinu sem
hvergi komu nálægt útrásinni eða
hruninu.
Banki opnar apótek
Eftir Hauk Ingason » Lyfja er nú í eigu
Glitnis eftir að fyrr-
verandi eigendur Lyfju
fóru á húrrandi hausinn
með margra milljarða
króna skuldabagga á
bakinu
Haukur Ingason
Höfundur er apótekari í Garðs
Apóteki.
Úff, ég hálfkvíði fyrir því að eldast.
Hvers vegna? Jú, það er orðinn því-
líkur læknaskortur hér á landi að
þeir læknar sem enn eru hér starf-
andi súpa hveljur. Læknar flýja
landið hver um annan þveran og þeir
sem ljúka námi geta ekki hugsað sér
að flytja hingað vegna slæmra kjara
og lélegs aðbúnaðar. Ég stórefa það
þess vegna að ég fái einhverja þjón-
ustu ef ég veikist síðar á lífsleiðinni.
Stjórnvöld verða að gera eitthvað í
þessum málum og það strax.
Ein áhyggjufull.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Læknaskortur
Sjúkrarúm Engir læknar, engir sjúklingar.
Morgunblaðið/Ásdís