Morgunblaðið - 27.09.2014, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að koma miklu í verk í dag.
Gefðu þér tíma til að spjalla því þú hittir
ekki fólk til þess á hverjum degi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert að velta fyrir þér hvort þú sért
rétta manneskjan í tiltekið starf eða ekki.
Sýndu hugrekki og láttu til skarar skríða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sannleikurinn birtist í mörgum
myndum. Að gefa hluti sem maður hefur
sankað að sér er ekki bara sársaukalaust,
heldur frelsandi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Dagurinn verður frábær fyrir einka-
lífið en kannski ekki jafn stórkostlegur fyrir
peningamálin – til styttri tíma litið. Gleði þín
er smitandi og brýst fram á elleftu stundu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Yfirleitt á maður ekki að trúa orðrómi,
en þér finnst sem að þessu sinni geymi
hann örlítinn sannleika. Ef þú tilgreinir ná-
kvæmlega hvað þú vilt er líklegra að þú fáir
það fyrr.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér er það óvænt ánægja hvað þú
uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. En í dag
er allt í lagi að vera bestur og vita það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu vakandi fyrir tilfinningum og þörf-
um þeirra sem eru þér næstir. Einu gildir
hvernig þú bregst við út á við, innra með
þér gleðstu yfir því að einhverjum finnist þú
vera aðlaðandi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú vilt gefa öllum eitthvað.
Staðsetning himintunglanna og nýtt tungl
beina sjónum að meðferð þinni á fjár-
munum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Yfirlýsingar sem gefnar eru
snemma dags móta það sem eftir er vik-
unnar. Afmælið þitt nálgast og því þarftu að
íhuga hvaða breytingar þú vilt sjá í lífi þínu
á næstunni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt smáóreiða sé ekki skaðleg
eru hlutirnir undrafljótir að fara úr bönd-
unum þegar skriðan fer af stað. Notaðu
tækifærið og reyndu að bæta samband þitt
við þína nánustu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gagnkvæm samúð milli vina mun
gera þér auðvelt að hjálpa öðrum eða auð-
velda öðrum að hjálpa þér. Nú er ekki rétti
tíminn til þess að ætla sér að komast til
botns í einhverju.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarf ekki að gera eitthvað áber-
andi eða meiriháttar til að falla í kramið.
Taktu tíma til að átta þig á því.
Síðasta laugardagsgáta var eftirHelga R. Einarsson:
Nauðsyn fyrir stund og stað.
Stafsetning er krítuð á.
Margur þar um miskunn bað.
Má við ýmsum kvillum fá.
Árni Blöndal á þessa lausn:
Stundataflan er tíma væn
á töflur í skóla menn rita
við altaristöflu beðin er bæn
svo bryðja menn töflur við hita.
Harpa á Hjarðarfelli ræður
gátuna svona:
Með stundatöflu starfa skólar enn,
á stórri skólatöflu æfð er ritun.
Við altaristöflu um miskunn biðja menn
og meðals töflur gleypa þeir.
Guðmundur Arnfinnsson segir:
Tíma og skólatöflurnar
teljast mega gagnlegar,
altaristaflan eflir trú,
aspiríntöfluna gleypir þú.
Síðan bætir hann við gátu til að
glíma við:
Hún er þar, sem fá má frið,
fyrir ljá, svo bitið þverr,
við að festa leggur lið,
leturtákn, sem merkir r.
Og aðra gátu fann ég eftir
Guðmund í fórum mínum, svo að
aftur verða þær tvær!
Þetta folaldsfæðing er,
fær það brjálæðingur hver,
fjallshlíð stendur utan í,
áður svanni klæddist því.
Hér kemur síðan limra eftir hann:
Lengi búin að bíða var Diljá
þegar bað hennar Valdi frá Giljá,
hún unglamb ei var,
en sinn aldur vel bar,
og hún svaraði: „Valdi, ég vil, já!“
Pétur Stefánsson kallast á við
Kristján Fjallaskáld:
Nú er úti hrollkalt haust,
hjaðnar dagsins týra.
Áfram tifar endalaust
ævi manna og dýra.
Vex og dafnar veðrakraftur,
vindar skekja sérhvert ból.
Hallar degi enn og aftur.
Ekkert stöðvar tímans hjól.
Síðan skrifar Pétur í Leirinn
orðið „reiptog“ og bætir við:
Oft og tíðum bænar bið,
breið er lífsins gatan.
Í mér vilja eigast við
almættið og Satan.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Diljá, vísnagátur
og hrollkalt haust
Í klípu
„SEGÐU BARA NEI“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÁ, ÉG VÆRI TIL Í AÐRA
BRÚÐKAUPSFERÐ... MEÐ HVERJUM?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...þegar ég er í örmum
þér og þú í hjarta mínu
að eilífu.
ÉG ER AÐ SKRIFA
MINNINGARNAR MÍNAR
KAFLI
TVÖ...
ÞAÐ ER ÞAR SEM MÉR ER
RÆNT AF GEIMVERUM
MIG GRUNAÐI
EITTHVAÐ
SVOLEIÐIS
HELGA! HLEYPTU MÉR INN!
VILLIMENNIRNIR ERU Á EFTIR
MÉR OG ÞEIR ERU ALVEG AÐ
KOMA!
ALLT Í LAGI! ÉG ÞARF BARA
NOKKRAR MÍNÚTUR TIL ÞESS AÐ
FRÍSKA UPP Á MIG!
Partí í hjartað.“ Það er orðatiltækisem er tækt og gott betur, að
mati fjögurra ára stúlkukindar. Hún
brá þessu orðatiltæki fyrir sig þegar
hún bað móður sína um að koma
með sér og vinkonu sinni inn í her-
bergi í partíleik. Þar var dansað og
hamrað á bleikt hljómborð. „Og
hvað gerir maður svo í svona partíl-
eik?“ spurði móðirin sem hafði aldrei
farið í umræddan leik. „Maður fær
svona partí í hjartað þegar maður
syngur og dansar.“
x x x
Þá vitið þið það, lesendur góðir.Ekki ýkja flókið. Það er svo gott
að brosa og fá smá partí í hjartað,
hvort sem það er í litríku barna-
herbergi um miðjan dag eða að
kvöldlagi í dimmum kjallara í mið-
borginni undir taktföstum tónum.
x x x
Að grípa fram í fyrir öðrum. Þaðkannast Víkverji vel við og gott
betur. Hann á það til að vera ögn
fljótfær og kann ekki þá kúnst að
bíða þolinmóður eftir orðum ann-
arra. Hann er þó að reyna að bæta
ráð sitt þar sem hann fær iðulega
skammir í hattinn. „Þú stalst orðinu
mínu,“ gellur í egginu á heimilinu.
Því miður þá fylgja oft tár með
vegna sárra vonbrigða yfir því að
frásögnin hafi verið rofin.
x x x
Að verða betri maður í dag en ígær, það er Víkverji að leggja
sig í líma við. Það er því býsna þarft
að vera með a.m.k. eitt egg sem
kennir hænunni reglulega réttu tök-
in í mannlegum samskiptum.
x x x
Þriðja æviskeiðinu veltir Víkverjimikið fyrir sér um þessar mund-
ir. Ekki svo að skilja að hann eigi
stutt í það, síður en svo. Samtök hér
á landi sem nefnast U3A Reykjavík
héldu fyrirlestra í vikunni. Þar sem
maður á, og er, sífellt að læra e-ð
nýtt. Þá er ekki úr vegi að huga að
því hvað maður ætti að gera í ellinni.
Sú hugsun reynist Víkverja nefni-
lega framandi því hann kann rétt að
skipuleggja morgundaginn. Kannski
helgina ef hann er heppinn. Það
verður því verkefni næstu daga;
hugsa fram í tímann. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég veit að lausnari minn lifir og hann
mun síðastur ganga fram á foldu.
(Jobsbók 19:25)
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Hljóðlát og endingargóð
jeppadekk sem koma
þér örugglega hvert
á land sem er.