Morgunblaðið - 27.09.2014, Page 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
tísku og förðun
föstudaginn
3. október
Í blaðinu verður fjallað um tískuna haust/vetur 2014 í
förðun, snyrtingu, fatnaði og fylgihlutum auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 29. september.
SÉRBLAÐ
TÍSKA & FÖRÐUN
-Meira fyrir lesendur
Menntamálaráðherra ogsendiherra Bandaríkj-anna voru meðal þeirraer opnuðu RIFF í fyrra-
dag í Háskólabíói. Leikstjórinn Ása
Hjörleifsdóttir sá auk þess um hina
árlegu „gusu“ og gerði það með
stakri prýði. Opnunarmyndin að
þessu sinni er bandaríska kvikmynd-
in Land Ho! sem er meðal annars
framleidd af David Gordon Green –
gaman að því. Sagan segir frá fyrr-
verandi mágum á eftirlaunum sem
leggja af stað í ferðalag frá Banda-
ríkjunum til Íslands til að endurvekja
æskuneistann sem kulnað hefur með
árunum. Á Íslandi flakka þeir á milli
ýmissa ferðamannastaða og kynnast
sjálfum sér og hvor öðrum í leiðinni.
Kvikmyndin var gerð fyrir lítinn
pening en það var ekki að sjá, kvik-
myndatakan er fagmannleg sem og
klipping. Sviðsmyndin er að sjálf-
sögðu fögur náttúra Fróns og er hún
oft í forgrunni. Maður fær þá tilfinn-
ingu á stöku stað að um einbeitta
landkynningu sé að ræða. Sem Ís-
lendingur er sviðsmyndin því ekkert
sérstaklega spennandi. Gullfoss,
Geysir og Bláa lónið eru fremur út-
þynnt og ofnotuð fyrirbæri en fyrir
erlenda áhorfendur eru þau vissulega
heillandi. Leikstjóri myndarinnar,
Martha Stephens, sagði meðal ann-
ars í spjalli eftir sýninguna að henni
þætti sviðsmyndin oft spila stóra
rullu í kvikmyndum, hún hefði viljað
gera kvikmynd í íslenskri náttúru og
sagan hefði sprottið eftir á. Kvik-
myndin varð því mjög falleg mynd-
rænt séð þrátt fyrir að inntak hennar
hafi verið fremur lítið.
Framvinda sögunnar er línuleg og
er hún mjög auðmeltanleg fyrir
áhorfendur. Tónlist spilar stóra rullu
í kvikmyndinni og andstæður þær er
finna má í aðalpersónum mynd-
arinnar og tónunum áhugaverðar.
Earl Lynn Nelson, sem fer með hlut-
verk Mitch, er mjög skemmtilegur í
myndinni. Það kemur annað slagið í
ljós að ekki er um reyndan leikara að
ræða, maðurinn er frændi leikstjór-
ans, en annars var hann nokkuð sann-
færandi. Leikur Pauls Eenhoorn,
sem fór með hlutverk Colins, virkaði
áreynsluminni og fór leikarinn létt
með hlutverkið. Félagarnir ná auk
þess vel saman og vinskapur persóna
þeirra er einkar hlýlegur. Sagan sjálf
er hugljúf þrátt fyrir að vera lág-
stemmd. Hún heldur athygli áhorf-
andans og er því ágætis afþreying
þrátt fyrir að hún eigi eflaust ekki eft-
ir að lifa í minnum um langa tíð.
Vinir Leikararnir ná vel saman og vinskapur persóna þeirra er hlýlegur.
Létt landkynning
RIFF - Háskólabíó
Land Ho! bbbnn
Leikstjórar: Aaron Katz og Martha
Stephens. Aðalhlutverk: Paul Eenhoorn,
Earl Lynn Nelson, Karrie Crouse, Eliza-
beth McKee og Alice Olivia Clarke.
Bandaríkin og Ísland. 2014, 95 mín.
Flokkur: Ísland í brennidepli.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
RIFF 2014
Sýnd í dag kl. 18 og 29. sept. kl. 20
í Háskólabíói.
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Thomas er komið fyrir á hryllilegum stað ásamt fimmtíu öðrum
drengjum á unglingsaldri, eftir að minni hans hefur verið eytt.
Fljótlega komast drengirnir að þeir eru allir fastir í risastóru völ-
undarhúsi og ef þeir vilja sleppa út
verða þeir að vinna saman.
Metacritic 58/100
IMDB 7,9/10
Smárabíó 17.30, 20.00, 22.30
Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00
The Maze Runner 12
Mia Hall þarf að ákveða hvort hún ætlar að láta drauma sína
rætast og fara í Juilliard-tónlistarskólann eða vera með
draumaprinsinum, Adam. En huggulegur fjölskyldubíltúr breytir
öllu á örskotsstundu og Mia þarf að taka eina ákvörðun, sem
mun ekki aðeins hafa áhrif á framtíðina heldur á örlög hennar.
Metacritic 47/100
IMDB 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.20
If I Stay 12
Fyrrverandi leynilögreglumaður sviðsetur and-
lát sitt til að lifa rólegu lífi í Boston. Þegar
hann hittir stúlku sem er undir hælnum á ill-
skeyttum rússneskum glæpamönnum verður
hann að koma henni til bjargar.
IMDB: 7,9/10
Metacritic: 48/100
Sambíóin Keflavík 20.00 22.40
Smárabíó 14.00, 17.00, 17.00 LÚX, 20.00 LÚX, 20.00, 22.45,
22.45 LÚX
Háskólabíó 18.00, 22.15
Laugarásbíó 20.00, 22.40
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20
The Equalizer
A Walk Among the
Tombstones
Matthew Scudder er fyrrver-
andi lögga og einkaspæjari.
Tilveran er býsna róleg þar
til eiturlyfjasali nokkur ræð-
ur hann til að komast að því
hverjir tóku og myrtu eig-
inkonu hans.
Metacritic 51/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 15.45, 17.45,
20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri 22.20
Teenage Mutant
Ninja Turtles 10
Mbl. bbbnn
Metacritic 34/100
IMDB 6.4/10
Sambíóin Álfabakka 14.00,
16.10
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20, 17.40, 20.00 3D,
22.20 3D
Sambíóin Kringlunni 17.50
Sambíóin Akureyri 15.20
Sambíóin Keflavík 17.50 3D
Afinn
Guðjón hefur lifað öruggu
lífi. Allt í einu blasir eftir-
launaaldurinn við honum á
sama tíma og erfiðleikar
koma upp í hjónabandinu og
við skipulagningu á brúð-
kaupi dóttur sinnar.
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 15.20, 17.40, 17.40,
18.30, 20.00, 20.00, 21.00,
22.20, 22.20
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 13.00,
15.20, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00, 22.20
The November Man16
Fyrrverandi fulltrúi banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA,
þarf tilneyddur að mæta
fyrrverandi nemanda sínum í
banvænum leik. Í þann leik
fléttast háttsettir leyniþjón-
ustumenn og rússneskur
forsetaframbjóðandi.
Metacritic 38/100
IMDB: 6,7/10
Smárabíó 22.15
The Hundred-Foot
Journey
Indversk fjölskylda opnar
veitingastað í Suður-
Frakklandi. Keppinautarnir
eru lítt hrifnir og hefst at-
burðarás og barátta sem
þróast í óvænta átt. Bönnuð
innan 7 ára.
Metacritic 55/100
IMDB 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 18.20,
21.00
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00
Sambíóin Kringlunni 14.50,
17.25, 20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 17.30
París norðursins Hugi hefur fundið skjól frá
flækjum lífsins í litlu þorpi
úti á landi en þegar hann fær
símhringingu frá föður
sínum sem boðar komu sína
er hið einfalda líf í uppnámi.
Mbl. bbbnn
IMDB 7.4/10
Smárabíó 15.15, 17.45,
20.00
Háskólabíó 15.15, 17.45,
20.00
Borgarbíó Akureyri 16.00,
17.50
Sin City: A Dame to
Kill For 16
Framhald spennumyndar-
innar Sin City frá 2005.
Harðsoðnustu íbúar bæjar-
ins mæta nokkrum af þeim
mest hötuðu.
Metacritic 45/100
IMDB 7.1/10
Sambíóin Álfabakka 22.30
Sambíóin Egilshöll 22.30
Guardians of
the Galaxy 12
Mbl. bbbbn
Metacritic 75/100
IMDB 9.0/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00
Let’s Be Cops 12
Metacritic 27/100
IMDB 6.8/10
Smárabíó 15.10, 17.30,
20.00, 22.20
Töfrahúsið Kettlingur endar á vergangi
þegar vondur eigandi hans
ákveður að losa sig við hann
og kemst í kynni við gamlan
töframann. Með íslensku
tali.
Sambíóin Álfabakka 13.00,
14.00, 16.00, 18.00
Sambíóin Egilshöll 13.30,
15.40, 17.50
Sambíóin Kringlunni 12.50,
13.50, 15.50
Sambíóin Akureyri 13.30,
15.30
Sambíóin Keflavík 13.30,
15.40
Pósturinn Páll Pósturinn Páll er loksins
mættur á hvíta tjaldið ásamt
trausta kettinum Njáli.
Metacritic 44/100
Smárabíó 13.00 Ísl., 13.00
Ísl. 3D, 15.00 Ísl.
Laugarásbíó 14.00, 15.50
Borgarbíó Akureyri 16.00
Lucy 16
Mbl. bbmnn
Metacritic 61/100
IMDB 6.6/10
Laugarásbíó 18.00
Flugvélar:
Björgunarsveitin IMDB 5.8/10
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.30
Sambíóin Egilshöll 13.30,
15.30
Sambíóin Akureyri 13.30
Sambíóin Keflavík 13.30,
15.40
Vonarstræti 14
Mbl. bbbbm
IMDB 8.1/10
Háskólabíó 15.00, 21.00
Að temja
drekann sinn 2 Mbl. bbbnn
Metacritic 77/100
IMDB 8,6/10
Smárabíó 13.00 Ísl., 13.00
Ísl. 3D, 15.15 Ísl.
Laugarásbíó 14.00
Tarzan
Bönnuð innan 7 ára.
Sambíóin Álfabakka 14.00,
16.10
Dino Time:
Týnd í tíma
Laugarásbíó 13.50
RIFF-hátíðin
Snúið aftur til Íþöku Bíó
Paradís 13:30
Sá geðþekki Bíó Paradís
13.30
Touma húsið Háskólabíó
14.00
Annars konar drengur Bíó
Paradís 14.00
Hve furðulegt að heita
Federico Háskólabíó 14.00
Los Angeles vatn Bíó Para-
dís 15.30
Túristi Bíó Paradís 15.30
Thule Túvalú Háskólabíó
16.00
Í skothríð skal skjóta til
baka Háskólabíó 16.00
Skrifaðu: ég er arabi Bíó
Paradís 16.30
Spígsporað Bíó Paradís
17.30
Menningarvíman Bíó Para-
dís 18.00
Söngur og Napólí Há-
skólabíó 18.00
Land fyrir stafni! Há-
skólabíó 18.00
Ósjálfrátt Bíó Paradís 18.00
Áður en hinsta tjaldið
fellur Bíó Paradís 19.45
Leikur Bíó Paradís 19.45
Maputo: draumur á
kostnaðarverði Norræna
húsið 20.00
Uppvöxtur Háskólabíó 20.15
Virunga Bíó Paradís 20.30
Brýrnar í Sarajevó Há-
skólabíó 20.30
Með andann á lofti Bíó
Paradís 22.00
Hinn heilagi hringvegur Bíó
Paradís 22.00
Difret Háskólabíó 22.30
Lifi Frakkland Bíó Paradís
22.30
Kennslustundin Bíó Paradís
23.00
Pulp: kvikmynd um lífið,
dauðann og stórmarkaði
Háskólabíó 23.15
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is