Morgunblaðið - 27.09.2014, Qupperneq 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Kvikmyndin Afinn byggist ásamnefndu leikriti þarsem leikstjórinn BjarniHaukur og leikarinn Sig-
urður Sigurjónsson áttu afar farsælt
samstarf. Leikritið er einleikur og
sjálfstætt framhald fyrra verks
Bjarna, Pabbans. Í kvikmyndinni
leiða Bjarni og Sigurður aftur sam-
an krafta sína en afapersóna Sig-
urðar fær í henni tækifæri til að
spegla sig í fjölbreyttri flóru ann-
arra persóna, sem dýpkar tjáningu
hans og gerir kvikmyndina þar með
sterkari en leikhúseinleikinn. Bjarni
fékk liðstyrk frá Ólafi Agli við hand-
ritsgerð myndarinnar og þeir völdu
vel í nýju hlutverkin svo útkoman er
firnagóð.
Myndin segir af Guðjóni (Sigga
Sigurjóns) sem lifað hefur öruggu
lífi, menntast, kvænst og átt börn,
haft góða vinnu og almennt verið tal-
inn hinn mætasti samfélagsþegn.
Þegar eftirlaunaaldurinn blasir við
honum tapar hann hins vegar áttum
og sjálfsmyndin molnar. Við það
hriktir í stoðum hjónabandsins sem
fram til þessa hefur verið afar ást-
ríkt þannig að hann fjarlægist eig-
inkonu sína (Sigrúnu Eddu). Honum
geðjast einnig lítt að tilvonandi
tengdasyni sínum (Steinþóri) og það
styggir dóttur hans (Tinnu) þannig
að smám saman einangrast Guðjón
meira og meira frá ástvinum og
fyrra lífi. Það er nokkuð átakanlegt
en jafnframt broslegt að fylgjast
með Guðjóni staulast á þessum
krossgötum í leit að nýjum tilgangi
þegar haustar að í ævi hans. Hann
leitar fulllangt yfir skammt, því
hann reynir til dæmis að endur-
heimta sumarið með tilheyrandi
æskuljóma og tækifærum með því
að setjast aftur á skólabekk og fara í
sólarlandaferð en hann er illilega
minntur á aldur sinn og forgengi-
leika þar eins og annars staðar.
Myndin tekur í raun þematískt á
mannsævinni allri, frá vöggu til
grafar. Eftir því sem Guðjón eldist
virðist hann heltast úr samfélags-
lestinni. Hann nær ekki að halda í
við tæknibreytingar og endurnýj-
aðan tíðaranda þar sem atvinnuvegir
taka örum stakkaskiptum og tölvu-
stýrðir samfélagsmiðlar skjóta hon-
um ref fyrir rass. Þetta kristallast
skýrast í átökum hans við verðandi
tengdason sinn sem starfar við þró-
un tölvuleikja og hefur allt önnur
lífsviðhorf.
Myndin er hlaðin skondnum stefj-
um sem binda hana vel saman. Lík-
bíll virðist til dæmis elta Guðjón á
röndum út alla myndina enda telur
hann dauðann bíða sín handan
næsta horns. Eldri kona verður
einnig oft á vegi hans og þá iðulega
þegar hann hefur komið sér í vand-
ræðalegar aðstæður og hin fleyga
laglína „Ég á líf, ég á líf, yfir erfið-
leika svíf!“ fær að hljóma endurtekið
á skoplegum augnablikum.
Nærgætin persónustúdía mynd-
arinnar lýsir djúpum skilningi á
mannlegu eðli og kjarnar vel þver-
skurð íslensks samfélags. Siggi Sig-
urjóns nýtur sín vel í þessu sérlega
bitastæða hlutverki og skín þá sér-
staklega fyrir tilstuðlan frábærs
mótleiks Sigrúnar Eddu. Steinþór
og Tinna standa sig einnig afar vel,
en aðrar persónur virðast meira
vera til uppfyllingar.
Búningar myndarinnar og sviðs-
myndir eru vel valin og hjálpa til við
að gera persónurnar sem trúverð-
ugastar. Handritið er sterkt og leik-
stjórn góð svo leikararnir geta allir
látið ljós sitt skína. Kvikmyndataka
og klipping eru einnig fagmannleg,
með eftirminnilegum borgarstillum
frá Reykjavík og Stykkishólmi, þar
sem arkitektúr, andrúmsloft og
hraði líðandi stundar njóta sín en
myndin er eftir sem áður frekar leik-
húsleg persónustúdía en sterk kvik-
myndaleg frásögn. Það tekur menn
vissulega alla ævina að læra að lifa
og líklega alla ellina að reyna að
sætta sig við hrörnun líkamans.
Myndin á því erindi við alla og ætti
að geta skemmt flestum kostulega.
Herra í æsku, þræll í elli
Skondin „Siggi Sigurjóns nýtur sín vel í þessu sérlega bitastæða hlutverki og skín þá sérstaklega fyrir tilstuðlan
frábærs mótleiks Sigrúnar Eddu,“ skrifar rýnir meðal annars um framlag aðalleikaranna í Afanum.
Sambíóin Álfabakka, Egilshöll,
Kringlunni, Keflavík og Akur-
eyri, Selfossbíói, Ísafjarðarbíói
og Bíóhöllinni Akranesi.
Afinn bbbmn
Leikstjórn: Bjarni Haukur Þórsson.
Handrit: Bjarni Haukur Þórsson og Ólaf-
ur Egill Egilsson. Aðalhlutverk: Sigurður
Sigurjónsson, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Steinþór Hróar Steinþórsson, Tinna
Sverrisdóttir og Þorsteinn Bachmann.
95 mín. Ísland, 2014.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Þungarokkssveitin Dimma mun
hita upp fyrir rokkgítarleikarann
Slash á tónleikum hans og Myles
Kennedy and The Conspirators í
Laugardalshöll, 6. desember nk.
Slash, réttu nafni Saul Hudson,
gerði garðinn frægan með hljóm-
sveitinni Guns N’ Roses sem stofnuð
var árið 1985 og sló í gegn með
fyrstu breiðskífu sinni, Appetite for
Destruction sem kom út árið 1987.
Slash þykir með færari rokkgítar-
leikurum sögunnar og er iðulega á
listum yfir slíka. Slash og félagar
munu m.a. flytja lög eftir Guns N’
Roses í Laugardalshöll.
Gítarhetja Slash þenur gítarinn á
tónleikum með Kennedy sér við hlið.
Dimma hitar upp fyrir Slash og félaga
AFP
Listahátíð í Seltjarnarneskirkju
verður sett í dag kl. 16 og stendur
til 5. október. Seltjarnarneskirkja
er 40 ára á þessu ári og hefur fjöl-
breytt dagskrá verið sett saman af
því tilefni með myndlistarsýningu,
tónleikum, kvikmyndasýningu og
erindi og er frítt inn á alla við-
burði. Meðal þeirra sem koma
fram við opnunina í dag eru Ari
Bragi Kárason, trompetleikari og
bæjarlistamaður Seltjarnarness,
Eygló Rúnarsdóttir messósópran
og Friðrik Vign-
ir Stefánsson
orgelleikari. Þá
verður einnig
opnuð myndlist-
arsýning á verk-
um Sveins
Björnssonar list-
málara. Frekari
upplýsingar um
hátíðina og dag-
skrá hennar má finna á seltjarn-
arnes.is.
Ari Bragi Kárason
Tónlist og myndlist við opnun hátíðar
Þungarokkararnir í Skálmöld snúa
aftur í Borgarleikhúsið í dag í sýn-
ingunni Baldur á Stóra sviði Borg-
arleikhússins. Líkt og á síðasta leik-
ári munu Skálmeldingar rífa göt á
búninga leikaranna og hækka í
Marshall-mögnurunum, eins og
segir í tilkynningu. „Skálmöld og
listafólk Borgarleikhússins taka
höndum saman og magna upp nor-
rænan seið með vænum skammti af
þungarokki maríneruðum í leikhús-
inu. Sagan er Baldur, sem Skálmöld
rakti svo listilega á samnefndum
diski sveitarinnar og gerði hálfa
þjóðina að þungarokkurum,“ segir
í tilkynningu. Baldur verður aðeins
sýndur þrisvar, í dag, laugardaginn
4. október og laugardaginn 11.
október. Sýningin er trúðleikur
blandaður þungarokki og eru leik-
arar í henni Guðjón Davíð Karls-
son, Hilmar Guðjónsson og Hildur
Berglind Arndal en Halldór Gylfa-
son leikstýrir.
Baldur Stóra sviðið mun nötra á ný
undan víkingamálmi Skálmaldar.
Skálmöld snýr aft-
ur á Stóra sviðið
Ljósmynd/Lárus Sigurðarson
EIN ÓVÆNTASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
L
L
L
12
EQUALIZER Sýnd kl. 8 - 10:40
TOMBSTONES Sýnd kl. 3:45-5:45-8-10:20
MAZE RUNNER Sýnd kl. 5 - 8 - 10:20
PÓSTURINN PÁLL 2D Sýnd kl. 2- 3:50
LUCY Sýnd kl. 6
TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 2
DINO TIME Sýnd kl. 1:50
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar