Morgunblaðið - 20.10.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2014
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
SuperCut
FJÖLNOTAVÉL
Tækið sem alla iðnaðarmenn
dreymir um:
Trésmiðinn, píparann,
rafvirkjann, bílasmiðinn,
flísalagningamanninn,
dúkarann, málarann FM 14-180
Steinskurðarvél
Á undanförnum misserum hafa
stjórnvöld í Kína reynt ýmsar leiðir
til að örva hagkerfið. Þykir skipta
miklu fyrir pólitískan stöðugleika í
landinu að ekki hægist á hagvexti
þrátt fyrir samdrátt á alþjóðlegum
mörkuðum.
Fjármálavefurinn MarketWatch
segir fyrirhugaða innspýtingarað-
gerð seðlabanka Kína vera til marks
um að þær aðgerðir sem gripið hefur
verið til til þessa hafi ekki haft nægi-
leg áhrif og dugi ekki til að ná 7,5%
hagvaxtarmarkmiðum þessa árs.
Hagvöxtur í Kína hefur ekki verið
undir áætlunum síðan í asísku fjár-
málakreppunni árið 1998.
200 milljarðar renminbi
Heimildarmenn í Peking herma að
fyrirhugað sé að sprauta 200 millj-
örðum yuan, jafnvirði 32,6 milljarða
dala eða um 3.900 milljarða króna,
inn í kínverska bankageirann. Verð-
ur fjármununum beint til 20 stórra
banka sem starfa ýmist á landsvísu
eða í tilteknum landshlutum.
Hagvöxtur í Kína varðar ekki að-
eins hagsmuni Kínverjanna sjálfra
og bendir MarketWatch á að dræm-
ur vöxtur í kínverska hagkerfinu
geti haft keðjuáhrif í fjölda landa
sem eru háð kínverska markaðinum.
Er Kína þannig fimmta stærsta við-
skiptaland Þýsklands, námaiðnaður
Ástralíu er mjög háður eftirspurn í
kínverskum iðnaði og Kína er
stærsti útflutningsmarkaður Indó-
nesíu. ai@mbl.is
Seðlabanki Kína með
stóra innspýtingu
Reyna að örva
hagkerfið til að ná
hagvaxtarmark-
miðum fyrir árslok
AFP
Strit Verkamenn að störfum í Peking. Eftir því sem kínverska hagkerfið
stækkar og þroskast verður erfiðara að viðhalda sama vaxtarhraða.
Bandaríska kaffihúsakeðjan Star-
bucks tilkynnti í lok síðustu viku
breytta stefnu í klæðaburði starfs-
fólks. Margt í nýju fatastefnunni
ætti að gera útlit fólksins á bak við
kaffibarinn frjálslegra og fjöl-
breytilegra.
Mesta athygli vekur að starfs-
menn mega núna láta sjást í „smekk-
leg“ húðflúr svo lengi sem húðflúrið
er ekki á hálsi eða andliti starfs-
mannsins. Áður var það stefnan að
húðflúr væru hulin, s.s. með síðum
ermum.
Ekki nóg með það heldur mega
kaffibarþjónarnir nú vera í ógyrtum
skyrtum, hafa lokk í nefi, klæðast
stuttbuxum, stuttum pilsum, svört-
um gallabuxum og litríkum bindum.
Á móti kemur að bannað verður
að bera úr við störf eða armbönd og
hringi með steinum, að því er FOX
News greinir frá.
Samhliða nýju klæðnaðarstefn-
unni var tilkynnt um launahækkun
starfsmanna og nýja viðbót við fríð-
indin sem fylgja starfinu: eitt stykki
bakkelsi eða tilbúinn rétt úr af-
greiðsluborðinu á hverri vakt.
ai@mbl.is
Starbucks leyfir
frjálslegri klæðnað
Má sjást í húðflúr og ógyrtar skyrtur
Afslappað Með nýju viðmiðunarreglunum gæti Starbucks mögulega orðið
ein frjálslegasta veitingakeðja Bandaríkjanna, hvað klæðaburð varðar.
Ríkisstjóri Michigan hefur hreykt
sér af að gera svæðið vænlegra
fyrir frumkvöðla. Honum er núna
vandi á höndum því á skrifborð-
inu bíða undirritunar nýsamþykkt
lög sem gera hið gagnstæða og
myndu hamla rafbílaframleiðand-
anum Tesla að selja bíla sína beint
til almennings.
Tesla hefur frá upphafi leitast
við að selja bíla sína í gegnum
eigin verslanir en ekki í gegnum
bílaumboð. Hefur þetta sölumódel
mætt töluverðri mótspyrnu og
Elon Musk, stofnandi Tesla, hefur
þurft að heyja lagalega baráttu í
mörgum ríkjum þar sem lög koma
í veg fyrir beina sölu bílaframleið-
enda til almennings.
Hafði Musk m.a. betur í dóms-
málum sem rekin voru í New
York og Minnesota. Í síðasta mán-
uði úrskurðaði dómstóll í
Massachusetts að Tesla mæti
halda áfram að selja bíla í versl-
unarmiðstöð í Boston, innan um
búðir sem selja fatnað, snyrtivör-
ur og skartgripi.
Í Texas, Arizona, Colorado,
Norður-Karólínu og Virginíu get-
ur Tesla ekki selt bíla innan rík-
ismarkanna. Tesla starfrækir
engu að síður sýningarsali í Virg-
iníu og Texas.
Ekki ætti að koma á óvart að
nýsamþykkta lagafrumvarpið í
Michigan rataði inn á lögjaf-
arsamkomu ríkisins fyrir til-
stuðlan samtaka bílasala á svæð-
inu. Lögin ganga svo skrefinu
lengra en að kveða á um sölu í
gegnum bílaumboð og bannar að
starfræktir séu salir þar sem bílar
eru aðeins til sýnis, að því er USA
Today greinir frá. ai@mbl.is
Deilt um Tesla í Michigan
Löggjafinn samþykkti frumvarp til höfuðs sölumódeli
rafbílaframleiðandans að frumkvæði keppinautanna
AFP
Nýsköpun Gestur virðir fyrir sér
nýjasta bíl Tesla á sýningu.
Bandaríkin hafa lengi verið þekkt
fyrir dýra heilbrigðisþjónustu. Þeir
sem ekki eru með góðar tryggingar
eru vísir til að hugsa sig tvisvar um
áður en farið er til læknis enda von
á háum reikningi.
Nú virðist hins vegar sem versl-
anakeðjan Wal-Mart sé að breyta
þessu og reyna að gera læknisþjón-
ustu ódýrari. Tólfta heilsugæsla
Wal-Mart var opnuð á dögunum í
bænum Dalton í Georgíu.
Wal-Mart opnaði fyrstu heilsu-
gæsluna fyrir sex mánuðum og er
stefnt á að sautján stofur hefji
starfsemi fyrir árslok.
Ódýrar mælingar
Heimsóknin kostar 40 dali, um
4.800 kr., eða um helming þess sem
reikna má með að borga annars
staðar fyrir sömu þjónustu. Starfs-
menn Wal-Mart og nánustu fjöl-
skyldumeðlimir þeirra fá ríflegan
afslátt og greiða aðeins 4 dali, 480
kr. fyrir að komast að hjá lækn-
inum.
Kólesterólmæling kostar 8 dali,
um 960 kr. og óléttupróf 3 dali eða
360 kr. svo tekin séu dæmi. Á stof-
unum er bæði hægt að fá meðferð
við tilfallandi veikindum en einnig
meðferð við langvinnum sjúkdóm-
um á borð við sykursýki.
Fyrir hefur Wal-Mart leigt lækn-
um aðstöðu fyrir stofur sínar í 94
verslunum í Bandaríkjunum, þar
sem læknarnir setja sína eigin
gjaldskrá.
Í umfjöllun MarketWatch um
málið kemur fram að ekki hafi ver-
ið ákveðið hvort Wal-Mart heilsu-
gæslustöðvar verði opnaðar á
landsvísu. Til þessa hefur fyr-
irtækið einblínt á markaðssvæði
þar sem stórt hlutfall íbúa er án
sjúkratryggingar, hefur lélegt að-
gengi að heilbrigðisþjónustu og háa
tíðni krónískra sjúkdóma. ai@mbl.is
Wal-Mart opnar heilsugæslu
Helmingi ódýr-
ari læknisaðstoð
AFP
Framboð Í Wal-Mart má finna allt milli himins og jarðar, og nú líka lækna.