Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Matarmarkaður Búrsins hefst í dag í Hörpu og stendur fram á sunnudag. Um 50 framleiðendur koma þar saman, alls staðar að af landinu. Á matarmarkaðnum verður frumsýn- ing og sala á kanínukjöti sem Birgit Kositzke kemur með frá Syðri- Kárastöðum á Vatnsnesi. Kanínu- kjöt hefur ekki verið algengt í ís- lenskum verslunum en það þykir meyrt og gott. „Það var slátrun hjá mér núna í byrjun nóvember og hún gekk von- um framar. Ég verð með frampart, hrygg og læri á boðstólum til að byrja með en hryggurinn þykir það verðmætasta og kílóverð verður væntanlega eins og á nautalund,“ segir Birgit. Hún segir ræktunina hjá sér hafa gengið vel það sem af sé en hún byrjaði árið 2011 með fjórar læður. Síðan hefur stofninn hennar stækkað jafnt og þétt. „Mig langaði að rækta kanínurnar þannig að þær hefðu nóg pláss og aðgang að góðu fóðri. Ég gef þeim Reykingafólk fær ekki að kveikja sér í rafsígarettum um borð í flug- vél, í kvikmyndahúsum eða eftir dýrindismáltíð á veitingahúsum. Þessi nýja tegund af sígarettum hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi og annars staðar í heim- inum enda segja erlendar auglýs- ingar að engin lykt og enginn reyk- ur fylgi notkun, aðeins gufa. Samkvæmt upplýsingum frá WOW-air og Icelandair mega far- þegar ekki kveikja sér í rafsígarett- um um borð í vélum félaganna. Um- ræðan hefur ekki verið tekin hjá Samtökum veitinga- og gistihúsa, en þar fengust þau svör að slík hegðun væri svolítið taktlaus. Trú- lega yrði gesti vísað frá enda getur gufan truflað aðra gesti veitinga- hússins. Rafsígarettan hefur verið að sjúga sig fasta við reykinga- menn víða um heim og samkvæmt tölum úr rannsókn samtakanna Ash, eða Action on Smoking and Health, hefur fjöldi notenda í Bret- landi þrefaldast á síðustu tveimur árum. Hér á landi má sjá æ fleiri með rafrettu sér við munn í stað hefðbundnu sígarettunnar. Lýðheilsunefnd Evrópuþingsins hefur samþykkt tillögur frá heil- brigðisráðherrum ESB um nýjar reglum um þennan nýja vin reyk- ingamannsins, sem segja að raf- sígarettur skuli seldar sem lyf og þar með í apótekum. Hingað til hafa þær verið seldar sem almenn- ar neysluvörur í þeim aðildar- ríkjum þar sem þær eru leyfðar. benedikt@mbl.is Sömu lög gilda um rafrettuna og hina venjulegu sígarettu  Engar rafsígarettur í flugvélum, kvikmyndahúsum eða veitingahúsum AFP Rafmagn við munn Rafsígarettan blæs aðeins gufu en ekki reyk. Rannsókn á bíl- bruna og ógn- unum í garð full- trúa sýslumannsins á Akureyri miðar vel, að sögn Frið- riks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rann- sóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fer með rannsókn málsins. Lögreglan hefur handtekið sex menn í tengslum við rannsókn málsins og voru tveir enn í haldi lögreglunnar í gærkvöldi. Meint brot áttu sér stað aðfaranótt síðast- liðins miðvikudags. Rannsókn á ógn- unum á Akureyri miðar vel áfram Ógnun Kapp er lagt á rannsóknina. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekkert er að gerast í samningavið- ræðum lækna og ríkisins. Að óbreyttu hefst því ný lota verkfallsaðgerða að- faranótt næstkomandi mánudags og stendur til 11. desember. Eru aðgerð- irnar endurtekning á aðgerðunum sem læknar gripu til í október og nóv- ember. Verkfallið á mánudag og þriðjudag nær til Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og rannsóknarsviðs og kvenna- og barnasviðs Landspít- alans. Stjórnendur Landspítalans hafa verið að búa sig undir verkfallið. „Ekki er ástæða til að ætla annað en næsta lota verði sömuleiðis þung og því enn mikilvægara en áður að biðla til deiluaðila um að ná sem allra fyrst niðurstöðu í þessari erfiðu deilu. Hagsmunir allra eru í húfi,“ skrifaði Páll Matthíasson, forstjóri Landspít- ala, í pistli sínum til samstarfsfólks. Óráðið með framhaldið „Það er ekkert í kortunum annað en að verkfall hefjist aðfaranótt mánudags,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Samninganefndir ríkisins og lækna hafa hist vikulega, án verulegs árang- urs. Næsti fundur er boðaður næst- komandi þriðjudag. „Okkur þykir þetta leiðinlegt. Það er ekki létt fyrir lækna að standa frammi fyrir sjúklingum sínum við þessar aðstæður. En svona er málið vaxið. Þetta er 10. mánuðurinn sem við erum með lausa samninga. Við töldum fullreynt að nokkuð myndi ganga án þess að við þrýstum á og þetta er eina meðalið sem við höfum,“ segir Þorbjörn. Hann segir óráðið til hvaða aðgerða verði gripið eftir ára- mót, ef samningar hafa þá ekki náðst. Ný verkfallslota að hefjast  Ekkert að gerast í samningaviðræðum lækna og ríkisins  Tveggja daga verk- föll hefjast á Heilsugæslu og heilbrigðisstofnunum og tveimur sviðum Landspítala Áhrif aðgerða » Allir fyrirframbókaðir tímar hjá læknum á þeim stofnunum og deildum sem verkfallið nær til á hverjum tíma, falla niður, meðal annars á heilsugæslu og göngudeilum. Bókaðar rann- sóknir falla niður. » Líkt og í síðustu lotu mun bráðatilvikum verða sinnt og öryggi sjúklinga tryggt. Birgit viðurkennir að það sé töluvert álag á henni sem kanínubónda, en þó að hún sé ein með búið dettur henni ekki í hug að kvarta. „Þetta er stundum svolítið mikið. Það eru hinsvegar spennandi tímar framundan. Þetta var eitthvað sem mig langaði að gera og það er gaman að fá að þróa sína eigin hugmynd frá a-ö. Ef verkefnið tekst vel til og það kemst á góðan stað þá verður þetta fyrst spennandi og skemmti- legt.“ Hún vonast til að sjá kanínukjöt á diskum landsmanna á komandi vikum. „Þetta er svolítið sparikjöt, ég veit ekki hvort það kemst á jóladiskinn hjá einhverjum. En kannski. Bara kannski. Íslend- ingar eru hefðbundnir varðandi mat um jólin, það veit ég, en það væri flott ef þeir vildu koma og smakka – þetta er nefni- lega gott kjöt, mjúkt og meyrt. Spennandi og skemmtilegt KANÍNUBÓNDINN Á SYÐRI-KÁRASTÖÐUM Birgit Kositzke meðal annars íslenskt hey og ís- lenskt bygg.“ Birgit kom hingað til lands árið 2007 og vann á sauðfjárbúi og segir mikla vinnu liggja að baki hverju kílói af kanínukjöti. „Nú er ég með rúmlega 250 dýr í húsinu og það er hálffullt, já eða hálftómt,“ segir hún og hlær. „Ég er innan um dýrin hvern einasta dag. Ég hef stundum sagt að þessi búskapur sé eins og ef sauðfjárbóndi væri stöðugt í sauð- burði.“ Á matarmarkaðnum verður einnig alikálfakjöt, ferskir ostrusveppir, líf- rænt sjósaltað hangikjöt og ýmislegt annað fyrir sælkera. Morgunblaðið/Golli Kanínubóndi Birgit verður ásamt yfir 50 öðrum framleiðendum hvaðanæva af landinu á matarmarkaðnum í Hörpu sem hefst um helgina. Í Frakklandi er hefð fyrir því að matreiða kanínukjöt í sinnepssósu með lauk. Kræsingar og kanínukjöt kynnt til leiks í Hörpu  Birgit Kositzke kanínubóndi kynnir afurð sína um helgina Hér segja Axel Kristjánsson, Gunnar A. Guttormsson, Guttormur Sigbjarnarson, Sigrún Aðalsteins- dóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Þorgils Gunnlaugsson, María B. Gunnarsdóttir, Pálmi Gestsson, Sæunn Marinósdóttir og Sigurður Aðalsteinsson frá ævintýrum sínum á hreindýraveiðum á Íslandi og í Grænlandi. Auk þess er rakin saga hrein- dýraveiða hér á landi. Bókin er prýdd kortum og fjölda mynda. Hreindýraskyttur holabok.is • holar@holabok.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.