Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 57
frá 2008. Hún hefur kennt spænsku, félagsfræði, tjáningu og kynjafræði sem er í miklu uppáhaldi hjá henni, enda gallharður femínisti. Tekur fram skíði og gönguskó María var mjög viðloðandi áhuga- leikfélagið Hugleik á æsku- og ung- lingsárunum í tengslum við móður sína: „Mig langaði alltaf að starfa við leikhús þó ekkert hafi orðið úr því. Ég held samt að kennslan komist býsna nærri leiklistinni. Ég er alla- vega oft með hálfgert uppistand í vinnunni. Auk þess er ég tungumálanörd og hef gaman af nýyrðasmíði og kveð- skap. Önnur áhugamál mín hafa svo aðallega snúist um skíðaferðir, gönguferðir og ferðalög um heiminn. En þessi áhugamál eiga það sam- merkt að mér finnst ég ekki hafa sinnt þeim nóg að undanförnu. Ég fór töluvert á skíði hér áður fyrr en hef því miður dregið úr því í seinni tíð. Sama er að segja um gönguferð- ir og ferðalög. Ég ætla því að taka mig á í þessum efnum í tilefni þess að ég er kominn á fertugsaldurinn. Og taktu eftir því að ég segi fertugs- aldurinn þó ég sé að verða fertug – ekki fimmtugsaldur. Þetta er bjána- leg málfarsregla hjá okkur Íslend- ingum að tala um að vera kominn á fimmtugsaldur þegar maður verður fertugur. Þessu vil ég breyta. Ég hef líka verið viðloðandi net- miðilinn knuz.is og var í stutta stund óvirkur ritstjórnarmeðlimur þar. Svo má geta þess að í janúar á þessu ári stökk ég til eftir skyndi- hugdettu og náði mér í meirapróf á stóra rútu og leigubíla. Ég fékk líka harkararéttindi þannig að ég gæti kallast óvirkur atvinnubílstjóri.“ Fjölskylda Maður Maríu er Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, f. 28.3. 1971, fram- haldsskólakennari. Hann er sonur Þórunnar Friðriksdóttur framhalds- skólakennara og Kolbeins Inga Ara- sonar flugstjóra. Börn Maríu eru Emil Ortiz, f. 6.9. 1995, og Lotta Lóa Ortiz, f. 3.9. 2002. Stjúpbörn Maríu eru Andrea Tumadóttir, f. 15.9. 2000, og Brand- ur Logi Tumason, f. 9.4. 2008. Systir Maríu er Lóa Hlín Hjálm- týsdóttir, f. 4.2. 1979, teiknari og söngkona með meiru. Foreldrar Maríu eru Anna Kristín Kristjánsdóttir, f. 2.8. 1949, sjúkra- þjálfari og Tai Chi spesíalisti, og Hjálmtýr Heiðdal, f. 14.12. 1945, kvikmyndagerðarmaður. Úr frændgarði Maríu Hjálmtýsdóttur María Hjálmtýsdóttir Sigríður Guðrún Friðriksdóttir húsfr. í Aratungu Bergsveinn Sveinsson b. í Aratungu í Steingrímsfirði Kristján Jónsson póst- og símstöðvarstj. á Hólmavík Anna Jónsdóttir fyrrv. kaupkona á Hólmavík, nú í Rvík Anna Kristín Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari í Rvík Jón Lýðsson b. á Skriðinsenni á Ströndum Steinunn Jónsdóttir húsfr. og ljósmóðir á Skriðinsenni Bjarni Johnson sýslumaður Ólafur Johnson stórkaupmaður Sigríður Johnson húsfr. í Rvík Ingibjörg Einarsdóttir leikkona Einar Laxness sagnfræðingur Arnar Johnson forstjóri María Heiðdal fyrrv. hjúkrunar- stjóri Ásrún Jörgensd. húsfr. á Vopnafirði Lúðvík Hjálmtýsson ferðamálastjóri Hjálmtýr Hjálmtýsson bankamaður og söngvari Ingibjörg Ólafsd. húsfr. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og rith. Harpa Þórsdóttir forstöðum. Hönnunarsafns Íslands Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir teiknari og söngkona Svanhildur Kristjánsdóttir húsgagnasmiður Steinunn Kristjánsdóttir flugfreyja Sveinn Bergsveinsson prófessor og skáld í Berlín Klara Arndal blaðamaður og kennari Jón Guðni Kristjánsson framkvæmdastj. Lífeyrissjóðs starfsm. sveitarfélaga Fróði Árnason Lucinda Vilhemína Fr. Hansen Sigurðsson húsfr. í Rvík, af Bernhöftsætt Hjálmtýr Sigurðsson kaupm. í Rvík María Gyða Hjálmtýsdóttir húsfr. í Rvík Vilhjálmur Heiðdal yfirdeildarstj. hjá Pósti og síma og fram- kvæmdastj. Vistheimilisins í Víðinesi Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðarm. í Rvík Jóhanna Sigríður Jörgensd. Kjerúlf húsfr. Sigrún Hjálmtýsdóttir óperusöngkona Kristín Anna Valtýsdóttir tónlistarkona Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari Gyða Valtýsdóttir tónlistarkona Sigurður Þorláksson Heiðdal rith., skólastj. og forstöðumaður vinnuhælis á Litla-Hrauni ÍSLENDINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 Sigríður fæddist í Reykjavík15.11. 1919, dóttir ValgeirsJónssonar, húsasmiðs þar, og Ingiríðar Dagmarar Jónsdóttur húsfreyju. Valgeir var sonur Jóns Sigurðs- sonar, hafnsögumanns í Melshúsum á Eyrarbakka, en Dagmar var syst- ir Guðna Jónssonar prófessors, föð- ur prófessoranna Bjarna og Jóns, og Bergs lögfræðings, föður Guðna, fyrrv. knattspyrnukempu. Sigríður var gift Hjörleifi Bald- vinssyni en varð ekkja 1963 og ól upp börn sín þrjú, þau Dagmar Völu dýralækni, Sigríði, PhD í líf- tækni, og Ingólf verkfræðing. Sigríður lauk íþróttakennaraprófi 1942, stundaði nám við University of California í Berkley og lauk það- an BA-prófi og MA-prófi í líkams- og uppeldisfræði 1947, stundaði nám við Columbia University, lauk síðar M.Ed.-prófi í uppeldissálfræði frá State Univesity of New York 1968 og doktorsprófi í þeirri grein 1974. Sigríður kenndi við Íþróttakenn- araskólann 1947-52, við KÍ 1948-74, og var prófessor í uppeldis- og kennslufræði við Kennaraháskólann um hálfrar aldar skeið. Auk þess hafði hún kennt og þjálfað fyrir fjölda íþróttafélaga. Sigríður varð fyrsti forstöðu- maður Rannsóknastofnunar uppeld- is- og menntamála 1981. Hún veitti forstöðu fyrstu alþjóðlegu Pisa- rannsókninni sem gerð var á Ís- landi á læsi barna og ungmenna. Að loknum löngum og farsælum kennsluferli við KHÍ hóf hún söfn- un og skráningu á dönsum og söng- leikjum. Hún beitti sér m.a. fyrir stofnun Þjóðdansafélags Reykjavík- ur, var formaður þess um skeið og kenndi dansa og setti upp danssýn- ingar um áratuga skeið. Meðal rita Sigríðar eru Gömlu dansarnir í tvær aldir, útg. 1994, og Íslenskir söngdansar í þúsund ár -Andblær aldanna, útg. 2011. Hún starfaði í Soroptimstaklúbbi Reykjavíkur og var einn stofnenda Delta Kappa Gamma á Íslandi. Hún var sæmd fálkaorðunni árið 1990 fyrir störf að uppeldis- og kennslumálum. Sigríður lést 3.9. 2011. Merkir Íslendingar Sigríður Valgeirsdóttir Laugardagur 80 ára Björgvin Jónsson Gunnar Þorvaldsson 75 ára Margrét Jónsdóttir Þorbjörg Höskuldsdóttir 70 ára Birgir Lárusson Blöndal Björg Jónsdóttir Eiður Skarphéðinsson Guðlaug Jóhannsdóttir Jón J. Haraldsson Ma Luzviminda Canada Sigurður Ingólfsson 60 ára Anna Jóna Pálmadóttir Björn Júlíus Hannesson Einar Már Kristinsson Helga Hannesdóttir Iðunn Antonsdóttir Jón Björn Sigtryggsson Magnús Guðmundsson Margrét Lillian Skúladóttir María Björg Filippusdóttir Rakel Rut Ingvadóttir Sólveig Steinsson 50 ára Anna María Úlfarsdóttir Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir Felix Srecko Brezovsek Gunnar Björn Rögnvaldsson Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir Jón Björn Ævarsson Katrín S. Guðjónsdóttir Margrét Björnsdóttir Már Guðlaugsson Su Van Nguyen 40 ára Gunnar Ingi Gunnarsson Ívar Einarsson Jóhanna Birna Einarsdóttir Ólafía Harðardóttir Valdimar Björn Guðbjörnsson 30 ára Einar Þór Haraldsson Juan Carlos Suarez Leyva Kristín Karlsdóttir Noemi Rodriguez Peinado Ricolito Rosario Mangubat Vilhjálmur Louis Knudsen Þorbergur Gíslason Þórhalla Sigríður Stefánsdóttir Sunnudagur 90 ára Guðrún Matthíasdóttir Sigríður Sæbjörnsdóttir 85 ára Jón Þorberg Valdimarsson 80 ára Nói Marteinsson Sigurður Daníelsson 75 ára Elín Lilja Árnadóttir Gísli Skúlason Hilmar Skúlason Hulda Bech Jón Hermannsson Lovísa Guðmundsdóttir Þuríður Guðmundsdóttir 70 ára Anna Halldóra Karlsdóttir Inga Ragnarsdóttir Laufey Eiríksdóttir Svavar Sigmundsson Sylvía Hallsdóttir Þorvaldur Einar Ragnarsson 60 ára Aðalheiður G. Guðmundsdóttir Elísabet M. Ástvaldsdóttir Eyjólfur Gunnarsson Guðný Sveinlaug Bjarkadóttir Guðrún Jóna Óskarsdóttir Jóhanna María Sk. Sigurðardóttir Jón Sigurðsson Kristján Sveinsson Mira Astrid Sorensen Oddný Björg Hólmbergsdóttir Ragnheiður Óladóttir Skul Yodsongtrakul Wladyslaw Wikarski Þórólfur Aðalsteinsson 50 ára Anna I. Jónsdóttir Arnar Yngvason Eyjólfur Kristjónsson Gestur Guðjónsson Guðmundur Kristjánsson Helga Sigurjónsdóttir Jonna Hervör Vágseið Karl Rúnar Sigurbjörnsson Kristinn Ágúst Kristinsson Sigrún Wiencke 40 ára Ásgeir Bjarnason Berglind Eiðsdóttir Eva Jódís Pétursdóttir Fanný Erna Maack Gunnþórunn Einarsdóttir Halldór Örn Kristjánsson Lára Guðrún Jónsdóttir Páll Hjálmarsson Ragnheiður Sigurðardóttir Sigurjón Ingi Gíslason 30 ára Andri Pétursson Berglind Ólöf Sigurvinsdóttir Dagný Ómarsdóttir Einar Bjarni Eyþórsson Elísabet Tómasdóttir Guðlaug Arnþr Guðmundsdóttir Kristján Hafliðason Mari-Liis Remmel Sigrún H. Jónsdóttir Smári Jónas Lúðvíksson Sylwia Kolenda Thomas Andrew Edwards Þorleifur Ólafsson Til hamingju með daginn Þegar þú kaupir bökunardropa frá Kötlu, styður þú fjölfötluð börn til náms. Sunnusjóður hefur í meira en 30 ár aukið námsmöguleika fjölfatlaðra barna. Katla er helsti bakhjarl sjóðsins. DROPAR SEM LOFA GÓÐU www.sunnusjodur.is www.katla.is/dropar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.