Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
Jafnaldrar Þessir tveir, Ford V8 og Þorsteinn Baldursson, urðu báðir til á því herrans ári 1934 og eru góðir saman.
smíðaði þetta mublusmiður í Hvera-
gerði,“ segir Þorsteinn og vísar þar
til handverks listasmiðsins Eiðs Her-
mundssonar heitins.
Lincoln Barböru Hutton
Næsti bíll sem við Þorsteinn
skoðum er 12 strokka perluhvítur
Lincoln og á sá bíll sér sögu rétt eins
og hinir í safninu góða. „Barbara
Hutton kaupir þennan bíl. Hún átti
þúsundir verslana um allt, þar á með-
al Woolworths. Hún var vellauðug og
átti alls níu eiginmenn um ævina og
allir náðu þeir út úr henni mörgum
milljónum dollara nema Cary Grant
sem virðist hafa verið sá eini sem
hagaði sér eins og maður,“ segir Þor-
steinn um Hutton. Hún eignaðist
einn son, Lance, með eiginmanninum
Haugwitz-Reventlow sem var greifi í
Danmörku. Sonurinn fórst í flugslysi
árið 1972 og skömmu síðar var bíll-
inn, Lincoln, seldur á uppboði í Dan-
mörku. „Jón í sælgætisgerðinni Vík-
ingi kaupir bílinn, fer með hann upp á
Guðnabakka í Borgarfirði og þar
stendur bíllinn inni í hlöðu í áratugi,“
segir Þorsteinn sem keypti bílinn af
Kjartani, syni Jóns, fyrir margt
löngu.
Allir sem við mætum brosa
Þennan Lincoln hafa eflaust
margir séð en hann er notaður í fjöl-
skyldubíltúra á sunnudögum. Og, jú,
líka í einstaka brúðkaup. „Allir sem
við mætum brosa. Það er það góða,“
segir Þorsteinn sem gleðst sjálfur
mjög við að sjá brosin í umferðinni.
„Það er alveg dásamlegt,“ segir
hann, maðurinn sem fær fólkið til að
brosa.
Hinir bílarnir sem hann á eru
engu síðri en þar er meðal annars
Ford four door Sedan V8 Flathead
og í þeim bíl, segir Þorsteinn „er
hægt að vera með pípuhatt því það er
svo hátt til lofts.“ Hinir tveir eru Wil-
lys-jeppar og nú er að sjá hverjir
kaupa bílana af Þorsteini sem hefur
gert upp síðasta bílinn í flotanum.
„Ég er kominn á níræðisaldur og
ekkert af mínum börnum getur eða
hefur nægan áhuga á bílunum svo ég
vil ekki skilja konuna mína eftir með
alla þessa bíla og ætla til að byrja
með að losa mig við þrjá þeirra,“ seg-
ir Þorsteinn sem ekki mun selja bíl-
ana hverjum sem er heldur ein-
hverjum útvöldum sem hann treystir
fyrir „börnunum“ sínum. „Ég ætla að
velja þá sem fá bílana. Þess vegna er
ég nú að þessu,“ segir Þorsteinn
Baldursson. Bílana vill hann helst
ekki selja úr landi því honum þykir
nauðsynlegt að til séu fallegir forn-
bílar á Íslandi. Bæði sé það mikilvægt
fyrir kvikmyndagerð og fyrir fegurð
bílaflotans í heild að halda upp á góðu
eintökin. Þorsteinn biður áhugasama
að hafa samband við sig símleiðis, í
síma 898 8577.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Þó svo að Þorsteinn Baldursson
hafi ekki haft það að atvinnu að
aka forsetanum, Kristjáni Eld-
járn, var hann þó bílstjóri hans
endrum og sinnum og fór iðulega
vel á með þeim. „Kristján frá
Tjörn í Svarfaðardal var mikill
áhugamaður um bíla og sér-
staklega hafði hann nú áhuga á
Willys,“ segir Þorsteinn. Þor-
steinn er einn þriggja stofnenda
Fornbílaklúbbs Íslands og kom
Kristján gjarnan á fundi þar og
sýningar. „Þá sótti ég hann og
skilaði honum svo heim,“ segir
Þorsteinn sem hafði gaman af
ökuferðunum, rétt eins og Krist-
ján sjálfur. „Kristján var alveg
einstaklega ljúfur maður og ein-
staklega mikið prúðmenni.“
Bílaunnandinn og prúðmennið
Kristján Eldjárn frá Tjörn
BÍLSTJÓRI FORSETANS Í FRÍSTUNDUM
Morgunblaðið/Emilía Björg
Bíltúr Þeir Kristján Eldjárn, Jóhann Björnsson, gjarnan kenndur við
Ábyrgð, og Þorsteinn Baldursson koma úr ökuferð á góðum degi.