Morgunblaðið - 15.11.2014, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignafélög sem 20 einstaklingar
eiga hlut í hafa fjárfest í 1.415 nýjum
íbúðum miðsvæðis í Reykjavík. Hlut-
ur fjárfestanna í verkefnunum er
mismunandi. Flestir fjármagna verk-
efnin að stóru leyti en nokkrir eru
hluthafar í stærri verkefnum.
Hér til hliðar er búið að lista upp
helstu fjárfesta að baki þeim verk-
efnum um þéttingu byggðar sem
Reykjavíkurborg kynnti í vikunni og
einkaaðilar munu fjármagna.
Þá eru þau félög tilgreind sem
tengjast viðkomandi verkefnum.
Listinn er ekki tæmandi. Má þar
nefna að ýmsir fjárfestar hafa lagt
GAMMA NOVUS til fjármagn og er
það síðan til dæmis nýtt til þeirra
fjárfestinga á vegum Upphafs fast-
eignafélags sem hér eru nefndar, í
Skipholti og á Hverfisgötu.
Verkefnin eru líklega fleiri
Þá eru hér ekki til skoðunar sam-
bærileg verkefni sem eru í pípunum
miðsvæðis í Reykjavík, til dæmis í
Guðrúnartúni og Vesturbugt. Þau
verkefni eru hér undanskilin vegna
þess að fulltrúar Reykjavíkurborgar
hafa ekki greint frá hverjir munu
leggja fjármagn í þau.
Steinunn Jónsdóttir, fjárfestir og
meðstjórnandi í BYKO, sker sig úr
fjárfestahópnum að því leyti að hún
er ekki ráðandi hluthafi í Mánatúni
hf. Verkefnið er hins vegar stórt og
er hlutur hennar eftir því. Söluverð-
mæti um 175 íbúða í Mánatúni er
varlega áætlað yfir átta milljarðar, ef
tekið er mið af söluverði þeirra 90
íbúða sem eru nú til sölu.
Á smærri töflunni hér á síðunni má
sjá hversu margar íbúðir eru að baki
umræddum fjárfestingum.
Eins og sjá má koma smáir hópar
fjárfesta að nokkrum verkefnanna.
Ríflega 1.400 íbúðir
Fjárfestarnir 20 eru að byggja alls
1.415 íbúðir og miðað við að söluverð
hverrar íbúðar sé 35 milljónir – sem
er varlega áætlað – er samanlagt
söluverðmæti íbúðanna 49.525 millj-
ónir króna. Til viðbótar koma sam-
tals um 280 íbúðir á vegum Upphafs
fasteignafélags og Rauðsvíkur.
Hjónin Helen Neely og Þorvaldur
H. Gissurarson, eigendur ÞG Verks,
eru umsvifamest á þessum lista. Þau
koma að uppbyggingu 384 íbúða í
tveimur verkefnum í Reykjavík, auk
þess sem þau eru að byggja 88 íbúðir
á Garðatorgi í Garðabæ. Samtals eru
það 472 íbúðir.
Pálmar Harðarson er einnig um-
svifamikill í gegnum félag sitt Þing-
vang með samtals 277 íbúðir á
Grandavegi og á þremur þéttingar-
reitum við Laugaveg.
Tvenn hjón eru á listanum yfir
fjárfesta. Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær er Marta Þórðar-
dóttir eiginkona Guðna Rafns Eiríks-
sonar verðbréfamiðlara og Björg
Hildur Daðadóttir eiginkona Jakobs
Valgeirs Flosasonar útgerðarmanns.
Því má segja að fern hjón komi að
þessum fjárfestingum. Þá má benda
á að hjónin Magnús P. Örnólfsson og
Anna Björg Petersen keyptu 30 íbúð-
ir í Austurkór 63-65 í Kópavogi í
gegnum félag sitt Túnfljót, líkt og
Morgunblaðið sagði nýverið frá.
Hóteleigandi byggir íbúðir
Meðal fjárfesta eru Ólafur Davíð
Torfason, eigandi Íslandshótela, sem
stefnir að því að vera með 20 hótel í
rekstri á Íslandi árið 2020.
Fjárfestarnir koma víða að. Dæmi
er að félagið Riverside Capital, sem
kom að kaupum á 31 íbúð á Mýrar-
götu 26 við höfnina, er í eigu River-
side Capital S.A.R.L. í Lúxemborg.
Kaupa íbúðir fyrir 50 milljarða
Tuttugu fjárfestar koma að byggingu ríflega 1.400 íbúða í miðborg Reykjavíkur á næstu árum
Fern hjón í fjárfestahópnum Fjármagn frá Lúxemborg nýtt til íbúðafjárfestingar við höfnina
Fasteignafélög að baki uppbyggingu nýrra íbúða í Reykjavík - fjöldi íbúða og eignarhlutur í %
Mánatún 7-17 175
Mánatún hf.
%
Arkur ehf. 13,9
Tryggingamiðstöðin hf. 13,9
MP banki hf. 11,5
Klasi fjárfesting hf. 10,4
Klasi ehf. 3,57
Óþekktir hluthafar 46,73
Samtals 100
Brynjureitur 80
Hljómalindarreitur 20
Vatnsstígsreitur 35
Grandavegur 142
Þingvangur ehf.
Eignasamsteypan ehf. 100
Pálmar Harðarson 100
Skipholt 11-13 og
Hverfisgata 96 80
Upphaf fasteignafélag %
GAMMA NOVUS 100
Skyggnisbraut 2-6 112
RED I hf. %
Skyggnisbraut 2-6 ehf. 46
Skyggnisbraut 2-6 ehf.
%
Haukur Guðjónsson 50
Kristinn Þór Geirsson 50
Samtals 100
Hexía ehf.
%
Ævar Rafn Björnsson 100
Austurhöfn, reitir 5 70-110
Auro Investments ehf. %
Mannvit hf. 33,33
Teiknistofan Arkitektar ehf. 33,33
Óþekktir hluthafar 33,34
Samtals 100
Stakkholt 139
Bryggjuhverfi 245
ÞG Verktakar ehf.
%
Helen Neely 50
Þorvaldur H. Gissurarson 50
Samtals 100
Barónsreitir (íbúðafjöldi sóttur í
aðalskipulag 2010-2030 200
Rauðsvík ehf. %
Landey ehf. 100
Landey ehf.
Heitir nú Eignarhaldsfélagið
Landey ehf.
%
Arion banki hf. 100
Austurhöfn, reitir 1-2
Landstólpar ehf. 68%
Landstólpar ehf. %
Stólpar ehf. 70
Landey ehf. 30
Samtals 100
Eddufell 8 24
Rok ehf.
%
Hexía ehf. 100
Sigrún Bouius 0
Frakkastígsreitur 68
Blómaþing ehf. %
Lögvit ehf. 100
Lögvit ehf.
%
Tenor ehf. 100
Tenor ehf.
%
Stólpar ehf. 100
Stólpar ehf. 100
%
Falur fasteignir ehf. 38,18
Moment fjárfestingar ehf. 30,91
Ásvellir ehf. 30,91
Samtals 100
Falur fasteignir ehf. %
Gísli Steinar Gíslason 100
Ásvellir ehf. %
Hanna María Siggeirsdóttir 50
Erlendur Jónsson 50
Samtals 100
Moment fjárfestingar ehf.
%
Marta Þórðardóttir 100
Lindargata 39
og Vatnsstígur 20-22 77
Lindargata 28-32 21
Skuggi 3 ehf.
%
Litluvellir ehf. 50
Ursus Maritimus Investors ehf. 25
Pétur Stefánsson ehf. 12,5
B15 ehf. 12,5
Samtals 100
Litluvellir ehf. %
Skuggabyggð ehf. 50
Kepler ehf. 50
Ursus Maritimus %
Sigurður Arngrímsson 100
B15 ehf. %
Björg H. Daðadóttir
Samtals 100
Skuggabyggð %
Kristján Gunnar Ríkharðsson 100
Kepler ehf. %
Hilmar Ágústsson 100
Mýrargata 26
MýrInVest 31
%
Riverside capital ehf. 50
Guðmundur Ingi Jónsson 50
Sigtúnsland
Helgaland ehf. 108
%
Íslandshótel hf. 100
ÓDT Ráðgjöf ehf. 91,5
Ólafur D. Torfason 98
Höfðatorg 80
Eykt ehf.
Mókollur ehf.
Eykt ehf. %
Mókollur ehf. 100
Pétur Guðmundsson 100
Fjárfestar og íbúðir í Reykjavík - nokkrir umsvifamestu aðilarnir
Pétur Þór Sigurðsson (Lindarvatn ehf.)
Sigrún Bouius og Ævar Rafn Björnsson (Rok ehf.)
Gísli Steinar Gíslason (Falur fasteignir ehf.)
Marta Þórðardóttir (Moment fjárfestingar ehf.)
Hjónin Hanna María Siggeirsdóttir og Erlendur Jónsson (Ásvellir ehf.)
Pétur Guðmundsson (Eykt ehf.)
Björg Hildur Daðadóttir (B15 ehf.)
Hilmar Ágústsson (Kepler ehf.)
Kristján Gunnar Ríkharðsson (Skuggabyggð ehf.)
Pétur Stefánsson (Pétur Stefánsson ehf.)
Sigurður Arngrímsson (Ursus Maritimus Investors ehf.)
Ólafur Davíð Torfason (Helgaland ehf.)
Haukur Guðjónsson og Kristinn Þór Geirsson (Skyggnisbraut 2-6 ehf.)
Steinunn Jónsdóttir (Arkur ehf.)
Pálmar Harðarson (Þingvangur ehf.)
Hjónin Þorvaldur H. Gissurarson og Helen Neely (ÞG-VERK)
Samtals fjöldi íbúða
Fjárfestir (félag) Fj. íbúða Fj. fjárfesta Staðsetning
19
24
138
80
98
108
112
175
277
384
1.415
1
2
1
1
2
1
1
1
1
1
1
1
2
1
1
2
20
Ingólfstorg
Eddufell
Frakkastígsreitur/
Austurhöfn, reitir 1-2
Nýr Höfðatorgsturn
Skuggahverfið
Nýtt Sigtúnshverfi
Skyggnisbraut 2-6 í Úlfarsárdal
Mánatún
Grandavegur og þrír reitir
Stakkholt, Bryggjuhverfi
Árni Jóhannsson, forstöðumaður
mannvirkjasviðs hjá Samtökum
iðnaðarins, segir fasteignamark-
aðinn á Íslandi að breytast.
Áður fyrr hafi húsasmíðameist-
arar keypt lóðir, byggt hús og selt
þau. Nú færist í vöxt að fjármagns-
eigendur kaupi lóðir, skipuleggi
verkefni og láti verktaka byggja.
„Það er því kominn nýr milliliður á
markaðinn. Það á þátt í þessari þró-
un að framboð á lóðum er takmark-
að,“ segir Árni.
Flest ofangreindra fasteigna-
verkefna eru miðsvæðis í Reykjavík.
Undantekningarnar eru Bryggju-
hverfið og fjölbýlishús í Eddufelli og
Úlfarsárdal. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í síðustu viku hafa
verktakar boðið fjárfestum að
kaupa heilu fjölbýlishúsin í Úlfars-
árdal með útleigu í huga. Hefur
deiliskipulags-
skilmálum
margra fjölbýlis-
húsa í Úlfarsárdal
verið breytt til að
hægt verði að
fjölga smærri
íbúðum þar.
Það ásamt
þeirri staðreynd
að borgaryfirvöld
stefna að mikilli fjölgun leiguíbúða
á næstu árum mun að óbreyttu
auka vægi fjárfesta á markaðnum.
Viðmælendur Morgunblaðsins í
fasteignageiranum hafa bent á að
fjárfestar geti boðið verktökum
hagstæða fjármögnun. Miðað við
fjölda verkefna sem eru hafin eða í
pípunum virðist sem fjárfestar telji
að eftir nokkru geti verið að slægj-
ast.
Nýlunda á markaði
INNKOMA FJÁRFESTA
Árni
Jóhannsson
Drög að tillögu að matsáætlun
Þeim aðilum sem gera vilja athugasemdir við drögin, er bent á að senda þær í
tölvupósti til CRI fyrir 30. nóvember 2014, á netfangið: info@carbonrecycling.is
Samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum
framkvæmda, er Carbon Recycling International ehf, gert að
framkvæma slíkt mat vegna metanólverksmiðju félagsins í
Svartsengi við Grindavík.
Drög að tillögu að matsáætlun eru aðgengileg á vefsíðu CRI skv.
slóðinni: www.carbonrecycling.is