Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Yrði að reyna á fyrir dómi
Þórey Þórðardóttir, framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða,
telur ómögulegt að fullyrða um lög-
mæti skylduaðildar að tilteknum líf-
eyrissjóði án þess að á það reyni fyrir
íslenskum dómstólum. „Því verður
ekki neitað að rétturinn er að þróast
til aukins félagafrelsis. Þó er ekki
unnt að fullyrða hvernig dómstólar
myndu taka á svona máli ef það kæmi
til kasta dómstóla í dag. Því er það
stór ályktun að draga í efa að dóm-
stólar myndu komast að annarri nið-
urstöðu í dag, eins og gert er í grein
Gunnars, “ segir Þórey.
Hún leggur áherslu á að lífeyris-
sjóðirnir séu hluti af trygginganeti al-
mennings. „Þeir eiga rót sína að rekja
til samninga aðila vinnumarkaðarins.
Lífeyrisréttindi eru stór og mikil-
vægur hluti af kjörum launþega.“
FME efnir til umræðunnar
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri
FME, telur greinina gagnlegt inn-
legg inn í umræðuna. Hún hafi þó
frekar falið í sér vangaveltur og
fræðilega umfjöllun, en beina tillögu.
„Við erum einfaldlega að benda á
hvernig réttarþróunin hefur verið.
Gunnar velti því upp hvernig skyldu-
aðild rímar við réttarþróunina og
bendir á, að nú séu meiri líkur en áð-
ur á, að Hæstiréttur dæmi á annan
hátt en hann gerði árið 1996. End-
anlegt mat um það er í höndum dóm-
stóla. Við dæmum málið ekki fyrir-
fram en við erum að efna til
umræðunnar.“
Skylduaðild að sjóðum
andstæð félagafrelsi
Lögfræðingur hjá FME efast um að skylduaðild að lífeyr-
issjóðum samrýmist stjórnarskrá og mannréttindasáttmála
Morgunblaðið/Ómar
Lífeyrir Aðild að lífeyrissjóði fer eftir þeim kjarasamningi sem ákvarðar
lágmarkskjör í hlutaðeigandi starfsgrein, eða sérlögum ef við á.
Félagafrelsi
» 2. mgr. 74. gr. íslensku
stjórnarskrárinnar og 2. mgr.
11. mannréttindasáttmála Evr-
ópu kveða á um neikvætt fé-
lagafrelsi, þ.e. rétt manna til
að standa utan félaga.
» Samkvæmt 2. mgr. 2. gr.
laga um skyldutryggingu lífeyr-
isréttinda og starfsemi lífeyr-
issjóða, þurfa allir launamenn
og sjálfstætt starfandi að eiga
aðild að tilteknum lífeyrissjóði.
BAKSVIÐ
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Draga má í efa að lagaákvæði er
skyldar launafólk til aðildar að til-
teknum lífeyrissjóðum standist
ákvæði íslensku stjórnarskrárinnar
og mannréttindasáttmála Evrópu um
félagafrelsi, að mati Gunnars Þórs
Ásgeirssonar, lögfræðings á eftirlits-
sviði Fjármálaeftirlitsins (FME).
Þetta kemur fram í grein hans „Á
skylduaðild að ákveðnum lífeyrissjóði
rétt á sér?“ sem birtist í nýútkomnu
riti FME, Fjármálum.
Hugsanleg áhrif réttarþróunar
Gunnar kemst að þeirri niðurstöðu
að með þeirri réttarþróun sem hafi átt
sér stað á undanförnum árum megi
draga í efa að núverandi kerfi, sem
skyldar meginþorra launafólks til að-
ildar að ákveðnum lífeyrissjóði, upp-
fylli þær kröfur sem Hæstiréttur og
Mannréttindadómstóll Evrópu muni
gera til skerðingar á félagafrelsi
manna.
Gunnar veltir því upp hvort dómur
Hæstaréttar frá árinu 1996, þar sem
talið var lögmætt að skylda menn til
aðildar að tilteknum lífeyrissjóði, eigi
enn rétt á sér. Réttarþróun hafi færst
til ríkari verndar neikvæðs félaga-
frelsis á síðustu árum.
Vísar hann til dóms Mannréttinda-
dómstólsins í máli Sigurðar Sigur-
jónssonar gegn Íslandi frá 1993, þar
sem því varið slegið föstu að skyldu-
aðild að félagi leigubifreiðastjóra
bryti gegn rétti til að standa utan fé-
laga samkvæmt 11. gr. mannréttinda-
sáttmálans.
Þá taldi dómstóllinn í máli Sören-
sen og Rasmussen gegn Danmörku
frá árinu 2006 að aðildarskyldu-
ákvæði í kjarasamningi bryti gegn 11.
gr. sáttmálans, þar sem starfsmenn
væru þvingaðir til aðildar að ákveðnu
stéttarfélagi ef þeir vildu fá starf eða
halda því.
Hagstofan birtir nóvembermælingu
vísitölu neysluverðs 26. nóvember
og spá greiningardeildir bankanna
ýmist lækkun eða óbreyttri vísitölu.
Hagfræðideild Landsbankans
spáir 0,2% lækkun vísitölunnar milli
mánaða. Gangi spáin eftir muni árs-
verðbólgan lækka úr 1,9% í 1,4%.
Landsbankinn væntir þess að flug-
fargjöld og bensínverð verði helstu
lækkunarvaldar en húsnæðisverð sé
til hækkunar. Frekar lítill verð-
bólguþrýstingur sé fyrirsjáanlegur
það sem eftir lifir árs.
Greining Íslandsbanda spáir
0,1% lækkun vísitölu neysluverðs á
milli mánaða. Gangi spáin eftir
muni verðbólga einnig hjaðna úr
1,9% í 1,4%. Gert er ráð fyrir að
verðbólgan verði undir 2,5% verð-
bólgumarkmiði Seðlabankans fram
yfir mitt ár 2015.
Loks spáir greiningardeild Arion
banka óbreyttu verðlagi í nóvem-
ber. Gangi spáin eftir muni árs-
verðbólgan lækka á milli mánaða í
1,5%. Í spánni vega flugfargjöld
þyngst en mælingar benda til þess
að þau lækki um 12% á milli mán-
aða. brynja@mbl.is
Spá lækkun eða
óbreyttri vísitölu
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Neysluverð Flugfargjöld lækkuðu mikið í mánuðinum og hafa áhrif á spár.
Greiningardeildir spá 1,4-1,5% verðbólgu
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5200200 ·GAP.IS
ReebokFitnessog
BiggestLoser Ísland
veljaStarTrac tækin
fráokkur!
MYND FRÁ STAR
FSMANNAAÐST
ÖÐU ADVANIA
VILTUKOMAUPPAÐSTÖÐUÁÞÍNUMVINNUSTAÐ?
Í nýlegri rannsókná200starfsmönnumhjá 3 stórfyrirtækjum íBandaríkjunum,
kom í ljós aðþeir skiluðu allt að 15%meira vinnuframlagiognýttu tímannbetur
á þeimdögumsemheilsurækt var stunduð.
HAFÐUSAMBANDOGVIÐFINNUMBESTU LAUSNINAFYRIRÞIG.