Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 39
MESSUR 39á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfs-
stræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla laugardag
kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 12. Barna-
og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum |
Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Guðsþjónusta
laugardag kl. 12. Bein útsending frá
Reykjavíkursöfnuði. Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs-
vallagötu 14, Gamli Lundur. Biblíurannsókn kl.
11. Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum |
Blikabraut 2, Keflavík. Biblíufræðsla laugardag
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Adri-
an Lopez.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi
67, Selfossi. Biblíufræðsla laugardag kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Jens Dani-
elsen. Barna- og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði |
Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðsþjónusta laug-
ardag kl. 11. Biblíufræðsla kl. 11.50 Ræðu-
maður: Stefán Rafn Stefánsson. Barna- og
unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa
og brauð eftir samkomu.
AKUREYRARKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Umsjón sr. Svavar Alfreð Jónsson og Sindri
Geir Óskarsson. Hátíðarmessa í Akureyr-
arkirkju kl. 14. Prestar eru sr. Svavar Alfreð
Jónsson og sr. Hildur Eir Bolladóttir. Stúlkna-
kór Akureyrarkirkju og Kór Akureyrarkirkju
syngja. Organistar og stjórnendur eru Eyþór
Ingi Jónsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Kaffi- og lukkupakkasala Kvenfélags Akureyr-
arkirkju í Safnaðarheimilinu kl. 15.
AKURINN | Samkoma kl. 14 í Núpalind 1,
Kópavogi. Biblíufræðsla um Opinberunarbók
Jóhannesar. Söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Útvarpsguðsþjónusta kl.
11. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Krisztinu Kalló Szklenár. Sólrún Gunn-
arsdóttir leikur á fiðlu. Sunnudagaskóli á sama
tíma í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjá Bryn-
dísar Evu og Kjartans.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Viðar Stefánsson guðfræð-
ingur annast samveru sunnudagaskólans.
Kammerkór Áskirkju syngur, organisti Magnús
Ragnarsson. Strax að messu lokinni hefst hinn
árlegi, geysivinsæli kökubasar og nytjamark-
aður Safnaðarfélags Ásprestakalls. Úrval af
heimabökuðum krásum og handverki, heima-
prjónuðum barnaflíkum, bókum og búshlutum
á hagstæðu verði. Ágóðinn rennur til safn-
aðarstarfsins í Áskirkju. Kaffi á könnu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Leikhúsdagur. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Tófa kemur í heimsókn.
Hressing og samfélag á eftir. Kvöldsýning kl.
20. Stoppleikhópurinn sýnir leikritið Upp, upp,
sem er um ævi Hallgríms Péturssonar.
BESSASTAÐAKIRKJA | Síðdegis-
guðsþjónusta kl. 17. Helga Vilborg Sigurjóns-
dóttir kristniboði flytur hugleiðingu og kennir
okkur afrísk lög. Margrét djákni og sr. Hans
Guðberg þjóna fyrir altari. Lærisveinar hans
spila undir sönginn undir stjórn Bjarts Loga
organista. Fermingarbörn flytja bænir og söng.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11
í Brekkuskógum 1. Umsjón með stundinni
hafa Helga Björk, Jón Örn og sr. Hans Guðberg.
Fermingarbörn aðstoða.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Guðs-
þjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Organisti
Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur
Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elí-
dóttir. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er
Örn Magnússon. Kaffi í safnaðarheimili eftir
messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Fræðsla, söngur og lofgjörð við undirleik Jón-
asar Þóris. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr Kór
Bústaðakirkju leiða sönginn við undirleik Jón-
asar Þóris. Messuþjónar aðstoða og Hólm-
fríður Ólafsdóttir djákni leiðir stundina. Mola-
sopi og hressing eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Biskupsvísitasía í Digra-
neskirkju, vígslubiskupinn í Skálholti, sr. Krist-
ján Valur Ingólfsson, heimsækir söfnuðinn.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr.
Magnús B. Björnsson. Organisti Sólveig Sigríð-
ur Einarsdóttir. Kór Digraneskirkju sér um
söng. Súpa í safnaðarsal að athöfn lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu-
dagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn
Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dóm-
kórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dó-
morganista. Barnastarfið á kirkjuloftinu á
sama tíma í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar
Jóns. Ritningarlestrana lesa mæðgurnar Stein-
unn Lárusdóttir og Edda Jónsdóttir, en Stein-
unn fermist í vor í Dómkirkjunni.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Svavar
Stefánsson þjóna fyrir altari. Ragnhildur Ás-
geirsdóttir, fyrrverandi djákni kirkjunnar, pré-
dikar. Kristín Kristjánsdóttir djákni verður boð-
in velkomin til starfa. Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organ-
ista. Sunnudagaskólinn á sama tíma, umsjón
hafa Pétur og Hreinn ásamt brúðunni Viktori.
Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Kvöldvaka kl. 20. Umfjöllunarefni: Ástin
og hjónabandið. Kór og hljómsveit kirkjunnar
leiða sönginn.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11
fyrir alla krakka. Góð fræðsla, brúðuleikrit,
söngvar og hressing í lokin. Kl. 13.30 verður
almenn samkoma. Tónlistarhópur kirkjunnar
leiðir lofgjörð og Þórunn Helgadóttir frá ABC
segir okkur frá lífi sínu og starfi í Kenýa í Afríku.
Ágætis aðstaða fyrir börn en engin gæsla.
Kaffi og samvera í lokin auk þess sem verslun
kirkjunnar verður opin.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni safn-
aðarprestur og Erla Björk guðfræðingur leiða
stundina. Fermingarbörn taka þátt. Sönghópur
Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina ásamt
Aðalheiði Þorsteinsdóttur organista. Barnakór
Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar
Björgvinsdóttur. Aðstandendur fermingarbarna
eru hvattir til að mæta og vera með börnum
sínum í guðsþjónustunni.
FÆREYSKA sjómannaheimilið | Færeysk
messa með altarisgöngu verður í Grens-
áskirkju kl. 16. Sr. Marjun Bæk, sóknarprestur
í Kvívík, þjónar fyrir altari. Kaffi og meðlæti eft-
ir messu í Sjómannaheimilinu, Brautarholti
29.
GLERÁRKIRKJA | Barnastarf og messa kl.
11. Sameiginlegt upphaf í messu. Kór Gler-
árkirkju leiðir almennan söng. Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20.30. Krossbandið leiðir almennan
söng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Dagur orðsins til-
einkaður sr. Hallgrími Péturssyni. Erindi um sr.
Hallgrím frá kl. 10-11. Smári Ólason organisti,
„Gömlu lögin við Passíusálmana“, Guðrún Jó-
hanna Jónsdóttir syngur Passíusálma eftir Jón
Ásgeirsson. Þórunn Sigurðardóttir, „Unun var
augum mínum“ – sorg og huggun í erfiljóðum
sr. Hallgríms. Hátíðarmessa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson biskup prédikar. Prestar kirkj-
unnar þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur.
Organisti: Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl.
11. Umsjón hefur Þóra Björg.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11, í
umsjá Lellu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga.
Samskot í líknarsjóð. Messuhópur þjónar. Kór
frá Domus vox syngur, skólastjóri Margrét J.
Pálmadóttir, organisti er Ásta Haraldsdóttir.
Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir
messu. Hversdagsmessa með Þorvaldi Hall-
dórssyni á fimmtudag kl. 18.10.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi
presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Séra
Halldór Gunnarsson þjónar. Grundarkórinn
leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org-
anista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson, organisti Hrönn Helga-
dóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
umsjá Aldísar R. Gísladóttur og Valbjörns S.
Lilliendahl. Meðhjálpari Ingibjörg Þórisdóttir.
Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi
eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11.
Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur prédikar í til-
efni af hundrað ára afmæli Hafnarfjarðarkirkju.
Barbörukórinn leiðir söng. Organisti er Guð-
mundur Sigurðsson, prestar sr. Þórhildur Ólafs
og sr. Jón Helgi Þórarinsson. Sunnudagskóli í
Hásölum Strandbergs, safnaðarheimilis
Hafnarfjarðarkirkju kl. 11. Leiðtogi sunnudaga-
skólans er Anna Elísa Gunnarsdóttir, henni til
aðstoðar er Margrét Heba. Kaffi og kex eftir
stundirnar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni,
Ingu Harðardóttur, æskulýðsfulltrúa Hallgríms-
kirkju, og messuþjónum. Drengjakór Reykjavík-
ur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks
S. Kristinssonar. Organisti er Hörður Áskels-
son.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Barnastarf í
umsjá Birkis og Grímu. Félagar úr Kór Háteigs-
kirkju syngja. Organisti Kári Allansson. Prestur
sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Samskot dags-
ins renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11.
Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða söng og safnaðarsvör. Sunnu-
dagaskóli kl. 13 í umsjá Ólafs og Kristínar.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Fjöl-
skyldusamkoma í Kirkjustræti kl. 14 með þátt-
töku fjölskyldu- og fjölmenningarsetursins í
Mjódd. Boðið verður upp á marokkóskan rétt
og gott samfélag barna og fullorðinna.
Hjúkrunarheimilið Eir | Guðsþjónusta kl.
15.30. Þorvaldur Halldórsson syngur frá kl.
15. Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar
fyrir altari.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sunnu-
dagaskóli í Hólaneskirkju. Konni, Mýsla og
Rebbi líta inn. Við heyrum söguna um Sakkeus
sem var yfirtollheimtumaður og sjáum einnig
teiknimynd í Holy Moly-seríunni um hann. Bryn-
dís Valbjarnardóttir sóknarprestur leiðir stund-
ina.
HREPPHÓLAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Barnakór úr Flúðaskóla syngur
undir stjórn Helgu Kolbeinsdóttur.
HVERAGERÐISKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11.
Höskuldsstaðakirkja á Skagaströnd |
Barnastarf kl. 14. Kirkjan mun gefa sex ára
börnum Nýju barnabiblíuna. Foreldrar, systkin,
ömmur og afar velkomin með börnunum. Bryn-
dís Valbjarnardóttir sóknarprestur leiðir stund-
ina.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Ólafur H. Knúts-
son prédikar. Barnastarf á sama tíma. Kaffi
eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Messuþjónar lesa texta og sjálfboðaliðar bera
fram súpu að guðsþjónustu lokinni. Sr. Erla
Guðmundsdóttir stýrir barnastarfi ásamt
Systu, Esther og Önnu Huldu. Arnór Vilbergs-
son er við hljóðfærið og stýrir söng ásamt fé-
lögum úr Kór Keflavíkurkirkju. Prestur er sr.
Sigfús B. Ingvason.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa kl. 14. Tákn-
málskórinn leiðir söng. Prestur sr. Brynja Vig-
dís Þorsteinsdóttir. Molasopi eftir messu.
Kirkjuselið í Spöng | Gospelmessa kl. 11.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir alt-
ari. Eva Björk Valdimarsdóttir guðfræðingur
prédikar. Hekla Hrönn Pálsdóttir og Rafn Hlíð-
kvist syngja og spila með Vox Populi. Organisti:
Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Umsjón hefur Ásthildur Guðmunds-
dóttir. Undirleikari: Stefán Birkisson.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigurður Arnarson sóknarprestur þjónar fyr-
ir altari. Þórður Ingi Guðjónsson flytur hugleið-
ingu á degi íslenskrar tungu. Kór Kópavogs-
kirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová
kantors. Sunnudagaskólinn hefst í kirkju en
heldur í safnaðarheimilið eftir upphaf guðs-
þjónustu. Umsjón með sunnudagaskólanum
hafa Bjarmi Hreinsson, Ágústa Tryggvadóttir og
Oddur Örn Ólafsson.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Félagar úr Graduale Futuri syngja
við messuna undir stjórn Rósu Jóhannesdóttur
og við undirleik Jóns Stefánssonar organista.
Guðbjörg, Jóhanna, Snævar, Grétar og Esja
taka á móti ykkur auk messuþjóna. Heitt á
könnunni eftir messu og meðlæti til sölu til
styrktar Graduale Futuri.
LAUGARNESKIRKJA | Messa á degi ís-
lenskrar tungu kl. 11. Guðmundur Brynjólfs-
son, rithöfundur og djákni, prédikar út frá guð-
spjallinu um meyjarnar tíu og sóknarprestur
þjónar ásamt messuþjónum. Kvenfélagskórinn
syngur nýja íslenska og erlenda sálma við und-
irleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Sunnudaga-
skóli á sama tíma. Kaffisopi og samfélag eftir
messu.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organisti er
Arnhildur Valgarðsdóttir. Sr. Skírnir Garð-
arsson. Sunnudagaskólinn er kl. 13.
Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar:
Alla virka daga kl. 18.30. Laugardaga (sunnu-
dagsmessa) kl. 18.30 á ensku. Sunnudaga kl.
11. Barnamessa (september-maí) kl. 12.15.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Stúlknakór Neskirkju
syngur og leiðir safnaðarsöng. Stjórnandi og
organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin
Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barna-
starfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum
hafa Andrea Ösp, Katrín Helga og Ari tónlist-
armaður. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir
messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. „Að sættast við fortíðina og horfa fram á
við.“ Ræðumaður Haraldur Jóhannsson. Túlk-
að á ensku. Sunnudagaskóli fyrir börnin.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borg-
þórsson prédikar. Kór Seljakirkju leiðir safn-
aðarsöng. Organisti: Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Árni Svanur
Daníelsson þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er
organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju syngja. Kaffiveitingar.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11 þar
sem rætt verður um ljós og myrkur. Kór kirkj-
unnar flytur kórlög og leiðir almennan
safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Sig-
urbjörg Kristínardóttir. Sunnudagaskóli á sama
tíma í safnaðarheimilinu. Vasaljósaleikur, bibl-
íusaga um ljós og myrkur og brúðuleikrit. Prest-
ur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari
er Jóhann Grétar Einarsson. Boðið er upp á
kaffi og rökkurköku eftir stundina.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur þjónar. Org-
anisti er Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédik-
ar. Ester Ólafsdóttir leiðir almennan safn-
aðarsöng. Meðhjálpari er Erla Thomsen.
STÓRA-Núpskirkja | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Barnakór Þjórsárskóla syngur undir
stjórn Helgu Kolbeinsdóttur.
TORFASTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur þjónar. Org-
anisti er Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli og
messa kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og
þjónar. Félagar úr Kór Vídalínskirkju leiða safn-
aðarsönginn. Organisti Jóhann Baldvinsson.
Barn borið til skírnar. Leiðtogar sunnudaga-
skólans leiða öflugt starf með fjörugum söngv-
um og góðri fræðslu. Molasopi í messulok.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Hulda
Hrönn Helgadóttir þjónar. Félagar úr kór Víði-
staðakirkju leiða söng undir stjórn Helgu Þór-
dísar. Siggi og María stýra sunnudaga-
skólanum. Kaffi og djús á eftir.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Kór Njarðvíkurkirkna
syngur undir stjórn Stefáns Helga Krist-
inssonar organista. Meðhjálpari Ástríður Helga
Sigurðardóttir. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá
Maríu og Heiðars. Kaffi, djús og kökur að skóla
loknum.
ÞORLÁKSKIRKJA | Körfuboltamessa kl. 14.
Messan er tileinkuð hreyfingu, íþróttum, eink-
um körfubolta, en þar keppum við meðal þeirra
bestu. Gunnsteinn R. Ómarsson sveitarstjóri
fjallar um gildi íþrótta fyrir eitt bæjarfélag.
Körfuboltamenn mæta. Fermingarbörn lesa
ritningarlestra og mæta vel ásamt aðstand-
endum. Jörg spilar á orgelið og kór kirkjunnar
syngur. Sunnudagaskóli kl. 11. Hafdís stjórn-
ar, Arna Dögg Sturludóttir spilar á gítarinn.
Orð dagsins:
Tíu meyjar.
(Matt. 25)
Morgunblaðið/Sverrir
Kotstrandarkirkja.
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn