Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 47

Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 ✝ Halldór GuðjónPálsson fæddist á Leifseyri á Eyr- arbakka 9. maí 1924. Hann lést í Reykjavík 4. nóv- ember 2014. Foreldrar hans voru Guðbjörg Elín Þórðardóttir, f. 4.12. 1896, d. 25.11. 1983, og Páll Guð- mundssonn vél- stjóri á Eyrarbakka, f. 26.9. 1895, d. 5.4. 1927. Eftirlifandi systir Guðjóns er Pálína, f. 1927, en látin eru Guðmundur Gunnar, f. 1919, d. 1997, Þórður Jón, f. 1921, d. 2008, Ingileif Sigríður, f. 1923, d. 1924, Sigurður, f. 1925, d. 1981, og Páll Erlingur, f. 1926, d. 1973. Guðjón giftist Gyðríði Sigurðardóttur, f. 22. september 1929 í Steinsbæ, Eyrarbakka. Höfn. Í Höfn bjuggu þau allt þar til húsið eyðilagðist í jarðskjálft- anum 2008. Þá fluttu þau á Foss- heiði 36 á Selfossi. Guðjón og Gyða áttu mörg sameiginleg áhugamál. Má þar nefna slysavarnamál sjómanna og var Guðjón formaður björg- unarsveitarinnar Bjargar og störfuðu þau þar saman alla tíð. Ferðalög voru þeim hugleikin og ferðuðust þau saman um landið allt og einnig um Evrópu og Am- eríku. Guðjón starfaði við margt um ævina. Hann var togarajaxl, var bæði á Skallagrími og Hallveigu Fróðadóttur. Hann vann ýmis störf hjá Rafmagnsveitum rík- isins, vann við fiskverkun, neta- gerð, smíðar og alla almenna verkamannavinnu þar sem haga hönd þurfti til. Síðustu árin vann hann hjá Alpan á Eyrarbakka. Guðjón var handlaginn og hafði mjög gaman af smíði. Hann var mikið náttúrubarn og var haf- sjór af fróðleik um flóru og fánu Íslands. Útför Halldórs Guðjóns fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag,15. nóvember 2014, kl. 11. Hún lést í maí 2012. Foreldrar hennar voru Sigurður Jóns- son og Regína Jak- obsdóttir í Steinsbæ. Gaui og Gyða felldu hugi saman árið 1947 og giftu sig ári síðar, hinn 11. desember 1948, og áttu þau því saman 65 ár. Þau eignuðust fjög- ur börn: 1) Regína, sem lést í september síðastliðnum, hún var gift Siggeiri Ingólfssyni. 2) Drengur sem dó í fæðingu. 3) Ingileif, gift Ólafi Leifssyni. 4) Margrét, gift Þór Ólafi Hammer. Afkomendur Gauja og Gyðu eru því 33 auk þess sem von er á fjór- um barnabarnabörnum á þessu ári og næsta. Þau bjuggu fyrstu árin í Steinsbæ meðan þau byggðu Afi og amma voru yndislegt fólk. Ég hef átt yndislegar stund- ir með þeim og þau kenndu mér margt. Afi og amma voru ótrú- lega flott par og bættu hvort ann- að upp. Afi var fljótfærari en amma og átti það til að rjúka í að framkvæma hlutina. Heyrði mað- ur oft: „Allt í lagi Gaui minn, gerðu það bara.“ Ég naut þess að fá að vera með þeim, föndra með ömmu og spila við afa. Það eru ófáar stundirnar sem við afi spiluðum marías eða borðvist, fórum í bíltúr, spjölluð- um eða gerðum eitthvað annað skemmtilegt. Ég saknaði ömmu sárt eftir að hún dó en veit að söknuður afa hefur örugglega verið miklu meiri. Hann var eins og væng- brotinn fugl án ömmu. Ég veit ekki hvernig hann afi hefði farið að ef mamma hefði ekki flutt til hans um tíma og verið hans stoð og stytta. Þegar amma dó sat ég eftir með tilfinningu sem margir eflaust finna fyrir við andlát ein- hvers sem þeim þykir vænt um. Tilfinningu um að ég hefði misst af dýrmætum tíma með henni. Maður heldur alltaf að maður hafi nógan tíma seinna. Ég ákvað því að það sama skyldi ekki henda með afa og áttum við margar yndislegar stundir síð- astu tvö árin. Við fórum í marga bíltúra sem oftast byrjuðu á ís og enduðu á bryggju að skoða báta. Við ræddum margt í þessum bíl- túrum. Hann sagði mér frá því þegar hann var að alast upp, þegar pabbi hans dó og bræður hans fóru í fóstur og hann fór og sótti einn bróður sinn og fór með hann heim og háttaði hann upp í rúm. Þegar hann og amma voru að draga sig saman. Hann sagði mér frá hinum ýmsu störfum sem hann hafði unnið. Vinnan hjá Raf- magnsveitum ríkisins fannst hon- um skemmtilegust því hún gaf honum færi á að ferðast um land- ið okkar og kynnast því. Hann sagði mér frá því þegar hann missti besta vin sinn í flugslysi, björgunarleiðangrinum sem hann fór í með Björgu og lengi gæti ég talið. Afi var hafsjór af fróðleik, manni fannst afi vita allt um náttúruna, fuglana og lífið. Afi missti aldrei skopskynið þrátt fyrir allt sem hann gekk í gegn- um. Sú stund sem við áttum sam- an laugardaginn áður en hann dó er mér mjög dýrmæt. Hann sagð- ist vera að deyja. Þegar ég spurði af hverju hann héldi það þá sagð- ist hann vera skrítinn yfir höfð- inu. Ég sat hjá honum og hélt í höndina á honum og hann lá með lokuð augun. Allt í einu opnar hann augun, horfði á mig með fal- lega brosinu sínu og sagði: „Hvað, er ég ekki dauður enn? Voðalega ætla ég að vera lengi að þessu.“ Hann bað að heilsa öllum og sagðist þykja vænt um okkur öll. Hann óskaði okkur góðs gengis með barnið sem í vændum er og mér þykir sárast að það fái aldrei að hitta langafa sinn. Það síðasta sem hann sagði við mig var: „Þetta er allt í lagi Guðrún mín, ég er ekki hræddur við að deyja. Sjáðu bara, ég brosi,“ og svo brosti hann innilega. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þennan stórkostlega mann fyrir afa. Síðustu árin voru mér mjög mikils virði. Hann kenndi mér margt og ég á eftir að minnast hans með söknuði en einnig brosi. Ég trúi því að hann og amma séu nú saman á ný og allt sé eins og það eigi að vera. Tveir helmingar orðnir ein heild. Guðrún Sigríður Ólafsdóttir. Elsku öðlingurinn hann Gaui Páls er látinn. Hann var alveg sáttur við að kveðja þennan heim og hlakkaði mikið til að hitta Gyðu konuna sína (1929-2012) og Regínu dóttur sína sem dó 22. september síðastliðinn og fylgdi Gaui henni þá til grafar þótt veik- ur væri. Einnig talaði hann um að hann hlakkaði til að fá aftur að sjá son sinn sem fæddist andvana árið 1951. Nú eru þau öll sam- einuð í Sumarlandinu og þar fá þau að njóta samvistanna hvert við annað. Gaui og Gyða bjuggu lengst af í húsi sínu, Höfn á Eyr- arbakka, sem þau byggðu sjálf og var þar alla tíð mikill gestagang- ur. Þar inn datt allt skyldfólk og vinir sem voru á leið út úr bænum eða bara komu beint í heimsókn til þeirra og voru allir hjartan- lega velkomnir. Hjónaband þeirra var svo gott að eftir var tekið og oftast var talað um þau bæði í einu sem Gyðu og Gauja á Bakkanum. Aldrei var þörf að hringja áður en komið var – alltaf var kaffi á könnunni og alltaf töfraði Gyða upp tertur úr sinni frægu frystikistu þó svo að við Jón, bróðir Gyðu, kæmum þarna vikulega flest sumur í 27 ár þegar við fórum heim til Reykjavíkur frá sumarbústaðnum í Hallskoti. Þau hjón voru einstaklega sam- hent, ferðust mikið um Ísland á yngri árum og voru dugleg við að rækta garðinn sinn bæði garðinn við húsið og svo hinn eina sanna frændgarð. Þau voru svo sam- rýnd hjónin að ég verð að viður- kenna að ég átti helst von á að það myndi slokkna á Gaua þegar Gyða dó en fyrir einstaka um- hyggju dætra þeirra þriggja, Regínu, Ingileifar og Margrétar, og þá ekki síður barnabarnanna, tókst honum að þrauka þetta þar til nú. Niðjar þeirra hjóna eru búnir að missa mikið síðastliðin tvö ár og auðvitað er það alltaf sárt þeg- ar við sjáum á eftir slíku öðling- sfólki. En góðu minningarnar lifa sem betur fer og mínar eru ynd- islegar og er mér mikið þakklæti í huga fyrir að hafa kynnst þessu góða fólki. Elsku Inga, Magga og Geiri og öll ykkar börn, barna- börn og barnabarnabörn. Megi allir englar Guðs fylgja ykkur í framtíðinni og gefa ykkur styrk eftir ykkar mikla missi síðustu árin. Ingunn J. Óskarsdóttir. Halldór Guðjón Pálsson Það er með sár- um söknuði sem ég kveð bestu vinkonu mína í dag. Mínar fyrstu minn- ingar eru tengdar henni og allar götur síðan vorum við samferða þó að stundum hafi liðið tími á milli þess er við hittumst. Þegar við hófum skólagöngu kom hún gangandi yfir hólinn, sótti mig á Urðarstíginn og við gengum nið- ur í Lækjarskóla og síðar í Flens- borg. Margt var spjallað á leiðinni og þessi samtöl leita einmitt á hugann núna með söknuði. Sem litlar stelpur í Hafnarfirði þurftum við að taka þátt í heim- ilisstörfum að fullu. Mæður okkar unnu langan vinnudag og það þótti sjálfsagt að fara heim í há- deginu til að elda. Það tíðkaðist ekki alveg að konur ynnu úti á þessum árum en það að þurfa að taka þátt í þessum störfum gerði okkur bara sjálfstæðari og auð- vitað myndarlegri í leiðinni. Ragnheiður var svo sannarlega myndarleg í alla staði, handa- vinna og heimilishald lék í hönd- unum á henni. Við elskuðum að sauma út hvert verkið á fætur öðru og var samkeppnin oft mikil, þó leituðum við alltaf ráða hvor hjá annarri. Sem unglingar unnum við í Kaupfélaginu, það voru skemmti- legir tímar fullir af gleði unglings- áranna, þeir verða ekki í tíundaðir hér í þessum fátæklegu orðum til vinkonu minnar. Þegar við vorum átján ára fórum við vinkonurnar í reisu sem þótti mikið í þá daga, vinkonur mömmu gáfu mér meira að segja gjaldeyri því þetta þótti svo merkilegt. Við fórum með Gullfossi til Kaupmannahafnar og dvöldum þar í viku og skemmtum okkur konunglega. Þaðan fórum við með Heklunni til Norður- landanna, en alls tók ferðin þrjár vikur. Þessi ferð okkar var Ragnheiður Sigurbjartsdóttir ✝ RagnheiðurSigurbjarts- dóttir fæddist 23. september 1942. Hún lést 31. októ- ber 2014. Útför Ragnheiðar fór fram 12. nóvember 2014. ógleymanleg í alla staði en Ragnheiður var góður ferða- félagi og höfum við oft hlegið saman að ævintýrum ferðar- innar. Ragnheiður var stálminnug og sagði skemmtilega frá. Hún var sögu- kona sem fangaði augnablikið og kom því í skemmtileg orð. Það verður tómlegt án þess- ara sagnastunda. Gott var að leita til hennar þegar þurfti að muna og rifja einhverja atburði upp, þá kom stálminni hennar að góðum notum. Hún gat lýst kjólunum ná- kvæmlega sem við klæddumst fyrsta daginn í skólanum, því föt og tíska voru áhugamál okkar númer tvö á eftir handavinnunni. Samband okkar minnkaði um tíma er ég fluttist til Reykjavíkur en taugin var sterk og alltaf til staðar. Þegar ég fluttist aftur til Hafnarfjarðar tókum við upp þráðinn að nýju og vináttan varð meiri og betri sem aldrei fyrr. Hún var skemmtileg og við nut- um samvistanna, fórum í ferðalög og áttum góðan vinahóp. Saman fórum við í búðaráp, kaffihús og heimsóknir. Þar voru rifjaðir upp gömlu góðu dagarnir og allt mögulegt rætt sem við skulum eiga með okkur þegar við hitt- umst á ný. Við sóttum í hverri viku sauma í Bústaðakirkju og undir það síðasta þurfti ég að styðja hana inn í kirkjuna, það var kærkominn stuðningur af minni hálfu eftir ævilanga vináttu. Ragnheiður mín var sterk og stórbrotin kona og átti það eftir að hjálpa henni í gegnum þessi erfiðu veikindi. Hún hafði gaman af því að punta sig og vera fín og það gerði hún fram á síðustu stundu. Þegar ég sá hana síðast hafði hún tapað stálminninu sínu en reisnin var enn til staðar. Hvíl þú í friði, kæra vinkona, og hafðu þökk fyrir allt, því miður get ég ekki fylgt þér síðasta spöl- inn. Elsku Dóri, Aldís, Helga, Eygló og Elísa, megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Þín Elísabet (Beta). Þig Guð og englar geymi góðir hér í heimi. Fagran færi daginn farsæld búi í haginn. Blessun hljóttu blíða í dag, og bestu óskir mínar. Auðnan snúi öllu í hag. Ævistundir þínar. Þessar óskir færði Jóhanna mér á fermingardaginn minn og finnst mér þetta lýsa henni vel. Jóhanna vildi öllum vel og kom fram við mig eins og sitt eigið Jóhanna B. Snæfeld ✝ Jóhanna B.Snæfeld fædd- ist í Reykjavík 22. mars 1935, hún lést í Kópavogi 5. sept- ember 2014. Útför Jóhönnu fór fram frá Digra- neskirkju 24. sept- ember 2014. barnabarn. Betri og yndislegri mann- eskju er vart hægt að finna. Hjálpsöm, hlý og góð og bar hag minn alltaf fyrir brjósti. Ég mun aldrei gleyma þeim stundum sem ég fékk að fara með Andreu í heimsókn til hennar. Hún tók alltaf svo vel á móti okkur og gaf okkur fílakaramell- ur. Hún átti sko nóg af þeim. Þeg- ar við kvöddumst tók hún fast ut- an um mig, kyssti mig á báðar kinnar og sagði: „Þú ert alltaf góða stelpan mín, Guð geymi þig.“ Elsku Andrea og fjölskylda, ég er þakklát fyrir minningarnar um Jóhönnu og kveð hana með söknuði. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ásta Rósa Jensdóttir. ✝ Steinar Ein-arsson fæddist í Reykjavík 23. september 1958. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 22. október 2014. Steinar var son- ur hjónanna Ein- ars Ingibergs Jó- hannssonar, f. 15.1. 1929, d. 23.6. 1983, skipstjóra, og konu hans Kristínar Árnu Zophaníasdótt- ur, f. 14.9. 1937, d. 28.7. 2008, bankastarfsmanns. Steinar á 3 systkini: Vilborgu, f. 1956, gifta Herði Kristinssyni, Jökul, f. 1957, giftan Björgu Sigurð- ardóttur, og Helgu Björk, f. 1965. Steinar vann að- allega við sjó- mennsku en einnig vann hann við húsasmíðar, járna- bindingar og í hús- einingaverksmiðju. Útför Steinars fór fram frá Hvalneskirkju 30. október 2014. Nú kveð ég kæran bróður minn, Steinar. Um 2 ára aldur flytur Steinar til Keflavíkur og elst þar upp og býr meirihluta lífs síns, fyrir ut- an að hann bjó í Reykjavík í nokkur ár. Steinar var einhleyp- ur og barnlaus. Steinar ólst fyrst upp á Kirkjuveginum og til- heyrði vesturbæjarvillingunum eins og við kölluðum það. Vest- urbærinn var ævintýrasvæði á uppvaxtaárum Steinars. Í nán- asta umhverfi voru kýr, kindur, hænsni og svín. Strákarnir í hverfinu léku sér á Duustúninu í fótbolta, þetta var barnmargt hverfi á þessum árum og var leikið sér niðri í slipp við bæj- arverkstæðið og á götunni, alltaf líf og fjör. Steinar fór snemma að vinna. 13 til 14 ára vann hann í skipa- vinnu og seinna varð hann sjó- maður. Einnig vann hann ýmsa vinnu við smíðar, járnabindingar og í húsaeiningaverksmiðju. Steinar tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur, síð- ar tók hann einn vetur í stýri- mannaskólanum og 1 ár var hann í biblíuskóla í Noregi. Steinar hefði vissulega átt að mennta sig, því Steinar var mjög bókhneigður frá unga aldri og las hann mikið og var mjög fróð- ur um sögu og heimsmál ásamt öðrum fróðleik. Sjórinn og sjómennskan var auðlegð Steinars í lífinu, það var honum í blóð borið að vera sjó- maður, hann vílaði ekkert fyrir sér, sterkur og harður af sér. Á sjónum naut hann sín og fann þar kröftum sínum viðmót og vann á við tvo. Hann var sagður hinn besti dekkmaður. Ekki var það hafið sem tók Steinar, hann var sjómaðurinn sem hafið hafnaði. Tvisvar féll Steinar á milli skips og bryggju. Þá lenti hann útbyrðis á loðnu- veiðum á Erling KE. Þótti það kraftaverki líkast að hann hefði fundist eftir 20 mínútur í sjónum í niðamyrkri. Þessar mínútur átti Steinar ró í hjarta meðan lífshlaupið fór í gegnum hugann, en hafið vildi hann ekki, honum var bjargað. Það var svo fyrir um aldarfjórðungi að Steinar var hluti af áhöfn sem var bjargað er Erling KE sökk vestan við Hornafjarðarós. 2004 fór Steinar til Noregs í Biblíuskóla eftir að hafa velt trú- málum fyrir sér, seldi hann þá allt er hann átti hér heima fyrir lítinn pening eða gaf. Dvöl hans í Noregi var erfið því hann átti litla peninga og ekki var hann á neinum námslánum svo að námi loknu kom hann heim aftur til að vinna fyrir sér og þurfti að byrja frá grunni því hann hafði lagt allt í sölurnar fyrir Biblíuskóla- námið. 2007 fékk Steinar hjartaáfall og varð óvinnufær upp frá því. Síðan fékk Steinar að glíma við mikil önnur veikindi. Steinar sýndi af sér mikla hörku í þess- um veikindum og bar sig eins og hetja, að vorkenna sjálfum sér gerði hann ekki. Steinar var alltaf með puttann á púlsinum og var mjög skoð- unarfastur og lá ekki á skoð- unum sínum, honum fannst gam- an að rökræða og honum misbauð spilling sem og mis- skipting á kjörum landsmanna og var hann mjög duglegur að mæta á Austurvöll og mótmæla til að berjast fyrir réttlæti. Steinar var kominn af fólki sem þurfti að berjast fyrir sínu og vann úr sínu á heiðarlegan hátt og sú dyggð að krefjast einskis af öðrum og láta það duga sem það hafði. Blessuð sé minning Steinars. Vilborg Einarsdóttir. Elsku Steinar, Þú varst einn af uppáhalds- frændum mínum. Þú varst svo góður við Lottuna okkar, enginn fékk hana til að dilla skottinu sínu eins og þú, enda enginn annar sem kom í heimsókn með stóran ís eða harðfisk bara handa henni. Engum öðrum datt heldur í hug að steikja beikon, bara handa henni, þegar hún var í pössun. Svo þótti mér alltaf gaman að því þegar þú komst í heimsókn til okkar og þið bræð- urnir fóruð að rífast (þótt þið vilduð helst kalla það rökræður), mér fannst þú svo skemmtilegur karl. Mér þykir svo vænt um að hafa náð að kveðja þig áður en ég fór út, en ég mun sakna þín, en á sama tíma er ég fegin að þú hafir losnað undan þjáningunum, þér er búið að líða illa svo lengi. Við sjáumst síðar, elsku frændi. Þín, Lilja. Steinar Einarsson Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.