Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það þýðir ekkert að sitja með
hendur í skauti og bíða þess að aðrir geri
hlutina fyrir mann. Reyndu því að þróa
hugmyndir sem eru öðruvísi og spennandi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú leikur þér ómeðvitað að valdi þínu
og lætur á það reyna. Gerið upp lítil deilu-
mál eða gleymið þeim.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fjölskyldan og heimilið setja svip
sinn á daginn hjá þér. Gakktu óhræddur á
hólm við verkefni dagsins.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sígandi lukka er best svo þú skalt
bara halda þínu striki og klára hvert mál
eins og það kemur fyrir. Þú mætir sann-
girni og ert að sama skapi rausnarlegur við
aðra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Málefni tengd samböndum eru
eilífðarverkefni. Nakið fólk hefur lítil eða
engin áhrif í samfélaginu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú skalt hafa það markmið þennan
mánuðinn að vera skýr í samskiptum. Aðrir
vita að þér er alvara þegar þú tekur þér
eitthvað fyrir hendur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Takist þér ekki að koma málstað þín-
um til skila undanbragðalaust áttu á hættu
að allt fari út um þúfur. Vertu því stöðugt á
tánum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er svo margt sem þig
langar að gera að þér fallast eiginlega
hendur. Byrjaðu strax því annars geturðu
misst af strætisvagninum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú flýgur um eins og önnum
kafinn fugl og býrð þig undir framtíðina.
Dagurinn hentar hins vegar engan veginn
til að taka mikilvægar ákvarðanir varðandi
fjármál og viðskipti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er einhver umræða í gangi
sem kann að snerta þig svo þér er fyrir
bestu að hafa allt þitt á hreinu. Notaðu
tímann vel á meðan þú ert svona kraft-
mikil/l.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Allir þekkja manneskju sem vel-
ur gáfulegasta kostinn þegar allir aðrir eru
þrautreyndir. Reyndu að nýta umræddan
búnað á glænýjan hátt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér veitist erfitt að sinna starfi þínu
af kostgæfni. Haltu sköpunargáfunni við
með því að umgangast þá sem kunna að
meta hana.
Vísnagátan fyrir viku var eftirGuðmund Arnfinnsson:
Bunga hrauns all breið að sjá,
býsna mikil hrúga,
krummahöll í klettagjá,
konur þarna búa.
Og þessi lausn fylgdi:
Dyngja hrauns er bunga breið,
bingur eða hrúga,
krummi dyngju úr kvistum reið,
konur í dyngju búa.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Eldgos í dyngju upp eimyrju spjó.
Ýmsu í dyngju ég hrúga.
Krummi sér dyngju í klettunum bjó.
Konur í dyngjunni búa.
Pétur F. Þórðarson ræður gát-
una þannig:
Úr Dyngju hraunið dembist niður.
Í dyngju þeirri er enginn friður.
Laupur dyngja lítil er.
lúra í dyngju mærin fer.
„Hamra skal járnið, meðan heitt
er!“ segir Guðmundur Arnfinnsson
og enn kemur gáta:
Meinfýsinn og illgjarn er.
Undirstöðu köllum vér.
Þar er allt á fleygiferð.
Fyrr var nýtt við kaffigerð.
Davið Hjálmar Haraldsson
vitnaði í Fréttablaðið þar sem sagt
er frá tilraunum með nýtt fjölnota
lyf sem unnið er úr lýsi. – „Mér
skilst að þetta sé hálfgert undralyf
sem gagnist jafnt við rauðum aug-
um, gyllinæð, vægri augnbólgu og
harðlífi,“ segir hann. „Helsti galli
augnlyfsins er dálítil lýsislykt en
lyktin ku ekki skipta máli við aðra
ætlaða notkun. Ég nota augnlyf og
mér er um og ó:
Mér kólnar, ég svitna, er kominn með
flog
og krampa, það glamrar í tönnum:
Setja þeir lyfið í sitjandann og
síðan í augun á mönnum?
Oft er slegið á létta strengi á
Leirnum, Jón Ingvar Jónsson
spurði á fimmtudag hvort ekki
mætti hafa stórt F í frón:
Vetur, sumar, vor og haust
verð ég fyrir tjóni.
Það er ekki þrautalaust,
þetta líf á Fróni.
Og Kristján Gaukur Kristjánsson
bætti við:
Líf á Fróni líst mér á
ljúft er kexið góða.
Kalda mjólk þú með skalt fá –
og með þér alltaf bjóða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hrafnslaupur og
lítill stafur eða stór
Í klípu
„EKKI REYNA ÞETTA SJÁLFUR. ÞETTA
LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA EINFALT
– EN ÉG ER ÞRAUTÞJÁLFAÐUR
ATVINNUMAÐUR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG FÓR Í ÖKUTÍMANN MINN OG ÞÚ
SKULDAR ÞEIM NÝJAN BÍL.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... tengslin á milli feðga.
ÍSBÍLLINN,
MAÐUR!
HVERNIG?... HÉR ER
VESKIÐ ÞITT
ÉG HELD AÐ ÉG VERÐI HEIMA
Í RÚMINU OG FARI EKKI Í
VINNUNA Í DAG...
...ÉG ER
YFIRMAÐURINN
ÞEGAR ALLT
KEMUR TIL
ALLS!
Víkverji er óstöðvandi í uppeldis-hlutverkinu enda er hann kom-
inn með aðra hönd á verðlaunin: For-
eldri ársins. Stórir sem smáir sigrar
liggja á bak við titilinn. Fyrir þá sem
ekki vita þá er titillinn veittur við há-
tíðlega athöfn af sérstökum sam-
tökum um barnauppeldi. Þau veita
einnig sérstök verðlaun til móður og
föður ársins.
x x x
Eitt af því sem Víkverji hefur inn-leitt í uppeldið er að kenna fjög-
urra ára afkvæminu að þjálfast í er
samlíðun: að setja sig í spor annarra
og vera gjafmildur fyrir vikið.
x x x
Jól í skókassa er frábært framtak.Munaðarlausum börnum í Úkra-
ínu eru færðar gjafir í skókassa, ým-
islegt þarflegt eins og tannbursta og
eitthvað smálegt til að gleðja barnið
eins og dót. Því þykir Víkverja það
kjörið í slíkt. Það krefst þess að for-
réttindabarnið sem Víkverji hefur al-
ið í þennan heim þarf að gefa af sínu
dóti til annarra.
x x x
Í fyrstu hefur þetta gengið vel ogbörnin í Úkraínu nefnd til sög-
unnar í tíma og ótíma. Einskær gleði
færðist yfir barnið þegar farið var í
matvöruverslun til þess að kaupa
bæði tannbursta, tannkrem og sápu.
Það var það fyrsta sem fór í kassann.
x x x
Eitthvað breyttist þó svipurinn þeg-ar Víkverji hafði keypt nýja lita-
bók og liti fyrir stúlkukindina í Úkra-
ínu. Reykvíska barnið vildi vissulega
fá líka alveg splunkunýja liti og lita-
bók. En með fortölum var þó hægt að
benda á góssið sem það hafði til um-
ráða og gaf það því eftir.
x x x
Þá var komið að því að finna fíntdót, setja í kassa og gefa öðru
barni á svipuðu aldursbili. Eitthvað
var og er barnið tregt í taumi að setja
barnagull í kassann. Skyndilega hef-
ur það mikla þörf fyrir allt dótið sitt,
stórt sem smátt, brotið og heilt.
Barnið reyndi allt hvað það gat til að
komast hjá því að fara í leiðangurinn
inn í herbergi að finna dót fyrir stelp-
una í Úkraínu. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn hersveitanna, sæll er sá
maður sem treystir þér.
(Sálmarnir 84:13)