Morgunblaðið - 15.11.2014, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 15.11.2014, Qupperneq 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 Rótlaus Íslendingur býr ílitlu þorpi þar sem geisarborgarastríð. Stríðið nærþó ekki til þorpsins sjálfs þótt það sé allt um kring. Hann not- ar gestsaugað til að draga upp mynd af þorpinu og íbúum þess, en hann er alltaf aðkomumaður, „…þetta var ekki mitt stríð, ég var bara vitni,“ skrifar hann. Í þessu litla þorpi er ekkert sem sýnist, heldur ekki sögumaður, sem segist fá ríkulega borgað fyrir að skrifa lygifréttir um efnahagsmál þar sem hann er staddur, hvar svo sem það nú er, en líklegast einhvers staðar á Balk- anskaga. Guðmundur S. Brynjólfsson er góður penni og Gosbrunnurinn vel stíluð bók. Hann hefur gaman af að draga upp myndir af sögupersónum sínum og gæða þær sérvisku og tikt- úrum og frásögnin er oft spaugileg. Þorpsbúarnir eru eins og stór hljóm- sveit þar sem allir fá sitt tækifæri til að leika einleik. Hver á sína óvæntu hlið og sögu, sem kallar á útúrdúra sögumanns. Á köflum læðist suðuramerískt töfraraunsæi inn í söguna og hefði Guðmundur að ósekju mátt ganga lengra í þeim efnum. Margir hafa spreytt sig á fárán- leika stríðs. Guðmundur kýs að fara þá leið að lýsa þorpi þar sem lífið þarf að halda áfram með einhverjum hætti þótt stríð geisi allt í kring. Í þorpinu er hið fáránlega stríð alltaf nálægt og setur mark sitt á allt þótt ekki sé það daglega á allra vörum og ekki að fullu ljóst um hvað það snýst. Vegna aðstæðna stendur allt í stað og lygin og sjálfsblekkingin verða að eldsneytinu, sem fær einstaklinginn til að hökta áfram. Mitt í tómarúminu verður endur- reisn gosbrunns að tilgangi í sjálfum sér í lífi þar sem tilgangurinn er vandfundinn. Þegar skrúfað verður frá gosbrunninum kviknar lífið á ný. Morgunblaðið/Árni Sæberg Saga af stríði Guðmundur S. Brynjólfsson fjallar um fáránleika stríðs í oft spaugilegri frásögn. Setið um blekkinguna Skáldsaga Gosbrunnurinn - sönn saga af stríði bbbnn Eftir Guðmund S. Brynjólfsson. Saga, 2014, 171 bls. KARL BLÖNDAL BÆKUR Nokkrir af kunnustu listamönnum Spánar hafa að undanförnu hafnað sumum helstu verðlaunum sem ríkið veitir, til að mótmæla menningar- og menntastefnu ríkisstjórnarinnar. Síðustu daga hafa bæði ljósmynd- arinn Colita og hinn heimskunni selló- og gömbuleikari Savall hafnað verðlaunum sem nema 30.000 evr- um, tæplega fimm milljónum króna. Colita hafnaði Spænsku ljós- myndaverðlaununum og Savall hafn- aði Spænsku tónlistarverðlaun- unum. Hann er dáður víða um lönd fyrir upprunaflutning á eldri tónlist og lék hér á Listahátíð árið 1998. Í fyrra hafnaði annar tónlist- armaður, Josep Soler, öðrum virtum verðlaunum sem hið opinbera veitir, sem og hinn heimskunni rithöfundur Javier Marías; hann hafnaði Spænsku bókmenntaverðlaununum. Ástæðuna segja allir listamenn- irnir þá sömu, að sögn veffréttarits- ins The Art Newspaper vilja þeir vilja mótmæla menningarstefnu stjórnvalda. Í opnu bréfi sem Colita skrifaði menningarmálaráðherra Spánar, José Ignacio Wert, segir hún ástand mennta- og menningarmála vera „til háborinnar skammar og sorglegt“. Þetta getur ekki verið ráðuneyti. Þetta er ófreskja.“ Savall útskýrði þá ákvörðun sína, að hafna verðlaununum og millj- ónunum fimm, í opinberri yfirlýs- ingu með þeim orðum að hann gæti ekki tekið við viðurkenningu frá rík- isstjórn sem hefur „brugðist einni af helstu skyldum sínum, sem er sú að styðja við menninguna í mannlífinu og gera listirnar aðgengilegar öll- um.“ efi@mbl.is Ljósmynd/David Ignaszewski Gömbuleikarinn Savall hafnaði Spænsku tónlistarverðlaununum. Höfundurinn Marias afþakkaði Spænsku bókmenntaverðlaunin. Spænskir listamenn hafna verðlaunum Kvikmyndir bíóhúsanna Uppgjafahermaðurinn Vincent eignast óvæntan félaga þegar Oliver, 12 ára drengur í hverfinu, leitar til hans eftir að foreldrar hans skilja. Metacritic 64/100 IMDB 7,6/10 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Háskólabíó 15.00, 17.30, 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 18.00, 20.00 St. Vincent 12 Nokkrir menn fara út í geim og kanna nýuppgötvuð ormagöng sem gera þeim kleift að ferðast um óra- víddir alheimsins á nýjan hátt. Metacritic 75/100 IMDB 9,3/10 Sambíóin Álfabakka 13.30, 17.00, 18.20, 20.00, 20.30, 22.20 Sambíóin Egilshöll 14.00, 18.30, 20.00, 22.00 Sambíóin Kringlunni 15.00, 18.30, 21.00, 22.00 Sambíóin Akureyri 18.30, 20.30, 22.00 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 14.00, 14.00 LÚX, 17.30, 21.00, 22.25 LÚX Interstellar 12 Tuttugu ár eru liðin frá því að kjánarnir Harry Dunne and Lloyd Christmas héldu af stað í fyrra ævintýrið. Að þessu sinni leita þeir að týndri dóttur Harrys, því hann vantar sárlega nýrna- gjafa. Auk þess er Lloyd orðinn ástfanginn. IMDB 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.20, 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.20 Smárabíó 15.00, 17.30, 17.30 LÚX, 20.00 LÚX, 20.00, 22.20 Háskólabíó 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Laugarásbíó 14.00, 16.15, 17.00, 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 16.00, 18.00, 20.00, 22.00 Dumb and Dumber To Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum Erkióvinur Sveppa og Villa er enn á ný að reyna lands- yfirráð. Í þetta skiptið hefur hann byggt dómsdagsvél sem getur komið af stað jarðskjálftum og eldgosum. Mbl. bbbnn Sambíóin Álfabakka 13.00, 13.40, 15.20, 16.00, 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.20, 16.20, 17.40 Sambíóin Kringlunni 12.40, 13.00, 13.40, 15.20, 16.00, 18.40 Sambíóin Akureyri 13.00, 13.50, 15.50, 16.10, 18.10 Sambíóin Keflavík 13.00, 15.20, 17.40, 20.00 Nightcrawler 16 Ungur blaðamaður sogast niður í undirheima Los Ang- eles í för með kvikmyndaliði sem tekur upp bílslys, morð og annan óhugnað. Metacritic 76/100 IMDB 8,4/10 Háskólabíó 20.00, 22.30 Laugarásbíó 20.00, 22.30 Borgarbíó Akureyri 22.00 John Wick 16 John Wick er fyrrverandi leigumorðingi. Þegar fyrr- verandi félagi hans reynir að drepa hann neyðist Wick til að rifja upp ómælda hæfi- leika sína í faginu. Metacritic 67/100 IMDB 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Laugarásbíó 22.00 Grafir og bein 16 Þegar Dagbjört, dóttir Gunn- ars og Sonju, deyr er veröld þeirra kippt undan þeim. Mbl. bbnnn Smárabíó 17.45, 20.00 Háskólabíó 17.45, 20.00 Fury 16 Á meðan bandamenn eru fá- einum skrefum frá því að vinna stríðið lætur fimm manna herlið, illa vopnum búið, til skarar skríða gegn helsta vígi nasista. Mbl. bbbbn Metacritic 64/100 IMDB 8,3/10 Smárabíó 20.00, 22.50 Borgríki 2 16 Lögreglumaðurinn Hannes ræðst gegn glæpa- samtökum og spilltum yfir- manni fíkniefnadeildar. Mbl. bbbbn Smárabíó 17.45 Háskólabíó 17.45, 22.10 Laugarásbíó 18.00, 20.00 Gone Girl 16 Mbl. bbbbn Metacritic 79/100 IMDB 8,6/10 Smárabíó 22.10 Háskólabíó 16.50 The Rewrite Staurblankur kvikmynda- handritshöfundur fer að kenna handritaskrif í há- skóla. Þar kynnist hann lífs- glaðri konu sem heillar hann upp úr skónum. Bönnuð innan 7 ára. IMDB 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Afinn Eftirlaunaaldurinn blasir við Guðjóni á sama tíma og erfiðleikar koma upp í hjóna- bandinu og við undirbúning brúðkaups dóttur hans. Mbl. bbbmn Sambíóin Kringlunni 17.40, 20.00 The Judge Bönnuð innan 7 ára. IMDB 7,8/10 Metacritic 48/100 Sambíóin Kringlunni 22.20 Alexander and the Terrible, Horrible, No Good, Very Bad Day IMDB 4,7/10 Rotten Tomatoes 59/100 Sambíóin Álfabakka 15.40 Sambíóin Egilshöll 15.30 Sambíóin Keflavík 17.50 Kassatröllin Mbl. bbbnn IMDB 7,2/10 Metacritic 63/100 Sambíóin Álfabakka 13.30, 17.50 Sambíóin Keflavík 13.30, 15.40 Smárabíó 13.15, 15.30 Háskólabíó 15.00 Laugarásbíó 14.00, 16.00 Borgarbíó Akureyri 16.00 Believe Bíó Paradís 16.00 Andri og Edda verða bestu vinir Bíó Paradís 16.00 Turist 12 Mbl. bbbbn Bíó Paradís 15.15 (English subtitles), 17.45, 20.00 (English subtitles) 20.000 Days on Earth Bíó Paradís 22.00 Salóme Bíó Paradís 18.00 París norðursins Mbl. bbbnn IMDB 7,4/10 Bíó Paradís 23.00 (English subtitles) Leviathan Bíó Paradís 17.30 Leviathan Bíó Paradís 20.00 18 Comidas – spænskir dagar Bíó Paradís 20.00 Clouds of Sils Maria Bíó Paradís 17.30, 22.15 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is The Maze Runner 12 Metacritic 58/100 IMDB 7,9/10 Smárabíó 15.15 Annabelle 16 John Form hefur fundið full- komna gjöf handa ófrískri eiginkonu sinni, Miu - fallega og sjaldgæfa gamla dúkku í fallegum hvítum brúðarkjól. En gleði Miu vegna Anna- belle endist ekki lengi. IMDB 6,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Töfrahúsið Kettlingur á vergangi kemst í kynni við gamlan töframann. Með íslensku tali. Sambíóin Álfabakka 14.00, 16.00 Sambíóin Egilshöll 13.30 Smáheimar: Dalur týndu mauranna Smárabíó 13.15 Laugarásbíó 13.50
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.