Morgunblaðið - 15.11.2014, Qupperneq 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Dúettinn My Bubba, skipaður
Guðbjörgu Tómasdóttur og hinni
sænsku My Larsdotter, sendi í
maí sl. frá sér aðra breiðskífu
sína, Goes Abroader. My Bubba
hefur síðustu mánuði fylgt skíf-
unni eftir með tónleikahaldi víða
um lönd og þá m.a. tónleikum þar
sem hljómsveitin hefur komið
fram með írska tónlistarmann-
inum Damien Rice.
Blaðamaður ræddi við Guð-
björgu, sem kölluð er Bubba,
fimmtudaginn sl. og voru þær My
þá nýlentar í Hollandi enda bók-
aðar á tónleika um kvöldið í Gro-
eningen og aðra degi síðar í Den
Haag. Í kvöld kemur My Bubba
hins vegar fram með Damien Rice
á hinum sögufræga tónleikastað
The Apollo í Harlem í New York
þar sem ýmsar stjörnur tónlistar-
sögunnar hafa komið fram, m.a.
Billie Holiday og Duke Ellington.
Verða það fjórðu tónleikarnir sem
My Bubba heldur með Rice, að
sögn Guðbjargar.
„Við erum á tveggja mánaða
tónleikaferðalagi og það vildi
þannig til að við vorum á svip-
uðum slóðum og hann og ákváðum
að slá þessu saman,“ segir Guð-
björg og bætir vð að þær My hafi
ákveðið að skella sér með Rice til
New York.
Algjör tilviljun
En hvernig stendur á því að My
Bubba er að leika á tónleikum
með jafnþekktum tónlistarmanni
og Damien Rice?
„Við kynntumst honum í Vest-
urbæjarlauginni. Við fórum að
spila tónlist saman, urðum vinir
og svo kom í ljós að við vorum að
fara í tónleikaferð um Evrópu á
sama tíma og hann spurði hvort
við vildum ekki spila með honum,“
segir Guðbjörg.
– Þetta var þá algjör tilviljun?
„Já, algjör tilviljun eins og svo
margt á okkar ferli, ótrúlegar til-
viljanir og oft lygilega skondnar,“
segir Guðbjörg kímin.
Blaðamaður ræddi við Guð-
björgu í lok apríl í fyrra, ári áður
en Goes Abroader kom út og var
hún þá stödd með My í hljóðveri í
Los Angeles við upptökur á plöt-
unni. Þá sagði Guðbjörg að platan
yrði umvafin exótískum áhrifum
og væri ferðalag um ímynduð höf
og heimsálfur. Blaðamaður spyr
hana hvort það eigi enn við um
plötuna?
„Já, hún var samin þegar My
var í Svíþjóð að vinna sem lest-
arstjóri í hjáverkum og ég var á
Íslandi og við söknuðum þess að
fara á ævintýralegar slóðir og
spila saman. Lögin voru skrifuð
út frá þessari löngun eftir hlýju
og hita, að komast burt frá þess-
um kalda, skandínavíska vetri.“
– Fjalla textarnir um þessa
löngun?
„Já, þetta eru ferðalög um ým-
islegt, t.d. blóm, ávexti og ástríð-
ur. Sögur af því sem gerðist og
gerðist ekki,“ svarar Guðbjörg.
Skandinavísk og
bandarísk þjóðlagahefð
Guðbjörg segir tónlist My
Bubba mikið „inn við beinið“ og
að textarnir séu í forgrunni.
„Við erum í raun að vísa í þjóð-
lagahefðir, blanda saman skandin-
avískum vísum sem við ólumst
upp við. My ólst líka upp í Banda-
ríkjunum þannig að við vísum líka
í þjóðlagahefðina þar. Þetta snýst
um að segja þessar sögur sem
lögin eru, textarnir eru ljóð sem
eru sungin og við höldum útsetn-
ingunum einföldum til að radd-
irnar og textarnir haldist í for-
grunni. Þetta er mínímal en samt
marglaga,“ segir Guðbjörg.
Kynntust Rice í Vesturbæjarlauginni
My Bubba heldur tónleika með Damien Rice „Við höldum útsetningunum einföldum til að radd-
irnar og textarnir haldist í forgrunni,“ segir Guðbjörg í My Bubba um breiðskífuna Goes Abroader
Ljósmynd/Natalia Jimenez Restrepo
Í sundi „Við kynntumst honum í Vesturbæjarlauginni. Við fórum að spila tónlist saman, urðum vinir og svo kom í
ljós að við vorum að fara í tónleikaferð um Evrópu á sama tíma og hann spurði hvort við vildum ekki spila með hon-
um,“ segir Guðbjörg Tómasdóttir sem hér sést, hægra megin, með Rice og My Larsdotter í Brussel.
Frekari upplýsingar og fréttir af
My Bubba má finna á heimasíðu
dúettsins, ohmybubba.com.
Hlýlegt Umslag annarrar breið-
skífu My Bubba, Goes Abroader.
Tvær sýningar verða opnaðar í
Gerðarsafni klukkan 15 í dag, laug-
ardag. Á efri hæð safnsins er sýn-
ingin „Hughrif“ með verkum eftir
Hólmfríði Árnadóttur. Hún sýnir
annars vegar pappírsverk frá fyrri
hluta ferils síns, unnin með bland-
aðri eigin tækni og öll með vatns-
uppleysanlegum, vönduðum, ljós-
ekta litum. Hins vegar nýrri
textílverk, ýmist handofin úr ís-
lenskri ull eða silki, með einskeftu
eða vaðmáli. Verk Hólmfríðar eru
einföld og hrein en án upphafn-
ingar eða alvarleika. Hólmfríður
lauk kennaraprófi frá Handíða- og
myndlistaskólanum og vann að
menntamálum allan sinn feril.
Sýning Jóns B. K. Ransu ber heit-
ið „Óp/Op“ og sýnir verk unnin eft-
ir fyrirmyndum sem tengjast kenn-
ingum franska sálfræðingsins
Jacques Lacan og táknmyndum
Edvards Munch og Alfreds Hitch-
cock. Auk þess að sýna verk reglu-
lega hefur hann skrifað bækur,
fjölda greina og gagnrýni, auk þess
að vera sýningarstjóri.
Hólmfríður og Jón
B.K. Ransu sýna
Pappírsverk „Esjan fjallið mitt,“
eftir Hólmfríði Árnadóttur.
Morgunblaðið/Þórður
Málarinn Jón B. K. Ransu sýnir
verk undir áhrifum af texta Lacan.
7
7
BRÁÐSKEMMTILEG
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Ísl. tal
-H.S., MBL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
16
L
L
DUMB & DUMBER TO (laugard) Sýnd kl. 2, 4:15, 5, 8, 10:20
DUMB & DUMBER TO (sunnud) Sýnd kl. 2, 4:15, 8, 10:20
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 8, 10:30
JOHN WICK Sýnd kl. 10:10
BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 5:50, 8
KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 2, 3:50
SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 1:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
-T.V. - Bíóvefurinn.is
Hörku spennumynd
Keanu Reeves
MARGUR ER
KNÁR
ÞÓTT HANN SÉ
SMÁR...