Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 67

Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 67
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1100 Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. Óríental hefur leitt þúsundir Íslendinga um ævintýraslóðir Suðaustur-Asíu síðastliðin níu ár. Reynsla okkar og þekking á Asíu er einstök meðal íslenskra ferðaþjónustuaðila. Flogið með Thai Airways og Icelandair. Toppflugfélög og góðar tengingar tryggja ánægjulegt flug. Innifalið: Flug, gisting með morgunverði, íslensk fararstjórn og fimm daga skoðunarferðir um eyjuna með hádegisverði og aðgangseyri að öllum viðkomustöðum. Athugið að sætaframboð er takmarkað. Fyrstu fimm dagana verða daglega skoðunarferðir á dagskrá. Farið verður vítt og breitt um eyjuna, á milli hofa hindúa og afskekktra þorpa, tígulegra fjalla og glæsilegra halla. Síðustu fimm næturnar verður dvalið í vellystingum í strandbænum Sanúr. Sjálfur bærinn er heillandi með fjölbreyttri þjónustu og augljósum merkjum um menningu og mannlíf heimamanna. Fjöldi valfrjálsra ferða í boði fyrir þá sem enn þyrstir í að kanna þetta ævintýraland betur. MOGGAKLÚBBURINN 30% AFSLÁTTUR AF PÁSKAFERÐ TIL BALÍ MEÐ ÖRNÓLFI ÁRNASYNI 12 daga ferð (en einungis 6 virkir vinnudagar). Brottför 26. mars og heimkoma 7. apríl. Ævintýralegur leiðangur til Balí í tveimur hlutum. Fyrstu fimm dögunum er varið uppi á miðri eynni, í Ubud sem hefur mest segulmagn allra bæja á Balí fyrir þá ferðamenn sem vilja kynnast sérstæðri menningu, listum og trúarsiðum þessarar paradísareyjar. Frá Ubud er stutt til flestra fegurstu og forvitnilegustu staða á Balí og verður farið í daglegar kynnisferðir þaðan. Seinni fimm dögunum verður eytt í vellystingum í Sanur, einum frægasta strandbæ Balí. Þá daga eru ótal valfrjálsar ferðir í boði. Verð 569.000 kr. Moggaklúbbsverð 398.300 kr. Suðurlandsbraut 22, 4. hæð Sími 553 28 00 oriental@oriental.is www.oriental.is Fararstjóri er Örnólfur Árnason. Örnólfur gerði eftirminnilega útvarpsþætti sem fluttir voru á Rás 1 í sumar og nefndust Mannlíf við miðbaug. Í þáttunum kom hann við í Malasíu, á Jövu, Singapúr og Balí og sagði skemmtilega frá menningu, náttúru og mannlífi þessara forvitnilegu staða. Örnólfur er einn af reyndustu fararstjórum Íslendinga. Hann hefur auk þess á undan- förnum árum flutt í Ríkisútvarpinu tugi fróðlegra og skemmtilegra þátta um kynni sín af Suður-Evrópu, Norður-Afríku, Suður- Ameríku og nú síðast Suðaustur-Asíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.